Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975
15
I fyrstu yfirlýsingu varnarmála-
ráðuneytisins var sagt að aðeins
einn hermaður hefði látið lífið.
Talsmaðurinn sagði að þær tölur,
sem eru hér að ofan, væru eins
nákvæmar og þær gætu orðið.
Enda þótt almenningsálitið í
Bandaríkjunum hafi mjög snúizt
til hins betra fyrir Ford Banda-
ríkjaforseta vegna töku
Mauaguez, segir Reuter-
fréttastofan, að þessar siðustu
tölur um fallna og særða hafi
varpað á málið verulegum skugga
og gagnrýni verið sett fram á
þinginu á aðgerðum þessum.
Hernaðarsérfræðingar hafa bent
á, að þrettán þeirra, sem létu lifið,
hafi farizt þegar þyrla fórst út af
Tangeyju i Thaiflóa, og ekki í
hernaðarátökunum sjálfum.
Þó hefur verið varpað fram
þeim spurningum, hvort nauðsyn-
legt hafi verið að beita afli og
sömuleiðis hvort ekki hefði mátt
koma í veg fyrir það að skipið
félli í hendur Kambodiumönnum.
Einnig hvort nauðsynlegt hafi
verið að gera loftárásir á skot-
mörk i landinu um það bil
klukkutíma eftir að áhöfn
Mauaguez hafði verið leyst úr
haldi.
Skipverjar af bandaríska skipinu Mayaguez veifa glaðlega þegar skip þeirra siglir
inn í Singaporehöfn eftir að skipið hafði náðst úr höndum Kambódíumanna.
Rændu 4 stúdentum
en Jane Goodall slapp
Dar F.s Salaam
Dar Es Salaam,
21. mai, Reuter.
FRA ÞVl var skýrt af stjórnar-
hálfu i Tanzaníu í dag, að fjörutfu
einkennisklæddir og alvopnaðir
karlmenn hefðu ráðizt á afskekkt-
ar búðir vísindamanna og stúd-
enta á strönd Tanganyika-vatns
og haft þaðan á brott með sér þrjá
bandarfska stúdenta og einn hol-
lenzkan. Menn þessir voru að
leita að brezka mannfræðingnum
Jane Goodall, sem um tíu ára
skeið hefur starfað að rannsókn-
um á lifnaðarháttum zimpansa á
Bardagar í Beirut
Beirut 21. maí Reuter.
AÐFARARNÖTT miðvikudags
kom enn á ný til harkalegra götu-
bardaga milli palenstínskra
skæruliða og félaga í hinum
hægri sinnaða Falangistaflokki i
nokkrum úthverfum Beirut I
Líbanon. Munu níu manns hafa
beðið bana og þrjátíu særzt og
segja fréttastofur, að þetta sé þó
vægilega áætluö tala. Hörðust
urðu átökin i borgarhlutanum
Dekwanen en flóttamannabúðir
Palestínumanna eru þar skammt
frá. Skothriðin hófst á miðnætti
og stóð fram undir dögun. 1 dag
Hull Daily Mail:
Nýtt hafnbann
í undirbúningi
BREZKA blaðið Hull Daily Mail
skýrði nýlega frá því að fiski-
menn í Grimsby og Inningham
hygðust setja hafnbann á þessar
tvær hafnir á ný, þar eð rfkis-
stjórnin hefði ekki staðið við gef-
in loforð um ákveðnar aðgerðir til
að aðstoða útgerðarmenn og fisk-
iðnaðinn f heild. Sem kunnugt er
hófu fiskimenn í þessum bæjum
hafnbannið, sem síðan breiddist
út til flestra hafna á Bretlandi f
síðasta mánuði.
