Morgunblaðið - 21.06.1975, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNÍ 1975
29
VELVAKAIMDi
Þessa mynd birti færeyska blaðið Dimmalætting
nýlega ásamt grein um grænlenzka söngflokkinn
MIK, sem þar var á ferð nýlega og flutti Færeying-
um söng og þjóðleg skemmtiatriði frá Grænlandi.
Velvakandi svarar I síma 1.0-100
kl 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
% Kettir og
stjúpublóm
Asta Jðnsdóttir skrifar:
„Velvakandi minn.
Maður (eða kona) á pistil i
dálkum þínum í dag. Hann kvart-
ar undan ágangi katta í Vestur-
bænum og segir smáfuglana
engan frið hafa fyrir þessum
kvikindum.
Þá get ég sagt honum og öðrum,
sem áhuga kunna að hafa, að ég á
lika heima í Vesturbænum. Hér i
hverfinu átti þröstur hreiður með
fimm ungum, sem börnin í hverf-
inu báru fyrir brjósti og fylgdust
með af áhuga. Nú í vikunni
gerðist sá atburður að heimilis-
köttur fann hjá sér hvöt til að
drepa og hálféta tvo þeirra.
Hinun; var þyrmt i bili.
En kettirnir eru aðgangsharðir
við fleira en þrastarunga. í
byrjun mánaðarins setti ég niður
stjúpublóm í garðinn minn. Ekki
hafði ég fyrr Iokið við þetta verk
en búið var að rífa mörg blóm upp
og þeyta þeim út fyrir beðið. Þar
voru hvorki fuglar né börn að
verki — það er ég viss um — því
að varla leið nema örskotsstund
frá þvi að ég kom inn og ætlaði að
líta handverk mitt með velþókn-
un út um gluggann, að ég sá
hvernig komið var. Engin börn
voru í nágrenninu, en hins vegar
sá ég á eftir kattarafmáninni með
sinn ólundarlega baksvip út úr
garðinum mlnum.
Það er ekki einleikið hvernig
látið er með þessa ketti. Hér i
næsta nágrenni við mig eru að
minnsta kosti þrjár fjölskyldur
með ketti, auk þess sem sumir
vorkenna svo villiköttunum, að
þeir eru óþreytandi við að hæna
þá að sér og þar með hverfinu hér
í kring. Þessir kettir vaða um allt
eftirlitslausir, koma á himili sin
og fara þaðan eins og þeim sýnist,
enda mun það vera eðli kattarins
að fara sinna eigin ferða.
Ef eigendur þeirra vildu aðeins
reyna að hafa meira eftirlit með
þeim, alla vega meðan ungar eru
að skríða úr eggjum, þá væri
kattarfarganið þolanlegra en nú
er. Ég legg ekki þessi ræfils
stjúpublóm min og blessaða
þrastarungana að jöfnu en ég lít
það illu auga þegar annarra
manna kvikindi eru að þvælast
inni I minum garði.
Ásta Jónsdóttir."
Það fer að verða athugandi fyr-
ir borgarstjórnina okkar hér I
Reykjavík, hvort ekki sé kominn
tími til að taka til endurmats
reglur um kattahald, alveg eins
og hundahald.
0 islenzkir
Blefkenar
Haraldur Blöndal skrifar:
Á dögum Arngríms lærða var
það útbreidd skoðun meðal
Evrópubúa, að tslendingar væru
skrælingjar eða eskimóar. Vin-
sælar bækur fluttu mönnum þessi
fræði og varð Blefken einna
frægastur blekiðnaðarmaðurinn.
Þá settist Arngrímur lærði niður
og skrifaði hvert verkið á fætur
öðru til þess að hrekja þessi
ósannindi og sýna hvaða fólk
byggi hér.
Þrátt fyrir þessi skrif Arngríms
og þrátt fyrir mun vinsamlegri
skrif annarra útlendinga en Blef-
kens, er það furðu útbreitt enn,
að tslendingar séu eskimóar. Er
illt að una því, enda uppruni ts-
lendinga allur annar. Þó held ég,
að upp á síðkastið hafi þeir verið
orðnir anzi fáir, sem enn héldu að
eskimóar byggðu tsland. En sann-
leikurinn fékk ekki lengi að vera
I friði. t vetur er leið, finna
nokkrir tslendingar upp á því að
velta sér upp úr vandamálum
eskimóa i stað þess að leysa sin
eigin. Samið er leikrit eða eitt-
hvað sllkt, sem sýna á eskimóa, og
rokið með þetta út í lönd. Vitan-
lega verða allir yfir sig hrifnir:
En hvað villimennirnir eru sætir
og likir venjulegum mönnum, —
ég sem hélt að eskimóarnir væru
eins og kínverjar I framan. Og þar
með er nærri fjögur hundruð ára
barátta runnin út I sandinn vegna
þessára íslenzku Blefkena.
0 Skandinavískar
patentlausnir
handa
Grænlendingum
Það er ekki verið að kasta
rýrð á eskimóa, þótt bent sé á
þessi sannindi. tslendingar hafa
sjáífir alltaf tekið það óstinnt upp
ef útlendir mannfræðingar og
inntressufólk ætlar að velta sér
upp úr íslenzkum vandamálum.
