Morgunblaðið - 23.07.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLl 1975
Skattskráin
lögð fram
á föstudag
— SKATTSKRA Reykjavíkur
verrtur lögrt fram á föstudags-
morgun og mun hún liggja
frammi í 2 vikur eins og venju-
lega, sagði Halidór Sigfússon
skattstjóri þegar Morgunblaóió
ræddi vió hann í gær. Utburóur
skattseóla er nú hafinn og gengur
vel, en alls voru framteljendur f
Keykjavík 44 þúsund aó þessu
sinni.
Skattskráin
kom öllu
úr sambandi
Krían — Noröur á Melrakkasléttu er mikið kríuvarp og um þessar mundir á kriari
annríkt við að bera fæöu í ungana, eins og sést bezt á þessari mynd, sem Hermann
Stefánsson tók fyrir skömmu.
BÆJARFOGETINN í Kópavogi
birti augiysingu i dagblöóunum í
gær, þar sem kaupgreióendur
sem hafa starfsmenn búsetta í
Kópavogi, eru beónir um aó taka
af launum starfsmanna upp í
þinggjiild svo sent verió hefur, þó
krafa hafi ekki bori/.l frá skrif-
stofu fógeta.
Morgunblaóió hafói samband
vió Leó Löwe, fulltrúa bæjar-
fógeta, í gær og spurói hverju
þetta sætti. Hann sagói, aó
ástæóan fyrir þvi, aó farió væri
fram á þetta væri einfaldlega, aó
skattskráin hefói verió aó berast
nú um helgina, og embættinu
myndi vart endast tími til aó
senda út kröfur á alla starfsmenn
búsetta í Kópavogi i tæka tíð fyr-
ir útborgun. Aó sjálfsögóu myndi
þetta siöan breytast er aó næstu
útborgun kæmi.
AlvaroCunhal í
NewYorkTimes
SAMTAL ítölsku blaóakon-
unnar Oriana Fallaei viö leió-
toga portúgalska kommúnista-
flokksins Aivaro Cunhal, sem
birtist í Morgunblaóinu sl.
sunnudag, hefur sýnilega vak-
iö mikla athygli. Morgunblaö-
inu þykir rétt að geta þess að
samtalió birtist I New York
Times Magazine, en eins og
kunnugt er hefur Morgunblað-
iö einkale.vfi á Islandi á efni
úr NeW York Times.
Hringvegurinn lokaður:
Jökulhlaup í Kolgrímu
HRINGVEGURINN lokaöist I árlegur vióburóur, en þau standa Ain næði alltaf að renna báðum
gærkvöldi, er áin Kolgráma á
mörkum Suðursveitar og Mýra
byrjaði að flæða yfir veginn.
Hlaup kom í Kolgrímu I gær-
morgun og óx það mjög hratt.
Hiaup I Kolgrfmu eru nú orðin
aldrei mjög lengi, oftast í 1—2
sólarhringa að því er Arnkell
Einarsson vegaeftirlitsmaður
upplýsti við Morgunblaðið í gær.
Arnkeli sagði, að þessi hlaup
yllu venjulega ekki miklu tjóni.
3 læknar hæstu skattgreið-
endur Suðurlandskjördæmis
SKATTSKRAIN i Suðurlands-
kjördæmi var lögó fram í gær.
Alls eru heildargjöld í kjör-
dæminu nú 951.893.364 kr. þar af
tekjuskattur 454.145.743 kr. Er
þetta 68% hækkun frá þvi í fyrra,
en nú á eftir aö draga frá barna-
lífeyri, sem áætlaður er 184,1
Stal frá sof-
andi fólki
RANNSOKNARLÖGREGLAN í
Kópavogi hefur undanfarió haft
til yfirheyrslu menn nokkra sem
teknir voru drukknir á bfl fyrir
utan efnagerðina Val þar í bæ.
Þóttu ferðir þeirra grunsamlegar
við fyrirtækið um hánótt og
reyndist ekki vanþörf á að ræða
við kumpánana.