Að sögn blaðsins eru fiski-
mennirnir orðnir mjög reiðir yfir
aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
og stefna að þvf að nýtt hafnbann
muni ná til allra hafna f Bret-
landi og loka algerlega fyrir alla
skipaumferð. Segjast talsmenn
fiskimannanna að þeir sem gert
hafi út frá þvf að hafnbanninu
lauk hafi orðið að þola bullandi
tap á útgerðinni og þeir þoli slfkt
tap ekki lengur.
var sæmilega kyrrt, en þó heyrð-
ust stöku skot og sprengjuhvellir
fram eftir degi. Allmikill ótti
virðist ríkja meðal almennings
um að til frekari átaka komi á
næstunni. A þessum sömu slóðum
urðu grimmilegir bardagar i apríl
og voru 150 manns drepnir og um
þrjú hundruð særðust. Hefur loft
verið lævi blandið síðan.
Suleiman Franjieh ræddi við
stjórnmálaforingja i dag til að
freista þess að fá annan mann til
að taka við forsætisráðherra-
embætti af Rashid Al-solh sem
sagði af sér fyrir viku. Það sem
ekki hvað sizt olli ágreiningnum
innan stjórnarinnar var að menn
greindi á um leiðir sem fara ætti
ti! að sætta hópa falangista og
Palestínuskæruliða eftir aprílbar-
dagana.
þessum slóðum (og er Islending-
um kunn af kvikmyndum, sem
fslenzka sjónvarpið hefur sýnt frá
starfi hennar þar), — en hún
komst undan.
Mennirnir, sem árásina gerðu,
kváðust uppreisnarmenn frá
Zaire, fyrrum belgisku Kongó.
Þeir töluðu frönsku og Lingali,
sem er zairísk mállýzka. Getgátur
eru uppi um það í Dar Es Salaam,
að svonefndur Simba-her hafi
staðið fyrir árásinni en hann er
skipaður fyrrverandi stuðnings-
mönnum Patrice Lumumba, heit-
ins, sem var með fremstu baráttu-
mönnum fyrir sjálfstæði Kongó á
sínum tima og fyrsti forsætisráð-
herra landsins, eftir að sjálfstæði
var fengið, — en var myrtur af
Katangamönnum. Simba-herinn
varð til á fyrstu árum sjálfstæðis
Kongó og dregur styrk sinn aðal-
lega frá Kivuhéraði, sem liggur að
Tanganyika-vatni.
Búðir fræðimannanna og stúd-
entanna voru á strönd vatnsins
andspænis landamærum Zaire.
Þar höfðust m.a. við 30 stúdentar
frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Mennirnir fjörutíu komu á
tveimur vélbátum yfir vatnið og
hótuðu að drepa búðaverðina, ef
þeir vísuðu ekki á vistarverur
stúdentanna. Sérstaklega spurðu
þeir eftir Jane Goodall en henni
tókst að komast undan og fela sig.
Þá tóku þeir í staðinn tvær banda-
rískar stúlkur, einn bandariskan
pilt og eina hollenzka stúlku og
fluttu þau á brott. Þau eru öll rétt
yfir tvitugt.
Stjórn Tanzaniu hefur farið
þess á leit við stjórnir Zaire, Bur-
undi, Zambiu og Rwanda, sem
eiga lönd að Tanganyika-vatni, að
þær aðstoði við leit að stúdentun-
uhi og ræningjum þeirra.
Wilson:
Bretar leysi
sjálfir sín mál
London, 21. maí. NTB.
HAROLD Wilson, forsætisráð-
herra Breta, lagði I dag áherzlu á
að Bretar yrðu að leysa sjálfir
Bretland:
íhaldsmenn vilja 200
mílna efnahagslögsögu
1 BREZKA blaðinu Daily Mail er
skýrt frá þvf að brezki Ihalds-
flokkurinn hafi lagt fram áætlun
f sjö liðum, sem miðar að þvf að
vernda fiskiðnaðinn í landinu.
Felst f áætluninni að lýst verði
yfir 200 mílna efnahagslögsögu,
og innan hennar verði afmarkað
svæði, sem aðeins brezk veiðiskip
fái aðgang að.
