Morgunblaðið - 21.06.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚNl 1975
13
Hannesi Péturssyni afhent
Henrik-Steffens verðlaunin
Síðdegis í gær afhenti
prófessor Kaltefleiter,
varaforseti háskólans í
Kiel, íslenzka rithöfund-
inum Hannesi Péturs-
syni Henrik-Steffens
verðlaunin fyrir þetta ár,
en þau nema 25 þúsund
mörkum. Við þetta hátíó-
lega tækifæri, þar
Skáld lífs-
nautnarínnar
sem strengjakvartett
kammerhljómsveitarinn-
ar í Kiel lék, var íslenzka
stúdentinum Árna
Óskarssyni jafnframt af-
hentur námsstyrkur, sem
er i tengslum við þessi
verðlaun. Norrænufræó-
ingurinn dr. Otto Ober-
holzer prófessor, sem
sæti á í úthlutunarnefnd-
inni flutti afhendingar
ræðuna, sem Jón Friö-
jónsson lektor við
norrænu deild háskólans
í Kiel hafði samið.
Hannes Pétursson er nú 43
ára gamall. 1 20 ár hefur hann
unnið að bókmenntastörfum í
heimalandi sfnu og þá fyrst og
fremst sem Ijóðskáld. Þegar
hafa komið út eftir hann sjö
ljóðabækur. En hann hefur
einnig ritað sögubækur, ferða-
sögur og ævisögur, auk þess
sem hann er háskólalærður i
íslenzkum málvisindum. Hann
hefur skrifað fjölmargar
greinar í blöð og tímarit, samið
bókmenntalegt alfræðirit, tekið
saman íslenzkt skáldatal og rit-
að ævisögu skáldsins Stein-
grims Thorsteinssonar, sem er
mjög vinsæll i heimalandi sinu,
en hann var uppi á 19. öld.
Ekkert hefur enn verið þýtt af
verkum hans á þýzku.
Hannes Pétursson fæddist á
Sauðárkróki, sem er smábær á
Norður-lslandi, þar sem hann
hafði náin kynni af hinum
mikilvægu atvinnugreinum ís-
lendinga, fiskiveiðum og land-
búnaði, og þar öðlaðist hann
einnig hlutdeild i hinum að-
dáunarverða bókmenntalega
menningararfi Islendinga, sem
gagntekur alla þjóðina: vísna-
kveðskap, fornsögum og þjóð-
sögum, en þangað sótti hann
síðar margar hugmyndir, yrkis-
efni og form sem skáld og rit-
höfundur.
14 ára að aldri kom Hannes
Pétursson til Reykjavikur. Þeg-
ar hann var tvftugur, hófst hjá
honum timi ferðalaga, náms og
yrkinga. Hinn þýzki menn-
ingarheimur dró hann til sin,
og hann nam germönsk fræði í
Köln og Heidelberg. Hánn
sökkti sér þá niður í verk
Georges og Hesses, en þó mest í
rit Rainer Maria Rilkes. Frá
árinu 1959, er hann hafði lokið
háskólaprófi sínu, hefur verð-
launahafinn unnið við islenzkt
bókaútgáfufyrirtæki.
Hannes Pétursson átti
snemma miklum vinsældum að
fagna meðal allra bókmennta-
unnenda i heimalandi sínu og
þá jafnframt bókmenntagagn-
rýnenda og hlaut margs konar
verðlaun. Hann hefur til dæmis
lengi hlotið árlegan ríkisstyrk
fyrir listsköpun sína (það er
fyrirbæri, sem væri algerlega
óhugsandi i Vestur-Þýzkalandi
í dag). Meðal íslenzkra skáld-
bræðra sinna hefur hann frá
upphafi haft algera sérstöðu.
Aðal listar Hannesar Péturs-
sonar er framúrskarahdi fjöl-
breytni yrkisefna hans og hið
vandaða form, sem lýtur stöð-
ugum breytingum. Hann yrkir
um gleði og sorg, og meðal
verka hans — segir Jón Frið-
jónsson í verðskuldunarræð-
unni — eru sum hinna fegurstu
islenzku ástarljóða 20. aldar, og
þau vekja til lifsins þráða, liðna
tíð. Hann snýst gegn vígbúnaði
og sérhverri lítilsvirðingu á
fyllingu hins jarðneska lífs.
