Morgunblaðið - 14.08.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 14. ÁGÚST 1975
21
VELVAKAINIDI
Velvakandi svarar I síma 10-100 I
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu- |
dags' |
Q Fjallað um
áfengismál
í útvarpsþætti
Árni Helgason I Stykkis-
hóltni skrifar:
„Kæri Velvakandi.
í dag er mannslífið ekki virt á
marga fiska þegar áfengið er
annarsvegar. Það er eins og þeim
fjölgi, sem hafa kjark i að fagna
hverri þeirri smugu, sem áfengi
og eiturlyf smjúga inn I, hverjar
svo sem afleiðingarnar verða. Það
miðar allt að því, að ekkert verði
mönnum heilagt. Þeim sem
trampa um helgidóma þjóð-
arinnar á skítugum skónum er
annaðhvort vorkennt eða hælt. Sú
siðfræði, sem dugað hefir í heimi
vorum er talin úrelt i dag, sam-
vizkan er ekki lengur sá áttaviti,
sem hún var og fólk er hætt að
skammast sin fyrir það sem leiðir
til óþæginda og tjóns fyrir náung-
ann og þjóðina I heild. Ég er ekki
hissa á því þótt hreinir kommún-
istar telji sig ekki þurfa á kristi-
legu siðgæði að halda á niðurrifs-
slóð sinni um þjóðlífið. Hitt er svo
meira til umhugsunar þegar þeir,
sem ábyrgð og áhrif hafa í fjöl-
miðlum, gera lítinn mun góðs og
ills, sanns og ekki sanns. Er það
illa farið, því þeir eru nógu marg-
ir, sem rífa niður, þótt heiðarlegir
menn gangi þar ekki til liðs. Þvi
eru þessar hugsanir dregnar fram
að ég hlustaði nú á þátt Páls
Heiðars þar sem einn af starfs-
mönnum ríkisútvarpsins réðst
mjög einhliða á bindindismanna-
mótið í Galtalækjarskógi. Hann
var alveg hissa á því, að leitað
skyldi vera I farangri þeirra, sem
komu. En hinsvegar hafði hann
ekkert um það að segja hvernig
framkoma þeirra, sem leitað var
hjá, var. Það var eins og öllum, að
undanteknum Barða Friðriks-
syni, fyndist það sjálfsagt, að fólk
kæmi fullt og á skítugum skónum
inn á svæði, sem ákveðið var að
veita skjól þeim, sem ekki yndu
skemmdaráhrifum áfengis. Nei,
það er eins og enginn blettur
megi vera friðhelgur. Mikið lif-
andis ósköp eiga þessar eitur-
nautnir marga vini, og það inni í
innsta hring þeirra stofnana, sem
eiga að vaka yfir því að siðgæðis-
meðvitund þjóðarinnar dofni
ekki.
0 Hvað er til ráða?
En hvernig vilja svo hinir
sömu menn byggja upp heilbrigt
þjóðfélag ef helztu dyggðir kristn-
innar eru brotnar á bak aftur?
Spyr sá sem ekki veit. Það mætti
líka spyrja um hvernig leiðsaga
sú væri hugsuð. Staðreyndirnar I
dag, og sem bindindismenn benda
á, eru á síðum dagblaðanna. Við
flettum ekki því blaði þar sem
slys, innbrot, rán og gripdeildir,
misþyrmingar og allskyns afbrot
eru ekki skráð stóru letri. Svo er
komið, segja blöðin, að ekki er
rúm fyrir misindismennina, þeir
ganga lausir um göturnar og hver
friðsamur þjóðfélagsþegn má eiga
von á því að verða heimsóttur og
skrámaður, svo ekki sé meira
sagt. Því er jafnan bætt við í
blöðunum, að þeir sem þessum
ósköpum valda hafi verið undir
áhrifumeiturnautna.Þettabrenni-
vínsþjóðfélag, sem verið er að
byggja upp hér á landi af fólki,
sem betur veit, er það sem á að
koma í stað þess þjóðfélags sem
bindindismenn og hugsuðir lands
og þjóðar eru að vinna að. Er það
þetta sem við eigum í vændum?
