Morgunblaðið - 21.06.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1975
3
Ný hljómplata og afmæl-
istónleikar til heiðurs
Maríu Markan sjötugri
MARlA Markan óperusöngkona á
sjötugsafmæli miðvikudaginn 25.
júnf. I tilefni afmælisins hafa
milli 30 og 40 einstaklingar staðið
að útgáfu hijómplötu með söng
Mariu. Á plötunni eru 16 lög, og
hefur upptaka farið fram á ýms-
um tímum. Sú fyrsta er frá árinu
1933, og sú síðasta 1970. Þetta er I
fyrsta sinn, sem gefin er út
hijómplata með söng Maríu
Markan hér á landi, og sumar þær
upptökur, sem á hljómplötunni
eru, hafa aldrei verið fáanlegar á
Marfa Markan. Myndin er tekin
er hún var á hátindi frægðar sinn-
ar og söng við Metropolitan-
óperuna I New York.
almennum markaði né heyrzt I
útvarpi. Platan er gerð á vegum
Fálkans, en fyrirtækið á útgáfu-
rétt á flestum upptökunum, en
Skartgripa-
þjófnaður
SKARTGRIPAÞJOFNAÐUR var
framinn í gullsmíðavinnustof-
unni Aðalstræti 12 í Reykjavík i
fyrrinótt. Gat var brotið á sýning-
arglugga og síðan hefur þjófurinn
smeygt hendinni inn um gatið og
tekið tvö verðmæt gullarmbönd,
nokkuð breið. Söluverðmæti
þeirra er talið vera 150 þúsund
krónur. Kona sem býr i húsinu
heyrði þegar rúðan var brotin og
hringdi til lögreglunnar en þjóf-
urinn var á bak og burt þegar hún
kom á vettvang.
Frímerkjauppboð
FRlMERKJASAFNARAR eru
minntir á uppboð Félags frf-
merkjasafnara, sem haldið verð-
ur í dag kl. 14.30 f ráðstefnusal
Hótels Loftleiða. Uppboðsefnið
verður til sýnis frá kl. 13.
90 þús. kr. stolið
BROTIZT var inn f mannlausa
fbúð á Melunum í fyrrakvöld.
Höfðu þjófarnir á brott með sér
90 þúsund krónur I peningum.
Málið er óupplýst, en rannsóknar-
lögreglan f Reykjavík vinnur að
rannsókn þess.
Ekki talinn í Kfshættu
KONAN, sem varð fyrir bifreið á
Hringbraut, skammt frá Gamla
Garði, á fimmtudaginn, liggur nú
á gjörgæzludeild Borgarsjúkra-
hússins. Hún er mikið slösuð, fót-
og lærbrotnaði á hægra fæti og
hlaut auk þess höfuðmeiðsl og
skrámur. Hún er þó ekki talin
vera í lífshættu. Konan er norsk
að þjóðerni, 66 ára gömul og var
stödd hér f skemmtiferð.
ein var fengin frá RCA-
fyrirtækinu í Bandarfkjunum.
Sigríður Thorlacius ritar umsögn
á plötuumslagið, en hún skráði
ævisögu Marfu Markan, sem út
kom fyrir nokkrum árum.
Annar liður í hátíðahöldum
vegna sjötugsafmælis Maríu
Markan eru hljómleikar, sem
verða i Austurbæjarbíói á mið-
vikudagskvöldið. Þar koma fram
tuttugu einsöngvarar: Inga María
Eyjólfsdóttir, Jón Viglundsson,
Guðmundur Jónsson, Sigurveig
Hjaltested, Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir, Hreinn Líndal, Sól-
veig Björling, Ólöf Harðardóttir,
Garðar Cortes, Sigríður E.
Magnúsdóttir, Guðrún Tómasdótt-
ir, Þorsteinn Hannesson, Elin Sig-
urvinsdóttir, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, Jón Sigur-
björnsson, Svala Nielsen, Krist-
inn Hallsson, Rut L. Magnússon,
Ingveldur Hjaltested og Magnús
Jónsson. Undirljeikarar eru Ölaf-
ur Vignir Albertsson, Gústaf Jó-
hannesson, Krystyna Cortes og
Agnes Löve.
Á efnisskránni eru islenzk lög,
„lieder“, þjóðlög og öperuaríur.
I hljómleikaskránni segir m.a.:
„Alltof lítið af söng Maríu hefur
geymzt á hljómplötum, en nú um
þessar mundir er komin á markað
ein hljómplata með úrvali af þvf,
sem varðveitt er. Verður það
nokkur upprifjun þess unaðar,
sem mörg okkar geyma í minni, er
hin volduga og blæbrigðarfka
rödd söngkonunnar veitti okkur
innsýn í dýrðarheim tónlistarinn-
ar, heim, sem aðeins opnast fyrir
túlkun frábærra listamanna. Fá-
tækleg er tjáning skrifaðra orða
til að þakka slíkar stundir.