Lýst er yfir þvi að áætlunin
njóti stuðnings alls skuggaráðu-
neytis Margaret Thatcher. 1
áætluninni er sérstök áherzla lögð
á að Bretar taki sér 200 mílna
efnahagslögsögu hið allra fyrsta,
eða þegar alþjóðalög leyfi það. Þá
sé ljóst að undirbúningur þess-
arar útfærslu þurfi að hefjast nú
þegar. Fram kemur að stærð
svæðis þess sem Bretar einir megi
veiða á ætti að vera eins viðáttu-
mikið og mögulegt er, en þar
verði að fylgja alþjóðalögum og
fara samningaleiðina.
Ihaldsmenn segja að þegar ljóst
sé hver verði niðurstaða haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, eigi Bretar að vera reiðu-
búnir að hefja samningaviðræður
meðal annars við Norðmenn um
að rikin færi fiskveiðilandhelgi
sina i 50 sjómilur.
1 áætluninni er og gert ráð fyrir
ýmiss konar ráðstöfunum til að
koma i veg fyrir ofveiði fiski-
stofnanna við Bretlandsstrendur.
efnahagsvandamál sín og gætu
ekki búizt við að lausn á þeim
kæmi utan frá, hver svo sem
niðurstaðan yrði í þjóðaratkvæða-
greiðslunni um áframhaldandi
aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu. En Wilson sagði einnig
að það myndi reynast mörgum
sinnum erfiðara að leysa vandann
ef meirihluti kjósenda greiddi
atkvæði gegn EBE-aðiId.
í Neðri málstofunni fyrr um
daginn vísaði Wilson á bug um-
mælum Tony Benns um að at-
vinnuleysi i Bretlandi myndi
aukast stórlega ef landið yrði
áfram i Efnahagsbandalaginu.
Skýrt var frá því i dag að EBE
hefði í dag veitt stáliðnaðinum i
Bretlandi 15.550.000 sterlings-
punda lán til að reyna að koma
honum á traustan grundvöll en
þessi iðngréin hefur barizt mjög i
bökkum, eins og alkunna er. Lán-
veiting þessi mun gera félögum
og fyrirtækjum kleift að endur-
nýja tækja- og vélakost og sömu-
leiðis tryggja áframhaldandi
vinnu á fimmta þúsund manns.
Tilkynning um lánveitingu
þessa mun að sjálfsögðu koma
mjög til góða þeirn sem hlynntir
eru EBE-aðild en andstæðingar
veru Breta í EBE brugðu við og
kölluðu lánveitinguna mútur.
Washington 21. maí — Reuter.
BANDARlSKA varnarmálaráðu-
neytið hefur birt endurskoðaðar
tölur um mannfall, sem varð þeg-
ar skipinu Mayaguez og áhöfn
þess var bjargað úr höndum
Kambódíumanna. Kemur þá í ljós
að 15 bandarfskir hermenn féllu,
fimmtíu særðust og þriggja er
saknað. Talsmaður varnarmáia-
ráðuneytisins, Laitin, sagði, að
litlar líkur væru á því að menn-
irnir þrír, sem saknað er, myndu
finnast á Iffi.
i"m
f **»
k. -émmf
Þrír nýir
í sænsku
akademíuna
HUFVUDSTADSBLADET
skýrir frá því, að þrír menn
nýir hafi verið kjörnir í
sænsku akademíuna. Þeir eru
rithöfundurinn Per Olof Sund-
man, sem tekur sæti Olle Hed-
berg, rithöfundurinn östen
Sjöstrand, sem tekur við af
Pár Lagerkvist, og Torgny
Segerstedt, rektor í Uppsölum,
sem tekur við af Ingvar
Andersson.
I grein blaðsins segir að
vitað hafi verið að viðsjár hafi
verið með mönnum vegna
kjörs í akademíuna, en Per
Olof Sundman hafi verið sjálf-
sagður. Framlag hans til
sænskra bókmennta á árunum
upp úr 1960 sé ómetanlegt og
um það verði ekki deilt. Svo
virðist sem hinir hafi vissulega
nokkra verðleika og eru rakin
helztu menningarviðfangsefni
þeirra þriggja.
Per Olof Sundman.
östen Sjöstrand.
Torgny Segerstedt.
Meira mannfall í
Mayaguezaðgerð-
inni en búizt var við