Morgunblaðið - 14.08.1975, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR
182. tbl. 62. árg.
FIMMTUDAGUR 14. AGÍIST 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skógarbruninn í V-Þýzkalandi:
Reyksúlan 25
km í loft upp
Árangurslaust slökkvistarf
Bonn, 13. ágúst. AP — NTB.
EKKERT lát er á hinum gffur-
legu lyng- og skógarbrunum f
Neðra-Saxlandi í V-Þýzkalandi og
berjast nú 11000 slökkviliðs-
menn, lögreglumenn, hermenn
og sjálfboðaliðar örvæntingar-
fullri baráttu við eldinn, sem þeg-
ar hefur valdið milljarða krðna
tjóni og hrakið á 4. þúsund manns
á brott frá heimilum sfnum úr 8
þorpum. Eldarnir geisuðu f dag á
45 ferkflómetra svæði og gerði
það slökkv iliðsmönnum starfið
nær óvinnandi, er hvassir vind-
sveipir feyktu upp gífurlegu eld-
hafi.
Sex slökkviliðsmenn hafa látið
lífið í eldunum, og var það á
sunnudaginn, er snarpur vind-
sveipur feykti eldhafinu yfir þá
án þess að þeir gætu gert tilraun
til að forða sér. Eldhafið náði um
tíma í morgun að sleikja útjaðar
borgarinnar Celle, sem 57 þúsund
manns búa í og brunnu tvö hús til
ösku, en slökkviliðsmönnum tókst
að verja önnur hús unz vindátt
breyttist og bægði hættunni frá
um stundarsakir að minnsta kosti.
Milli 15 og 20 flugvélar taka þátt í
slökkvistarfinu og várpa hundr-
uðum lesta af vatnssprengjum á
bálið á hverjum degi og í dag var
byrjað að varpa niður sérstökum
bandarískum kvoðusprengjum,
sem gefið hafa góða raun í bar-
Bretar vilja viðræður við
íslendinga sem allra fyrst
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins bað um
sérstakan fund með íslenzka sendiherranum
mikilvægt að samningavið-
ræður um landhelgismál
hæfust sem allra fyrst.
Fundurinn var haldinn að
beiðni Hattersleys, sem
hefur nú tekið við land-
helgismálum af David
Ennals, aðstoðarutanríkis-
ráðherra, sem einbeitir sér
nú að málefnum Rhódesfu
og öðrum alþjóðlegum
málefnum. Frétt þessi er
höfð eftir áreiðanlegum
heimildum í utanríkis-
ráðuneytinu og er sagt að
íslenzki sendiherrann hafi
lofað að gera íslenzkum
stjórnvöldum grein fyrir
viðræðunum hið fyrsta.
Höfuötilgangurinn með fundin-
um var aö gefa Hatterley tæki-
færi til aö kynna sér landhelgis-
málin. Heimildirnar herma að
Hattersley sé þeirrar skoðunar,
að íslenzk stjórnvöld viðurkenni
sérstöðu Breta og nauðsyn þess að
brezk fiskiskip fái að stunda veið-
ar undan ströndum íslands. Sam-
komulag Breta og Islendinga, sem
batt enda á „þorskastríðið 1973“
rennur út 13. nóvember nk., en
Islendingar hafa lýst því yfir að
þeir muni færa fiskveiðilögsögu
sína út 1200 mílur 15. október nk.
Undirbúa Bandaríkja-
menn og Rússar stórfefld-
an vöruskiptasamning?
Washington 13. ágúst Reuter.
ORÐRÓMUR var á kreiki I
Washington f dag um að samn-
ingaviðræður stæðu nú yfir f
Helsingfors milli Bandarfkja-
manna og Rússa um stórfelldan
vöruskiptasamning, þannig að
Bandaríkjamenn myndu selja
Rússum kornvörur f staðinn fyrir
olfu. Talsmenn Fords forseta hafa
neitað að staðfesta þennan orð-
róm, segja að hugmyndinni um
slfkan samning hafi aðeins verið
varpað lauslega fram, og að þeim
Otelo Carvalho seilist
til valda í Portúgal
Lissabon 13. ágúst
AP—RE UTER—NTB.
OTELO Saravia de Carvalho hers-
höfðingi, einn af þremur f þrfeyk-
isstjórninni, sem fer með völd f
Portúgal, gerði í dag tilraun til að
ná valdataumunum f sfnar hend-
ur, er hann kvaddi á sinn fund
100 af æðstu herforingjum lands-
ins til að leggja fyrir þá drög að
nýrri áætlun um framkvæmd
byltingarinnar f landinu. Drög
þessi eru talin mótleikur gegn
tillögum hinna 9 hægfara herfor-
ingja, sem nú er verið að safna
undirskriftum undir innan hers-
ins. Talið er að tillögur herfor-
ingjanna 9 njóti stuðnings allt að
85% herafla Portúgals, en þar er
gert ráð fyrir að um hægfara þró-
un til sósfalisma í landinu verði
aö ræða vegna stjórnmálalegrar
og landfræðilegrar stöðu Portú-
gals í Evrópu.