Megi þeim listamönnum, sem
með þessum hljómleikum hylla
óperusöngkonuna Mariu Markan,
auðnast að tjá aðdáun og vináttu
okkar allra, sem auðgazt hafa af
kynnum við hana, hina göfugu
konu og frábæra listamann."
Eins og fyrr segir verða tónleik-
arnir á miðvikudagskvöld og hefj-
ast þeir kl. 19. Aðgöngumiðar
verðaseldir í Austurbæjarbíói.
Ngr útibússtjóri
Útvegsbankans
í Kópavogi
A FUNDI bankaráðs Utvegs-
banka Islands 19. júnf 1975 var
Loftur J. Guðbjartsson ráðinn úti-
bússtjóri bankans f Kópavogi frá
1. ágúst 1975 að telja.
Loftur J. Guðbjartsson er fædd-
ur 5/6 1923 og hefur verið starfs-
maður Utvegsbankans síðan í árs-
byrjun 1959. Hann var ráðinn for-
stöðumaður hagdeildar bankans
30. marz 1971 og hefur gegnt þvi
starfi siðan, að þvi er segir i
fréttatilkynningu frá Útvegs-
bankanum.
Frá aðalfundi Sölusambands fslenzkra fiskframleiðenda.
Ljósm. Mbl : Sv. Þorm.
AÐALFUNDUR S.Í.F.:
Saltfiskur fyrir 6,5
j// W* Tómas Þorvaldsson var
m 1 wwt/t/J\M/t Mwm • endurkjörinn formaður.
TIL MARKS um það hvað saltfiskur hefur lækkað i verði á síðustu
mánuðum má nefna að nýlega var samið um sölu á allt að 900 lestum af
smáum fiski til Grikklands fyrir um það bil 35% lægra verð en í
aðalsamningnum á sl. ári. Á næstu mánuðum mun S.Í.F. Ijúka við að
afhenda saltfisk I samninga að upphæð 6,5 milljarðar kr. Þetta kom m.a.
fram á 42. aðalfundi Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, sem haldinn var
I Reykjavík I gær. Á fundinum var Tómas Þorvaldsson endurkjörinn
formaður S.f.F. Á fundinum kom fram, að menn eru mjög óánægðir með
að fá ekki breytingu á viðmiðunargjaldi úr verðjöfnunarsjóði og lögð var
fram tillaga þess efnis, að kosinn yrði 1 maður úr hverjum landsfjórðungi
til að vinna að þessu máli. Þá kom einnig til tals að flytja saltfarma til
fslands með sömu skipum og flytja fiskinn út og að Sölusambandið
annaðist sjálft innflutning á umbúðum og fleiri vöruflokkum, sem saltfisk-
verkendur nota mikið. Yfir 100 fulltrúar voru mættir á fundinn og rlkti
mikill einhugur á honum, en þetta er fjölmennasti aðalfundur S.f.F. siðan
1968.
ekki farið dult með það, að ég álit
að hin stóraukna sókn gefi ekki
nálægt því þann árangur, sem
skyldi, hvað þá æskilegan. Árið
1970 var vertiðarafli bátaflotans
rúmlega 81% meiri heldur en
1975. og ennfremur árið 1970
var vertiðarafli bátaflotans 20%
meiri heldur en heildarvertíðarafli
báta og togara samanlagt árið
1975. Það þarf ekki að fjölyrða
um þessar tölur, þær tala sinu
máli, en hið alvarlegasta við þessa
þróun er að sjálfsögðu það, að
allar líkur benda til þess, að þessi
stóraukna sókn, sem ekki nær
f skýrslu stjórnar kom fram, að
heildarsaltfiskframleiðslan á tima-
bilinu janúar-mai 1975 varð alls
94.100 lestir upp úr sjó en í fryst-
ingu fóru 113.800 lestir. þannig
að saltfiskverkunin hefur sótt
mjög á frystinguna, sérstaklega
vegna hins háa verðs, sem fékkst
fyrir fiskinn í fyrra og hitteðfyrra.
f upphafi fundarins minntist
Tómas Þorvaldsson förmaður
S.f.F. látinna félaga S.f.F. frá þvi
að siðast var komið saman og
þeirra 19 sjómanna, sem fórust á
s.l. ári og þeirra sem fórust i snjó-
flóðunum i Neskaupstað þann 20.
