Morgunblaðið - 13.07.1975, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JULt 1975.
37
EINLÆG SAMUÐ
„Hvað verður tekið til bragðs?"
„Innanríkisráðuneytið ákvað að
Iáta til skarar skríða. Mörgum
skemmtistöðum var lokað án til-
lits til leynilegra samninga. Jafn-
framt var fjöldi háttsettra emb-
ættismanna innan lögreglunnar
settur á eftirlaun fyrir tímann.
Margir gátu dregið sig í hlé á
skemmtisnekkju eða i einbýlishús
við Rivieruna. Að hert var á regl-
unum gagnvart gleðikonunum,
var aðeins hliðarráðstöfun með
þessum hreinsunaraðgerðum. Á
mörgum stöðum var ákafi varða
laganna of mikill — þeir reyndu
að vinna sig í álit á æðri stöðum.“
„Og hvernig brugðust mellu-
dólgarnir við?“
„Þeir gáfust ekki upp bardaga-
laust. Allt bendir til þess, að þeir
hafi skipulagt uppreisn skyndi-
brúðanna mjög ísmeygilega, svo
að þær hlytu samúð almennings,
en yfirvöldin kæmust í vandræði.
Þeir skákuðu skækjunum fram,
án þess að þær tækju eftir því.“
Hafi svo verið, var hér vel teflt,
því að hinar burtflæmdu gleði-
konur hlutu i fyrsta sinn einlæga
samúð alls almennings. Hundruð
Frakka sendu þeim matvæli, rúm-
teppi og lyf í kirkjurnar, og i
skoðanakönnun mæltu 93%
hinna spurðu með því, að nýjar
reglur yrðu settar þeim til hags-
bóta. Þessi alda velvildar varð
uppreisnarkonunum hvatning til
að halda aðgerðunum áfram.
Leidd burtu af lögregl-
unni. En uppreisnin held-
ur áfram.
Nokkrum stundum eftir að þær
höfðu verið reknar út úr St.
Nizier kirkjunni i Lyon, komu
þær saman í kvikmyndahúsinu
„Le Canut" og stofnuðu með sér
hagsmunasamtök.
I París og Marseille réðu gleði-
konurnar sér vel metna lögfræð-
inga, sem skyldu fylgja eftir kröf-
um þeirra gagnvart yfirvöldun-
um. Giscard d’Estaing, Frakk-
landsforseti, varð þeim fyrri til
með þvi að fela háttsettum
embættismanni i heilbrigðismála-
ráðuneytinu að kanna „hin mann-
legu vandamál” hinna ungu
kvenna. Samstarfskona heil-
brigðismálaráðherrans, Simone
Weil, tjáði mér:
„Barátta okkar gegn mellu-
dólgunum mun halda áfram
miskunnarlaust. Lagafrumvarp,
sem nú liggur fyrir öldungadeild-
inni, gerir ráð fyrir mun strangari
refsingu þeirra þorpara, sem
auðgast á þvi að féfletta vesalings
kvenfólkið."
„Margar þessara kvenna sögðu
mér, að þær byggju með vinum
sínum, sem væru engir alfonsar,
alls ekki. Þær sögðu, að þær
hefðu sjálfar valið sér lífsföru-
nauta og elskuðu þá hreinskilnis-
lega. Hvað sem maður kann að
hugsa um hvern þann, sem lætur
sér í léttu rúmi liggja, með hve
mörgum öðrum karlmönnum vin-
kona hans er, en hefur hann þá
gerzt sekur um afbrot eða mis-
gerðir?"
„Frumvarp okkar mun taka til-
lit til slikra tilfella. Við erum ekki
þröngsýn. Við vanmetum heldur
ekki viss þjóðfélagsleg vandamál.
Aðeins í Goutte d’Or-hverfinu í
París búa 300.000 Alsirbúar, sem
eru nákvæmlega eins skapaðir og
við hinir. Tvimælalaust verður að
finna viðeigandi lausn á þeirra
vandamálum. Það, sem við eigum
i höggi við, eru hinir stóru mellu-
dólgshringir, sem eitra þjóðfélag
okkar og hafa oft samvinnu við
hvíta þrælasala og eiturlyfja-
smyglara.”
„En hvað um ráðstafanirnar
gagnvart gleðikonunum sjálf-
um?“
„Það má ekki gleyma því, að
þessar konur, hversu mjög sem
þær verðskulda umhyggju okkar,
hafa aðeins litinn minnihluta íbú-
anna með sér. I Lyon til dæmis
voru 73% íbúanna á móti götu-
vændi. Það er ekki hægt að láta
óskir meirihlutans sem vind um
eyrun þjóta. Dæmigert tilfelli er
Avenue Foch í París, sem þykir
ein virðulegasta gata i heimi.
Ibúarnir við þá breiðgötu eru þvi
andvigir, að á kvöldin sé þar álika
mikið líf í tuskunum eins og á
hinni alræmdu Via Appia Antica i
Róm. Ég hef heyrt, að Gracia,
furstynja af Monaco, sé alvarlega
að hugsa um að flytja úr íbúð
sinni við Avenue Foch af þessum
ástæðum."