Hann leitar óþreytandi, en full-
ur sjálfsgagnrýni, að sannleika
og gildi i tilverunni og i skáld-
fkap eins og „Sögum af himna-
föður", sem hann hefur þýtt á
móðurmál sitt sem og „Ham-
skiptin" eftir Kafka. Mörg
„spakmæla" hans minna á hina
sígildu vizkuleit hinna fslenzku
fornbókmennta. í ljóðagerð
sinni reynir hann að fara
meðalveginn milli hinnar æva-
fornu, ströngu bragfræði ásamt
rími og hinnar nýrri, frjálslegri
umgerðar hinna svonefndu
„atómskálda". Menn telja sig
þegar geta skýrt greint þrjú eða
fjögur þróunarstig skáldskapar
hans, og hvert þeirra einkenn-
ist af nýjum tjáningarmögu-
leikum, en stöðnunar hefur
aldrei orðið vart fram að þessu.
Verðlaunahafinn lagði
áherzlu á það í sambandi við
verk sín, að skáldskapur sinn
væri tilraun til íslenzkrar túlk-
unar á evrópskri nútímahugsun
i ljóðum. Hann væri tákn um
andlegan og félagslegan um-
þóttunartima á íslandi, við-
leitni til málamiðlunar milli
borgarlegrar menningar og
menningar timanna fyrir iðn-
byltinguna, en þó skirrðist
hann ekki við að mæla gegn
neikvæðum fyrirbærum vorra
tfma. En án þekkingar á sér-
kennum hinnar „sibreytilegu
og skapandi“ náttúru Islands
væri þó ekki hægt að skilja
skáldskap sinn til neinnar hlit-
ar.
(tJr „Kieler Nachriehten" 14.
júni s.l. — svá þýddi)
Falleg húð
Það er draumur flestra kvenna að hafa fallega
húð. Ýmsar frægar konur gera nú meira en að láta
sig dreyma um það, þær gera eitt og annað til þess.
Leikkonur og fyrirsætur þurfa atvinnu sinnar vegna
að huga vel að húðinni, og flestar hafa reynt alls
kyns aðferðir þar til þær hafa fundið það, sem bezt á
við þær, og þá lætur árangurinn ekki á sér standa.
Hér á eftir eru umsagnir þekktra bandarískra
kvenna, sem við hinar gætum ef til vill lært nokkuð
af um hirðingu húðarinnar..
1. Alleen Mehle, „Suzy“,
blaðakona. Hún fer alls ekki i
sólbað. Hún segist hafa verið
mikill sóldýrkandi áður fyrr, en
húðin þoldi það ekki, svo að
hún varð blettótt. Hún hefur
feita húð, og að hennar mati
eru konur heppnar, sem hafa
feita húð, minni hætta á hrukk-
um, þegar konur eldast. Raka-
krem notar hún alltaf á næt-
urnar og undir „make-up“. Á
morgnana þvær hún sér úr
vatni og sápu, og reykingar og
áfenga drykki telur hún hafa
vond áhrif á húðina.
2. Maude Adams, fyrirsæta
og leikkona. Hún telur hreins-
un húðarinnar aðalatriðið,
þvær sér fyrst úr vatni og sápu,
og setur alltaf augnkrem kring-
um augun. Tvisvar á ári fer
hún í andlitssnyrtingu, annars
fer hún oft heima í andlits-
gufu. Stundar leikfimi þrisvar i
viku.
3. Serena Rhinelander, fyrir-
sæta. Hennar ráð er að húðin
eigi að vera sem eðlilegust,
notar vatn og sápu, hefur feita
húð, og segist ekki nota raka-
krem nema mjög kalt sé f veðri,
og þá notar hún einnig nætur-
krem.
4. Dollie Cole, segist nota
allt, sem hún haldi að fegri
húðina. Hún segir, að góður
nætursvefn og gott skap sé
bezta fegrunarlyf nokkurrar
konu, sem komin sé af léttasta
skeiði.
5. Dinah Shore, leikkona:
Þegar hún var ung, fannst
henni hún ekki fríð, svo að hún
notaði þá mikið „make-up“. Það
gerir hún ekki lengur. Hún ver
andlitið með barðastórum
höttum. Hreinsun húðarinnar
er mikilvægust fyrir konu eins
og hana, sem vegna atvinnu
sinnar þarf að nota mikinn
farða. Hún marghreinsar
húðina og á milli þvær hún
hana upp úr völgu vatni. A eftir
notar hún rakakrem.