desember s.l. Siðan sagði Tómas:
„Við setningu siðasta aðalfundar
fyrir ári ræddi ég þá geysilegu
verðbólgu, sem leikið hafði is-
lenzku þjóðina grátt siðustu miss-
erin þar á undan. Þá nefndu sér-
fræðingar rikisstjórnarinnar
ástandið hættu-ástand og jafnvel
var búizt við þvi, að atvinnulíf
þjóðarinnar i öllum greinum biði
alvarlegt afhroð. Sem betur fer
varð það ekki algjört, en hins veg-
ar varð alkunnugt skipbrot I sam-
starfi islenzku rikisstjórnarinnar
snemma sumars, og verð ég að
segja það, að oft hef ég staðið
frammi fyrir skipbroti i orðsins
fyllstu merkingu. og aldrei upplif-
að annað en það, að stjórnendur
berðust til hins ýtrasta fyrir fleytu
sinni og a.m.k. kæmu ávallt sið-
astir i land, eftir að hafa séð öllum
sinum skipverjum bjargað á und-
an, en i þessu skipbroti urðu sumir
stjórnendur fyrstir og einir frá
borði og létu öðrum skipverjum
eftir að bjarga sér, þ.e.a.s. is-
lenzku þjóðinni, og var þvi að
loknum kosningum annarri stjórn-
arfleytu ýtt úr vör, er var að
nokkru leyti smiðuð upp úr hinni
fyrri. Hún hefur haldizt á floti, eða
a.m.k. marar i hálfu kafi, enda
hafa skipverjar staðið ósleitilega
við austurinn og er það virðingar-
vert."
Þá vék Tómas að þeim vanda-
málum sem hrönnuðust upp á ár-
unum 1971 — 1973, eins og
óðaverðbólgu, óeðlilegri út-
þenslu rikisins, þjónustugreina
og s.frv. Sifellt yrði erfiðara að fá
fólk til framleiðslustarfa, þar sem
þjónustugreinarnar kölluðu til sín
stærri og stærri hluta fólksfram-
boðsins og ekki sizt að þær
drægju til sin sifellt stærri og
stærri hluta af fjármagninu."
Þá sagði Tómas:
„Á milli vertiðanna 1973 og
1974 urðu allverulegar hækkanir
á útflutningsverði saltfisks. Þvi
miður verður ekki sagt það sama
um vertiðina, sem er nú nýafstað-
in. Söluverð vertiðaraflans 1975
varð lægra en árið á undan, og til
viðbótar koma svo stórauknar
álögur, bæði aukin útflutnings-
gjöld og auknar greiðslur i Verð-
jöfnunarsjóð fram yfir það, sem
öðrum greinum sjávarútvegs er
gert að greiða. Það var öllum Ijóst
á siðasta ári. að afkoma saltfisk-
verkunar yrði nokkuð góð, og varð
það til þess. að saltfiskframleiðsl-
an á árinu 1974 varð töluvert
meiri en hún hafði verið árin á
undan. Sú aukning kom mest til á
þann veg, að þau fyrirtæki, sem
bæði verka i salt og frysta, stór-
juku söltun á kostnað frystingar.
Sú aukning, sem hér um ræðir,
varð langmest i söltun á smáfiski,
sem reyndist afar erfitt að selja
fyrir viðunandi verð seinni hluta
ársins 1974, og er útlitið enn
verra nú. Ég hefi áður vikið að þvi
opinberlega, i hversu alvarlega átt
stefnir með smáfiskadráp okkar
(slendinga og annarra hér á
islandsmiðum, og ég hef heldur
einu sinni að halda sama afla-
magni og fyrir 5 árum siðan, sé
einnig mjög skaðleg fyrir fisk-
stofnana kringum landið, þar sem
smáfiskadráp virðist færast mjög i
aukana, og er þvt ástæðulaus sá
ótti, sem fram hefur komið. a.m.k.
i náinni framtið, að þorskfiskurinn
verði ellidauður á fslandsmiðum.
Þá hafa gæði aflans versnað til
muna vegna þess að meðaltals
útivistartimi hinna nýju smáfisk-
drápstækja er u.þ.b. 12—13 dag-
ar og verður því aflinn 2ja til 3ja
vikna gamall, þegar hann er unn-
inn til útflutnings. Hver hefði trú-
að þvi fyrir 5 árum, ef islenzku
þjóðinni hefði verið sagt það. Nú
má enginn skilja orð mín svo, að
mér sé ekki Ijós nauðsyn þess, að
viðhalda fullri atvinnu I hinum
dreifðu byggðum landsins, en mér
er mjög til efs, að hér sé um annað
að ræða en fljótfærnislega bráða-
birgðalausn, sem þegar hefur orð-
ið Islenzku efnahagslifi um megn,
og verði þjóðinni dýrkeyptari en
e.t.v. nokkurn grunar. Ég itreka
enn það, sem ég hef áður sagt, að
það væri fróðlegt að gera sér grein
fyrir þvi, hvers virði hann væri
okkur eftir u.þ.b. þrjú ár sá smá-
fiskur, sem er deyddur i ár, að
sjálfsögðu að gefnum þeim for-
sendum, að við nýtum einir okkar
Framhald á bls. 18
Tómas Þorvaldsson í ræðustól á aðalfundi S.Í.F. I gær.