Alþýðublaðið - 07.09.1958, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 07.09.1958, Qupperneq 7
Sunnudagur 7. sept. 1958 AlþýSablaBiS 1 Sýning á afskornum blómum og blómaskreytingum. frá gróðrastöðvunum Álfafelli, Lindarbrekku, Garði, Fagrahvammi og Grímsstöðum, Hveragerði. Eitt fegursta úrval afskorinna blóma, er sést hefur hérlendis. ..... Opið í dag, sunnudag kl. 10—23 Aðgangur ókeypis Framhald af 5. sí?m. var haldið til baka inn að Me1- graseyri með viðkomu í Æðey og Vigur. Heimilin í Æðev og Vigur eru bæði landsþekkt fyr- ir gestrisni og höfðingsskap, — enda settist allur hópurinn þar að veizluborðum. Bjarni í Vigur, sem nú er siö- tugur a'ð aldri, en ern og léttur í máli, sýndi okkur eyna, en synir hans, Björn og Baldur, búa þar hinu mesta rausnar- búi. í Vigur stendur enn körn- mylla, líklega sú eina, sem nú er til á landinu, var síðast mgi að í henni korn árið 1920. Þar getur e.innig að líta áttæring, um 200 ára gamalt hákarlaskip, en það er nú notað til fjár- flutninga. SHk skip niunu nú býsna fágæt. í Æðey búa þeir Ásgeir og Halldór Guðmundssynir, hinir traustustu og merkustu bænd- ur. Er þar allt snoturlega og vel um gengið og búnaðarfram kvæmdir miklar. Og vel búa þeir að heyjum, fornum og nýj um, enda víst aldrei orðið hey. lausir í sinni búskapartíð. Ás- geir er mikill unnandi fagurra ljóða og á gott bókasafn. Lík- lega kann enginn íslendingur kvæði Einars Ben. eins vel og hann, og þykja þau iþó ekki öll auðlærð. Það er mikill menning arbragur á öllu í Þessum eyj- um í Djúpinu og móttökur fólks ins hlýjar og alúðlegar. Dimmt var orðið, Þegar við komum að Melgraseyri, og tjalcL að þar í myrkri. Frá Melgraseyri var ekið suð ur Langadalsströnd og yfir Þorskafjarðarheiði og gist í Geiradal. Það var kuldi og sjö- buxnaveður á ’heiðinni. Dag- inn eftir var snúið við blaðinu og haldið norður yfir Brekku- dal og Steinadalsheiði niður í Kollafjörð og þaðan áfram allt norður til Hólmavíkur og Drangsness við Steingríms- fjörð- Trúarlíf og kristindómur virðist standa með miklum blóma í þorpunum við Stein- grímsfjörðinn. Á Hólmavík var verið að byggja mikið og veg- legt guðshús stendur það hátt og fær ekki dulizt, eins og vera ber. Á Drangsnesi hafði hins vegar verið boðað til kristilegr- Faðir okkar, tengdafaðir og afi JÓN INGVAR JÓNSSON, Þverveg 6, er andaðist 25. ágúst verður jarðaður þriðjudaginn 9. þ. m. kl. 1,30 frá Neskirkju. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Blóm og kransar aíþökkuð. Þeim's'em vildu minnast hins látna er bent á Styrkt arfélag lamaðra og fatlaðra. OIi Kr. Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir Helga Jónsdóttir Þórhallur í. Jónsson. Ingólfur Fr. Hallgrímsson Egill Fr. Hallgrímsson og barnabörn. ar siðabótarsamkomu um kvöld ið, en það var eins og fyrri dag- inn, við urðum af blessuninni. Næstu nótt var gist að Klúku í Bjarnarfirði. Þar er sundlaug. Kom það sér vel, og var hún 1 óspart notuð ,enda allt fólkið sundgarpar hinir mestu. Að morgni var haldið suður á bóg- inn og heim á leið og skyldi gist í Borgarfirði síðustu nótt ferðarinnar, en síðan haldið um Hvítársíðu og Uxahryggi f bæ- inn. Þessi Vestfjarðaför Farfugla heppnaðist mjög vel. Veður var yfirleitt hagstætt, að vísu dá- lítið kalt á köflum, en oftast þurrt. Margijp sérkennilegir og fagrir staðir eru á Vestfjörö- um og fólkið gestrisið og gott heim aðsækja. Var okkur hvar vetna vel tekið. Og erfitt er að hugsa sér sam!hentari og betri ferðaféflaga en þátttak- endurna í þessari ferð, og far- arstjórn var öll með ágætum. Vegna óheppilegt orðalags í fyrstu grein minni og hugsan- legs misskilnings, skal það tek. ið fram, að Ólína og Margrét, sem Þar eru nefndar, tjölduðu yfrleitt samhliða okkur Guð- mundi, og bundum við tjöld okkar saman, reyndust þær báð ar, eins og allir aðrir í ferð- inni, duglegir og prýðilegir ferðafélagar, enda hinar vönd- uðustu til orðs og æðis, eins og allir vita, sem þær þekkja. — Eru hlutaðeigendur beðnir af- sökunar á orðalaginu. Gestur