Morgunblaðið - 11.03.1975, Síða 36

Morgunblaðið - 11.03.1975, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975 Sjávarútvegsráðherra: Sölubeiðni skoðuð vandlega - ef útgerð- armenn vilja skipta í hagkvæmari skip Hvassafellsstrandið: Brezkur sér- fræðingur kannar að- stæður til björgunar ENGIN örugg skýring fékkst við sjópróf f gær á þvf, hvaó olli strandi Hvassafells við Flatey á Skjálfanda. Skýrslur voru teknar af skipstjóra, stýrimanni, háseta og tveimur vélstjórum. Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri skipadeildar SlS, sagði f gær að Samvinnutryggingar, sem hcfðu tryggt skipið, myndu í dag fá sér- fræðing frá Englandi, sem fara mun á strandstað og kynna sér alla aóstöðu. Þá sagðist Hjörtur hafa ástæðu til þess að ætla að tryggjandi farmsins, Brunabóta- félag tslands mundi senda sér- fræðinga norður til að kanna möguleika á að bjarga farminum. Samkvæmt upplýsingum Hjart- ar eru á annað hundrað tonn af oliu í skipinu. Hjörtur sagði að skípið myndi léttast mjög ef unnt yrði að ná 1.200 tonnum af áburði úr skipinu og olíunni, en mjög erfitt kvað hann þó að ná olíunni. Tvær tegundir olíu er í skipinu, venjuleg gasolía og létt brennslu- olía, sem er svipuð og sú olía, sem nú er verið að hvetja togara tii þess að nota. 1 þessu sambandi er vert að geta þess að þótt byggð hafi lagzt niður i Flatey, er þar mikið æðar- varp. Mbl. reyndi i gær að hafa tal af Hjálmari R. Bárðarsyni sigl- ingamálastjóra og spyrja hann Framhald á bls. 35 ísleifur VE blý- fastur á strandstað ALLAR tilraunir til þess að ná tsieifi frá Vestmannaeyjum af strandstað við Ingólfshöfóa í gær voru árangurslausar. Rétt fyrir klukkan 18 í gærkveldi var varð- skip að reyna að draga lsleif út, en allt kom fyrir ekki. Skipið var blýfast á strandstað. Guðmundur Jónsson um borð í Framhald á bls. 35 MATTHlAS Bjarnason sjávarút- vegsráðherra sagði f viðtali við Morgunblaðið f gær, að ráðuneyt- inu hefði ekki borizt erindi með ósk um sölu á neinum þeirra fimm 750 rúmlesta skuttogara, sem skýrt var frá í blaðinu á sunnudag, að rætt hefði verið um sölu á. Matthías sagði að ef um sölu úr landi væri að ræða, þyrfti sérstakt leyfi ríkisstjórnarinnar að koma til. Hann sagði að sér væri ekkert áhorfsmál, óskuðu eigendur skipanna að afla sér annarra skipa f þeirra stað, að slfk leyfi væru veitt og í stað kæmu togarar, sem útgerðar- menn teldu hentugri til útgerðar. Ef slík beiðni bærist, sagði Matt- hías að hún yrði skoðuð vandlega. Svo sem kunnugt er hefur ríkið ýmis tekið lán vegna kaupa á þessum togurum eða ábyrgzt lán. sem útgerðarmenn hafa fengið. Aðspurður um það, hvernig færi með verðbólguhagnað af sölu slíkra skipa og þá sérstaklega þeg- ar þess er gætt að rikið hefur lánað allt að 80% kaupverðs þeirra sagði sjávarútvegsráð- herra, að ef keypt yrðu ný skip yrði ekki um verðbólguhagnað að ræða, en óskuðu útgerðarmenn ekki eftir að kaupa ný skip f stað togaranna, væri alls ekki Ijóst, hvort veitt yrði söluleyfi. Þá sagði hann og að megnið af þeim lán- um, sem á skipunum hvíldu væru erlend og við gengisbreytinguna hefðu þau hækkað. Verðbólgu- hagnaður væri því ekki eins mik- ill og menn teldu. Við bættist og að mjög mikill hallarekstur hefði verið á útgerð þessara skipa allt síðastliðið ár. Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri Samverja h.f. í Grindavík, sem á Guðstein GK 140 kvað sölu togarans ekki hafa borið á góma meðal eigenda hans eða hvort skipta ætti um skip. Hitt kvað hann svo annað mál, að enginn rekstursgrundvöllur væri fyrir rekstri 750 tonna skipanna. Minni skipin kvað hann hins vegar koma mun betur út rekstrarlega séð og ALLAR Ifkur benda til þess að þeir aðilar, sem sjá um bensín- sölu á leiðinni milli Akureyrar og taldi hann það fyrst og fremst vegna þess að þau væru skrásett undir 500 rúmléstum og þvf leyfðu kjarasamningar að áhöfnin væri skipuð 15 mönnum i stað 25 