Morgunblaðið - 21.06.1975, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JONÍ 1975
Rætt við Adhemar Montagne, sendiherra
r
„Sjávarútvegurinn er okkur
mjög mikilvægur því ha'nn sér
okkur fyrir 30 til 35% af út-
flutningstekjunum,“ sagði
Adhemar Montagne, sendi-
herra Perú á Islandi í samtali
við Morgunhlaðið. Montagne
hefur aðsetur í London og þetta
Peru a Islandi
Ljósm.MhLSv. I»orm.
Adhcmar MonlaKnu, Sundihcrra Pc»rú á
Islandi.
pany, sem er dótturfyrirtæki
Esso, vegna fjársvika þess og
spiilingar.
Hvað varðar utanrikisvið-
skipti þá urðum við mjög háðir
Bandaríkjunum i striðinu þar
sem markaðarnir i Evrópu lok-
uðust. Bandarikin eru enn okk-
Stefnum að gerbreyt-
inguá vinnslu ansjósu
er i þriðja sinn, sem hann kem-
ur til Islands. Hann varð sendi-
herra á Islandi árið 1970.
„Fiskveiðar okkar snúast
fyrst og fremst um ansjósur, en
nú er unnið að því að gerbreyta
vinnslu á þeim fiski í því skyni
að draga úr sveiflum, sem
undanfarið hafa komið illa við
okkur. Á árunum 1972 og 73
hvarf ansjósan að mestu vegna
heitra slrauma. sem blönduðust
kalda straumnum, sem
ansjósan lifir i. Veiðar urðu
þess vegna litlar sem engar.
Þetta hafði kannski ekki ýkja
alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahag Perú vegna þess hvað
verð á fiskimjöli var lágt, en
félagslegu áhrifin voru meiri
og í sjávarplássunum varð al-
varlegt atvinnuleysi sem snerti
150 þúsund manns. Stjórn Perú
hefur þess vegna tekið upp
breytta stefnu. í fyrsta lagi
hafa verið teknar upp víðtækar
verndunaraðgerðir og veiðar
mjög takmarkaðar. Fyrir
nokkrum árum veiddum við 10
milljónir tonna af ansjósu og
framleiddum 2 milljónir tonna
af mjöli. I ár hafa hins vegar
ekki verið leyfðar veiðar nema
á 2 milljónum tonna auk ein-
hvers magns, sem leyft verður
að veiða í haust.
I öðru lagi er verið að reyna
að auka verðmæti framleiðsl-
unnar með meiri fjölbreytni.
Mest allur aflinn hefur fram til
þessa farið í mjölvinnslu en nú
á að auka þann hluta sem fer í
neyzluvörur fyrir fólk. I því
skyni er verið að byggja nýja
stóra höfn fyrir norðan Lima,
þar sem verða niðursuðuverk-
smiðjur og frystihús."
Perú var ein af fyrstu þjóð-
um heims til að færa út land-
helgi sína í 200 sjómílur, ekki
satt?
„Jú, við færðum landhelgina
í 200 mílur árið 1947 og höfum
eins og þið átt í erfiðleikum
með vörzlu hennar. Við vorum
fyrsta fiskveiðiþjóðin, sem
færði út og ástæðurnar fyrir
útfærslunni voru eingöngu
efnahagslegar en ekki pólitísk-
ar. Við urðum að grípa til að-
gerða til að vernda okkar fiski-
mið,. sem eru óvenju auðug
bæði vegna Humbolt-
straumsins og vegna þess hvað
árnar bera mikið af lífrænum
efnum til hafs, en það er vegna
þess hvað láglendi er lílið þann-
ig að árnar renna ekki nema
stutta leið frá fjöllunum í sjó.“
— Perú hefur hafið boranir
eftir olíu i Amazonskógunum.
Hver hefur árangurinn orðið?
„Hann hefur orðið mjög
góður. Það hafa fundizt mjög
auðugar oliulindir í Amazon,
sem nú á að fara að nýta. Mér
er þó ekki kunnugt um hvað
mikið af olíu kann að finnast
þarna. Nú er verið að leggja
leiðslu um 800 km vegalengd í
gegnum Andesfjöll til Kyrra-
hafsstrandar. Sú leiðsla á að
vera tilbúin í lok næsta árs.
Annars er þetta ekki fyrsta
olían, sem við finnum. Við höf-
um nú i nokkur ár dælt upp
olíu úr lindum, sem eru undir
hafsbotni. Reyndar er þetta
ekki mikið magn og fullnægir
ekki okkar eigin þörfum. Nú er
framlciðslan um 65 þúsund
tunnur á dag en 1980 á fram-
leiðslan að vera komin upp í 1
milljón tunna á dag og þá verð-
um við farnir að flytja oliu út,“
— Er olíuframleiðslan í
höndum Pcrúmanna sjálfra?