Guðfinnsson. LEIGUBlLAR Bifreiðastoð Steindórs Sími 1-15-80 Biíreiðastöð Reykjavíkui Sími 1-17-20 Harry-Carmichaeí: Nr. 63 Greiðsla fyrir morð sem við höfum sett okkur stefnumót við, að stíga þarna út úr farartæki sínu“. Bíll hafðj numið staðar úti fyrir bankanum, Konan, sem steig út úr honum, var gerólík þeir.ri frú Barrett, sem Piper hafði séð og átt tal við. Hún var vel snyrt gskk á hælaháum skóm og bar glæsilegan hatt, — virtist að minnsta kosti tíu árum yngri. Hún dró loðhanzkana, sem hún hafði notað við aksturinn, af höndum sér og lagði í fram sætið, tók handtösku sína, lok aði bílhurðinni og sneri við þeim baki á meðan hún beið eftir því að umferðina lægði. Gekk síðan aftur fyrir bílinn °g UPP á gangstéttina, hægum og rólegum skrefum, og hvarf þeim in-n í bankann. Quinn blístraði lágt. „Lags- maður“, sagði hann. „Hvað skyldi þetta eiga að þýða? Við réttarhöldin leit hún út eins og fuglahræða, en nú... fyrir hverjum skyldi hún eigmlega vera að halda sér til?“ „Ef til vill aðeins fyrir sjálfri sér“, varð Pip;er að orði. „Nú er sýningunni lokið, telur hún. Henni hlýtur að hafa ver ið það óbærileg kvöl að líta í spegill að undanförnu, — en nú verður þú að Iáta til þín taka. Farðu inn í bankann og sjáðu hvað hún hefst að. Hún þekkir mig, en það er að miwnsta kosti mjög ólíklegt að hún muni svo eftir þér að hún beri kennsl á þig“. • „En ef einhver afgreiðslu- fólkinu snýr sér að mér. . ,,Þá geturðu beðið um að skipta fyrir þig pundsseðli . „Ef ég ætti pundsseðil11, mæltj Quinn, ,þá mundi ég ekkert hafa við þig að tala“. Hann opnaði dyrnar og renndi sér út úr bílnum, bretti upp frakkakragann, skauzt fram hjá æðandi bifreiðum á gang- stéttina og hvarf inn í bank- ann. Eftir svo sem stundarfjórð- ung kom hann út aftur, stefndi inn á torgið en sneri við, þegar hann hafði gengið djúgan spöl og um svipað leyti kom frú Barrett út úr bankanum. Hún bar handtöskuna enn undin hendinni, en það leyndi sér ekki að nú gætti hún hennar mun betur en áður. Piper var hissa á því að handtaskan skyldi ekki vera stærri. Ekki gat hún komið öllu tryggingarfénu í hana. jafnvel ekki þótt hún hefði fengið það greitt í fimm punda seðlum. Ef til vill tók hún ekki alla upphæðina út í einu, — leitt eða tvö þúsund pund í hvart skipti. Það virt ist að minnsta kosti mun hyggilegra, en slíkar bollalegg ingar voru vitanlega með öllu þýðingarlausar. Hún stieig inn í bílinn, lagði handtöskuna í sætið við hlið sér og dró ökuglófana loðnu á hendur sér. Á næstu andrá sætti hún lagi og hélt af stað út í straumröst umfeirðarinnar. í sömu svifum opnaði Quinn bíldyrnar og settist undir stýri, ók fram fyrir bíl á fleygiferð. sem hemlaði svo hvein f og þeytti hornið ákaflega, komst í autt vik í umferðinni og smeygði sér þar inn, þrátt fyr- ir hemlahvin og öskur þeirra, sem töldu sig eiga iréttinn, og varð, fyrir snarræði sitt, aðeins tuttugu ti] þrjátíu metrum á eftir bíl frú Bamett. Hann hafði ekki augun af þeim fjórum eða fimm bílum, sem skildu farartæki hennar og þeirra félaga að, og um leið sagði hann Piper frá því hverm Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn- um úrskurði verða lögtök látin fara fram án frekarj fyr- irvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessairar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Sköttum og öðrum gjöldum samkv. skattskrám 1958. að því leyti sem gjöld þessi eru í eindaga fallin vegna þess, að ekki var greiddur á réttum tíma tilskilinn hluti þeirra samkv. reglugerðum nr. 103 og 115 frá 1957, áfölln um tollvörutegundum og matvælaeftirlitsgjaldi, skipu- um tollvörutegunduir og matvælaeftirlitsgjaldi, skipu- lagsgjaldi, rafmagnseftirlitsgjaldi, skipaskoðunai’gjaldi og afgreiðslugjadi af skipum, svo og iðgjöldum atvinnu- rekenda og atvinnuleysistryggingagjaldi af lögskráðum sjómönnum. Borgarfógetinn í Reykjavík, 5. sept. 1958...'. Kr. Kristjánsson. Hreyfilshúðin. Þa6 er hentugi fyrlr FERÐAMENN aH verzla í Hreyfllsbúðinnf.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.