Þau vandamál eru I augum ís-
lendinga fyrir þá eina og koma
öðrum ekki við. Vitanlega eiga
eskimóar við sfn vandamál að
etja. Mest eru þau þó vegna
þeirra hjálpsömu asna, sem sffellt
og ævinlega eru með skandi-
navískar patentlausnir um til-
veruna handa þeim. Var þó full-
reynt af íslendingum á sinni tíð,
að mannlff að skandinavískum
hætti lánast ekki á Grænlandi
nema I góðri tíð.
Islenzk yfirstétt menntamanna
má vitanlega leika sér eins og hún
vill. Hún má meira að segja setja
upp Buffalóbillsýningar um eski-
móa á Grænlandi fyrir almanna-
fé, ef henni sýnist svo. Hún
móðgar að vfsu Grænlendinga
með þessum hroka sínum, að hún
ein skyldi þeirra vandamál, en
Grænlendingar eru ýmsu vanir af
stjórn Dana. Það er hins vegar
óþolandi, að Þjóðleikhúsið skuli
fara með þessa sýningu um alla
Evrópu og gera þar með bæði
íslendinga og Grænlendinga að
aðhlátursefni f álfunni.
Haraldur Blöndal."
slaðar telur fólk sig hafa séð
glæpamanninn.
Maigret sneri sér við og sá að
Ernst Miehoux hélt sig eins
nálægt honum og hrætt barn.
— Ég bið yður að hafa það hug-
fast að það voru lögregluþjónar
héðan, sem handtóku manninn, á
meðan þér....
— Hafið þér enn áhuga á að ég
handtaki einhvern?
— Hvað eigið þér við? Ætlið
þér að halda því fram að þér getið
fundið flóttamanninn?
— I gær báðuð þér mig að
handtaka einhvern, alveg sama
hvcrn.
Blaðamennirnir voru allir farn-
ir út og voru að aðstoða við ieitina
að manninum. Veitingastofan var
mannlaus að kalla og þar var allt
á rúi og stúi, því að enginn tfmi
hafði unnizt að gera hreint. Inni-
byrgð tókakslykt fór illa í háisinn
á lögregluforingjanum. Hann sté
á sfgarettustubba hvar seni hann
fór.
Og hann tók nú handtökueyðu-
blað upp úr veskinu sfnu.
— Eitt orð, bæjarstjóri og þá
skal ég ....
— Ég cr öneitanlega forvitinn
að sjá, hvern þér ætlið að
handtaka.
• • *
HOGNI HREKKVISI
Amma hefurðu séð myndasögubókina mfna?
Til sölu sökklar
undir 1 30 fm. einbýlishús í Fossvogi. Lóð undir
bílskúr fylgir. Tilboð sendist á afgr. Morgun-
blaðsins fyrir 28. þ.m. merkt: Sökklar —
6986".
Húsmæðraskóli kirkjunnar,
Löngumýri, Skagafirði
5 mánaða námskeið í hússtjórnar- og handíða-
greinum hefst eftir áramót.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst til skóla-
stjóra, sem gefur nánari upplýsingar.
fpÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja spennagryfjur fyrir Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, við Aðveitustöð 9 á Reykjum í Mosfellssveit.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn
5.000,— króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 3. júli 1975, kl.
1 1,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 '
AUGLYSING
Kennaranámskeið í sjóvinnu
Ákveðin hafa verið tvö námskeið í sjóvinnu-
brögðum fyrir kennara og aðra þá sem taka
vilja að sér kennslu í sjóvinnubrögðum í gagn-
fræðaskólum.
Námskeiðið fyrir byrjendur verður haldið í Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík dagana 18.—30.
ágúst og framhaldsnámskeið fyrir þá sem sóttu
námskeið í fyrra, dagana 18. ágúst til 5.
september.
Umsóknir sendist ráðuneytinu eigi síðar en 1.
ágúst.
Menntamálaráðuneytið.
Skemmtiferð:
Starfsstúlknafélagið Sókn gengst fyrir skemmtiferð
— að Skaftafelli í Öræfum — fyrir félagskonur og
gesti þeirra dagana 11 —13. júlí 1975.
Lagt verður af stað frá Umferðamiðstöðinni kl. 18.00
föstudaginn 11. júlí — ekið verður beint að Skógum
og gist þar á laugardagsnótt og snæddur morgunverð-
ur.
Á laugardagsmorgun verður ekið í Skaftafell og degin-
um eytt þar. Um kvöldið verður ekið aftur að Skógum
og gist þar á sunnudagsnótt og borðaður morgunverð-
ur.
Á sunnudag verður ekið til Reykjavíkur og skoðaðir
merkisstaðir á leiðinni eftir því sem föng verða á.
Fargjald í ferðalagið, þar með talin gisting í Skógum, í
svefnpokaplássi, morgunverður báða dagana svo og
leiðsögumaður verður kr. 4.000.00 til kr. 4.200.00.
Þær konur, sem vilja taka þátt í þessari ferð geri svo
vel að skrifa sig á lista, sem liggja frammi hjá
trúnaðarmönnum á vinnustað eða hafa samband við
skrifstofu Sóknar.
Kostur er á þvi að fá heitan mat í Skógum laugardags-
kvöldið 12. júlí. Þær konur, sem vildu nota sér það
eru beðnar að tilkynna það um leið og farseðill er
pantaður.
Þátttöku i ferð þessa þarf að tilkynna fyrir 1. júli.
Reykjavik, 18. júni 1975,
Starfsstúlknafélagið Sókn.