6. Carol Burnett, leikkona.
Hreinsun húðarinnar er mikil-
vægust. 1 það minnsta þrisvar í
viku hreinsar hún húðina með
oliu og þvær hana síðan úr
volgu vatni og sápu. Síðan
notar hún gufu á andlitið,
hreinsar aftur og setur á sig
andlits-maska. Lætur hann
harðna, þvær aftur úr volgu
vatni og köldu á vixl.
7. Cristina Ford. Hún telur
hreinsunina mikilvægasta,
tekur „make-up“ af með hreins-
unarkremi, notar siðan andlits-
vatn. Rakakrem á næturnar.
Rétt mataræði kemur næst, úti-
vera og æfingar og hvild, og að
hafa húðina ófarðaða eins oft
og hægt er, svo að húðin geti
andað.
8. Abra Rockefeller And-
erson, útgefandi í Chicago.
A morgana notar hún hreins-
unarkrem og andlitsvatn og
rakakrem. Á kvöldin tekur hún
farðann af með hreinsunar-
kremi og þvær siðan andlitið
með vatni og sápu. Og þegar
hún man eftir því, notar hún
næturkrem. Hún hefur afar
þurra húð og notar alltaf mjög
mikið krem á andlitið þegar
hún fer i bað, og setur alltaf
baðoliu í baðvatnið. Svefn telur
hún mikilvægastan fyrir góða
húð.
9. Diahann Carroll leikkona
Hún hefur mjög þurra húð og
notar mjólk til þess að hreinsa
húðina með, fitan i mjólkinni
hjálpar mikið. Hreinsun húðar-
innar telur hún mikilvægasta,
og leikfimi sem kemur blóðrás-
inni af stað og eykur vellíðan.
10. Pat Loud, rithöfundur.
Þvær sér úr sápuvatni tvisvar á
dag, notar rakakrem, borðar
reglulega og sefur átta stundir.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á næstunni ferma
skip vor til íslands,
sem hér segir:
Antwerpen:
Urriðafoss 23. júni
Grundarfoss 30. júni
Tungufoss 7. júli
Urriðafoss 14. júli
Rotterdam:
Urriðafoss 24. júni
Grundarfoss 1. júli
Tungufoss 8. júli
Urriðafoss 1 5. júli
Felixtowe:
Dettifoss 24. júni
Mánafoss 1. júli
Dettifoss 8. júlí
Mánafoss 1 5. júlí
Hamborg:
Dettifoss 26. júni
Mánafoss 3. júli
Dettifoss 10. júli
Mánafoss 1 7. júlí
Norfolk:
Fjallfoss 26. júni
Selfoss 8. júli
Fjallfoss 23. júli
Goðafoss 25. júlí
Weston Point:
Askja 3. júli
Askja 1 7. júli
Kaupmannahöfn:
Múlafoss 24. júni
írafoss 1. júli
Mútafoss 8. júlí
írafoss 1 5. júli
Helsingborg:
Álafoss 7. júli
Álafoss 21. júlí.
Gautaborg:
Múlafoss 25. júni
írafoss 2. júli
Múlafoss 9. júli
írafoss 1 6. júli
Kristiansand:
Álafoss 24. júni
Álafoss 8. júli
Álafoss 22. júli
Gdynia/Gdansk:
Múlafoss 21. júni
Laxfoss 1. júlí
Bakkafoss 14. júlí
Valkom:
Laxfoss 27. júni
Bakkafoss 10. júli
Ventspils:
Laxfoss 30. júni
Bakkafoss 1 2. júli
Bretland
M inni vörusendingar í (
gámum frá Birming- [
ham, Leeds og Lond- [
on um Felixstowe.
Upplýsingar á skrif-
stofunni, sími 27100. [
| Reglubundnar}
vikulegar
! hraðferðir frá:
ANTWERPEN,
FELIXSTOWE,
GAUTABORG,
HAMBORG,
KAUPMANNAHÖFN
ROTTERDAM
l^GEYMÍÐ
TjJ auglýsinguna
EIMSKIF
SLiLzaZLl