Morgunblaðið - 21.06.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNI 1975
5
Samtök fót- og munnmálara
kynna starfsemi sína:
Láta bœklun
ekki aftra sér
frá listsköpun
HER á landi er staddur forseti
samtaka myndlistarmanna, sem
vinna ýmist með fótum eða
munni vegna lfkamlegrar bækl-
unar. Dr. Stegmann stofnaði sam-
tökin árið 1956 og eru nú í þeim
84 listamenn í 29 löndum, auk
aukafélaga.
Dr. Stegmann lamaðist þegar
hann var þriggja ára að aldri, en
fékk mátt í fætur og lærði að
ganga síðar. Hann hefur hins veg-
ar aldrei getað notað hendur sín-
ar. Hann segist eiga foreldrum
sinum mikið að þakka, því að þau
hafi ekki umgengizt sig sem
ósjálfbjarga einstakling í upp-
vextinum, heldur hafi þeir látið
hann bjarga sér sem mest sjálfur.
Dr. Stegmann fékk snemma
BHM gagnrýnir ráð-
herra og kjaradóm
Launamálaráð Bandalags há-
skólamanna hefuy sent frá sér
yfirlýsingu þar sem lýst er yfir
óánægju með úrskurð Kjaradóms
4. júní s.l. Ennfremur segir, að
svo virðist sem Kjaradómur hafi
hagað störfum sínum skv. fyrir-
framákveðnum forsendum, sem
ætlaðar hefðu verið til að hafa
áhrif á gang mála á almennum
vinnumarkaði.
Þá gagnrýnir launamálaráðið
fjármálaráðherra, sem það telur
ekki hirða um, hvort starfsmenn
ríkisins njóti kjara, sem sambæri-
leg séu við kjör viðmiðunarhópa.
Hreint É
tí^land I
fagurt I
Innd I
LANDVERND
áhuga á myndlist og stundaði tré-
skurð fram eftir aldri. Hann gekk
í myndlistarskóla með heilbrigð-
um nemendum og náði þar ótrú-
legum árangri, og sfðar vaknaði
hjá honum áhugi á að stuðla að
því, að þeir, sem væru líkt settir
og hann, nýttu hæfileika sina og
þroskuðu þá eftir föngum með
það fyrir augum að hafa list sína
sér til lífsviðurværis.
Samtök fót- og munnmálara,
eins og nafnið útleggst, hafa að-
setur sitt í Sviss. Félagar halda
þing á þriggja ára fresti. Þeir
hafa nána samvinnu með sér,
styrkja félaga til myndlistarnáms
og hafa samvinnu um sölu á lista-
verkum sinum.
Tilgangur samtakanna er fjór-
þættur: Að leita fatlaðra, sem
hafa listræna hæfileika, selja
framleiðslu félaganna, tryggja
velferð þeirra á allan hugsan-
legan hátt og sýna umheiminum,
að enginn þarf að gefast upp í
lífsbaráttunni þótt hann geti ekki
unnið með höndunum.
Samtök félaga eru starfandi i
hverju aðildarlandi, en samtökin
hafa haldið sýningar um víða
veröld. Þá er gefið út upplýsinga-
rit á tveggja mánaða fresti.
Að sögn dr. Stegmann eru
inntökuskilyrði í samtökin ströng
og fjallar dómnefnd, skipuð vel-
metnum og alheilbrigðum lista-
mönnum, um hverja umsókn.
Samtökin hafa áhuga á að vita
hvort hér á landi eru ekki einstak-
Iingar, sem áhuga hefðu á inn-
göngu, og fer nú fram kynning
starfseminnar hér á landi. I því
skyni heldur dr. Stegmann
sýningu fyrir vistmenn og starfs-
fólk að Reykjalundi í kvöld, en á
þriðjudaginn verður hún endur-
tekin i húsi Sjálfsbjargar i
Reykjavik. Þar mun dr. Stegmann
mála og sýna kvikmynd, sem gerð
hefur verið um þessa sérstæðu
listsköpun.
Óttar Halldórsson starfar fyrir
samtökin hér á landi. Nýlega voru
send út kort með eftirprentunum
eftir listamenn í samtökum fót- og
munnmálara, en sala kortanna er
liður í starfseminni.
Dr. Stegmann
kynnti áhugafólki
og blaöamönnum
list sína aó Hótel
Loftleiðum í
fyrradag. Meðal
þeirra, sem við-
staddir voru, var
Vilhjálmur
Hjálmarsson
menntamálaráð-
herra og herra
Sigurbjörn
Einarsson biskup,
og gerði dr. Steg-
mann andlits-
mynd af biskupi.
Breidd 2,54 cm X lertgd 1,93 cm.
Breidd 2,54 cm X lengd 2,54 cm.
Breidd 2,54 cm X Iengd3,16cm.
Breidd 2,54 cm X lengd 3,78 cm.
Blómaval, garðgróðurhúsið
Eigum ennbá til allar stærðir af vinsælu
ál-gróðurhúsunum.
STÆRÐIR.
Góðir greiðsluskilmálar.
blómouol
_*■_r* -
Gróðurhúsið v/Sigtún Símar 36770 — 86340
Félagsgarður Kjós
Haukar, Laukar, Sparibaukar
Dúndurhressir eftir túrinn Norður
Sætaferðir frá BSÍ,
Hafnarfirði, Borgarnesi
og-Keflavík.
Sérstök kynning: Hin
bráðefnilega hljómsveit
Gugga Sveins