Alþýðublaðið - 07.09.1958, Síða 5

Alþýðublaðið - 07.09.1958, Síða 5
Su.nnudagur 7. sept. 1958 5 'A 1 þ ý 8 u b 1 a 8 | 8 Vigur í ísafjarðardjúpi. — Ljósm.: Ragnar Guðmundsson. ERÁ RAUÐASAN'DI héldum við ti) Patreksfjarðar og síð- an til Breiðuvíkur og Hvallátra- Þaðan var gengið á Látrabjarg. Við gengum á bjargið, þar sem það er hæst (441 m.), sam- kvæmt kortum virðist þar heita Kritsnakinn. Bjargið er þver- hhípt að kalla niður í sjó, en víða gróið, enda fuglalíf mikið í bjarginu. Svo kveður Jón Helgason í kvæðinu Áfangar: • ;« * , ,,A)votur stendur upp að knjám öldubrjóturinn kargi kagandi fram á kalda röst kvikur af fuglaþvargi; býsn eru meðan brothætt jörð brestur ekki undir fargi þar sem, á hennar holu skurn Maðið var Látrabjargi“. Innar með bjarginu er strand staðurinn, þar sem ,,björgunar- afrekið við Látrabjarg“ var unnið við hin erfiðustu skil- yrði, sem margir kannast við af frásögn og úr kvikmynd, og lengi mun í minnum haft. — Bjargtangar á Látrabjargi er vestasti oddi landsins, Hval- látur vestasti bærinn. I baka- leiðinni komum við í Breiðu- vík og fengum þar hinar ágæt- ustu viðtökur. Um kvöldið var haldið til Sauðlauksdals og tjaldað við dálítið vatn inni í dalnum. Morguninn eftir, 7. ágúst, skoðuðum við staðinn. Svo einkennilega vildi til, að þá Úr sumarleyfinu. III. voru liðin nákvæmlega 199 ár siðan fyrst var gróðursett kart- afla í íslenzkri mold, en. það gerði sr. Björn Halldórsson, bóndi í Sauðlauksdal 7. ágúst 1759 ,að því er talið hefur ver- ið. Síðan hafa Islendingar verið kartöfluætur og geta nú varla kartöflulausir lifað, þótt ekki sé nema nokkra daga- Sr. Björn Halldórsson var mikill búnaðar frömuður og framkvæmdamað ur. Hann lét byggja heljarmik- inn varnargarð niður við sjó- inn, til að hefta sandfok og upp blástur. Var garðurinn nefnd- ur Ranglátur. Munu bændur hafa verið ófúsir til verksins. Sér enn greinilega merki garðs ins. Frá Sauðlauksdai var hald- ið inn fyrir botn fjarðarins og til Vatneyrar við Patreksfjörð. Allt í einu stóðum við í „þorp. inu“ hans Jóns úr Vör, sem nú mun að vísu mikið breyt.t frá því, er hann stóð þar í fjöru með fóstru sinni og horfði eftir litlum báti. Ég geng niður á malarkambinn við sjóinn og rifja upp erindi úr ,,Þorpinu“: „Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heíminn, en þorpið fer með þér alla leið.“ Reykháfurinn á Hesteyri. —^ Ljósm.: Ragnar GuSmuntlsson, Eftir örstutta viðdvöl kveðj- um við „þorpið“ og höldum ferðinni áfram yfir til Tálkna- fjarðar og um Tunguheiði til Bíldudals. Á Bddudal var meiningin að fá bat og ferju með fólkið og bílinn yfir Arnarfjörð. Meðan beðið var eftir ferjunni, var ekið inn í Suðurfirði, Fossfiörft, Reykjarfjörð og Trostansfjörð. í Trostansfirði fórum við í skeljafjöru, og höfðu ýmsir á brott með sér ígulker og hörpudiska og fleiri góða gripi. Þarna setti Ragnar fararstjóri á flot gúmbát, sem hann hafði meðferðis ,og reri á haf út, en fiskarnir hoppuðu og dönsuðu í kringum hann og undruðust stórlega þessa skrýtnu sjókind, sem komin var mitt á meðal þeirra. Um kvöldið var bíllinn ferjaður yfir fjörðinn og sung- ið svo hátt, að undir tók í öll- um fjöllum Arnarfjarðar. Við lentum að Auðkúlu, næsta bæ við Rafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Síðan var búið upp á „klárinn“ í skvndi og ekið inn að Dynjandi og tjaldað þar seint um kvöldið — til tveggja nátta. —o— Næsti dagur var notaður til að skoða umhverfið. Fyrst var haldið að Mjólká, sem fellur í Börgarfjörð í Arnaitftirði, og Mjólkárvirkjunin skoðuð. — Mjólkárvirkjunin á að nægja fyrir Vestfirði alla að undan- skildum ísafirði. Er virkjunin langt komin, verður væntan- lega lokið einhverntíma í sept- ember í haust. Var þegar lok- ið tengingu við Þingeyri. Er þetta hið myndarlegasta mann- virki. Seinni part dagsns skoð- uðum við Fjallfoss eða Ðynj- andi,. eins og hann er oftast