Morgunblaðið - 14.08.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1975
KR í vandræðum með Þór
en marði þó 2:1 sigur
FLESTUM á óvart lenti 1. deildar lið
KR í hinum ,estu erfiðleikum með
3. deildar lið Þórs, er liðin maettust i
áttaliða úrslitum bikarkeppni KSÍ á
Akureyri í gærkvöldi. Með smá-
heppni hefðu Þórsararnir átt að ná
jafntefli i leiknum, en úrslit urðu
þau, að KR-ingar sigruðu með tveim-
ur mörkum gegn einu og hafa þar
með tryggt sér rétt til þátttöku i
undanúrslitunum.
Gífurlega mikill áhugi var á leik
þessum á Akureyri, svo sem bezt má
sjá af þvi að hátt á annað þúsund
áhorfendur voru á leiknum, sem fór
fram við beztu skilyrði, þar sem hlýtt
var i veðri og logn.
Svo virtist i fyrstu sem KR-ingar
hefðu leikinn i hendi sér, þar sem
þeir sóttu nær stanzlaust fyrstu 25
mínúturnar. Þeim gekk þó illa að
skapa sér færi, og eina umtalsverða
atvikið uppi við mark Þórs á þessum
sóknarminútum KR var er Baldvin
Elíasson komst i dauðafæri á 25.
minútu en skaut þá yfir.
En eftir þetta skot Baldvins var
sem Þórsarar vöknuðu af dvala, og
það sem eftir var hálfleiksins snerist
dæmið algjörlega við. Þór sótti
stanzlaust og KR-ingar áttu mjög i
vök að verjast. Þannig munaði litlu
að Þór skoraði á 29. minútu er Árni
Gunnarsson átti skot i stöng KR-
marksins og á 30. minútu bjargaði
Guðjón Hilmarsson á linu skoti frá
Aðalsteini Sigurgeirssyni. Á 35.
minútu varði Magnús KR-
markvörður svo stórglæsilega skot
frá Aðalsteini.
Á 39. mínútu bar sókn Þórsliðsins
loksins árangur. Ólafur Ólafsson var
þá með knöttinn og hugðist hreinsa
frá. Hitti hann knöttinn illa og Ámi
Gunnarsson sem var þarna nær-
staddur tókst að ná knettinum og
lyfta honum yfir Magnús markvörð.
Strax á 2. minútu seinni hálfleiks
jafnaði KR. Hálfdán Örlygsson átti
þá fallegan stungubolta inn á Atla
Þór. sem vann vel úr sendingunni og
skoraði. Þar með náði KR aftur
tökum á leiknum og sótti af miklum
krafti. Hurð skall nærri hælum við
Þórsmarkið eitt sinn snemma i hálf-
leiknum er Ottó skaut úr aukaspyrnu
að markinu og Pétur Sigurðsson
Þórsleikmaður skallaði i átt að eigin
marki. Stefndi knötturinn í mark-
hornið, en Samúel sveif upp í hornið
og bjargaði.
En upp úr miðjum hálfleiknum
endurtók sagan frá fyrri hálfleik sig.
Þórsarar fylltust vfgamóð og sóttu
mikið. Fengu þeir góð færi, eins og
t.d. er Sævar Jónatansson átti
hörkuskot rétt fyrir og er Magnús
Guðmundsson varði vel skot frá
Árna Gunnarssyni.
Á 35. minútu hálfleiksins var hins
vegar gert út um leikinn er Guðjón
Hilmarsson átti sendingu utan af
kanti í átt að Þórsmarkinu þar sem
Samúel, markvörður, Atli Þór og
Baldvin börðust um knöttinn. Af
þeim hrökk knötturinn út til Hauks
Ottesen sem sendi hann i mannlaust
markið.
Bezti leikmaður KR-liðsins i þess-
um leik var Atli Þór Héðinsson sem
ógnaði stöðugt. Þá átti Guðmundur
Yngvason góðan leik meðan hann
var inná og Ólafur Ólafsson var
traustur að venju.
