Morgunblaðið - 06.05.1975, Side 16

Morgunblaðið - 06.05.1975, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MAl 1975 wwrxM&Mti* Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands^ í lausasölu 40,00 kr. eintakið Varnarsamstarf og s j álfeákvörðunarréttur egar sjálfstæðis- menn koma nú saman til landsfundar fagna þeir ekki aðeins kosninga- sigrum í tvennum kosn- ingum á sl. ári, heldur þvi sem meira er: Þeir fagna verulegum árangri af starfi núverandi ríkis- stjórnar undir forystu Geirs Hallgrímssonar. Úr- slit síðustu alþíngiskosn- inga voru ótvíræð krafa kjósenda um áframhald- andi aðild aö Atlantshafs- bandalaginu og varnar- samstarf við Bandaríkin. Áöur höfðu 55522 kjósend- ur látið álit sitt í ljós með því að senda Alþíngi og ríkisstjórn áskorun hér um. Það var á grundvelli þessa skýra þjóðarvilja, sem núverandi ríkisstjórn markaði stefnu sína í utan- ríkis- og öryggismálum í fullu samræmi við þau sjónarmið, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hafði sett fram og barizt fyrir. Öllum er ljóst, hversu litlu munaði, að vinstri stjórn- inni tækist gegn vilja meirihluta kjósenda að rjúfa skarð í varnar- samstarf okkar við þjóðir Vestur-Evrópu. Enginn þarf því að fara í grafgötur um, að einn mikilvægasti árangur af starf: ríkisstjórnarinnar er fólginn í þeirri stefnu, sem mörkuð var í varnarmálum og þeirri endurskoóun á varnarsamningnum við Bandaríkin, er fram fór þegar á fyrstu vikum stjórnarsamstarfsins. íslendingum er nauðsyn- legt að vera vel á verði í þessum efnum. Eftir langt friðartímabil í Evrópu verða menn aö átta sig á því, hvers vegna ekki hefur gætt sömu ókyrrðar í Evrópu eins og víðasthvar annars staðar í heiminum. Forsenda þessa friðartíma- bils í Evrópu er vitaskuld traust varnarsamstarf lýð- ræðisþjóðanna. Þetta er grundvallaratriði, sem ekki má gleymast. á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins sagði Geir Hallgrímsson forsætisráóherra um þetta efni: „Mennirnir læra seint af reynslunni og gera oft sömu mistökin aftur og aftur, en upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar, hið langa friðartímabil eftir hana í Vesturálfu fyrir til- stuðlan Atlantshafsbanda- lagsins á sama tíma og ófriður hefur verið víða annars staðar í heiminum, ættu að færa lýðræðis- ríkjunum heim sanninn um nauðsyn árvekni, samstöðu og varnarvið- búnaðar." Þaó hefur allt of oft gerzt í sögunni, að þjóðir hafa lokað augunum fyrir þeim blikum, sem veriö hafa á lofti og ógnað frelsi og sjálfstæði þjóða. Eins og nú standa sakir kemur eng- um til hugar að óttast innrás eða að nokkurt ríki muni beita okkur beinu of- beldi. Staða okkar er svo sterk vegna varnar- samstarfsins við þjóðir Atlantshafsbandalagsins, að um slíkt er ekki að ræóa. Stöðugt aukin umsvif Sovétríkjanna hér á landi og á hafsvæðunum umhverfis landið eru á hinn bóginn ógnvekjandi fyrir okkur og undirstrika nauðsyn þess að við treyst- um samstarf okkar við Nato-ríkin til verndar sjálf- stæði okkar. Geir Hallgrímsson ræddi þessa hlið varnarmálanna í landsfundarræóu sinni og sagói þá m.a.: „En afleið- ing þeirrar ákvörðunar íslenzkra stjórnvalda að slíta varnarsamstarfinu við Bandaríkin yrði ekki að- eins sú að raska þeirri hernaóarlegu stöðu, sem nú ríkir á okkar slóðum, heldur myndi ákvöróunin um leió þrengja svigrúm íslenzkra stjórnvalda til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir bæði í innan- og utanríkismálum.