Morgunblaðið - 21.06.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚNI 1975
15
Chicago, 20. júní.
AP Reuter.
SAM „Momo“ Giancana, foringi f
glæpasamtökum í Chicago er ný-
lega voru bendluð við meintar
tilraunir leyniþjónustunnar CIA
til að myrða Fidel Castro, forsæt-
isráðherra Kúbu, fannst skotinn
til bana á heimili sfnu f nótt.
Giancana var handtekinn 70
sinnum um ævina. Hann flýði til
Mexíkó fyrir tveimur árum til að
komast hjá þvi að mæta fyrir rétti
og skýra frá skipulagðri glæpa-
starfsemi í Chicago. Honum skaut
aftur upp i Chicago í október í
fyrra og þá samþykkti hann að
gefa skýrslu gegn því að hann
yrði ekki ákærður.
Þegar Giancana var myrtur
voru aðeins húsvörður Giancana
og kona húsvarðarins í húsinu.
Giancana fannst liggjandi á grúfu
í eldhúsi í kjallaranum. Húsvörð-
urinn og kona hans horfðu á sjón-
varp annars staðar i húsinu og
sögðust ekki hafa heyrt skothrið.
Giancana og annar Chicago-
bófi, John Roselli, voru viðriðnir
áætlanir sem CIA gerði um að
ráða Castro af dögum á árunum
eftir 1960 samkvæmt nýlegum yf-
irlýsingum yfirmanns einnar
deildar leyniþjónustunnar,
Richard Bissel. Giancana átti
miklar eignir í spilavitum á Kúbu
áður en Castro komst til valda.
Robert F. Kennedy komst á
snoðir um að Giancana og Rosselli
kynnu að hafa verið viðriðnir
CIA-samsæri um að myrða Castro
samkvæmt heimildum i leyni-
þjónustunni i síðasta mánuði.
Kennedy „hreyfði engum mótbár-
um“ að sögn heimildamannsins
en sagði honum að „koma til sin
fyrst þegar hann ætti næst skipti
við Mafíuna".
Símamynd AP
Fastaráð Norður-Atlantshafsbandalagsins á fundi með Ford forseta í Hvíta húsinu
í Washington í fyrradag. Tómas Tómasson, fastafulltrúi íslands, er lengst til
vinstri. Ford forseti situr handan borðsins ög við hlið honum James Schlesinger
landvarnaráðherra en gegnt forsetanum situr Joseph Luns, framkvæmdastjóri
bandalagsins.
Kissinger vill
útskýra málin
Washington, 20. júní — AP.
UTANRlKISRÁÐHERRA Banda-
ríkjanna, dr. Henry Kissinger,
ætlar að senda tvo menn til
Kinshasa, höfuðborgar Zaires, til
að ræða við Sese Seko Mobuto
forseta til „að reyna að útskýra
málið,“ eftir að Mobuto rak sendi-
herra Bandarfkjanna úr landi.
Kissinger bað Mobuto um að
taka á móti Sheldon B. Vance,
sem var sendiherra í Zaire
1969—74 og Walter Cutler, sem
annast málefni Mið-Afriku i
bandariska utanríkisráðuneytinu.
Zaire lýsti bandaríska sendi-
herrann Deane R. Hinton persona
non grata á fimmtudag og var
honum skipað að fara úr landi í
síðasta lagi á laugardag.
Ástæðan er sú að stjórn Zaire
álitur, að CIA, leyniþjónusta
Bandaríkjanna, hafi staðið að
baki misheppnaðri byltingartil-
raun í landinu.
Launum heitið
Bonn 20. júní — Reuter
Vestur-þýzka stjórnin bauð i
dag 50.000 mörk (3,3 milljónir isl.
kr.) að launum fyrir upplýsingar,
sem leitt gætu til handtöku
þeirra, sem hleruðu símtal
tveggja leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar.
Tilkynning um þetta kom í kjöl-
far fordæmingar samtaka vestur-
þýzkra blaðamanna á vikublaðinu
Framhald á bls. 18
Kissinger hefur neitað þessum
ásökunum og segir þær enga stoð
eiga í veruleikanum.
Karpov
Samsæri segir
Indira Gandhi
Nýju-Delhi, 20. júni — Reuter.
INDIRA Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, hélt þvf fram á
föstudag að hópur manna hefði
bundizt samtökum um að bola
henni burt úr stjórnmálum, og
jafnvel ráða hana af dögum.
Sagði hún þetta á fundi þar sem
henni var fagnað ákaft af urn
100.000 stuðningsmönnum.
Lögmenn frú Gandhi vinna nú
að þvi að undirbúa málflutning
hennar fyrir hæstarétti Indlands,
þar sem hún ætlar að reyna að fá
dómi, sem kveðinn var upp yfir(
henni fyrir kosningasvik, hrund-
ið. Dómstóll í Allahabad dæmdi
hana frá þátttöku í stjórnmálum
næstu 6 ár, en gaf henni 20 daga
frest til að áfrýja.
Karpov er
sigurviss
Ljubljana. 20. júní.
Reuter.
ANATOLY Karpov frá Sov-
étríkjunum er sama sem
viss um sigur á fyrstaskák-
mótinu sem hann hefur
tekið þátt í síðan hann var
lýstur heimsmeistari í
apríl þar sem hann gerði
jafntefli við Svetozar
Gligoric frá Júgóslavíu í
næstsíðustu umferð skák-
mótsins í Ljubljana.