Beztu leikmenn Þórsliðsins í leikn-
um voru þeir Árni Gunnarsson sem
lék bakvörð KR-liðsins oft grátt og
Pétur Sigurðsson.
Dómari var Hinrik Lárusson og var
hann hvergi nógu ákveðinn. Einn
leikmaður, Oddur Óskarsson, Þór,
fékk að sjá gula spjaldið fyrir gróft
brot á Atla Þór —Sigb. G.
Ómar Karlsson, markvörður FH-inga ítti góðan leik i gærkvöldi. Myndin
sýnir hann góma knöttinn, áður en Teitur Þórðarsson, Akurnesingur nær til
hans. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
FH VARÐ í A AUÐVELD BRAÐ
ÞAÐ LÉK ekki á tveimur tung-
um, að það var betri aðilinn sem
gekk með sigur af hólmi I leik FH
og tA í átta-liða bikarkeppni KSt
á Kaplakrikavellinum f gær-
kvöldi. 3—0 fyrir Akurnesinga
urðu úrslit leiksins og sigur
þeirra hefði jafnvel getað orðið
stærri. Þótt Skagamenn nái
sjaldnast sínu bezta fram þegar
þeir leika á mölinni, áttu þeir
ágæta ieikkafla f leiknum í gær-
kvöldi og tókst bctur en FH-
ingum að hemja knöttinn, auk
þess sem sendingar þeirra voru f
senn nákvæmari og hnitmiðaðri.
Þar með hafa Skagamenn tryggt
sér sæti f undanúrslitum bikar-
keppninnar, og það skyldi þó
aldrei verða að nú sé komið að því
sem þeim hefur aldrei tekizt
áður, — að sigra f bikarkeppn-
inni, en oftsinnis hafa Skaga-
menn komizt f úrslit, en ævinlega
tapað.
Leikurinn í Hafnarfirði var
fremur jafn framan af, en Akur-
nesingar þó frá upphafi betri aðil-
inn. Fyrsta mark leiksins kom á
28. mínútu, eftir að dæmd hafði
verið hornspyrna á FH-inga. Árni
Sveinsson sendi knöttinn vel fyrir
markið, þar sem Jón Gunnlaugs-
son skallaði hann fyrir fætur
nafna sfns Alfreðssonar, sem ekki
þurfti að hafa mikið fyrir því að
renna honum i netið.
Þannig var staðan í hálfleik
1—o fyrir Akurnesinga, og
framan af seinni hálfleik börðust
FH-ingar af sæmilegum krafti,
tókst að stöðva flestar sóknarlotur
Akurnesinga í tíma, og einstaka
sinnum komast í færi við lA-
markið. En þegar á hálfleikinn
leið var sem allur vindur væri úr
heimamönnum. Skagamenn
fengu tíma og frið til þess að leika
listir sínar, og þá var ekki að
sökum að spyrja. Hvað eftir
annað skapaðist hætta við FH-
markið, en það var þó ekki fyrr en
á 28. mínútu hálfleiksins að þeir
Framhald á bls. 23
NIÐDIMM
OG LEIK
FRESTAÐ
EYJAMENN komust ekki til megin-
landsins i gærkvöldi til leiksins við
Valsmenn í bikarkeppninni. Var
leiknum þvi frestað af Mótanefnd
KSÍ til klukkan 20.00 i kvöld. Voru
Valsmenn mjög óánægðir með að
Vestmannaeyingar skyldu ekki koma
til leiksins þar sem flogið var til Eyja
fram undir klukkan 18 I gærdag. Er
ÞOKA I EYJUM
ÞEIRRA VIÐ VAL
ÞAR TIL í KVÖLD
EVROPULEIKUR ÍBK
OG DUNDEE í KEFLAVÍK
ÞAÐ skýrist væntanlega I vikunni
hvað við gerum, sagði Hafsteinn
Guðmundsson forma ður jþrótta-
bandalags Keflavikur er við ræddum
við hann i gær. — Eins og málin
standa núna tel ég mestar likur á þvf
að við leikum heimaleik okkar i
UEFA-keppninni gegn Dundee hér i
Keflavík 21. eða 28. september. Til
að það verði mögulegt þarf skozka
liðið að færa leik sinn i deildarkeppn-
inni skozku fram um einn dag, leika
2. deildin gæti orðið
dýr fyrir sunnanliðin
Það getur orðið dýrt fyrir liðin af Suðurlandi að leika í 2. deild á
næsta ári. Svo getur farið að fjögur lið að norðan verði I deildinni og
t.d. lið IBI og ef til vill Hauka, Ármann, Selfoss og Þróttur. Verða þá
sunnanliðin komin í svipað hlutverk og liðin utan af landi, sem á
hverju ári verða að eyða þúsundum króna í langar og strangar
keppnisferðir.