nefndur í daglegu tali, og aðra fossa í Dynjandiá. Dynjandi þykir einn fegursti foss lands ■ ins. Hann er um 100 m. hár og 30 m. breiður, þar sem hann fellur fram af brúninnl, en helmingi breiðari neðst. Neðan við Dynjandi eru fimm minni fossar, sumir hin mesta meist- arasmíði. Vonandi verður þess langt að bíða, að nauðsynlegt verði að taka þessa fögru fossa tii virkjunar. - Eftir tveggja nátta dvö) í Arn aríirði var búizt til brottferð- ar. Nokkrir fóru með bílum þjóðveginn t'l Dýrafjarðar. — En flestir hugðust ganga á Glámiu og þaðan nið.ur í botn Dýrafjarðar. — Gang- an á Glámu var ákaflega létt og auðveld, enda er þetta ekki mikið fjall, aðeins 920 m. á hæð. En útsýni af hæsta tindi hennar, Sjónfríð, er meira pn margur mundi ætla að! óreyndu. Þeir, se.m lengst sáu og vildu gera hlut Glámu sem stærstan og beztan, töldu sig sjá í níu eða tíu sýslur landsins en þá var líka öilum klókindum beitt í útreikningi. En hvað sem þv líður, þá hygg ég, að enginn verði fvrir von- brigðum, sem gengur á Glámu og nýtur útsýnis þar, í björtu veðri og góðu skvggni. Jónas Hallgrímsson skrifar árið 1840: „Illur vegur á Vesturlandi og Gláma skást, því þar fer maður á blessuðum jökli.“ Nú er þetta mikið breytt. Vegirnir á Vest- urlandi eru nú yfirieitt góðir og jökullinn á Glámu farinn veg allrar veraldar fyrir löngu. Efti eru aðeins nokkrir snjó- skaflar hér og þar í lautum og brekkum. Um kvöldið reistum yið tjöld í Dýrafjarðarbotni. —o— Morguninn eftir var ekið að Núpi í Dýrafirði. Það var bjart yfir staðnum. Hópur fallegra barna lék sér í grænu túni. — Allir, sem að Núpi koma, skoða garðinn Skrúð, sem þau hafa ræktað og prýtt sr. Sigtryggur Guðlaugsson og kona hans, enda er garðurinn mikil staðar- prýði. Þar hefur margt gott urskilyrði og í íslenzkri mojtí. Að lokinni heimsókn að Núpi, 'viir haldið yfir Gemlufjallsdal og niður í Bjarnadal í Önundar firði. Þar er Kirkjuból Guð- mundar Inga: , Eg treysti þér máttuga rnold Ég er maður, ,sem gekk út að sá“. Síðan var ekið til Flateyrar. Þar var að hefjast samkoma eða hátíð Framsóknarmanna. Við leituðum uppi veitingasölu og fengum okkur kaffi og með því. Ég held það búi gott fólk á Flat eyri. Jólakökusneiðarnar voru tveggja tommu þykkar. Nú var ha Idið norður yfir Breiðadals- heiði til ísafjarðar, en í leiðinni var skotizt vestur yfir Botns- heiði, svo að séð varð ofan í Súgandafjörð. Hann er ekki ^ikill fyrir fjörð að sjá, en ber þó sinn persónulega svip, ekki ósnotran -Á ísafirði gistum við tvær nætur og skruppum það- an til Súðavíkur, Hnífsdals og Bolungavíkur. Ekki v)i;rðuir sagt, að það sé neinn nýtízku- svipur á Súðavík eða Hnífsdal, þó að sjálfsagf búi þar duglegt og gott fólk, eins og anoars- staðar á Vestfjörðum. Ef til vilt eru atvinnuskilyrði þar miður l'góð Bolungarvík er hins vegar þokkalegt og myndarlegt kaup tún og staðurinn sérlega við- kunnanlegur. ■—o— Á ísafirði var fenginn bátur inn í Jökulfirði, allt norður til Hesteyrar. Jökulfirðir eru nú allir í eyði og sömuleiðis víkurn ar þar fyrir norðan allt austor til Reykjarfjarðar á Ströndum. Áður var mikil byggð á þessu Dynjandi í Arnarfirði. — Ljósm.: Helga Kristinsdóttir. handtak verið unnið. Yfir dyr. um garðsins stendur: „Maður- inn sáir og plantar, Guð gefur uppskeruna". En þó að garður- inn sjálfur sé mikil staðarprýði, þa eru þó kannski meira virði þau áhrif, sem hann hefur haft á þá, sem sótt hafa staðinn heim og séð með eigin augum, hve „fagran jarðargróða“ er únnt að rækta við íslenzk veð- svæði öllu, þó að afskekkt vaeri og víða langt á milli bæja. A Hesteyri er heldur óvirðule-gt um að lítast. Af síldarverk- smiðjunni stendur nú lítið eft- ir annað en reykháfurinn. Sagt er, að eigendurnir hafi afhent ríkissjóði verksmiðjuna upp í skatta, og virðist það ekki ó- skynsamlega ráðið, Því næst Framhalcí á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.