Morgunblaðið - 07.08.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST 1975
5
Frá Ólympíukeppni
Sovétríkjanna
I síðasta þætti var skýrt frá
upphafi sovézku Ólympíu-
keppninnar. Enn sem komið er
hafa ekki borizt úrslit nema úr
1. umferðinni. Þá mættust Lett-
land og Moskva f 1. riðli og að
lokinni fyrstu setu skákanna
höfðu Lettar hlotið 4,5 v., en
Moskvumenn 3,5. Ein skák fór í
bið. Á 7. borði áttust við A.
Vitolins, ungur Letti, sem
hefur vakið mikla athygli að
undanförnu, og stórmeistarinn
D. Bronstein. Viðureign þeirra
fer hér á eftir.
Hvftt: A. Vitolins
Svart: D. Bronstein
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rc3 —
Bb4, 4. e5 — b6, 5. Bd2 — Rc6,
6. a3 — Bf8, 7. Rf3 — Rge7, 8.
Bb3 — Rf5, 9. Re2 — h5, 10. b4
— Rce7, 11. Rg3 — Rg6, 12.
0-0 — Be7, 13. Rxf5 — exf5,
14. c4 — h4, 15. Da4+ — Kf8,
16. Dc2 — Hh5, 17. cxd5 — h3,
18. Hfcl— hxg2 19. Dc6 — Hb8,
20. Dxc7 — Bb7, 21. Dxd8+ —
Bxd8, 22. Bc4 — Re7, 23. Rel —
Rxd5, 24. Rxg2 — g5, 25. Bxd5
— Bxd5, 26. Re3 — Be6, 27. d5
— Bd7, 28. f4 — b5, 29. Rg2 —
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Bb6+, 30. Hc5 — Hh3, 31. Be3
— Hc8, 32. Hel — gxf4, 33.
Rxf4 — Hh4, 34. e6 — Hg4+,
35. Kf2 — fxe6, 36. dxe6 —
Bxc5, 37. Bxc5+ — Kg7, 38.
Rh5+ — Kg6, 39. exd7 — Hd8,
40. Rf6 — Hf4+, 41. Kg3 og
svartur gafst upp.
I keppni Hvítarússlands og
Uzbekistan var eftirfarandi
skák tefld.
Hvftt: A. Kapengut
Svart: M. Ruderfer
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rc3 —
a6, 6. Be2 — Dc7, 7. 0-0 — Rf6,
8. Be3 — Bb4, 9. Ra4 — Re7, 10.
c4 — Rxe4, 11. Dc2! — Rf6, 12.
Rf3 — Red5,13. Bd4 — Be7,14.
Hacl — Rf4, 15. Rb6 — Hb8,
16. c5 — d6, 17. Rc4 — Rg6, 18.
cxd6 — Bxd6, 19. Bb6 —
Bxh2+, 20. Rxh2 — Bd7, 21.
Ba7 og svartur gafst upp.
Ráðstefna um
rannsóknir á
sögu kvenna
RÁÐSTEFNA um rannsóknir á
sögu kvenna (feminologi) var
haldin f kaþóiska háskólanum f
Nijmegen f Hollandi 8.—11. júnf
si. og sóttu hana tveir fulltrúar
frá Islandi, þær Helga Kress
sendikennari við háskólann f
Bergen og Else Mia Einarsdóttir
bókasafnsfræðingur við Kvenna-
sögusafn tslands.
Markmið ráðstefnunnar var að
gera fræðimönnum kleift að
skiptast á skoðunum, ræða um
grundvallarsjónarmið og aðferðir
við rannsóknir á sögu kvenna á
ýmsum sviðum, svo sem bók-
mennta og lista, heimspeki og
guðfræði auk þjóðfélagsfræði. A
ráðstefnunni var einnig fjallað
um möguleika á alþjóðlegri sam-
vinnu fræðimanna og stofnana,
þeirra á meðal kvennasögusafna,
segir f frétt frá Kvennasögusafni
Islands um ráðstefnuna.
Fyrirlesarar voru fræðimenn
frá Norðurlöndum og Hollandi.
Vinnuhópar voru fjórir og fjöll-
uðu um rannsóknir í sögu kvenna,
einkum með tilliti til bókmennta,
skjala- og bókasöfn, listasögu og
menntun kvenna. Gerð var grein
fyrir drögum að norrænu orða-
safni á vegum norrænu kvenna-
sögusafnanna og er það hugsað
sem vísir að samnorrænni bóka-
skrá um sögu kvenna. Verður
orðasafnið síðan gefið út á öllum
Norðurlandamálunum og á
ensku. Islenzka kvennasögusafn-
ið er þegar byrjað á íslenzku orða-
safni i náinni samvinnu við hin
söfnin.
Ráðstefnan lýsti yfir stuðningi
sínum við alla þá aðila sem vinna
að því, að rannsóknir á sögu
kvenna verði teknar upp f háskól-
um, og beinir hún þeim tilmælum
til háskólanna, að hlutur kvenna
verði ekki sniðgenginn heldur
dreginn fram f dagsljósið. Enn-
fremur hvatti ráðstefnan ríkis-
valdið til að styðja starfsemi
kvennasögusafna, þar sem þau
eru forsenda þess að hægt sé að
rannsaka sögu kvenna, og skoraði
ráðstefnan á ríkisvaldið að veita
fjárstyrk til þeirra stofnana, hópa
og einstaklinga, sem vinna að
þessum rannsóknum.
Tíðar skipakomur
til Siglufjarðar
Siglufirði 5. ágúst.
OVENJU tfðar skipakomur hafa
verið hingað að undanförnu og nú
eru hér þrfr Fossar. Hef ég ekki
séð þá svo marga hér f einu áður.
Þeir eru að losa timbur og lesta
freðfisk.
Togarinn Stálvík er nýkominn
inn með tæpar 100 lestir af fiski.
Veðrið er hér eins og bezt
verður á kosið. Rólegt var hér í
bænum um verzlunarmanna-
helgina, en þó var hér mjög mikill
fjöldi ferðafólks.
Þeir sem veitt hafa silung á
stöng úti á Sauðanesi hafa fengið
ágætan afla undanfarið.
ollum
fatnaði
verzlun
okkar
ágúst-
mánuði
Nú
bjóðum
við
10%
afslátt
i IZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66
LAUGAVEG 20a
SÍMI FRA SKIPTIBORÐI 28155
LÆKJARGÖTU 2
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
M. J.