Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975
Sigur krlstilegra demókrata
ingunnm vekur mikla athygli
Bonn, 10. marz.
Reuter — AP.
ÓTVÍRÆÐUR sigur Kristilega
demókrataflokksins í fylkiskosn-
ingunum I Rhineland-Palatinate í
V-Þýzkalandi um helgina hefur
vakið mikla athygli og segja
fréttaskýrendur að ljóst sé, að
Phnom Penh, 10. mars.
AP. Reuter.
RÚMLEGA fimmtíu eldflaugar
féliu í dag á flugvöllinn Pochen
tong hjá Phnom Penh og 13 á
borgina sjálfa og fimm biðu bana
á flugvellinum en 22 særðust, og
þrír féllu í borginni en sjö særð-
ust.
Flugvél af gerðinni DC-3 eyði-
iagðist, DC-4-flugvél laskaðist en
bandarfskar flugvélar héldu
áfram flutningum á hrfsgrjónum,
helzta ástæðan fyrir ósigri jafnað-
armanna sé ótti almennings við
tilslökun við hryðjuverkamenn
og minni harka f að halda uppi
lögum og reglum. Þetta kemur
nokkuð á óvart, því að ákvörðun
stjórnvalda að sleppa stjórnleys-
ingjunum 5 úr haldi til að tryggja
skotfærum og eldsneyti og urðu
ekki fyrir tjóni.
Þetta eru hörðustu árásirnar
sem hafa verið gerðar á flugvöll-
inn og í fyrsta skipti var mest
megnis beitt bandarískum skot-
færum, sem uppreisnarmenn
hafa tekið herfangi, í árásunum.
Jafnframt hefur enginn veru-
legur árangur orðið af víðtækum
aðgerðum til að hreinsa svæðið
norðan við flugvöllinn samkvæmt
heimildum í kambódíska hernum,
frelsi Peter Lorenz naut almennt
stuðnings V-Þjóðverja.
Kristilegi demókrataflokkur-
inn, sem er hægri flokkur fékk
hreinan meirihluta i kosningun-
um á sunnudag, fékk 53,9% at-
kvæða, hafði áður 50%. Jafnaðar-
mannaflokkurinn fékk 38,5%
og 20 stjórnarhermenn hafa fallið
síðan þær hófust fyrir nokkrum
dögum.
20 brezkir þegnar og nokkrir
Ástralíumenn, Ný-Sjálendingar,
Malaysíumenn og Singaporemenn
verða fluttir frá Phnom Penh
með flutningaflugvél af gerðinni
C-130 Hercules á morgun. Banda-
ríkjamenn hafa enn flugvélar og
herskip til taks til að flytja burtu
bandaríska þegna ef borgin
fellur.
Um helgina þrengdi svo að
Phnom Penh að orðrómur var á
kreiki um að borgin mundi falla
þá og þegar. Lon Nol forseti fór
þá með blaðamenn og ljósmynd-
ara um borgina til að sýna að
stjórnarherinn réði við ástandið.
Andstaða gegn Lon Nol fer
harðnandi meðal þingmanna,
embættismanna og yfirmanna
hersins og svo getur farið að hann
verði neyddur til að segja af sér
samkvæmt góðum heimdildum.
Margir telja daga marskálksins
talda og segja að spurningin sé
aðeins hvenær hann láti af völd-
um og hvernig, með byltingu eða
ekki.
1 Washington skoraði Hugh
Scott, leiðtogi repúblikana í öld-
ungadeildinni, á Bandarikja-
stjórn að beita öllum þeim þrýst-
ingi er hún réði yfir til að koma
til leiðar breytingu á stjórn
Kambódíu og tryggja öryggi
flóttamanna, sem hætt væri við að
yrðu myrtir.
Framhald á bls. 35
hafði 40,4%. Frjálsir demókratar
fengu 5,6% atkvæða. Hins vegar
segjá fréttaskýrendur að lítið tap
jafnaðarmanna megi túlka sem
traustsyfirlýsingu á samsteypu-
stjórn þeirra og frjálsra demó-
krata undir forsæti Schmidts
kanslara. Jafnaðarmenn töpuðu i
fylkiskosningum í fyrra og borg-
arstjórnarkosningum í V-Berlín
um siðustu helgi 3—8% miðað við
síðustu kosningar.
Skoðanakönnun, sem birt var í
Bonn í dag gefur til kynna, að
kristilegir demókratar myndu fá
46% atkvæða í þingkosningum, ef
þær færu fram í dag, á móti 43%
fyrir jafnaðarmenn og frjálsa
demókrata. Skoðanakönnun þessi
var gerð daginn, sem ræningjar
Peter Lorenz slepptu honum úr
haldi, en sérfræðingar í skoðana-
könnunum segja að þessar niður-
stöður séu ekki mjög áreiðanleg-
ar, þar sem svo mikill fjöldi,
þeirra sem spurðir voru, voru
óákveðnir. Annars segja stjórn-
Washingtorl, 10. marz. AP.
