Alþýðublaðið - 14.08.1920, Page 1
Alþýðublaðið
Grefið út af AlþýÖuflokknum.
1920
Laugardaginn 14. ágúst.
184. tölubl.
Islandsbanki.
Hvers vegna það er nauðsyn-
iegt að hann hverfí úr sögunni.
Undanfarna daga hefir verið
sýnt fram á það hér í blaðinu, að
nauðsynlegt sé að landsstjórnin (ef
nokkur stjórn er í landinu) taki
fram fyrir hendurnar á Fiskhringn-
um og Íslandsbanka, og ráði fram
úr peningamálunum með það fyr-
ir augum að hinu almenna við-
skiftalífi verði borgið, án tillits til
þess hvað gróðabrallsmenn þeir
sem í Fiskhringnum eru, álíta sér
fyrir beztu, og án tillits til þess
hvað er gróðavæniegast fyrir hina
útlendu hluthafa íslandsbanka, og
hína fáu íslenzku attaníossa hans,
sem í upphafi vegar bankans var
troðið hlutabréfum í, til þess þeir
ýrðu bankanum fylgjandi (svo sem
þeir og dyggilega hafa verið).
Landsstjórnin hefir í hendi sér
að knýja fram vilja sinn gagnvart
bankanum, og þar með Fiskhringn-
um, eigi sízt fyrir það að bankinn
hefir hvað eftir annað brotið af
sér öll Iög, með því í mörgum
greinum að skeyta leyfislögunum
■ekki meira en væru þau alls ekki
til. Má þar til dæmis nefna að
bankinn hefir aðeins haft um 3/4
*nilj. kr. í gulli hér á landi til
byggmgar seðlafúlgu, sem numið
hefir á annan tug miijóna krónal
Ennfremur má nefna það, að bank-
inn hefir méð skökkum reikning-
Um (sumir mundu kalla það föls-
uðum reikningum) haft af lands-
sjóði svo þúsundum króna skifti,
sem koma hefðu átt í landssjóð-
iun fyrir seðlaútgáfu bankans.
En eins og sagt hefir verið áð-
ur hér í blaðinu, þá er þetta ekki
«óg. Með gömlum og nýjum Iaga-
brotum, með vandræðum þeim
sem bankinn hefir leitt landið í
bieð því að lána innstæðufé al-
niennings til fiskbrasks, og með
þeirri smán sem bankinn hefir
leitt yfir íslendinga með því að
verða þess valdandi að íslending-
ar nú f fjármálum etu settir á bekk
með Hund-Tyrkjanum, hefir bank-
inn unnið sér svo margfalt óhelgi,
að óhæfa væri að láta hann halda
áfram.
En það er líka annað, sem ger-
ir það að knýjandi nauðsyn, að
Iandið taki nú við bankanum, og
það er að bankinn fái ekki tæki-
færi til þess að leika landsmenn
eins grátt og hann gerði 1907.
Hver efast um að íslandsbanki
muni fara eins að núna eins og
þá? Hver efast um það, að það
verði hagsmunir hluthafanna sem
ráða, en ekki hagsmunir þeirra
sem lán hafa fengið í bankanum?
Hver efast um það, að íslands-
banki setji viðskiftamenn sína
unnvörpum á höfuðið, ef svo ber
undir að það er fremur hagur fyr-
ir hluthafana, eða að bankastjór-
arnir eða þeir fjármálamenn úti í
Danmörku, sem þeim stjórna; að-
eins halda að hagsmunir hluthaf-
anna séu bezt trygðir á þann hátt?
Fum og fljótfærni hefir einkent
íslandsbanka þegar eitthvað hefir
á bjátað, samanber það þegar
bankastjórnin til þess að græða
nokkur hundruð krónur handa
bankanum, seldi lóðina fast upp
að gluggum bankans. Og sama
fljótfærnin lýsti sér nú um daginn
í því þegar bankinn auglýsti er-
lendis, að hann léti ekki innleysa
sína eigin seðla, en það verk eitt,
sem var alveg óþarft, er nóg til
þess að hnekkja fjárhagsáliti lands-
ins um langan tíma.
Hagsmunir þjóðarinnar krefjast
þess, að íslandsbanki eigi þess
engan kost, að ganga að við-
skiftamönnum sínum, en það verð-
ur bezt trygt með því að landið
taki við seðlaútgáfurétti bankans
og viðskiftum hans. Um hlutafé
bankans má fara eins og sýnt var
fram á í gær, þegar Ijóst er orðið
að landið tapi ekki á þeim við-
skiftum, sem það tekur við af
bankanum.
Sprengiduflin
við Langánes,
Svohljóðandi upplýsingar hefir
Alþbl. fengið hjá vitamálastjóran-
um, hr. Th. Krabbe:
Varðskipið »Beskytterenc er
nýkomið til Siglufjarðar aftur,
hefir verið vjð Langanes, á svæði
20 sjómílur norður og austur af
nesinu, og þar haft tal af 16
skipum og jafnframt af mönnum
á landi. Enginn hefir orðið var
við sprengidufl þar nú í viku,
nema 1, sem sást 45 sjóm. suð-
austur af Langanesi. Líkur eru til
að duflin hafi rekið suður á bóg-
inn. Hætta mun sem stendur vera
lítil á svæðinu um Langanes, en
hugsast getur að dufl verði á
næstunni á sveimi fyrir austan og
sunnan land, og eru sjómenn því
aðvaraðir um, að fara gætilega,
og um fram alt koma ekki við
dufl, sem þeir kunna að sjá, held-
ur tilkynna sýslumanni það sem
fyrst.
Landsþingskosningarnar
dönsku.
Landsþingskosningarnar dönsku
hafa, samkv. skeyti frá sendiherra
Dana hér, farið á þessa leið:
Vinstri fengið 31 (höfðu áður
26), jafnaðarmenn 19 (höfðu 15),
íhaldsmenn 14 (höfðu 13), radi-
kalafl. 8 (höfðu 13). Auk þessa
voru kosnir tveir utanflokka íhalds-
menn.
Meðal þeirra er hlutu kosningu
eru 8 konur; þar af eru 4 í vinstri-
flokknum, 2 í jafnaðarmfl. og ein
í hvorum hinna flokkanna.
Munktells T. er sýndur frá kl.
1 f dag við hliðina á Botnfu. Vér
ráðleggjum vélamönnum fastlega
að skoða hann.