„Hún er í umsjá ríkisfyrir-
tækis, Petroperú, sem getur
gert samninga við erlend oliu-
félög. Mörg erlend olíufélög
starfa í Perú, bandarisk, brezk,
hollenzk, japönsk og frá fleiri
ríkjum. Erlend oliufélög geta
fengið 7 ár til að leita að olíu og
ef þau finna eitthvað fá þau
vinnsluréttindi til 35 ára, en
þau fela það í sér að helmingur
þeirrar hráolíu, sem fyrirtækin
dæla upp, fer til Petroperú en
hinn helminginn mega þau
vinna sjálf. “
— Er Perú efnahagslega háð
Bandaríkjunum?
„Við höfum veitt mörgum er-
lendum fyrirtækjum, ekki sízt
bandarískum, sem fjárfesta
vilja i Perú, ýmis fríðindi. Þessi
fyrirtæki eru mjög mikilvæg.
Þau hafa til dæmis fjárfest
mikið í oliunni. Yfirleitt höfum
við átt góða samvinnu við
erlendu fyrirtækin og haft lítið
yfir þeim að kvarta. Það hefur
þó komið fyrir að við höfum
orðið að taka fyrir starfsemi
erlendra fyrirtækja, eins ogt.d.
International Petroleum Com-
ar mesta viðskiptaland, sem
ekki er óeðlilegt af landfræði-
legum ástæðum, en við höfum
reynt að snúa viðskiptum okkar
einnig í aðrar áttir og þá
sérstaklega til Austur- og
Vestur-Evrópu."
— Það hafa orðið miklar
efnahagslegar og félagslegar
breytingar í Perú undanfarin
ár. Hvernig er þeim háttað?
„Á undanförnum 6 árum
hafa verið gerðar miklar endur-
bætur, fyrst og fremst á þrem-
ur sviðum: i landbúnaði, iðnaði
og menntun.
Algjör eignaskipti hafa orðið
á landbúnaðarjörðum. Ástand-
ið var þannig að 2% allra land-
eigenda áttu 85% af öllu landi.
Sumar jarðirnar voru stærri en
Belgía. Nú hefur allt land verið
fengið samvinnufélögum þess
fólks, sem starfar við land-
búnað, en hinir gömlu land-
eigendur voru keyptir út. Þeir
gátu ráðið því hvort þeir fengju
aðeins hluta að greiðslunni í
reiðufé og siðan 6% af afgangn-
um árlega, eða þá allt féð á einu
bretti, en þá voru þeir skuld-
bundnir til að Ieggja það í iðn-
að.
Endurbæturnar í iðnaði miða
að þvi að auka þátttöku Perú-
manna sjálfra. I því skyni var
komið á þvi sem kallað hefur
verið „iðnaðarbandalag", en i
því felst að fyrirtækin verða að
leggja I sjóð á hverju ári 15%
af óskattlögðum hagnaði. Þegar
sjóðurinn er orðinn jafn eign-
um fyrirtækisins, gengur hann
til starfsmanna þess í formi
hlutabréfa þannig að þeir
eignast helming fyrirtækisins.
Endurbæturnar á mennta-
kerfinu felast í því að komið
hefur verið á skólaskyldu til 14
ára aldurs og allir eiga kost á
ókeypis menntun."
— Hefur ekki stjórn Perú
staðið framarlega i mótmælum
gegn kjarnorkutilraunum á
Kyrrahafi?
„Jú, það er rétt, við höfum
mótmælt harðlega kjarnorkutil-
raunum á því svæði, og erum
reyndar á móti öllum kjarn-
orkutilraunum, eins og sjá má
af þeim sáttmálum, sem við
erum aðilar að, „sagði senor
Montagne að lokum.
—pje
Blðm ©
vikunnar
Gullhnappur
(Trollius)
Framan af sumri er gull-
hnappurinn mjög áberandi
garðplanta hér á landi. Þar
sem á annað borð er um ein-
hverja garðrækt að ráeða má
hvarvetna sjá þessa vöxtu-
legu plöntu með sín fagur-
gulu kúlumynduðu blóm
blasa við augum og geislar
af þeim þegar sólin skín.
Gullhnappurinn er af sóleyj-
arætt enda sýna blöðin
ættarmótið svo ekki verður
um villzt. Hann vex villtur
víða um lönd og álfur m.a. á
Norðurlöndum og í Dan-
mörku gegnir hann því
ágæta nafni ENGJABLÓMI.
Má geta nærri því að í heim-
kynnum sinum muni hann
vera glæsilegur ásýndum
þar sem hann vex á vot-
i-
,j
lendum engjum og einnig í
fjallahlíðum. Einkennilegt
er það við blóm gullhnapps-
ins að það eru bikarblöðin
sem eru svo stór og bera
þennan sterka gula lit og
gegna því í rauninni hlut-
verki krónublaðanna, en
þau eru aftur á móti mjög
óveruleg og oftastnær inni-
lukt í blóminu. Algengast er
að blómin séu lukt, þ.e. eins
og kúlur í laginu. Sumar
tegundir bera þó blóm sem
opnast til fulls (trollius
chinensis) og enn aðrar
opnast aðeins að litlu leyti
(trollius asiaticus).
