Morgunblaðið - 21.06.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNl 1975
31
Fyrstu mörk
KR-inganna
gáfu sigur
gegn Víkingi
0 I MIKLUM baráttuleik sigr-
uðu KR-ingar lið Vfkings á
Laugardalsvellinum I gærkvöld
með tveimur mörkum gegn engu.
Voru það eftir atvikum sanngjörn
úrslit, þar sem þeir áttu mun
meira f leiknum, en réttlátt hefði
þó verið að Vfkingar skoruðu
Texti:
Á^úst I. Jónsson.
Mynd:
Friðþjófur Helgason.
einnig f Ieiknum, sem bauð upp á
mörg spennandi augnablik og góð
marktækifæri.
0 Það var Atli Þór Héðinsson,
sem skoraði bæði mörk KR-
inganna. Voru það fyrstu mörkin,
sem KR-Iiðið skorar f 1. deildinni
í ár. Fyrra mark sitt skoraði Atli
með skoti frá markteig á 9. mín-
útu leiksins og það sfðara er 9
mínútur voru til loka leiksins úr
vftaspyrnu, sem dæmd var er Dið-
rik braut á Atla f dauðafæri. ■
0 Það var mikil harka í leiknum
og fjórum sinnum lyfti Einar
Hjartarson dómari gulu spjöldun-
um sfnum leikmönnum til viðvör-
unar. Voru það Vfkingarnir Helgi
Helgason, Róbert Agnarsson og
Kári Kaaber og KR-ingurinn
Baldvin Eliasson, sem fengu að
líta gulu spjöldin. Leyfði Einar of
mikla hörku í leiknum og er það
hæpin leið til að stöðva hörkuna
að nota til þess gulu spjöldin. Þá
léku KR-ingarnir ekki síður fast í
leiknum, en sluppu mun oftar en
Vfkingarnir þö brotin væru
samskonar.
Hvað þessi dans heitir vitum við
Ragnar Gfslason, Jóhann Torfason,
0 Það verður ekki sagt Um
þennan leik að hann hafi verið
vel leikinn. Hins vegar verður því
ekki, en dansararnir eru þeir Baldvin Elfasson, Hafliði Pétursson,
Helgi Helgason og Atli Þór Héðinsson.
LIÐ KR.: Magnús Guðmundsson 2, Guðmundur Ingvason 2,
Sigurður Indriðason 1, Ottó Guðmundsson 3, Ólafur Ólafsson 2,
Hálfdán örlygsson 1, Haukur Ottesen 2, Baldvin Elfasson 1,
Halldór Björnsson 3, Jóhann Torfason 3, Atli Þór Héðinsson 4.
LIÐ VlKINGS: Diðrik Ólafsson 2, Ragnar Gíslason 3, Magnús
Þorvaldsson 1, Róbert Agnarsson 2, Helgi Helgason 2, Gunnar
Örn Kristjánsson 1, Guðgeir Leifsson 2, Jóhannes Bárðarson 3,
Öskar Tómasson 1, Stefán Halldórsson 2, Ilafliði Pétursson 1,
Kári Kaaber 1 (varam.), Gunnlaugur Kristfinnsson 1 (varam.).
Dómari: Einar Hjartarson 1.
ekki neitað að lagleg tilþrif sáust
annað slagið og þá einkum frá
KR-ingunum, sem voru mjög
frískir i leiknum og börðust eins
og ljón. Víkingarnir börðust
sömuleiðis sæmilega í leiknum en
hjá þeim tókst fátt og leikur
þeirra í gærkvöldi var mun lakari
en gegn IBK um síðustu helgi.
0 Eru KR-ingarnir nú komnir
með 4 stig eins og Vfkingarnir,
sömuleiðis hafa Skagamenn 4
stig, en þeir hafa leikið einum
Ieik minna en KR og Víkingur.
Framhald á bls. 18
Metaðsókn
I FRÁSÖGN af leik Vals og IBV í
fyrrakvöld féll niður áhorfenda-
talan. Hún var 1346 og er það
mesta aðsókn að deildarleik það
sem af er sumrinu. Þá féll niður I
þriðjudagsblaði áhorfendatalan í
leik IBV og IA í Vestmannaeyj-
um, en þann leik sáu 660 áhorf-
endur.
Tekur Tony Jacklin
sér til fyrirmyndar
UNDANFARNAR vikur hefur
írski golfkennarinn Tony Bacon
dvalizt hér á landi á vegum Golf-
sambands Islands og kennt golf.
Forsaga málsins var sú, að Golf-
klúbbur Reykjavíkur hafði áhuga
á að fá erlendan kennara og mun
hafa snúið sér til GSI sem síðan
samdi við Bacon. Þegar hér er
komið sögu, hefur hann kennt um
tveggja vikna skeið hjá Keili á
Hvaleyrarvelli, tvær vikur hjá
Golfklúbbi Reykjavfkur f Grafar-
holti og síðan hefur hann verið
viku í Vestmannaeyjum.
Tony Bacon er frá Portrush i
Irlandi og fæddur þar 1953. Einn
af meiri háttar golfvöllum Irlands
er einmitt þar og Bacon var innan
vfð 10 ára aldur, þegar hann gerð-
ist kylfusveinn þar. En sjálfur
byrjaði hann ekki að leika golf
fyrr en hann var orðinn 15 ára.
Um þær mundir var bróðir hans
orðinn golfkennari og starfaði f
Vatnahéraðinu i Englandi. Tony
fluttist til hans og starfaði i golf-
búðinni, en fór jafnframt að leika
golf.