Herforingjarnir 9 hafa einnig
krafizt þess að Goncalves forsæt-
isráðherra víki úr embætti og
herma heimildir að það sé eina
atriðið sem Carvalho sé sammála
þeim um. I drögum Carvalhos,
sem er yfirmaður öryggissveita
landsins, eru endurtekin flest atr-
iðin úr yfirlýsingu herráðsins í sl.
mánuði, þar sem lagt er til að
byltingarráð verði sett upp i öll-
um borgarhverfum og héruðum
landsins, sem myndu brjóta alger-
lega niður stjórnmálaflokkana í
landinu.
sé ^alls ekki kunnugt um að
samningaviðræður standi yfir.
Bandarfskir sérfræðingar hafa
áætlað að uppskerubrestur í
Sovétrlkjunum muni neyða
sovézk stjórnvöld til að reyna að
kaupa um 25 milljónir lesta af
kornvöru erlendis frá á þessu ári
og hafa Rússar þegar keypt 10
milljónir lesta frá Bandarikjun-
um og 4 milljónir lesta frá
Kanada.
Kissinger bað
Solzhenitsyn griða
Vail, Colorado 13. ágúst Reuter.
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna skýrði frá
því í gær, að hann hefði eindregið
ráðið sovézkum yfirvöldum frá
þvi að setja Alexanðer Solzhenit-
syn í fangelsi á sl. ári, er herferð
yfirvaldanna stóð sem hæst gegn
honum og lauk með þvi að honum
var vísað úr landi. Hins vegar
neitaði Kissinger því ákveðið að
hann hefði gert nokkurn samning
við Sovétmenn um að Solzhenit-
syn yrði neitað um að fá að heim-
sækja Ford forseta f Hvita húsið.
Sem kunnugt er neitaði forsetinn
að hitta Solzhenitsyn, er hann var
I Washington fyrir skömmu. For-
setanum snerist þó hugur siðar og
bauð hann þá Solzhenitsyn til sín,
en skáldið afþakkaði þá boðið.
London 13. ágúst. Reuter.
ROY Hattersley, ráðu-
neytisstjóri í brezka utan-
ríkisráðuneytinu, átt í dag
35 mfnútna fund með Nf-
els P. Sigurðssyni sendi-
herra fslands f London um
landhelgismálið þar sem
hann lýsti því yfir við
sendiherrann, að brezka
stjórnin teldi það mjög
Kissinger til Miðaust-
urlanda 1 næstu viku?
Jerúsalem 13. ágúst. Reuter —AP.
tSRAELSKA stjórnin bað I dag
um frekari skýringu á sfðasta
samningstilboði Egypta f sáttatil-
raunum þeim, sem Bandarfkja-
menn beita sér fyrir. Tilboð
Egypta barst Rabin forsætisráð-
herra f gærkvöldi frá Simcha
Dinitz, sendiherra tsraela í
Washington, sem fékk tilboðið af-
hent hjá Henry Kissinger utan-
rfkisráðherra Bandarfkjanna.
Ekki er vitað hvaða atriði það
eru, sem Israelar vilja fá skýr-
ingu á, en þeir gera sér vonir um
að fá svar fyrir nk. sunnudag, er
fsraelska stjórnin kemur saman
til fundar. Areiðanlegar heimildir
I Washington, Kairó og Jerúsalem
herma, að nær öruggt megi telja
að deiluaðilar hafi nálgazt hvor
annan það mikið að Henry
Kissinger geti lagt upp i ferð sina
til Miðausturlanda þegar í byrjun
næstu viku, en Kissinger hefur
lýst því yfir, að hann muni ekki
leggja upp í aðra sáttatilraunaför
fyrr en það liggi ljóst fyrir að
80—90% líkur séu á að samkomu-
lag náist. Heimildir í Kaíró herma
að egypzkir ráðamenn gangi nú út
frá þvf að nýtt bráðabirgðasam-
komulag verði undirritað fyrir
lok ágústsmánaðar og að slfkt
samkomulag muni m.a. fela I sér
að Israelar dragi herlið sitt langt
inn í Sinai-eyðimörkina og af-
hendi Egyptum á ný olfulindirnar
í Abu Rudeis.
áttu við skógarelda i Bandarikj-
unum.
Brezkir og v-þýzkir hermenn
fluttu f dag á brott í miklum flýti
vopn úr birgðageymslum hersins
á Luneborgarheiði. Sem fyrr seg-
ir er það veðrið, sem veldur
slökkviliðsmönnum mestum erf-
iðleikum og einkum að vindáttin
breytist stöðugt. Reyksúlan frá
eldunum nær nú upp í 25 km hæð
að því er upplýsingar frá sovézk-
um gervihnetti benda til. Mikill
viðbúnaður er í nærliggjandi
borgum og þorpum til að taka við
flóttafólki og I dag var gefið fri í
öllum skólum í Celle til að undir-
búa móttöku flóttamanna. 6 dagar
eru nú liðnir frá þvi að eldurinn
kom upp, en mikil hitabylgja og
þurrkar hafa gengið yfir Evrópu
eins og kunnugt er af fréttum.
Slökkviliðsmenn f baráttu við eldinn.