“ Þó að Islendingar vilji af heilum hug eiga gott sam- starf við allar þjóðir, jafn- vel þó að þær fótumtroói grundvallar mannréttindi eins og Ráðstjórnarríkin, þá verðum við ávallt að hafa þessa staðreynd í huga. Það þarf ekki beina íhlutun til þess að koma í veg fyrir aö hér verði gefnar út ákveðnar bækur eða bannaðar sýningar á ákveðnum kvikmyndum til að móðga ekki aðra þjóð eins og dæmin sanna. Við erum fámenn þjóð og þurfum að verja sjálfstæói okkar og lýöræðislega stjórnarhætti með sam- starfi viö aórar lýðræðis- þjóðir. Með þeim hætti einum tryggjum við okkur nægjanlega sterka stöðu til þess að geta óháðir öðrum tekið ákvarðanir um okkar eigin málefni. Það er því full ástæða til þess að halda stöðugt vakandi umræðum um varnar- og öryggismál landsins. Landsfundarræða dr. Gunnars Thoroddsen, félags- og iðnaðarráðherra Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- og félags- málaráðherra, flutti ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sl. sunnudag um þá málaflokka, sem undir ráðuneyti hans heyra. Hér fer á eftir fyrri hluti ræðu ráðherrans, en síðari hluti ræðunnar verður birtur n.k. fimmtudag: Góðir landsfundarmenn. ÞAÐ er frumþörf allra manna að eiga þak yfir höfuð. Fjöiskyldan, heimilið, er grunnstoð þjóðfélagsins. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að efla og treysta heim- ilið og fjölskylduna og þá einnig að vinna að þessu marki að tryggja öllum mönnum húsnæði við þeirra hæfi. I þvi sambandi má segja, að stefna Sjálfstæðis- flokksins sé tvíþætt: Að byggja á hinu frjálsa framtaki eintaklinganna, en um leið að tryggja eðlilega fyrir- greiðslu af hálfu hins opinbera. Þetta tvennt þarf jafnan að haldast í hendur. Áður fyrr var mikill ágreiningur um það I islenzkum stjórnmálum, hvort stefna ætti að því, að sem flestir ættu sínar eigin ibúðir eða hvort ætti að stefna að hinu, að þjóðfélagið, rikið eða sveitarfélögin, ættu sem mest af íbúðum og menn yrðu leiguiiðar í þeim íbúðum. Sjálfstæðisflokkurinn markaði ákveðið þá meginstefnu, að sem flestir landsmenn skyidu verða eigendur sinna íbúða. Stefna okkar hefur i meginatr- iðum sigrað, þannig að á síðustu tíu tii tuttugu árum hafa aðrir stjórnmálaflokkar einnig færst inn á þessa stefnu. Margvísleg verkefni í húsnæðismálum Eitt af ágætum félögum Sjálfstæðismanna, málfundafélagið Oðinn, hóf snemma baráttu fyrir þvi, að allir gætu eignast sinar eigin ibúðir, ekki sízt efnalítið fólk. Eftir tillögum Oðins var ákveðið af hálfu bæjarstjórnar Reykjavíkur að greiða fyrir því, að þetta mætti verða að veruleika, og jafnframt fluttu Sjálfstæðismenn á Alþingi frumvarp um breytingar á skattalögum í þessu skyni, þannig að vinna manna við eigin íbúðir yrði skattfrjáls. Þetta hvort tveggja olli aldahvörfum í byggingarmálum þjóðarinnar. Verkefnin framundan eru margvísleg. Það þarf að greiða fyrir því, að menn geti eignast þak yfir höfuðið. Það þarf að tryggja mönnum eðlileg lán af opinberri hálfu í því skyni. I þessu sambandi þarf bæði að hugsa um þessar almennu íbúðabyggingar fyrir allan þorra manna, en um leið þarf að gera sérstakar ráðstafanir til þess annars vegar að greiða fyrir jungu fólki til að geta stofnað heimili og komið upp yfir sig íbúðum og hins vegar að greiða fyrir því að aldraðir og öryrkjar fái íbúðir við sitt hæfi. Húsnæðismálalögin voru tekin til gagngerðrar endurskoðunar af viðreisnarstjórninni og þar stigið merkileg spor. Reynslan sýnir okkur hins vegar jafn- an, að slika löggjöf þarf að endurskoða með nokkurra ára millibili. Nú hefur verið ákveðið, að