á stærri skipunum. Við þetta kvað Einar hlut hvers manns á stærri skipunum rýrari og því væri starf á minni togurunum eftirsóknar- Framhald á bls. 35 I Reykjavíkur, muni hætta að selja bensfn f vor, þar eð þeir eru | óánægðir með þá álagningu, sem þeir fá á bensínið, en hún mun nú vera 3,57%. Magnús Gfslason, veitingamaður á Stað f Hrúta- firði, sagði í viðtali við Mbl. í gær, er það spurðist fyrir um þessi samtök, að álagningin á bensfnið nægði ekki einu sinni fyrir þeirri rýrnun, sem yrði við afgreiðslu. Magnús sagði að Leopold Jóhannesson hefði rætt síðastliðið haust við verðlagsstjóra um þessi mál. Sagði Magnús að verðlags- stjóri hefði visað til viðskipta- ráðuneytisins, sem aftur hefði vísað á olíufélögin. Þá hefði einnig verið rætt við viðskiptaráð- herra, sem hefði lofað að taka málið til athugunar. Magnús sagði að rætt hefði verið við flesta ben- sínsala fyrir sunnan Holtavörðu- heiði og nokkra norðan hennar og hefðu viðbrögð verið góð. Alls munu um 13 staðir selja bensín á leiðinni Reykjavik — Akureyri. Sáttafundur í dag ENGINN sáttafundur var haldinn f gær, en samkvæmt upplýsingum Torfa Hjartarsonar, sáttasemjara ríkisins, er boðaður fundur f dag og hefst hann árdegis klukkan 10. ..Hittir mig líka og þá sem stóðu að samþykktinni” — segir Snorri Jónsson um árás Þjóðviljans á forseta ASI t Þjóðviljanum sl. sunnudag birtist forystugrein eftir Magn- ús Kjartansson, þar sem Björn Jónsson, forseti ASt, er harð- lega gagnrýndur fyrir ummæli f viðtali við Morgunblaðið sl. miðvikudag á þá leið, að verka- lýðshreyfingin teldi vafasaman hagnað af þvf að fá alla kjara- skerðinguna bætta í einum áfanga og að verkalýðssamtök- in mundu hugsa sig um tvisvar, jafnvel þótt það yrði boðið fram. Af þessu tilefni hefur Morgunblaðið snúið sér til þriggja forystumanna f verka- lýðshreyfingunni, þeirra Snorra Jónssonar, varaforseta ASl, Eðvarðs Sigurðssonar, for- manns Dagsbrúnar, og Björns Bjarnasonar hjá Iðju og spurt þá, hvort það sé þeirra skoðun, að það sé rangtúlkun á stefnu ASI miðað við ályktun kjara- málaráðstefnunnar að stefna eigi að þvf að fá kjaraskerðing- una bætta í áföngum. Svör þeirra fara hér á eftir en þess skal getið að f ályktun kjara- málaráðstefnunnar segir m.a. svo: „ ... heldur verði nú að stefna að settu marki um að ná fram 1 ÁFÖNGUM kaupmætt- inum eins og hann var eftir sfðustu samninga og verði hvert tækifæri notað til þess.“ Svör verkalýðsforingjanna fara hér á eftir: Björn Bjarnason, formaður Landssambands iðnverkafólks svaraði spurningunni algjör- lega neitandi, ályktunin mælti svo fyrir um að ná ætti kjara- skerðingunni aftur í áföngum. Hann sagði að á ráðstefnunni hefði verið mjög deilt um þetta atriði, hvort orðin ,,í áföngum“ hefðu átt að standa í ályktun- inni og hefði yfirgnæfandi meiri hluti ráðstefnunnar verið á þeirri skoðun, að þau skyldu standa. „Þar með er slegið föstu,“ sagði Björn, „að okkar verkefni er að semja um þetta í áföngum. Það liggur enginn vafi á þeirri túlkun." Snorri Jónsson framkvæmda- stjóri ASt sagði að það væri síður en svo sín skoðun, að það væri rangtúlkun, að ná ætti aft- ur kaupmættinum í áföngum. „Ég stóð að samþykkt hennar eins og langmestur meiri hluti þeirra, sem ráðstefnuna sóttu,“ sagði Snorri og er hann var spurður að þvi, hvort honum fyndist ómaklega vegið að Birni Jónssyni í ritstjórnargrein Þjóðviljans síðastliðinn sunnu- dag, svaraði Snorri: „Já, ég verð að segja það — mér finnst þetta ekki nógu gott. Mér finn- ast þess ummæli hitta mig líka og þá sem stóðu að samþykkt ályktunarinnar.“ Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannasambands tslands kvað ekkert vafamál, að tak- markið væri að ná kjaraskerð- ingunni aftur í áföngum. „Það er sagt berum órðum í ályktun- inni og vitandi vits,“ sagði Eð- varð Sigurðsson. Verður bensínsölu hætt á norðurleið?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.