BANDARÍSKUM sjómönnum gremst
svo aukin ágangur erlendra fiski-
skipa á miðum sínum að þeir búa sig
undir að taka lögin i sinar hendur og
margir þeirra eru jafnvel farnir að
vopnast.
Sjómenn sem veiða humar undan
strönd Maine á Nýja Englandi hafa
alltaf meðferðis kraftmikla riffla í
veiðiferðum sínum og alvarleg hætta
er á því að þeir beiti þeim.
Þetta kom fram þegar fjórir þing-
menn frá strönd Atlantshafs og
Kyrrahafs báru vitni við yfirheyrslu í
þeirri nefnd fulltrúadeildarinnar sem
fjallar um fiskveiðar og verndun
dýralifs.
Þingmennirnír vöruðu við því að ef
fiskveiðilögsagan yrði ekki færð út,
að minnsta kosti þangað til alþjóð-
legt samkomulag næðist í landhelg-
ismálum, gæti dregið til alvarlegri
tiðinda sem gætu orðið að millirikja-
máli.
Þingmaðurinn William S. Cohen,
republikani frá Maine, sagði að hum-
arsjómenn frá Nýja Englandi bæru
Helmut Kohl, formaður Kristi-
lega demókrataflokksins.
málafréttaritarar að nokkrir dag-
ar muni líða áður en hægt verður
að gera sér grein fyrir hvað úrslit-
in í kosningunum þýði i raun og
veru í v-þýzkum stjórnmálum.
Flestir eru þó sammála um að
úrslitin nú séu mikill sigur fyrir
Helmut Kohl, formann Kristilega
demókrataflokksins.
riffla vegna þess að erlend fiskiskip
eyðilegðu fyrir þeim veiðarfæri eða
skemmdu þau og að þessi skip
veiddu oft fast upp að tólf mílna
landhelgismörkunum.
„Þessir fiskiskipaflotar líkjast
helzt geysimiklum borgarljósum í
náttmyrkrinu," sagði Cohen. Hann
sagði að auk þess sem fiskiskip frá
Sovétríkjunum og fleiri löndum
skemmdu veiðarfæri eyddu þeir fisk-
stofnum og skelfiskstofnum og væru
valdir að efnahagslegu öngþveiti á
þessum slóðum.
Gerry E. Studds, demokrati frá
Massachusetts, kvað það „gífurlega
hættulegt ástand" að áhafnir banda-
rískra fiskiskipa væru nú að vopnast.
Hann er flutningsmaður eins af 19
frumvörpum um landhelgismál er
liggja fyrir nefndinni. Samkvæmt
flestum þessum frumvörpum á að
færa út lögsöguna I 200 sjómílur,
annað hvort þar til alþjóðlegt sam-
komulag næst eins og Stud gerir ráð
fyrir eða fyrir fullt og allt. Jafnframt
yrði fjöldi fiskiskipa er veiða innan
Framhald á bls. 35
Hungruð börn f Phnom Penh bfða eftir að mat sé dreift til þeirra. Svipur þeirra lýsir
hörmungum þjóðarinnar.
Hörðustu árásirnar á
Phnom Penh til þessa
Grípa bandarískir
sjómenn tii vopna?
Sameiginleg afstaða jafnaðarmanna og borgarflokkanna:
Alger nauðsyn að koma í veg
fyrir verkföll og verkbönn
Kaupmannahöfn, 10. marz, frá Braga Kristjónssyni.
I kvöld fer fram i danska þjóðþinginu þriðja og síðasta umræða um
tillögur ríkisstjórnar jafnaðarmanna um íhlutun ríkisvaldsins I samninga
vinnumarkaðarins. Það er jafnframt Ijóst, að tillögurnar verða samþykktar
með miklum meirihluta atkvæða.
Með tillögum ríkisstjórnarinnar eru auk flokks jafnaðarmanna Venstre,
Radikale Venstre, íhaldsflokkurinn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og mið-
demókratar, samtals 1 34 atkvæði.
Á móti eru Sósialski þjóðarflokkurinn, kommúnistar, vinstri sósíalistar
og væntanlega Framfaraflokkur Glistrups. í kvöld lýsti Glistrup lögmaður
þvi yfir, að það væri ábyrgðarlaust athæfi eftir samfleytt 20 klst
fundarsetur í nefndum og þingsal að láta syfjaða og þreytta þingmenn
samþykkja svo umfangsmiklar efnahagsaðgerðír, þar sem ekki væri að
vænta neinna verkfalla fyrr en eftir tíu daga.