Þá er hin mikla spurning sú,
hvar ástargyðjur Frakklands geti
ótruflaðar innt af hendi störf sín.
Ýmsir ráðherrar hafa gert það að
tillögu sinni, að sett yrði á fót
ástarmiðstöð eða ástar-hverfi að
þýzkri fyrirmynd. Aðrir vilja
leyfa gleðikonunum að hafast við
— í dagsins önn
Framhald af bls. 34
BRAGÐSTERK
nautasmAsteik
500 g smátt skorið kjöt (gúllas)
2 laukar
2 gulrætur
30 g smjörlíki
2 hvítlauksrif,
1 tsk *alt
1 peli sjóðandi vatn,
1 súputeningur
2 matsk hveiti,
1 lárviðarlauf,
'á tsk kanili, pipar
Kjötið, gulrætur og laukar
steikt á pönnu, hvítlaukurinn
kreistur í dálítið af saltinu.
Súputeningurinn leystur upp.
Hveitinu bætt út I ásamt hvít-
lauk, soði, lárviðarlaufi, kanil
og pipar. Suðan látin koma upp
og lok sett á. Látið sjóða hægt í
2—2'á tíma. Borið fram með
hrísgrjónum og grænmeti.
SPAGHETTI
BOLOGNESE
fyrir 4.
2 laukar,
1 gulrót,
1 selleristilkur
30 g smjörlíki,
3 bacon-sneiðar
250 g hakkað nautakjöt,
1 rif hvítlauk
1 tsk salt,
1 dós niðursoðnir tómatar
1 lárviðarlauf,
'á tsk sykur, pipar
1 pk spaghetti,
rifinn ostur
Smjörlíkið brætt, smátt sneidd-
ur laukur, gulrætur og selleri
steikt I feitinni f 5 mín. Smátt
skorið bacon ásamt hökkuðu
kjötinu bætt út í, kryddað og
látið steikjast I nokkrar mfn.
Hvítlaukurinn kreistur bætt út
í ásamt tómötunum, lárviðar-
laufi, sykri, salti og pipar. Látið
sjóða hægt í 30—40 mín. Krydd-
að meira eftir smekk. Spaghetti
soðið á venjulegan hátt. Sós-
unni hellt yfir, þegar borið er
fram, rifinn ostur borinn með.
f þröngt afmörkuðum borgar-
hluta. En vændiskonurnar sjálfar
hafa frá upphafi vísað slíkum
getto-lausnum á bug. (Getto:
gyðingahverfi.) Þær vilja fá að
geta sundað störf sin eins og
hverjir aðrir atvinnurekendur án
þess að þola smán eða skömm, þar
sem þær langar til. Þess vegna
hefur þróunin í París beinzt æ
meir í sömu átt og f New York og
London, að stefnumótin eru
ákveðin gegnum síma.
Það sem gefur vonir um, að
hægt verði að koma á frjálslynd-
um endurbótum í þessum efnum,
er afstaða kirkjunnar. Meðan á
þessum deilum hefur gengið,
hefur kirkjan af einurð tekíð
eftirkomendur Maríu Magdalenu
undir sinn verndarvæng. Hinn
kaþólski rithöfundur, R^aurice
Clavel, > birti grein, sem vakti
mikla athygli, f blaðinu „Figaro”,
þar sem hann fagnaði því, að
„dömur hinnar litlu dyggðar”
skyldu ekki hafa snúið sér til full-
trúa Marx með vandamál sín,
heldur til fulltrúa Jesú. Og traust
þeirra reyndist rétt, þvf að enginn
sálusorgari kallaði á lögregluna,
og Marty, kardínáli, erkibiskup af
Paris, minnti söfnuð sinn á það,
að Kristur hefði sagt við prest-
ana: „Gleðikonurnar verða á
undan ykkur f himnarfki."
Cr „Welt am Sonntag1* 15. júnfa.l.
Höfundur: George W. Ilerald — svá —
þýddi.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VÍFILSSTAÐASPÍTALI:
RAFVIRKI óskast til starfa við
spítalann nú þegar eða eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar veitir umsjónar-
maðurinn, sími 42800.
KLEPPSSPÍTALINN:
HJÚKRUNARKONUR óskast til afleys-
inga og í fast starf nú þegar eða eftir
samkomulagi. Upplýsingar veitir for-
stöðukonan, sími 381 60
FÓSTRA óskast á dagheimili spítalans
nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir forstöðukonan, sími
38160.
Reykjavík 1 1.7. 1975.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRlKSGÖTU 5, SllVI111765
Umboð fyrir amerískar, enskar og
japanskar bifreiðir. Allt á sama stað
er hjá Agli
Verdlækkun frá Motors
WAGONEER Custom
Lúxus útgáfa
NU •1575 þús
HORNET
Lúxus útgáfa
NU«B45þús
Allt á sama stað Laugavegi 118 - Símar 22240.og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE