Morgunblaðið - 22.05.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975
Allt að 33% lækk-
un á þorskanetum
VEIÐARFÆRI hafa verið í gcysi
háu verði að undanförnu og hafa
margir útgerðarmenn átt f
erfiðleikum með að Ieysa út
veiðarfæri á sfðustu mánuðum.
Nú hafa þær fréttir borizt, að
veiðarfæri muni lækka í sumar
um allt að 33%, en ekki er talið
að þessi lækkun vari lengi.
Ævar Guðmundsson hjá Seif
h.f. sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að lækkunin væri
mest á vissum tegundum þorska-
netja eða allt að 33%, og ef menn
ætluðu að ná þessari lækkun
þyrftu þeir að staðfesta pantanir
snemma, þar sem sölumenn teldu
að verð á veiðarfærum ætti eftir
að hækka á ný með haustinu.
Þorskanetjabrúk var með
minna móti i vetur og talið er að
40—50 þúsund net séu til i land-
inu, en að öllu venjulegu eru til
10—20 þús. net i lok vertiðar.
Verkfallið í ríkisverksmiðjunum:
SAMNINGAFUND-
UR FRAM Á NÓTT
SAMNINGAFUNDUR með deilu-
aðilum I kjaradcilu 19 stéttarfé-
lága og ríkisverksmiðjanna
þriggja, Sementsverksmiðju,
Aburðarverksmiðju og Kísiliðju
hófst í gær klukkan 16 og I gær-
kvcldi var gert hlé á viðræðunum
á meðan samningamenn fcngu
sér kvöldverð, en siðan átti að
halda áfram viðræðum fram cftir
nöttu. Atti að reyna til hins ítr-
asta á ná samkomulagi.
Agreiningurinn stendur um
starfsmat i verksmiðjunum. Verk-
efni samningamannanna er að
samræma 22 gilda kjarasamn-
inga, sem gerðir hafa verið við
verksmiðjurnar af þessum 19
stéttarfélögum og búa til úr þeim
einn heildarkjarasamning. Sam-
tals er verið að semja fyrir um
400 manns, en starfsmatið hefur
verið í undirbúningi frá því sum-
arið 1973 er varðal’ Áburðarverk-
smiðjuna, en um áramótin
1973—1974 óskuðu Sementsverk-
smiðja og Kísiliðja eftir að gerast
aðilar að starfsmatinu. Verkfallið
í verksmiðjunum þremur kom til
framkvæmda 12. mai og hefur því
slaðið i 10 daga. Er það farið að
hafa hin alvarlegustu áhrif, eink-
um í byggingariðnaðinum.
Kristján Siggeirsson látinn
KRISTJAN Siggeirsson forstjóri
er lálinn í Reykjavík.
Hann stofnaði húsgagnaverzlun
í Reykjavík 1919 og var forstjóri
hennar óslitið síðan. Kristján
gegndi fjölda trúnaðarstarfa i
félagsmálum. Hann var m.a. einn
af stofnendum Húsgagnameist-
arafélags Reykjavíkur, i stjórn
Vinnuveitendasambands Islands,
í stjórn Slippfélagsins í Reykja-
vík, Hamars, Almennra trygginga
og fleira. Hann var kvæntur
Ragnhildi Hjaltadóttur.
ítörf hafa gengiö erfiðlega
/íða til sveita vegna hins
<alda vors. Þetta fé á Hall-
lór bóndi, kennari og lista-
naður i Miðhúsum á Egils-
itöðum. Myndin var tekin
ím sl. helgi.
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Vorstörfin 2-4 vikum
fyrra
seinni nu en 1
Sauðburður gengur víða erfiðlega
„VORIÐ hefur verið bændum
ákaflega erfitt og eru vorstörfin
2—4 vikum seinni nú en í fyrra,"
sagði Gfsli Kristjánsson hjá
Búnaðarfélagi tslands er Mbl.
ræddi við hann í gær. Þá sagði
Gísli að sauðburður gengi erfið-
lega þar sem hafa þyrfti fé á húsi
og vaka yfir því allan sólarhring-
inn.
„Þetta vor hefur verið dæma-
laust kalt og votviðrasamt og
alveg ólíkt vorinu í fyrra sem var
mjög hagstætt, sólríkt og stillt,“
sagði Gísli Kristjánsson. Hann
bætti því við, að lömb þrifust ekki
Stöðvarhús byggt við Kröflu
130 manna vinnubúðir reistar á nœstunni
Formanni Kröfluncfndar, Jóni
G. Sólnes alþingismanni, hefur
verið falið að ganga frá samning-
um við Miðfell h.f. um byggingu
stöðvarhúss fyrir vænlanlega
virkjun í Kröflu og munu fram-
kva*mdir hefjast nú þegar. Verið
er að byggja vinnubúðir vegna
framkva*mdanna fyrir 128 menn
og eru þa*r smíðaðar á Húsavik.
Framkva*mdin við byggingu
stöðvarhússins er talin vera upp á
200—300millj. kr.
inn hluta af framkvæmd við bygg-
ingu virkjunarinnar einnig."
Eftirfarandi fréttatilkynning
barst Morgúnblaðinu í gær frá
Kröflunefnd:
„Kröflunefnd hefur á fundi sín-
um 17. maí sl. einróma ákveðið að
fela fotmanni nefndarinnar að
ganga frá samningum við MIÐ-
FELL H/F um byggingu stöðvar-
húss fyrir væntanlega virkjun við
KRÖFLU í samræmi við tillögu
ráðgjafarverkfræðinga nefndar-
innar, sem eru Verkfræðiskrif-
stofa Sigurðar Thoroddsen SF,
o.fl.
Aherzla var lögð á það af hálfu
nefndarinnar, að til verksins
fengist traustur og reyndur verk-
taki, en vegna nauðsynjar þess að
hraða framkvæmdum sem fram-
ast er unnt í samræmi við gerðar
Framhald á bls. 31
í þessum kulda og því yrði að hafa
féð í húsi enn sem komið væri.
Það útheimti mjög mikla heygjöf
auk þess sem vaka þyrfti yfir
fénu allan sólarhringinn nú þegar
sauðburður stæði yfir. Yrði að
gefa ánum 2—3 falda gjöf svo
Fengu 5 laxa
í fyrstu vitjun
FYRSTU laxarnir á þessu sumri
bárust á land í gærmorgun, en þá
fengust 5 laxar úr fyrstu vitjun f
Hvítá í Borgarfirði. Menn þar
segja að þetta lofi góðu um sum-
arið, þar sem árnar séu enn mjög
kaldar.
Kristján Fjeldsted i Ferjukoti
sagði þegar Mbl. ræddi við hann í
gær, að sjálfur hefði hann lagt 3
net í fyrradag og fengið 2 laxa i
fystu vitjun. Hvítárvallamenn
höfðu lagt 4 net og fengið 3 Iaxa.
Allir voru laxarnir vænir eða 8—
10 pund, en þetta er algeng stærð
á þessu svæði allt fram í júnimán-
uð.
Að sögn Kristjáns er Hvitá nú
ákaflega köld og fyrrihluta dags
er áin eins og bergvatnsá, en skol-
ast svo örlítið er líða tekur á dag-
inn. Menn reikna með að árnar
verði sæmilega vatnsmiklar í
sumar þar sem mikill snjór er enn
til fjalla, og ætti því nægur lax að
vera i ánum, er líður á sumarið.
þær mjólkuðu nægilega mikið ef
þær væru tví- eða þrilembdar.
Bættist þetta við mjög gjafa-
frekan vetur og væri því víða
orðið heylitið en reynt væri eftir
föngum að miðla heyi milli bæja.
Sagði Gisli, að það hefði komið sér
vel að mikil hey hefðu verið til
eftir tvö hagstæð sumur og bænd-
ur því byrgir fyrir þennan ein-
dæma langa og erfiða vetur.