Frá því var greint í dag hér á síðunni hvaða lið Ieika saman í
riðlum úrslitakeppninnar í þriðju deild. Sömuleiðis var sagt frá því
að fjölgað yrði I 1. og 2. deild og sagt að lið sem yrði númer 2 i 3.
deild léki við botnliðið I 2. deild. Þetta er ekki rétt, þar sem
sigurliðið í deildinni fer beint í 2. deild en liðin sem verða númer 2
og 3 í keppninni leika við botnliðið í 2. deild uni 2 sæti.
Að sjálfsögðu gætu lið eins og Stjarnan og Fylkir komizt upp f 2.
deild og myndi þá kostnaður Reykjavíkurliðanna i deildinni ekki
verða eins hár og ef Akureyrarliðin eða Þróttur NK., Isfirðingar eða
reyndar hvaða lið annað, sem í úrslitunum er, kæmist upp í 2. deild.
Utanbæjarmenn brosa sjálfsagt að þessum bollaleggingum og hugsa
með sér: hvað eru þeir að kvarta og kveina þarna fyrir sunnan,
þetta höfum við mátt þola ár eftir ár? Leyfum þessum kokhraustu
Reykvíkingum einu sinni að kynnast okkar hlið mála af eigin raun!
_____________________________— áij
á föstudegi i stað laugardags. Ég hef
góðar vonir um að það takist og á
von á bréfi frá Skotunum I dag eða á
morgun. sagði Hafsteinn.
Eins og kunnugt er af fréttum áttu
Keflvíkingar að leika heimaleik sinn
gegn Dundee miðvikudaginn 17. sept-
ember Er Valsmenn ákváðu að flýta
sínum leik um rúmlega hálfan mánuð
og leika þriðjudaginn 16, september,
mótmæltu Keflvikingar og töldu það
ekki löglegt , að Valsmenn léku sinn
leik aðeins degi áður en þeirra leikur
átti að fara fram. — Knattspyrnusam-
band Islands virti rétt okkar hins
vegar að vettugi og við urðum því að
finna okkur annan leikdag, sagði for-
maður ÍBK í gær — Við í ÍBK höfum
ekki áhuga á að gera þátttöku íslenzkra
liða i Evrópumótunum að neinum
skrípaleik og í stað þess að reyna að
leika einum degi fyrr en Valsmenn
höfum við reynt að fá leik okkar færðan
aftur og höfum hug á að leika hér i
Keflavik annan fyrrgreindra sunnu-
daga
Aðspurður sagði Hafsteinn að það
ætti ekki að verða ýkja erfitt að gera
völlinn i Keflavík löglegan fyrir leiki i
Evrópumótum og á sunnudegi kæmu
örugglega margir áhorfendur.
Um blaðaskrif sem Valsmenn hafa
einkum beint að Hafsteini sagði hann
að þau væru tæpast svaraverð. Þar
væri farið með rangt mál og auk þess
færi greinarhöfundur í kringum sjálfan
sig.