Eftir fyrsta árið hafði hann 9 í
forgjöf, 4 eftir annað, 2 eftir það
þriðja og eftir fjórða árið var
hann kominn í núllið. En hversu
oft verður hann að leika á núlli til
þess að halda þeirri virðulegu
einkunn að heita „scratchplay-
er“?
— Þegar um venjulegan áhuga-
mann er að ræða, segir Tony,
verður hann að leika 6 sinnum á
ári á núllinu til þess að halda
forgjöf sinni. Öðru máli gegnir
með kennara. Við erum atvinnu-
menn og leikum ekki undir nein-
um kringumstæðum með forgjöf.
— Hvernig atvikaðist það svo,
að þú gerðist kennari?
— Ég hafði starfað um tima
með bróður mfnum og hann sótti
um aðild að PGA, sambandi at-
vinnumanna f golfi. Sú umsókn
felur i sér, að maður vilji verða
atvinnumaður f golfi. Sú úmsókn
felur í sér, að maður vilji verða
atvinnumaður við kennslu í golfi.
Umsækjandi verður að hafa 7 í
forgjöf, eða betra og kennslufer-
illinn byrjar með því að um-
sækjandi vinnur með vönum
kennara í tvö ár. Eftir þann tíma
gengur maður undir próf hjá at-
vinnumannasambandinu. Stand-
ist maður prófið, er haldið áfram
að kenna undir umsjá útskrifaðs
kennara í þrjú ár til viðbótar.
Fyrir prófið er golfskóli í
ákveðinn tfma, en eftir 5 ár fær
maður svo full réttindi.
— En ræður þú alveg, hvernig
þú kennir golf, þegar réttindum
er náð; t.d. hvort þú kennir eitt-
hvað sem kallað er „Square-
to-square,“ eða skozkt úlnliða-
golf?
— Þetta hefur breytzt og verið
samræmt. Nú er kennslan alls-
staðar mjög svipuð, og má
kannski segja, að yngri mennirnir
kenni svo til alveg eins. En það er
ekki þarmeð sagt, að þeir séu allir
góðir kennarar. Því miður fara
sumir I þetta starf vegna þess að
þeir vilja umfram allt vera úti á
golfvelli og eitthvað að dunda f
kringum golf. Og eldri kennarar
halda ugglaust tryggð við sfnar
gömlu kennsluaðferðir. En gamla
brezka aðferðin að halda kylfunni
laflausri og sletta henni f boltann
með úlnliðunum er ekki kennd
meir. Ég kenni — og vildi helzt
leika — það golf, sem Tony
Jrckl.in og fleiri I fremstu röð
leika: allt sólíd og öruggt.
— Fyrir nokkrum árum átti ég
viðtal við Norman Wood, sem þá
kenndi hér, og ég man að hann
fann það helzt að íslenzkum golf-
leikurum, að þeir væru of stífir.
Hvað finnst þér?
— Ég get ekki sagt að menn
séu stifari hér en annarsstaðar.
En þið hafið flestir sameiginlega
galla: Of losaralegt grip og þess-
vegna fer kylfuhausinn ekki nógu
nákvæmlega f sama farið í bak-
sveiflunni. Þið standið of nærri
boltanum og það leiðir yfirleitt til
þess að þið iyftið kylfunni beint
upp og fáið ekki nauðsynlegan
herðasnúning. Önnur afleiðing er
svo sú, að hægri öxlin fer út i stað
þess að koma undir. Margir
þeirra, sem ég hef kennt hér
slæsa mikið og ná ekki fullri
lengd og það orsakast af því sem
ég hef lýst hér að framan. Ef
menn ætla að ná einhverri lengd f
högg, verður að vinda vel uppá
bolinn og komast innan á boltann.
— Þú varst búinn að vera
kennari i Lúxemburg. Var svipað
að kenna þar og hér?
— Já, ég var þar í sex mánuði,
en það var nokkuð ólikt. Þeir eru
svo innilokaðir þar og erfitt að
kynnast þeim, nema Ameríkön-
um, sem komu talsvert. En beztu
viðskiptavinirnir voru þó islenzku
flugmennirnir.
Annars virtist þetta vera yfir-
stéttarklúbbur þarna í Lúxem-
burg. Þar voru finir karlar með
frumstætt golf. Þeir vildu ekki að
ég færi að breyta miklu; aðeins að
ég reyndi að gera gott úr því sem
fyrir var. Unga fólkið var yfirleitt
synir eða dætur einhverra fínna
manna. Sá bezti var með 3 i for-
gjöf og nokkrir góðir golfleikarar
voru þar. En ég verð að segja, að
standardinn er hærri hér. Ég hef
rekizt á nokkuð marga hér með
ágæta sveiflu; þeir eru „good
strikers“ eins og við segjum á
ensku; hitta boltann vel, en skora
kannski ekki að sama skapi vel.
Það er eins og þeir leggi svo
miklu minni áherzlu á smáspilið.
Gott dæmi er einn af landsliðs-
mönnunum ykkar; ungur piltur
með ágæta sveiflu og löngu högg-
in þar eftir góð. En innáskot hafði
hann varla hugmynd um, hvernig
hann ætti að útfæra.
— Hvað tekur svo við hjá þér
eftir Islandsferðina?
— Fyrst fer ég til bróður mins i
Englandi, æfi þar og tek siðan
þátt í Opna hollenzka mótinu:
Dutch Open, sem fram fer I
Hilversum í ágúst. Síðan fer ég
væntanlega að leita mér að vinnu
á nýjan leik. GS.
Tony Bacon við kennslu á Grafarholtsvelli. Nemandi hans hér er
Hallgrfmur Hallgrfmsson, fyrrum forstjóri Skeljungs. Hann var lið-
tækur golfleikari á gamla golfvellinum við Öskjuhlíð.