Morgunblaðið - 06.05.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.05.1975, Blaðsíða 22
22 TVÖ MÖRK TAYLORS FÆRÐU WEST HAM UIMTED BIKARENN Alan Taylor hinn 21 árs leik- maður West Ham United tryggði liði sínu sigurinn I ensku bikar- keppninni í knattspyrnu, er það mætti 2. deildar liðinu Fulham á þáttsetnum Wembley- leikvanginum í Lundúnum á laugardaginn. Kftir rösklega klukkustund án marka skoraði Taylor tvö mörk fyrir West Ham með aðeins fjögurra mfnútna millibili, — það var of mikið fyrir Fulhamliðið sem harist hafði hetjulega allt fram til þcss að mörkin komu, og undir lokin mátti liðið þakka fyrir að fá ekki á sig fleiri mörk. Gífurlega stemmning var á Wembley-leikvanginum á laugar- daginn eins og jafnan er á úrslita- leikjum í bikarnum. Spenningur- inn er þó jafnan meiri þegar það er 2. deildar lið sem kemst i úrslit eins og þessu sinni, og auk þess komu þarna fram á vellinum leik- menn sem Englendingar hafa dáð í áraraðir eins og Bobby More og Alan Mullery sem báðir hafa leik- ið lengi með enska landsliðinu. Töldu margir að reynsla þeirra sem fleytt hafði Fulham i úrslitin kynni að nægja til þess að lið þeirra, Fulham, tækist einnig að stiga yfir lokaþröskuldinn. Þó var meira veðjað á West Ham, enda var þar frábært lið á ferðinni, sem jafnan hefur harðnað við hverja raun. Til að byrja með hélzt leikurinn í algjöru jafnvægi, og var fremur tilþrifalítill. Liðin lögðu mikið upp úr vörninni, og knötturinn var mest á vallarmiðjunni, þar sem hann gekk á milli manna. Einhvern veginn var það þó svo að leikmenn West Ham virtust fljótari og áræðnari í sóknum sín- um, en Moore stjórnaði hins veg- ar sinum mönnum sem herforingi og Fulham tókst að brjóta allar West Ham sóknirnar á bak aftur, án þess að mikil hætta skapaðist við mark þeirra. Hið sama kom svo upp á ten- ingnum í byrjun seinni hálfleiks. Liðin sóttu á víxl, en sóknirnar sköpuðu ekki mikla hættu. Marg- ir voru því farnir að búast við markalausum leik og framleng- ingu, er Alan Taylor, leikmaður sem var óþekktur er yfirstand- andi keppnistímabil hófst, tók til sinna ráða. Eftir sókn West Ham átti Bill Jennings skot að marki West Ham, sem markvörður Ful- ham, Peter Mellor virtist ætla að ráða við. En greinilegt var að hann misreiknaði sig og missti knöttinn frá sér. Aldrei þessu vant var vörn Fulham of sein til, og Taylor tókst að smeygja sér inn, ná knettinum og skora án mikillar f.vrirhafnar. Var fögnuð- ur West Ham manna óstjórn- legur þegar markið hafði verið skorað, enda líklegt að það myndi nægja til sigurs í leiknum. En Fulhamliðið hafði alls ekki jafnað sig eftir þetta áfall er West Ham náði aftur sókn sem lauk með skoti frá Graham Padon. Aft- ur mistókst Mellor vörnin, missti knöttinn frá sér og enn var Taylor vel staðséttur og tókst að skora og innsigla sigurinn. Eftir mörkin tvö gerðist svo fremur fátt sögulegt í leiknum. West Ham lagði áherzlu á að halda unnum feng, og Billy Bonds sýndi oft stórkostlegan leik á miðjunni og á honum strönduðu flestar sóknartilraunir Fulham. 