Vængjavélin sem flytja átti lið ÍBV til
Reykjavikur var að komast til Eyja
skall á niðdimm þoka, vélin sveimaði
yfir Eyjunum f hálftíma en ekkert
rofaði til og varð hún að snúa við
Hermann Jónasson formaður
Knattspyrnuráðs ÍBV sagði i viðtali
við Morgunblaðið i gær að þokan
hefði skollið á eins og hendi hefði
verið veifað og það engin venjuleg
þoka, þvi skyggnið hefði ekki verið
meira en 50 metrar þegar verst var.
— Að sjálfsögðu þykur okkur slæmt
að hafa ekki komizt til leiksins, sagði
Hermann, en við sem búum á stað
eins og Vestmannaeyjum verðum að
sætta okkur við hluti eins og þennan.
Leikmenn okkar eru eðlilega i fullri
vinnu og fyrir okkur er það meira en
að taka bara „stræró" upp á Mela-
völl að komast til leiksins, sagði
Hermann.
Ingi Björn Albertsson leikmaður
með meistaraflokki Vals og f stjórn
Knattspyrnudeildar félagsins sagði.
að ef Reykjavikurfélögin tækju ekki
fyrstu áætlunarvél til leikja sinna í
Eyjum þá yrði allt vitlaust. — Svo
geta Vestmanneyingar sleppt niu
áætlunarvélum og ekkert er gert,
leikurinn bara settur á næsta kvöld.
sagði Ingi Björn.
Höfðu Valsmenn hug á að fá leik-
inn flautaðan á og siðan dæmdan
tapaðan Vestmanneyingum. Móta-
nefndin tók þá af skarið og sagði að
ekki yrði flautað til leiks, þar sem
það væri með vitund og vilja KSÍ að
Vestmanneyingar notuðu leiguflug.
Voru Valsmenn mjög óhressir með
þessa ákvörðun og var á þeim að
heyra i gærkvöldi að þeir myndu
kæra Vestmanneyingana og krefj-
ast þess að fá leikinn dæmdan sér I
hag.
En tæplega verður dæmt i neinni
kæru i dag — verði þá af henni —
og Valur og ÍBV mætast þvi á Mela-
vellinum f kvöld kl. 20 — komist
Eyjamenn til lands.
— áij.
Sveitakeppni
unglinga hjá GS
GOLFKLÚBBUR Suðurnesja sér um
helgina um framkvæmd á FÍ-
sveitakeppni unglinga I golfi. Fer
keppnin fram á vellinum i Leiru og
hefst klukkan 10 f.h. sunnudaginn 1 7.
ágúst. Keppnin er öllum golfklúbbum
opin og er þeim heimilt að senda eina
eða fleiri 5-manna unglingasveitir
Þátttaka i mótinu tilkynnist til Helga
Hólm í síma 2613 1 Keflavík.
Meistararnir
í sama riðli
íSLANDSMEISTARAR Vikings inn-
anhúss og FH utanhúss leika i sama
riðli i íslandsmóti karla í handknatt-
leik utanhúss, sem hefst við Mýrar-
húsaskóla á Seltjarnarnesi i kvöld.
Tiu lið verða með i mótinu, sem
Grótta sér um alla framkvæmd á. Öll
1. deildar liðin eru með i keppninni
að nýliðum Þróttar undanskildum.
Úr 2. deild eru tvö lið, ÍR og KR, og
úr þriðju deild mætir Afturelding til
keppninnar.
Leikið verður i tveimur riðlum. í
a-riðli leika fR, FH, Afturelding, Vlking-
ur og Haukar, en i b-riðli Ármann,
Grótta, KR, Valur og Fram. Fyrstu
leikirnir verða I kvöld, Ármann mætir
Gróttu klukkan 18, en síðan leika ÍR
— FH og Afturelding — Víkingur.
Leikið verður á hverjum degi fram á
þriðjudag, en þá lýkur keppni f riðlun-
um Á fimmtudaginn fara úrslitaleikirn-
ir um 1. og 3. sætið fram.