Þegar Gisli var að því spurður
hvort verkfallið i Áburðarverk-
smiðjunni væri byrjað að hafa
áhrif á vorstörf bænda svaraði
hann því til að svo væri ekki,
enda myndi líða nokkur tími þar
til unnt væri að hefja dreifingu
áburðar. Auk þess væri þegar
búið að flytja mikið magn
áburðartil bænda.
Kvikmyndaeftir-
lit skoðar ekki
fyrir sjónvarpið
VEGNA ummæla í Morgun-
blaðinu í gær skal það tekið fram
um skoðun kvikmyndarinnar
Lénharður fógeti, að Kvikmynda-
eftirlit ríkisins hefur ekki af-
skipti af skoðun kvikmynda, sem
sýndar eru i sjónvarpi, heldur
aðeins þeim, sem sýndar eru i
kvikmyndahúsum gegn aðgangs-
Kvikmyndaeftirlit
rfkisins.
Morgunblaðið hafði samband
víð Jón Ingólfsson formann Fé-
lags byggingaverktaka á Húsavík
og í Suður-Þingeyjarsýslu, en þeir
eru undirverktakar hjá Miðfelli á
smíði vinnubúðanha. Smíða þeir
svefnskála og annað slikt nema
mötuneyti. „Við þetta verk vinna
nú rúmlega 20 smiðir og verkið
tekur tvo mánuði,“ sagði Jón Ing-
ólfsson, „en það var farið að
þrengjast á vinnumarkaðinum
hjá okkur, svo þetta verk kemur
sér mjög vel og gefur töluverða
vínnu. Við smíðum 74 skála, þ.e.
64 svefnskála fyrir 2 menn hvern
skála og 12 snyrtiskála. Þetta er
verk upp á 12—15 mjlljónir
króna, en Miðfell leggur efnið til.
Þá vonumst við einnig tíl þess að
geta samið við Miðfell um ákveð-
Frá afhendingu yfirlýsingar til fjármálaráðherra í fjármálaráðuneyt-
inu.
120 háskólamenn heim-
sóttu fjármálaráðherra
120 félagar í Bandalagi háskóla-
manna komu I fjármálaráðuneyt-
ið f gær og afhentu fjármálaráð-
herra eftirfarandi yfirlýsingu:
„Eins og yður er kunnugt, var
BHM veittur samningsréttur sam-
kvæmt heimild í lögum nr. 46/
1973. Fyrsta gerð aðalkjarasamn-
ings átti að fara fram síðari hluta
árs 1973. Reyndin varð sú að eng-
ar samningsviðræður áttu sér stað
og málið var dæmt f Kjaradómi
vegna þess að ríkisstjórnin neit-
aði að reyna samningaleiðina.
Samkvæmt sömu lögum hefur
BHM rétt til að óska endurskoð-
unar aðalkjarasamnings ef al-
mennar og verulegar kaupbreyt-
ingar verða á samningstímabil-
inu. Þá heimild notaði BHM 16.
aprfl s.l.
Einnig að þcssu sinni hefur
reyndin orðið sú að engar raun-
hæfar samningaviðræður hafa
farið fram. Augljóst virðist því að
ríkisstjórnin ætli sér aö láta þetta
mál fyrir Kjaradóm án þess að
Framhald á bls. 31
íkveikja
hjá slökkvi-
tækjasölu
TVlVEGIS f gær var kveikt í tóm-
um trékössum og pappa en dót
þetta var geymt f porti fyrirtækis-
ins I. Pálmason við Vesturgötu,
en það fyrirtæki hefur sérhæft
sig I meðferð slökkvitækja.
Starfsmenn fyrirtækisins brugðu
að vonum hart við í fyrra skiptið
og höfðu að mestu slökkt eldinn
þegar slökkviliðið kom á staðinn
en f seinna skiptið voru þeir farn-
ir og sá slökkviliðið þá um
slökkvistörfin. Kassarnir munu
reyndar hafa verið utan af
slökkvitækjum. Ikveikjurnar eru
báðar óupplýstar en þær áttu sér
stað klukkan 12.30 og 18.
3AUÐBURÐUR — Vor-