Játuöu þeir á sig nokkur inn-
brot, þar á meðal í íbúóarhús og
fyrirtæki. Var einn þeirra svo
bíræfinn að fara inn um svefn-
herbergisglugga að nóttu til og
hafa á brott með sér 12 þúsund
krónur. Varð enginn í húsinu var
við ferðir mannsins og var fólk þó
sofandi í svefnherberginu. Sá
hefur áður brotið af sér og
afplánar hann nú fyrri dóma.
millj. kr. í Suðurlandskjördæmi.
Alls eru gjaldendur í kjördæminu
7315, einstaklingar og félög.
Eins og víðar á landinu eru
læknar hæstu gjaldendur og þrír
hæstu skattgreiðendurnir eru
allir læknar. Þeir eru Heimir
Bjarnason, læknir á Hellu, sem er
með 1.364.065 kr. í tekjuskatt og
505.400 kr. í útsvar. Magnús Sig-
urðsson, læknir á Eyrarbakka
greiöir 1.326.493 í tekjuskatt og
502.400 kr. í útsvar, og Kristján
Baldvinsson, læknir á Selfossi, er
með 1.309.121 í tekjuskatt og
480.100 f útsvar.
Af félögum er Mjólkurbú Flóa-
manna með langhæstu gjöldin, en
það á að greiða 13.162.652 kr. f
tekjuskatt.
megin við brúna og væri hún þvi
í engri hættu. Þá væri fljótlegt
að gera við veginn á þessum stað.
Sagði Arnkell að hann vonaðist til
að hægt yrði að opna hringveginn
á ný á morgún.
Hálfdán Björnsson f Kviskerj-
um sagöi þegar Morgunblaðið
ræddi við hann, að hlaup f Kol-
grímu kæmu úr jökullóni í Vatns-
dal við Heinabergsjökul. Þessi
hlaup væru orðin mjög tið, en það
stór að þau lokuðu alltaf veginum
um stundarsakir.
Forsetahjónin
til Kanada
Forsetahjónin dr. Kristján og
Halldóra Eldjárn, munu fara á
Islendingahátíðina i Kanada i
byrjun ágústmánaðar. Með í för-
inni verður Einar Ágústsson
utanríkisráðherra.
Sérstakar óskir komu til forseta
íslands frá þjóðræknisfélögunum
um að forsetah.iónin yrðu við-
stödd hátiðahöld Islendinga í
Vesturheimi, sem fram fara á
næstunni til að minnast 100 ára
landnáms Islendinga i Kanada.
Frá Evrópumótinu í bridge.
ítalir gerðu út um
leikirm ífymhálfleik
Brighton, frá Jakobi R. Möllor.
VIÐ spiluðum í gær við núver-
andi heimsmeistara og töpuðum
1:19. Aðeins einn spilaranna úr
Bláu sveitinni er í ítalska liðinu
Gat kom á brezkan togara
þegar hann sigldi á ísjaka
Siglufirði, 22. júlf.
UM kl. 7 í morgun kom hingað til
hafnar í Siglufirði brezki tog-
arinn Real Madrid frá Grimsby,
en hann varð að leita hér hafnar
vegna leka er kom að honum úti á
Skagagrunni f nótt er íeið. Hafði
togarinn sem var nýlega kominn
á miðin rekizt á hafísjaka, sem
reif gat á bóg togarans stjórn-
borðsmegin. Hafði þetta gerzt
milli kl. 4 og 5 um nóttina. All-
mikill sjór var í netalestinni og
togarinn nokkuð siginn. Áhiifn-
inni hafði þó tekizt að minnka
lekann um rifuna með því að
koma þar fyrir húðum.
Strax og togarinn kom að
bryggju voru menn frá slökkvilið-
inu komnir með öflugar dælur um
borð og i morgun fór kafari niður
til þess að athuga skemmdir. Tog-
arinn hafði sigið um ein 4—6 fet
en þegar hann fór að léttast var
hann tekinn upp norðan við
hafnargarðinn og þar átti að
reyna að gera við hann til bráða-
birgða. Ekki var talið að það verk
tækist í gærkvöldi, þar sem
stærsta dælan stöðvaðist um tíma
og því ekki hægt að tæma neta-
lestina. Hins vegar gera menn sér
vonir um, að hægt verði að ljúka
við bráðabirgðaviðgerð í dag.