húsnæðis- málalöggjöfin verði tekin til gagngerðrar endurskoð- unar og hefur launþegasamtökunum i landinu þegar verið gefinn kostur á að tilnefna fulltrúa í þá nefnd. Varðandi lánamálin er þess að geta, að ákveðið hefur verið að hækka húsnæðismálastjórnarlánin úr 1.060.000 í 1.700.000. Það hefur verið unnið að því að undanförnu í rikisstjórninni að tryggja nægilegt fjár- magn til Byggingarsjóðs. Það mál er nú leyst, m.a. vegna þess að lífeyrissjóðir munu með frjálsu sam- komulagi verja 20% af ráðstöfunarfé sfnu á þessu ári til kaupa á skuldabréfum Byggingarsjóðs ríkisins. Lækkun byggingarkostnaðar Það er ekki hægt að stikla nema á stóru um þá málaflokka, sem ég hafði hugsað mér að gera hér að umtalsefni. Rannsóknir á sviði byggingariðnaðarins þarf að efla og auka, það er eitt af þeim verkefnum, sem framundan eru. En í rauninni má segja, að mikilvægasta verkefnið í húsnæðismálunum er að lækka byggingar- og þar með húsnæðiskostnað. Við deilum um kjaramál á hverju ári, en ég held að það sé mála sannast, að raunhæfasta kjarabótin fyrir allan almenning 'væri sú, ef hægt væri að lækka verulega húsnæðiskostnað. Ég er sannfærður um, að það er hægt. Við Islendingar höfum mjög hæfum og þjálfuð- um iðnaðarmönnum á að skipa. En hinu er ekki að neita, að við höfum ekki fært okkur í nyt nægilega, eða á borð við aðrar þjóðir, ýmsar tæknilegar nýjung- ar og þá sérstaklega þá miklu framför, sem felst i þvi að byggja hús og húseiningar i verksmiðjum. A síð- ustu mánuðum hefur farið fram sérstök verkfræðileg athugun á því, að nokkru leyti i samráði við erlend fyrirtæki með mikla tæknilega þekkingu og reynslu, hvort unnt væri með því að auka slíka verksmiðju- framleiðslu í verulegum mæli og lækka byggingar- kostnað. Niðurstaðan af þeirri athugun er sú að með því að auka þessa tækni og byggja meira af húseining- um, húshlutum og heilum húsum i verksmiðjum, þá megi lækka byggingarkostnað um 20—25%. Að þvi verður unnið á næstunni að hrinda þessu stórfellda máli I framkvæmd, en eins og ég tók fram áðan, þá væri þetta einhver raunhæfasta kjarabót, sem um er að ræða í okkar landi. Víða úti á landi hagar svo til, að mikil þörf er á að koma upp íbúðum með opinberum atbeina. Vinstri stjórnin leiddi það i lög, að byggðar skyldu á næstu fimm árum 1000 leiguíbúðir til handa sveitarfélög- unum. Þegar þessi löggjöf var sett árið 1973, þá var tvennt, sem ekki var haft í huga. Annars vegar var ekkert hugsað fyrir því, hvernig ætti að fjármagna þessar 1000 íbúðir, heldur aðeins að Byggingarsjóður skyldi inna þessar greiðslur af hendi, 80% skyldi hann lána af byggingarkostnaði. Annað var það, að ekki var hugsað fyrir því, hvernig þessar byggingar leiguíbúð- anna féllu að húsnæðiskerfinu að öðru leyti. Og það hefur komið i ljós, að bygging verkamannabústaða, sem vfða voru í undirbúningi, hafa sumsstaðar dregist saman og jafnvel i ráði að hætta við byggingu þeirra og snúa sér að leiguíbúðum í staðinn. Þetta er eitt af þeim miklu vandamálum, sem við eigum nú við að glíma. Sjálfsforræði sveitarfélaga I sögu okkar Islendinga frá upphafi og ekki sízt i allri okkar sjálfstæðisbaráttu, hefur sjálfstæði og sjálfsforræði sveitarfélaganna verið hyrningarsteinn. Einhver elzta stofnun í þjóófélagi okkar er sveitar- félögin, hrepparnir. Á sínum tíma misstu sveitarfélög- in sjálfstæði sitt. Baráttan fyrir endurreisn þess sjálf- stæðis var mikilvægt atriði í sjálfstæðisbaráttu okkar á 19. og 20. öld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.