Morgunblaðið - 06.05.1975, Síða 1

Morgunblaðið - 06.05.1975, Síða 1
40 SIÐUR 101. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAl 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nýja stjórnin sögð sleppa fyrri ráðamönnum Agana, Belgrad, Washington, 5. mai AP — Reuter — NTB. TOGÞtJSUNDIR suður- víetnamskra flóttamanna voru í dag á leið til Bandarfkjanna um hinar ýmsu bækistöðvar Banda- rfkjamanna á Kyrrahafi. Um 40.000 flóttamenn voru í kvöld komnir til Subic Bay- stöðvarinnar á Filipseyjum og voru fluttir jafnt og þétt til eyjunnar Guam með flugvélum. Talið er að heildartala flótta- manna verði hátt f 150.000 manns, sem flestir óska eftir vist í Banda- rfkjunum, en nokkur lönd önnur fhuga nú móttöku á flótta- Dagblað Alþýðunnar um flotaæfíngar Rússa: Sýna áhuga þeirra á forystuhlut- verki á hafí Tokío, 5. maí. AP. „Dagbiað Alþýðunnar" segir f dag, að síðustu flotaæfingar Sovétríkjanna sýni „takmarka- lausan áhuga sovézkra endur- skoðunarsinna á þvf að gegna forystuhlutverki á hafi“, eins og þar er komizt að orði. Blaðið varpar fram þeirri spurningu, hvernig Sovétríkin geti sannað, að „deténte" stefna þeirra sé einlæg meðan herskip þeirra haldi uppi sýningum á hernaðrmætti þeirra. Blaðið segir og, að stjórnir ríkja Evrópu geri þá kröfu, að Sovétríkin láti þau vita um flotaæfingar sínar, með sjö vikna fyrirvara að minnsta kosti — „og við erum því sam- mála, að þær kröfur séu full- komlega réttmætar," segir blaðið. mönnum, þ. á m. Ástralfa og jafn- vel Bretland. Ford Bandaríkja- forseti bað i dag þingið um 507 milljónir dollara til að standa straum af flutningum og að- hlynningu fyrir flóttafólkið. Tanjug-fréttastofan júgóslavn- eska hafði i dag eftir útvarpsstöð Vfetcong f Saigon að Duong Van Minh, fyrrum forseti, og 15 ráð- herrar stjórnar hans hefðu verið látnir lausir, og hefði Minh „fagn- að sigri frelsisaflanna". Á Minh að hafa sagt að hann væri „hamingjusamur yfir því að vera þegn í sjálfstæðu Víetnam". Segir fréttastofan að Minh og ráð- herrum hans hafi verið leyft, að fara aftur til fjölskyldna sinna. Þá segir Tanjug i frétt frá Hanoi að hin nýja stjórn i Saigon hafi látið lausa alla pólitíska fanga fyrri stjórnar á Con Soneyju. Meðal ráðherranna 15 sem látnir voru lausir í Saigon voru sagðir Vu Van Mau, fyrrum forsætisráð- herra, Nguyen Van Huyen, vara- forseti, og varaforsætisráðherr- ann Nguyen Van Ho. Var þeim sagt að vonazt væri til þess að starfsmenn fyrri stjórnar myndu aðstoða við uppbyggingu lands- ins. Framhald á bls. 39 Mynd þessa tók Öl. K. M. á landsfundi Sjálfstæðisflokksins f gærkvöldi er Geir Hallgrfmsson hafði verið kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og dr. Gunnar Thoroddsen, varaformaður. Kosningar á landsfundi: Geir Hallgrímsson kjörinn formaður. Gunnar Thoroddsen varaformaður GEIR Hallgrímsson for- sætisráðherra var kjörinn formaður Sjálfstæðis- flokksins á 21. landsfundi flokksins í gærkvöldi. Hlaut hann 650 atkvæði af 749 atkvæðum, sem greidd voru. Geir Hallgrímsson tók við formennsku Sjálf- stæðisflokkslns haustið 1973 er Jóhann Hafstein sagði af sér formennsku sökum heilsubrests. Er þetta þvi í fyrsta sinn, sem Geir Hallgrímsson er kjör- inn formaður Sjálfstæóis- flokksins á landsfundi en áður hafði hann tvívegis hlotið kosningu, sem vara- formaóur, á landsfundum 1971 og 1973. 