— mj.
en það er Garozzo sem hefur ekki
neinn sérstakan meðspilara held-
ur spilar við aðra meðlimi sveitar-
innar til skiptis. Garozzo hefur
ekki spilað mjög vel á þessu móti
og á það til að segja of hátt. Á
móti okkur borgaði sú áhætta sig
mjög vel og græddu Italir 21
punkt á tveimur spilum. Annað
spilið var slemma sem var um
40% og hitt úttektarsögn með
ennþá minni vinningsmöguleika.
Italir höfðu yfir í hálfleik 5:45 en
sfðari hálfleikur var nokkuð jafn
22:26 fyrir Itali. Þórir og Hallur,
Símon og Stefán spiluðu allan
leikinn.
I gærkvöldi áttum við að spila
við nágranna okkar Dani og
Símon og Stefán, Jón og Jaob áttu
að hefja leikinn.
Staðan eftir 16 umferðir:
Italía 246, Frakkland 212, Pól-
land 208, Noregur 203, Bretland
201, Israel 197, Danmörk 181, Is-
lendingar eru í 17. sæti ásamt
Belgum.
Er storkur-
inn floginn
til himna?
Borgareyrum, 22. júlí.
GRÓÐUR hefur tekið verulega
við sér f rigningunum að und-
anförnu og eru menn nú að
byrja að slá. Hafa rigning-
arnar undanfarið tafið fyrir
mönnum við siáttinn. Nokkrir
bændur voru búnir að slá
hluta þegar byrjaði að rigna og
er heyið orðið bleikt hjá þeim.
I dag er norðanátt og hálf
skýjað og hiti 16 stig. Sem sagt
fyrirtaks veður og margir hafa
byrjað að slá i dag. Spretta er
víða orðin ágæt og grasið gott
en annars láta menn misjafn-
lega af sprettunni.
Storkurinn hefur ekki sést
hér um slóðir í margar vikur
og við höfum engar spurnir
haft af honum annars staðar
frá. Þykir flestum Hklegt að
hann hafi ekki lifað af þetta
kalda vor og sé kominn til
himna.
— Markús.
„Lœðast
um
í lággír,,
Egilsstöðum 22. júlí.
VEGIRNIR hér f nágrenni
Egilsstaða eru f afleitu ástandi
eftir þurrkakaflann um
daginn og þrátt fyrir stór-
rigningar undanfarna daga
hafa þeir ekki verið heflaðir
og eru menn mjög óánægðir
með það. Vegirnir eru nánast
ókeyrandi, ósléttir eins og
þvottabretti og maður verður
að læðast um í lággfr, jafnvel á
beinu köflunum.
Sláttur er almennt að
hefjast. Gróðurinn tók veru-
lega við sér í rigningunni og er
spretta að ég held orðin bæri-
leg, en hún var lengi vel mjög
léleg vegna hinna miklu
þurrka. Ýmsar rannsóknir eru
í sumar stundaðar í Fljótsdal
vegna hugsanlegra virkjana og
vonast menn að sjálfsögðu eft-
ir góðum árangri þar.
Mikið hefur verið af ferða-
mönnum hér í sumar og
óvenju mikið af bílum með er-
lendum númerum. Á færeyska
ferjan Smyrill þar drýgstan
þátt að sjálfsögðu. Ekki veit ég
betur en þessir erlendu ferða-
menn séu ánægðir með dvölina
hér nema hvað þeir eru ekki
hrifnir af vegunum og finnst
víst engum skrftið.
— Steinþór.
Mkiðbyggt
á Súðavík
Súðavík 22. júli
SKUTTOGARINN Bessi kom
hingað í morgun með 85 lestir
af þorski eftir viku útivist.
Afli togarans hefur verið treg-
ari að undanförnu en hann var
fyrr f sumar.
Mikið er byggt á Súðavfk í
sumar, meðal annars er verið
að stækka frystihúsið mikið og
þessa dagana er verið að
steypa upp nýja móttöku.
Steypan kemur frá ísafirði, en
þar var nýlega opnuð steypu-
stöð og kom strax í ljós, er
fyrsti steypubíllinn kom í dag,
hvilikur hægðarauki er af
þessu fyrirtæki.
S.Þ.