15 mínútum fyrir leikslok fékk Fulham þó sitt bezta tækifæri f leiknum, er John Mitchell tókst að snúa á vörn West Ham og komast í skotfæri, en hinn 19 ára gamli markvörður West Ham, Mervyn Day, bjargaði þá meistaralega með úthlaupi. Alan Tayior, sá er skoraði mörk West Ham i þessum leik, var keyptur til liðsins frá 4. deildar liðinu Rochdale fyrir hálfu ári. Kaupverðið var 40.000 pund og þótti mörgum sem West Ham eyddi miklum peningum fyrir litið. En annað átti eftir að koma á daginn. Taylor hefur verið einn bezti maður liðsins I vetur og í bikarleikjum West Ham hefur hann skorað fjögur mörk. Eru nú flestir á þvi að með því að kaupa hann hafi West Ham gert beztu kaup sem áttu sér stað í Englandi á árinu. Þetta var i annað skiptið i sögu bikarkeppninnar sem West Ham sigraði. Aður vann liðið bikarinn árið 1964 og var þá Bobby Moore fyrirliði liðsins. Eftir leikinn á laugardaginn sagðist Bobby Moore hafa verið mjög ánægður með frammistöðu Fulhamiiðsins í fyrri hálfleik, en eftir hléið hefði West Ham náð betri tökum á vallarmiðjunni og þar með á leiknum. — Úrslit leiksins urðu mér mikil von- brigði, en hins vegar get ég ekki annað en verið ánægður með frammistöðu Fulham í keppninni, þegar á heildina er litið, sagði Moore. Alan Mullery, fyrirliði Fulham, sem verið hefur atvinnuknatt- spyrnumaður í 17 ár, sagði að leikur þessi hefði verið mjög jafn allt fram til þess tíma að West Ham, hefði „skorað heppnismörk sin.“ Billy Bonds, fyrirliði West Ham, sagði eftir leikinn að Ful- ham-liðið hefði leikið miklu betur i fyrri hálfieik, en hann hefði átt von á. — En auðvitað átti Fulham enga möguleika i þessum leik, sagði Bonds, — og eftir að við skoruðum var allur vindur úr Ful- ham-blöðrunni. Ehn Lydali, framkvæmdastjóri West Ham, sagði að sinir menn hefðu sýnt góðan leik, og þó eng- inn eins og Alan Taylor. — Undir lokin lék West Ham liðið stórkost- lega vel, sagði Lydall. Hetja úrslitaleiksins, Alan Taylor á leið inn f búningsherbergi West Ham United eftir leikinn á laugardaginn. Frank Lampard (t.v.) horfir á bikarinn, en til hægri sézt Billy Bonds klappa Pat Holland á kinnina. Billy Bonds, fyrirliði West Ham liðsins átti frábæran leik áWembley á laugardaginn, og sézt þarna keppa um knöttinn við John Lacy, leikmann Fulham. Það var mál manna að Bonds hefði verið bezti maður vallarins f þessum leik, ásamt sfnum gamla félaga, Bobby Moore, sem nú leikur með WestHam. Knattspyrnuúrsllt - - 1. DEILD SVISS: Winterthur — Lausanne 1:2 Servette — Chenois 3:0 Vevey — Lugano 2:1 Lucerne — Grasshoppers 1:2 Young Boys— St. Gallen 9:0 Sion — Neuchatel 3:2 Zúrich — Basel 1:2 PUMA Fótboltaskór 10 gerðir Verðfrá kr. 2.725 Eftir 21 umferð er staða efstu lið- anna sú. að Zurich hefur hlotið 31 stig. Grasshoppers 27 stig, Sion 25 stig og Winerthur, Basel og Servette eru með 24 stig. 1 DEILD TYRKLANDI: Trabzonspor—Giresunspor 