Morgunblaðið - 21.06.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNl 1975
11
Islenskir félagsráðgjafar hafa
safnað ýmsum upplýsingum um
skipulag og uppbyggingu Breið-
holtshverfisins f Reykjavík og
verða niðurstöður þess eitt við-
fangsefni ráðstefnunnar.
RÆÐA VANDAMÁL HRAÐRAR UPPBYGGINGAR
BREIÐHOLTSHVERFISINS
Samtök norrænna félags-
ráðgjafa halda dagana
21.—27. júní ráðstefnu hér
á landi. Aðalefni ráðstefn-
unnar verður fyrirbyggj-
andi félagslegt starf, en
þetta er fimmta ráðstefna
norrænu samtakanna og
hin fyrsta, sem haldin er á
tsland’i. Þátttakendur í
ráðstefnunni verða milli
80 og 90 félagsráðgjafar
frá öllum Norðurlöndum
auk ýmissa tslendinga
annarra, sem sérstaklega
hefur verið boðið til
hennar vegna tengsla
sinna við þá málaflokka,
sem fjallað verður um.
Eins og fyrr sagði er aðalefni
ráðstefnunnar fyrirbyggjandi
félagslegt starf en það efni er nú
efst á baugi meðal félagsráðgjafa
á öllum Norðurlöndum, þvf í
starfi sínu verða félagsráðgjafar
áþreifanlega varir við hve erfitt
er að ná tilætluðum árangri m.a.
vegna skilningsskorts stefnumót-
andi manna á raunverulegri upp-
sprettu félagslegra vandamála og
á hvern hátt megi koma í veg
fyrir þau. Þessi skoðun kom fram
á blaðamannafundi hjá Stéttar-
félagi íslenzkra félagsráðgjafa,
sem það boðaði til I tilefni ráð-
stefnunnar.
A fundinum kom einnig fram,
að markmið fyrirbyggjandi
félagslegs starfs væri að vinna að
bættu umhverfi og lífskjörum
fólks. Þessu markmiði telja
félagsráðgjafar að verði ekki náð
nema með að kannað sé, hvað
veldur félagslegum vandamálum
og hvaða aðgerðir stuðla að
endurbótum. I þeim tilgangi
verða á þessari ráðstefnu tekin
fyrir 6 viðfangsefni, sem öll fjalla
um fyrirbyggjandi félagsleg störf.
Fulltrúar frá hverju landi
leggja fram eitt viðfangsefni
nema hvað Norðmenn leggja
fram tvö. Fulltrúar Islands leggja
fram verkefnið BREIÐHOLT —
félagsleg þjónusta í nýju Ibúðar-
hverfi. Eins og kunnugt er hefur
uppbygging Breiðholtshverfisins
verið afar hröð, og ekki tekizt að
hafa framboð ýmissar þjónustu í
samræmi við þarfir. Af þessum
sökum hafa skapazt ýmis vanda-
mál innan hverfisins. Félagsráð-
gjafar hafa tekið saman upplýs-
ingar um skipulag og uppbygg-
ingu hverfisins og þá sérstaklega
Breiðholts III. Finnskir félagsráð-
gjafar leggja fr^pi verkefni, sem
fjallar um geðverndarstöðvar
fyrir unglinga. Svíar taka til með-
ferðar félagslega þjónustu við
aldraða. Danir fjalla um samtök
skjólstæðinga og hvernig virkja
má samborgara til þátttöku i upp-
byggingarstarfi. Norðmenn
leggja fram tvö viðfangsefni.
Fjallar hið fyrra um fyrirbyggj-
andi æskulýðsstarfsemi en hið
siðara um áfengisvarnir í at-
vinnulífinu. öll þessi viðfangs-
efni verða tekin fyrir í starfshóp-
um, sem skila munu niðursiöðum.
A ráðstefnunni verða flutt þrjú
erindi. Gunnar Thoroddsen,
Samnorrænn sjón-
varpshnöttur
innan 5 ára?
Danska blaðið Berlingske
Tidende skýrði nýlega frá þvf,
að innan 5 ára væri tæknilega
mögulegt að koma upp sam-
eiginlegum gervihnetti til
sjónvarpsútsendinga fyrir öll
Norðurlöndin, þannig að f
hverju landi væri á sama tima
hægt að ná sjónvarpssending-
um frá hinum Norðurlöndun-
um, en þó með þeim hætti að
sérstakur móttakari yrði að
vera tengdur hverju tæki. Er
verð á slíkum móttakara áætl-
að um 40 þúsund fsl. kr.
Skv. sænskri könnun á mál-
inu mundi kostnaður við slfk-
an gervihnött verða um 700
milljónir danskra króna, eða
um 2 mifljarðar fsl. króna.
Segir í niðurstöðum konnunar-
innar að mögulegt sé að koma
kerfinu upp fyrir lok þessa
áratugs og mundi þetta kerfi
auk þess að senda milli landa
tryggja góð sjónvarpsskilyrði
á ýmsum stöðum á Norður-
löndum, sem erfitt hefur verið
að ná til, einkum f N-Noregi.
Mbl. bar þessa frétt undir Jón
Skúlason póst- og sfmamála-
stjóra og sagði hann að um-
rædd könnun hefði ekki verið
lögð fyrir íslenzka aðila til
álitsgerðar, en hins vegar væri
unnið að margháttuðum og
vfðtækum könnunum f sam-
bandi við gervihnött fyrir
Evrópu, sem þá gæti bæði séð
um sjónvarpssendingar og
önnur alþjóðleg fjarskipti.
Slfkt væri þó ennþá aðeins á
rannsóknarstigi og engin
ákvörðun verið tekin um fram-
kvæmdir.
félagsmálaráðherra, fjallar um
þróun félagsmálalöggjafar á Is-
landi, Páll Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri, ræðir um heilbrigðis-
mál á Islandi I ljósi nýrrar lög-
gjafar, sem samþykkt var á sið-
asta ári, og Jón Tynes, félagsráð-
gjafi, fjallar um fyrirbyggjandi
starf í heilbrigðismálum.
Stéttarfélag félagsráðgjafa á Is-
landi var stofnað árið 1964 og
voru stofnfélagar þess 4. Starf-
andi félagsráðgjafar hér á landi
eru nú 16 og þar af starfa 6 hjá
Reykjavíkurborg og fjórir hjá
ríkisstofnunum. Aðeins einn
félagsráðgjafi starfar utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins en það er á
Akureyri. Formaður félagsins er
Guðrún Kristinsdóttir.
íslenskir félagsráðgjafar eru fámenn stétt. Hér á myndinni sést
helmingur þeirra, sem starfandi eru. Talið frá v. Karl Marinósson, Jón
Tynes, Sigrún Júliusdóttir, Margrét Margeirsdóttir, Sævar Guðbergs-
son, Svava Stefánsdóttir, Sigrún Karlsdóttir og María Þorgeirsdóttir.
Ibuð óskast
Tæknifr. óskar að taka á leigu 3ja—4ra herb.
íbúð. — Breiðholtshverfi væri æskilegt. Uppl. í
símum 36251 og 32848.
FlUðIR
brimkló
kvöld
Munið tjaldstæðin.
Sætaferðir frá B.S.Í.
J
Júdas
Hvoií?
Kiddi sýnir
íkvöld
járnhendina
„Kungfu"
Stórkostlegt stuð
að Hvoli í kvöld.
Munið sætaferðir BSÍ
verður allt
brjálað því
Júdas
mun?