Alþýðublaðið - 02.09.1958, Qupperneq 1
:Í:5ííS:S
'^Xsss»' '■ v------
llliiiPI
Hér eru myndir, sem Ijósmyndari Alþýðu blaðsins tók á \1»stfjafðamiðum í gær-
morgun. E:3sta miyndin er af fteigátunni „Russell“ (til hægri) og Óðni. Þá er mynd
af varðbátnum Albert, hún er tekin skam mt fyrir norðan Látrabjarg og loks en
íandhelgisbrjótur stai'íinn að verki. Takið eftir númerinu. Skrásetningarmerki allra
togaranna, sem fóru inn fyrir nýju línuna, eru nii í vörzlu lar.dhelgisgæzlunnar.
GUÐMUNDUR í. Guðmundsson utanríkisráð-
'ierra flutti í gær ambassador Breta á íslandi harð-
orð mótmæli gegn þeim ofbeldisaðgerðum, sem brezk
herskip hafa gert sig sek um, með því að hindra ís-
lenzk varðskip í að leysa af hendi skyldustörf sín.
Utanríkisráðherra flutti ræðu í útvarpið í gærkvöldi,
bar sem hann skýrði frá mótmæiunum og rakti gang
málsins.
í lok ræðu sinnar í útvarp-
inu j gærkvöldi sagði utan-
ríkisráðherra m. a.'
„t júnímánuði fór fastafull-
tnúi íslands hjá Atlant.shafs-
bandalaginu á ný til Parísar og
hóf þá á ný viðræður um mál-
iö. Beindust allar umræður að
því að fá viðurkenningu. á 12
tnílna útfærslunni. Þrátt fyrir
itarlegar umræður og mikla við
leitni báru þessar tilraim'ir
ekki árangur. Það kom hins-
vegar fram, að ýmsír töldu sig
hafa aðrar tillögur að gera, sem
leyistu málið á fullnægjandi !
hátt. Af íslands hálfu var bví
lýst yfir, að við værum rsiðu- :
búnir að hlýða á þesaer tiliög-
ur og gera grein fyrir afstöðu
ckkar til þeirfa. Þetta leiddi til :
þess, að fram komu tvær hug-
rnyndir að lausn á málinu.
Fyrri hugmyndin gerði ráð
fyrir því, að fallið yrði frá út-
fæ-rslunni í 12 mílur, en þess i 1
stað skyldu koma aðrar ráðstaf
anir. Lagt var til að alfriða fyr!
I ir togveiðum allt landgrunnið |
1 sunnan Reykjaness frá Geir- j
Framhald á 3. síðu.
EINS og brezku ríkisstjórn-
inni er kunnugt gekk í dag í
gildi reglugerð frá 30. júní s. 1.
uni fiskveióilandhelg'i íslands.
Samkvæmt 2. grein regluger'ö
arinnar eru erlendum skipimi
bannaðar allar veiðar innan1
liinnar ný;iu fiskveiðilandhelgi
eins og nánar greinir í 1. grein
hennar.
Við höfum undanfarnar xdk- :
ur hlustað á hótanir brezkra
úigerðiarmanna um að virða
ekki íslenzkar reglur um fisk-
veiðiiögsögu og ekki viljatf
leggja trúnað á, að brezk
stjórnvöld stæðu að baki þess-
Guðmundur í- Guð'mmidsson,
utanrikisráðherra.
i
um hótunum, en nú hefur kom
ið í Ijós, að brezk herskip liafa
í dag varnað íslenzkum varð-
skipum að stöðva brezkan tog-
ara, sem brotið hafði íslenzk
lög.
Ríkissijórn ísiands mótmæl-
ir harðlega þessum aðförum
brezks herskips sem broti á
íslenzkum lögum og íslenzkri
friðhelgi og krefst þess, að
hinum brezku herskipum verði
fyrirskipað að láta af aðgerð-
um sínum.
Ríkisstjórn íslands áskilur
sér einnig allan réít vegna
framangreinds atviks.
•«■ ,,
s sss
.. ,.s- • • >;
: :
'___________V