2:2 Bursaspor—Fenerbahce 0:1 Boluspor—Goztepe 1:0 Adanaspor—Samsunspor 1:1 Ankaragucu — Kayserispor 0:0 Altay—Eskisehirspor 0:0 Galatasaray — Adanadspor 4:2 Zonguldakspor—Besiktas 2:1 1. DEILD ITALÍU Bologna — Ascoli 1:1 Cagliari—Cesena 2:2 Internazionele — Vicenza 0:0 Lazio — Fiorentina 1:0 Sampdoria — Roma 0:0 Ternana — Juventus 0:2 Torino—Napoli 1:1 Varese — Milan 0:1 Eftir 28 umferðir er staða efstu liðanna sú, að Juventus hefur hlotið 41 stig, Napoli 37 stig, Roma 35 stig, Torino og Lazio 34 stig og Milan 33 stig. 1. DEILD HOLLANDI: PSV Eindhoven — FC Amsterdam 3:0 Celtic bikarmeist- ari í 24, sinn Roda — FC Twente 2:1 Feyenoord — Telstar 4:1 Go Ahead — Wageninger 5:1 FC Ulrecht — Breda 0:1 Haarlem — Excelsior 1:0 Alkmaar— Sparta 0:0 de Graafschap — MW Maastricht 3:1 Ajax — FC de Haag 3:1 Eftir 33 umferðir er staðan sú að PSV Einhoven er efst með 53 stig, Feyenoord er með 52 stig. Ajax með 48 stig. 1. DEILD BELGfU: Anderlecht — Waregem 2:2 Cercle — Lokeren 0:0 Antwerpen — FC Liege 1:0 Lierse—Diexst 2:1 Olympic — Beerschot 0:3 Ostend — Charleroi 1:1 Beringen — Malinois 1:0 Standar Liege — Winterslag 0:0 Beveren — Club Briigge 1:0 Berchem — Molenbeek 2:3 Staða efstu liðanna er nú sú að Molenbeek er með 59 stig, Ander- lecht er með 52 stig. Antwerpen með 50 stig, Club Brúgge með 47 stig, Beerschot með 45 stig, Standard Liege með 44 stig og Lierse með 42 stig. 1. DEILD AUSTURRfKI Austria Klagenfurt — Sk Rapid 1:1 Austria WAC — Einsenstadt 1:2 Innsbruck — Voeest Linz 1:2 Admira — Austria Salzburg 2:1 Linzer—Sturm Graz 3:0 Innsbruck hefur forystu með 40 stig. Rapid er I öðru sæti með 33 stig og Linz í þriðja með 30 stig. CELTIC átti ekki f erfiðleikum með að tryggja sér sigur í skozku bikarkeppninni, er liðið lék til úrslita við Airdrieonians á Hampden Park f Glasgow á iaugardaginn. 3—1 fyrir Celtic urðu úrslit leiksins, og liðið hlaut nú bikarmeistaratign f 24. sinn. Airdrieonians-liðið sem er i bland skipað atvinnu- og áhuga- mönnum, átti undir högg að sækja þegar frá upphafi, en leik- menn liðsins börðust mjög vel, og fengu byr undir báða vængi er þeim tókst að jafna 1—1, undir lok fyrri hálfleiksins. Fyrsta markið í leiknum hafði Paul Wil- son skorað fyrir Celtic á 14. mín- útu,,en það var David McCann sem jafnaði fyrir Airdrieonians þegar 3 mínútur voru til loka hálf- leiksins. En í seinni hálfleiknum sýndi Celtic svo tennurnar fyrir alvöru og þeir Vilson og MacCluskey skoruðu tvívegis snemma i hálf- leiknum. Celtic átti svo nokkur dauðafæri undir lok leiksins sem ekki tókst að nýta. Aidrieonians hefur aðeins einu sinni unnið skozku bikarkeppn- ina, fyrir 51 ári, en Celtic hefur leikið alls 39 sinnum úrslitaleik i keppninni. Fyrirliði liðsins, Billy McNeill lék nú sinn 16t bikarúr- slitaleik, og tilkynnti eftir leikinn að hann væri nú hættur knatt- spyrnuiðkunum. íþróttatöskur 10 gerðir Verð frá kr. 930.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.