Valdahlutföllin á þjóðþingi Dana
eru þannig eftir síðustu þingkosn-
ingar, að svokallaðir borgaraflokk-
ar hafa meirihluta. Það hefur hins
vegar ekki heppnast fyrir þessi öfl
að ná samkomulagi um stuðning
við starfhæfan meirihluta, sem
styddi ríkisstjórn þessara flokka.
Þess vegna hraktist Hartling frá
vötdum og núverandi forsætisráð-
herra, Anker Jörgensen, myndaði
minnihlutastjórn sína, sem ein-
göngu nýtur stuðnings flokks jafn-
aðarmanna. Það eru því nokkuð
gráglettin örlög. að sósialiskur
flokkur, sem flokkur jafnaðar
manna hlýtur að teljast, skuli
verða til þess að taka ráðin af
aðiljum vinnumarkaðarins og
leggja fram lagafrumvörp, sem
verkalýðshreyfingin og opmberir
starfsmenn hafa lagzt eindregið
gegn siðan þau voru lögð fram sl.
föstudag.
Tillögur rikisstjórnarinnar eru i
stórum dráttum eftirfarandi: Allir
kaup- og kjarasamningar milli at-
vinnuveitenda og verkalýðsfélaga
innan danska alþýðusambandsins
framlengjast til tveggja ára í sam-
ræmi við miðlunartillögu sátta-
semjara rikisins. Miðlunartillögu
þessari höfðu bæði atvinnurek-
endur og alþýðusambandið hafn-
að. Kaupgjaldsvisitalan færist nið-
ur úr 147 stigum i grunntöluna
100. f stað hlutfallslegra uppbóta
á laun kemur allt tímabilið föst
upphæð til allra launþega án tillits
til upphæðar launanna. Þau atriði,
sem aðiljar vinnumarkaðarins
höfðu náð samkomulagi um, áður
en samningarnir fóru út um þúfur,
verða felld inn i heildina. Hlið-
stæðir verða samningar þeirra að-
ilja, sem ekki eru innan framan-
greindra samtaka.
Vís stuðningur
90 þingmanna
Ákvæði um kaup og kjör opin-
berra starfsmana verða og i flest-
um atriðum samhljóða miðlunar-
tillögunni. Við fyrstu umræðu um
lagafrumvörp ríkisstjórnarinnar
kom það mjög skýrt fram, að með-
al borgaraflokkanna var eining
um, að eins og ástandið er nú í
dönsku atvinnulifi, sé það alger
nauðsyn að komást hjá stórvægi-
legum verkföllum og verkbönnum.
Þessir flokkar lögðu á það áherzlu,
að til þess að koma í veg fyrir
alvarleg skakkaföll, sem fyrst og
fremst myndu skaða framleiðslu
og útflutning landsins um langa
framtíð, yrði rikisstjórnin að grípa
inn i með fulltingi þjóðþingsins.
Tillögur rikisstjórnar jafnaðar-
manna fengu þó aðeins skilyrðis-
lausan stuðning Radikale Venstre
og Kristilega þjóðarflokksins.
Frummælandi flokks Hartlings,
fyrrverandi forsætisráðherra,
gagnrýndi stjórnina fyrir það, að
taka aðeins fyrir einn þátt þess
vanda. sem við væri að glima.
Hann benti á, að nauðsynlegt væri
að taka alla efnahagsmálastefnu
landsins til rækilegrar endurskoð-
unar i samhengi við kjarasamn-
inga vinnumarkaðarins. Framfara-
flokkurinn lagðist líka gegn tillög-
unum. En þótt svo færi, að bæði
flokkur Venstre og Framfaraflokk-
urinn myndu greiða atkvæði gegn
tillögum rikisstjórnarinnar eiga
þær samt visan stuðning meiri-
hlutans. Flokkar Radikale, íhalds-
manna, miðdemðkrata, Kristilega
þjóðarflokksins og ríkisstjórnar-
flokkurinn hafa samtals 90 þing-
menn af 1 79.
Það var álit þessara flokka i
umræðunum að algerlega væri
óverjandi að hleypa af stað alls-
herjarverkföllum eins og ástandið
væri f efnahagsmálum þjóðar-
innar. Frummælandi jafnaðar-
mannaflokksins i umræðunum,
Kjeld Olesen, lagði á það áherzlu,
að flokkur sinn væri I rauninni
algerlega mótfallinn ihlutun ríkis-
stjórnar og þings i samninga hins
frjálsa vinnumarkaðar. „En við
þær aðstæður sem nú rikja er
þetta nauðsynlegt," sagði hann.
„Allsherjar verkföll myndu stór-
skaða efnahag landsins um langa
framtíð og flokkur jafnaðarmanna
getur ekki setið hjá afskiptalaus
þótt það kunni að skaða hann
pólitískt um stundarsakir. Öll við-
Framhald á bls. 35