Karpov hefur einum vinningi
betur en Gligoric fyrir síðustu
umferðina sem verður tefld á
laugardag. Öliklegt er talið að
Karpov tapi í síðustu umferðinni
þar sem hann mætir þá lægsta
manninum á mótinu, Marjan
Karmar frá Júgóslaviu.
Spánn hótar
USA hörðu
FRETTIR
Madrid, 20. júni.
NTB. Reuter.
SPANVERJAR hafa sagt banda-
risku stjórninni að Bandaríkja-
mönnum verði ekki leyft að nota
herstöðvar á spænskri grund ef
til nýrrar styrjaldar komi milli
Israelsmanna og Araba.
Spænska fréttastofan EFE
skýrði frá þessu að loknum sjötta
viðræðufundi Spánverja og
Símamynd AP
Fyrstu olíu Breta úr Norðursjó dælt úr olíuskipinu Theogennitor, sem siglir undir
Líberíufána, í Isle of Grain. Olían kom frá Argyll-svæðinu sem'er 225 mílur undan
strönd Skotlands. Magnið var 13.000 lestir.
Bandaríkjamanna í Washington
um afnot Bandaríkjamanna af
herstöðvum áSpáni.
Viðræðurnar verða teknar upp
að nýju 30. júní og þeim verður
haldið áfram þar til núgildandi
samningur rennur út í september
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Spánverjar munu setja það
skilyrði fyrir framlengingu samn-
ingsins að Bandarikjamenn stuðli
að nánari tengslum Spánar og
NATO að sögn opinbers tals-
manns í Washington.
Ef Bandarikjamönnum tekst
það ekki er hugsanlegt að Spán-
verjar krefjist þess að Banda-
ríkjamenn fækki í herliði sínu á
Spáni að sögn talsmannsins.
í Washington er sagt að reynt
sé að komast að samkomulagi sem
skuldbindi Bandaríkin ekki form-
lega til að ábyrgjast öryggi
Spánar.
Embættismenn segja að þingið
samþykki aldrei að Bandarikin
bindi sig samkvæmt samningi til
að verja Spán eins og þeir eru
skuldbundnir til að verja aðildar-
riki NATO.
Bandaríkjamenn hafa allfjöl-
mennt lið i Torrejon-flugstöðinni
skammt frá Madrid, hafa afnot af
Saragossa-flugstöðinni þar sem
þeir stunda skotæfingar og hafa
4.000 sjóliða í kjarnorkukafbáta-
stöðinni i Rota.
Spánverjar vilja að Bandaríkja-
menn taki á sig sams konar skuld-
bindingar gagnvart Spáni og
NATO. Bandaríkjamenn styðja
aðild Spánar að NATO en ýmis
aðildarriki vilja ekki Spán í
bandalagið.
Ef svo ólíklega vill til að
Karpov tapar og Gligoric sigrar
Vlastimil Hort frá Tékkóslóvakíu
í siðustu umferðinni verða
Karpov og Gligoric efstir og jafnir
á mótinu og skipta á milli sín
fyrstu verðlaunum sem eru 2.000
dollarar.
Karpov og Gligoric sömdu um
jafntefli eftir 28 leiki. „Staðan
var jöfn og ég bauð jafntefli,“
sagði Gligoric. „Mig langaði ekk-
ert til að reyna að ná sömu stöðu
og Karpov á mótinu."
Alls hafa verið tefldar fjórtán
skákir á mótinu og Karpov hefur
sjö sinnum unnið og gert jafn-
tefli. Aðstoðarmaður hans,
Semyon Furman, sigraði Rudi
Osterman í fjórtándu umferðinni
og er í þriðja sæti ásamt Hort sem
. gerði jafntefli við ungverska
meistarann Zoltan Ribli.
Staðan fyrir síðustp umferð:
Karpov er með 10)4 vinning,
Gligoric 9)4, Hort og Furman 9,
Ribli 8)4, Ljubojevic 8, Parma 7)4
og biðskák, Portish 7 og biðskák,
Velimirovic og Barle 7, Planinc
6'á, Mariotti 6, Garcia 5, Musil 4)4,
Osterman 3)4 og Karnar 2)4 vinn-
ing.
Fundir ganga
vel í Kenya
Nakuru, Kenya, 20. júní
— Reuter.
ÞRJAR andstæðar frelsishreyf-
ingar Angóla hafa í dag reynt að
koma sér saman um áætlun um
kosningar áður en að landið fær
sjálfstæði frá Portúgal. Bendir
allt til þess að hreyfingarnar
verði búnar að ná samkomulagi á
morgun.
Leiðtogar hreyfinganna áttu
fimm klukkustunda fund í
morgun en siðan var ætlunin að
hittast aftur í kvöld.
Allar sendinefndirnar, sem i
Framhald á bls. 18
Töpuðu
fyrir
Dönum
Hönefoss, 20. júni. NTB.
ISLENDINGAR töpuðu fyrir
Dönum 0—20 í níundu umferð
Norðurlandamótsins f bridge í
Hönefoss í Noregi og eru
neðstir í karlaflokki.
íslendingar töpuðu einnig
fyrir Dönum í unglingaflokki,
19—1, en þar eru þeir i þriðja
sæti.
Staðan i karlaflokki er þessi:
Noregur 112 stig, Finnland
108, Danmörk 104, Sviþjóð 83
og Island 58 stig.
í unglingaflokki er staðan
þessi: Noregur 126, Danmörk
125, ísland 92, Svíþjóð 90 og
Finnland 28 stig.
Mafíu-vinur
CIA skotinn