Alþýðublaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 1
Rán", flugvél landhelgisgæzlunnar, reiðubúin til flugs.
Krafa utanríkisráðherra:
Varðskipsmenn eru
enn fangar Brefa.
I G'ÆRDAG var vitað um 24 brezka landhelgisbrtóta við
strendiir íslánds. Ekki kom þó til teliandi árekstra milli þeirra
og ídenzku landhelgisgæzlunnar, nema hvað varðskipið ..Al-
bert1' og brezkur togari rákust á, eins og nána.r segir frá hér
á cftir. Yfirleitt virðast togarask pstjórar óánægðir með að
þurfa að halaa sig á ákveðnum svseðum, enda sáralítil veiði
á þeim.
I fyrrinótt hafði brezka eftir-1
litsskipið „Pallisser“ þann hátt
á, ,að senda ,,sána“ togaia út
fyrir 12 sjómílna takmörkin
meðan dimmt var. Voru þeir
togarar á nyrðra svíeðinu fvr-
ir Vestfjörðum. Hins vegar lét
„Russell“ sér nægja, að safna
to-gurum á syðra svæðinu fvr-
ir Vesturlandi, saman í hóp og
hélt eftirlitsskipið sig í miðj-
um hóp. Lét yfirmaður „Russ-
ell“ svo um mælt við togara-
skipstjóra, að hjálp mundi ber-
ast á 2—3 mínútum, ef á þyrfti
afl halda! Voru togaramenn
fremur taugaóstyrkir um nótt-
ina, enda sannast þar máltæk-
ið, að „illur á sér ills von“.
FRÁ LANDHELGfS-
GÆZLUNNI.
nú aðallega út af Arnarfirði.
Eru þeir þar 9 saman undir
vernd herskipsins „Russell“. —•
Brelinn heifir
framhaldi,
FORMÆL.ANDI brezka
flotamálaráðuneytisins lýsti
því yfir í gær, að haldið
yrði áfram að verja brezka
togara á miðunum við Is-
land. — Kvað hann brezk
stjórnarvöld 1-eiðubúin tii
þess að semja um takmark-
| anir á fiskveiðilandbelginni,
en mundu ekki viðurkenna
einhliða útfærslu þeirra.
r
ÞJÓÐVÍLJINN heldur af mikilli kostgæfni
áfram þeirri iðju að ráðast með gífuryrðum á
Guðmund í. Guðmundsson utanríkisráðherra.
Samtímis gerir hann látlausa hríð að forystu-
mönnum Sjálfstæðisflokksins og reynir eftir
beztu getu að koma á þá — alla sem einn —
stimpli landráðamannsins.
Alþýðublaðið lýsir yfir óbeit sinni og and-
styggð á þessari hatursherferð.
Alþýðublaðið beinir í fullri alvöru þeirri ósk
til blaðamanna Þjóðviljans, að þeir taki sér hvíld
frá pólitískum áróðursstörfum.
Utanríkisráðherra — maðurinn, sem atburðir
líðandi stundar mæða mest á — hefur tekið of-
sóknunum með stillingu. Aiþýðublaðið hefur
forðazt að svara óhróðursmönnunum.
Blaðið vill enga aðild eiga að því, að land-
helgismálið fái á sig pólitískan blæ.
Um þetta mál á þjóðin að standa sem ein
fylking.
Landhelgismálið á að vera og verður að vera
hafið yfir illdeilur, ónot, aðdróttanir — og sjúk-
legt hatur.
Alþýðuhlaðið skorar á blaðamenn Þjóðvilj-
ans : Látið af áróðrinum!
Alvara stundarinnar leyfir ekki svona
vinnubrögð.
GUÐMUNDUR I. GUÐ-
MUNDSSON utanríkis-
ráðherra krafðist þess í
gær í viðtali við ambassa-
dor Breta í Reykjavík, að
íslendingarnir, sem hafð-
ir eru í ha'ldi um borð í
freigátunni Eastborne,
verði settir um borð aftur
í togarann North. Foam.
Elftirfarandi fréttatilkynn-
ing barst í gær frá utanríkis-
ráðuneytinu:
„Ambassador Breta hefur í
dag afhent utanríkisráð'herra
Guðmundi I. Guðmundssyni
tvaer mótmælaorðsendingar út
af deilunni um fiskveiðiland-
helgina.
Fyrri. orðsend'ngin er mót-
mæli Breta gegn afskiptum
landihelgisgæzluhnav af togar-
anum Nort'hern Foam. Í3tinga
Brétar í orðsendingunni úpp á
því, að þeir skili íslendingun-
um, sem teknir voru úr togar-
anum, um borð í íslenzkt skip
á rúmsjó, og biðjast svars ut-
anríkisráðuneytisins vjo þeirri
uppásutngu eða óiska. annarrar
iillög'u frá ráðuneytínu í því
sambandi.
Utanríkisráðlherra gaf sendi-
herranum það svar, að hann
knefðigt þess að Íslendingarn'.r
vrðu settir um bcrð í Northern
Foym sem þeir hefðu veriö a.ð
handtaka a3 morgni 2. septem-
ber, svo að þeir gætu fram-
Framhald á 5. síðn.
Hér fer á eftir fréttatilkynn
ing, seni' landheigisgæzlan
sendi blaðinu síðdegis í gær:
„Brezku landhelgisbriótarn-
ir fyrir Vestfjörðum halda sig
Við Horn eru þrír brezkir tog-
arar að veiðum innan landhelgi.
Fyrir au/stan eru 12 brezkir
Framhald á 2. síðu.
-þ i. .::
oc
•• .fl. x Wroicr ur»*(í51<líort)
.bíröx « to’vO«*«> Ji
J•>*>.
t<t » rx/iwoloo-tí («1
Wí •» *Xl>t 'iplb
yjCJiiJd.iÚJJPÚlKt *<»•>*
ÍSLANDS
SiíaskoíH::
tÍT,
RxfctfeU* *r, 91
kh
Atbiqp«»eoKJJ|l:
m
aií f !
3 S ;
iii-i
HR4BSKOTI
OAPTAIS AHJifRSOS ms ÆASITBSKHE
mvw ArrftEGjATB HsrujavaáJiE ootrscr
w3slls§ihö xcsi,ai©bsb
ABOAftD ÍOlifv VBS3SL SISSSB ffif fRAi’f-
Kfc ti SSf JÓfíiSOK SSCOHD tU.t£ TÍÍOH
aEXKJAVXf
NítítJ <tt twtuittj xend*ö4« Ot *fe»v
jú. »k*t íot«V SfertÍJt frcbtUx**,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ sendi skipherranum á
Eastborne í gær skeytið, sem hér er birt mynd af.
Eins og það ber með sér, er ósltað eftir upplýs-
ingum um íslendingana, sem nú eru fangar um
borð í freigátunni; ennfremur er tekið fram, að
Alþýðublaðið sé fúst til að greiða kostnað af svar-
skeyti; og loks er sá fyrirvari gerður, að svarið
verði að vera undirritað af íslenzkum manni,
nánar tiitekið II. stýrimanni á Þór. — Þegar
blaðið fór í prentun í nótt, hafði ekkert heyrzt
frá Eastborne.