Litir gullhnappsins eru
mjög breytilegir, þeir
dekkstu allt að því rauðgulir
en ljósustu rjómagulir og
þar á milli öll hugsanleg lit-
brigði. Þá fer vaxtarlag allt
og blómstærð mjög eftir teg-
undum og einnig blómg-
unartími, en blómgun hinna
ýmsu tegunda stendur yfir
frá því í maí og allt fram í
ágústmánuð. I ársriti Garð-
yrkjufél. Islands 1974 er
greinarkorn um gullhnappa
eftir Ólaf Björn Guðmunds-
son og í niðurlagi hennar
lýsir hann ágæti þessarar
harðgerðu plöntu með eftir-
farandi orðum:
„Það er vissulega full
ástæða til að gefa gaum
þessum ágætu garðjurtum,
sem hafa svo marga kosti til
brunns að bera: Þær eru
fullkomlega harðgerðar hér,
dafna og blómstra vel í
okkar heldur röku og þungu
jörð, þola jafnvel nokkurn
skugga, blómstra yfirleitt
það snemma að ekki er orðið
mikið um lit i garðinum, eru
ágætar til afskurðar og eru
litt næmar fyrir kvillum og
meindýrum. Þær ætti ekki
að vanta i nokkurn skrúð-
garö.
„Engjablómi, balasómi,
heyrðu heillin mín!
Viltu að ég kærastan
verði þín?“
/ÁB.
MORGUKBLAÐIÐ
fyrir 50 árum
VÖXTUR bæjanna er einhver
merkasta breytingin í þjóðlífi
voru á síðustu tímum. Það
þarf ekki annað en að líta á
íbúatölu í Reykjavik, til þess
að sjá hve stórvaxinn hann
hefir verið:
Árið
1801
1840
1860
1880
1901
1915
1924
ib.
307
890
1444
2567
6882
14200
rúm 19000
Þ. 23. f.m. voru hátíðahöld
mikil í New York í tilefni af
því, að þá var búið að ganga
frá torgi einu, sem kennt er
við Leif Eiriksson. Stytta
mikil af Leifi verður þar á
torginu. Svo segir í blöðum
að 7000 Norðmenn hafi verið
viðstaddir athöfnina á hinu
nýja torgi. Eigi mun þurfa að
leiða getum að því, hverrar
þjóðar Leifur Eiríksson hafi
verið talinn þann daginn.
Messur
á morgun
Dómkirkjan
Messa, ferming og altarisganga
kl. 11 árd. — Fermd verða
Irene Hildur Norwood og Larry
Valtýr Clarck — bæði frá Kali-
forníu í Bandaríkjunum — til
heimilis hér að Bragagötu 25.
Séra Óskar J. Þorláksson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 11 árd. Séra Garðar
Svavarsson.
Háteigskirkja
Lesmessa kl. 10 árd. Séra
Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2
siðd. Séra Jón Þorvarðsson.
Fríkirkjan Reykjavík
Messa kl. 2 siðd. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Langholtsprestakall
Messa kl. 11 árd. Ræðuefni:
Barátta kvenna á kvennaári.
Sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son.
Ásprestakall
Messa kl. 11 árd. að Norður-
brún 1. Séra Grlmur Grimsson.
Óháði söfnuðurinn
Aðalsafnaðarfundur verður í
safnaðarheimilinu Kirkjubæ
miðvikud. 25. júní kl. 20.30.
Safnaðarstjórnin.
Hallgrlmskirkja
Messa kl. 11 árd. Séra Karl
Sigurbjörnsson.
Árbæjarprestakall
Messa í Árbæjarkirkju kl. 11
árd. Séra Guðmundur Þor-
steinsson.
Fella- og Hólasóknir
Guðsþjónusta í Fellaskóla kl. 11
árd. SéraHreinn Hjartarson.
Neskirkja
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra
Frank M. Halldórsson.
Bústaðakirkja
Messa kl. 11 árd. Séra Ólafur
Skúlason.
Elliheimilið Grund
Messa kl. 10 árd. Séra Magnús
Guðmundsson fyrrv. prófastur.
Grensássókn
Safnaðarferðin austur I Hreppa
og Þjórsárdal með helgistund
að Stóra-Núpi hefst frá
safnaðarheimilinu kl. 9 árd. á
sunnudaginn. Sóknarnefnd.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti
Lágmessa kl. 8 árd.
Hámessa kl, 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 siðd.
Kópavogskirkja
Messa kl. 11 árd. Séra Þor-
bergur Kristjánsson.
Kirkjuvogskirkja
Messa kl. 2 síðd. Séra Jón Árni
Sigurðsson.
Stokkseyrarkirkja
Guðsþjónusta kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
Akraneskirkja
Messa kl. 10.30 árd. Séra Björn
Jónsson.