1 kosningunum á lands- fundi í gærkvöldi var dr. Gunnar Thoroddsen end- urkjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hlaut hann 631 atkvæði af 760 atkvæðum, sem greidd voru. Dr. Gunnar Thorodd- sen var kjörinn varafor- maður á flokksráðsfundi sl. haust er Magnús Jónsson sagði af sér sökum heilsu- brests. Áður hafói dr. Gunnar Thoroddsen verið varaformaður Sjálfstæðis- flokksins frá 1961 — 1965. Kjör miðstjórnar stóð yfir er Mbl. fór í prentun. 150.000 flótta- menn til USA? Allsherjar blóðsúthellingar hafnar í Kambódíu? Bandaríkjastjórn kveðst hafa upplýsingar um fjöldaaftökur Washington, New York, París 5. maf. AP — Reuter — NTB. • BANDARlSK stjórnvöld hafa fengið upplýsingar um að hin nýja rfkisstjórn Rauðu Khmer- anna i Kambódíu hafi látið og láti enn taka af lífi pólitiska andstæð- inga sína. að þvf er bæði Ron Nessen, blaðafulltrúi Fords for- seta, og Robert Anderson, tals- maður bandarfska utanrikisráðu- neytisins, staðfestu i dag. Nessen sagði að það væri rétt að Ford hefði skýrt samstarfsmönnum sfnum ýmsum og þingleiðtogum frá þvf að um 80 tii 90 herforingj- ar sem unnu fyrir fyrrverandi rfkisstjórn Lon Nols hefðu verið teknir af lffi ásamt eiginkonum sfnum, en vikuritið Time birti f gær frétt þessa efnis. Sagði Ness- en að Ford hefði miklar áhyggjur af þessum fréttum, en einnig væri Ijóst að almenn herferð væri f gangi f Kambódfu til að refsa pólitfskum og hernaðarlegum leiðtogum fyrri stjórnar. # Robert Anderson sagði að bandaríska leyniþjónustan hefði heyrt útvarpsstöð Rauðu Khmer- anna fyrirskipa kommúnfsku her- foringjunum i héruðum landsins að láta myrða helztu ieiðtogana meðal fanganna og bentu útvarps- sendingar til þess að f einu héraði hefðu 80 leiðtogar og eiginkonur þeirra verið tekin af lffi. Sagði Anderson að þessar fregnir myndu senniiega hafa áhrif á hugsanieg samskipti Bandaríkja- stjórnar við hina nýju stjórn, og fylgzt yrði með þróun mála. Er talið að þessar fréttir renni stoð- um undir fullyrðingar Fords um nauðsyn þess að Bandarfkjamenn veiti vfetnömsku og kambódfsku flóttafólki hæli, en Nessen kvaðst aðspurður hafa engar upp- lýsingar um aftökur f Suður- Vfetnam. Vikuritið Newsweek sagði i gær að bandarískir embættismenn hefðu veitt upplýsingar um aftök- ur þúsunda manna í Kambódíu sem studdu stjórn Lon Nols, og hefðu fyrstu fórnarlömbin verið herforingjar og nokkrir embættis- menn ásamt eiginkonum þeirra. Segir blaðið að þetta kunni að vera fyrirboði allsherjar blóðbaðs og herferðar gegn öllum þeim Framhald á bls. 39 Atkvæði i formannskjöri á landsfundi féllu sem fyrr segir á þann veg, að Geir Hallgrímsson hlaut 650 atkvæði. Dr. Gunnar Thoroddsen hlaut 65 atkvæði og 11 aðrir hlutu 4 atkvæði og færri. Auðir seðlar og ógildir voru 19 en atkvæði greiddu 749. Við varaformannskjör féllu at- kvæði þannig, sem fyrr segir, að dr. Gunnar Thoroddsen hlaut 631 atkvæði. Ragnhildur Helgadóttir fékk 64 atkvæði, Niu aðrir hlutu 11 atkvæði og færri. Auðir seðlar og ógildir voru 24. Atkvæði greiddu 760. Er Auður Auðuns, fundarstjóri á þessum kosningafundi, hafði lýst kjöri Geirs Hallgrimssonar, til formanns, risu fundarmenn úr sætum og hylltu forsætisráðherra með langvarandi lófaklappi. Geir Hallgrimsson flutti stutta ræðu og þakkaði það mikla traust sem sér hefði verið sýnt. Mér er og verður mikill vandi á höndum að sinna þessu starfi þannig, að ég bregðist ekki trausti ykkar, sagði Geir Hallgrimsson. Ég lofa ekki öðru Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.