Er maður ekki hissa á, að vel
metnir menn skuli skipa sér I
þessa fylkingu?
Ég er ekkert hissa á því, að
ráðizt sé á bindindismenn. Þeir,
sem í svaðinu eru, og þeir sem
hafa hag af að koma mönnum
ofan i svaðið ver.ða eitthvað að
aðhafast og því eru þessi viðbrögð
eðlileg. Þeir sem þora að hafa
skoðun og vilja ekki ganga þegj-
andi fram hjá því sem miður fer í
þjóðlífinu verða jafnan að vera
viðbúnir ágangi smásálna.
Spurning næstu tíma hlýtur að
verða þessi. Vilja menn una því
ástandi sem ríkir i afbrota-, áfeng-
is- og fíkniefnamálum, vilja menn
una því að vinnusvik, kæruleysi,
litilsvirðing fyrir öllu helgu og
háleitu fari vaxandi, eða vilja
menn risa til sóknar og skapa
heilbrigða þjóð i heilnæmu landi?
Síðari kostinn benda bindindis-
menn á og hafa bent á alla tíma.
Þeir vilja vera viti, senda út ljós i
myrkrið, hvort sem það tekur við
þvi eða ekki.
Arni Helgason,
Stykkishólmi."
0 Matvönd börn
Hér er bréf frá konu, sem
ber umhyggju fyrir börnum,
A.M.:
„Velvakandi góður.
Ég veit að þú lætur þér ekkert
mannlegt óviðkomandi og birtir
þess vegna línu frá mér um mikið
áhyggjuefni mitt.
Krakkarnir minir eru svo mat-
vandir, að ég er I hreinustu vand-
ræðum með þá. Þeir vilja helzt
ekkert borða nema innfluttan
kornmat í pökkum og svo súr-
mjólk. Soðinn fiskur með kartöfl-
um og feiti er eiginlega eini
maturinn þar fyrir utan, sem ég
kem i þá, en þegar til lengdar
lætur hlýtur þetta áð vera alltof
einhæf fæða.
Nú vill svo til að pakkamatur-
inn er rándýr, og svo hef ég heyrt,
að hann geri ekki annað gagn en
að fylla magann í bili. A pökkun-
um eru hins vegar upplýsingar
um margs konar efni og vítamin,
sem blandað er í þetta, og nú er
spurningin sú, hvort þetta sé
þegar allt kemur til alls ágætis
fæða.
Vonandi getur einhver upplýst
mig um þetta, en því skal aðeins
bætt við, að þessum blessuðum
börnum verður varla misdægurt,
holdafarið er eins og bezt verður
á kosið, og heimilislæknirinn leit
á þau í vor og sagði, að þau lifðu
greinilega eins og blóm í eggi.
Á.M.“
% Einstein
og dulræn mál
Áhugamaður um dulspeki
kom með Ganglera til okkar og
óskaði eftir þvi að við birtum smá-
klausu úr ritinu. Við tökum okkur
hér með bessaleyfi, en orð þessi
eru höfð eftir Albert Einstein:
„Hið fegursta, sem vér getum
reynt, er hið dulúðuga. Það er
uppspretta allra sannra lista og
visinda. Sá er engu betri en dauð-
ur, sem finnur ekki til slíkrar
kenndar, getur ekki lengur stað-
næmzt til að undrast og standa I
lotningarfullri hrifningu. Þessi
innsýn f leyndardóm tilverunnar
— samtengd óttanum að vísu —
er uppspretta trúarlifsins. Að
vita, að það sem er oss óskiljan-
legt, opinberast sem hin æðsta
speki og hin dýrlegasta fegurð,
þótt vér, sakir vanþroska vors
fáum ekki skynjað nema örlítið
brot af öllu þessu, — þessi
þekking, þessi tilfinning, er
kjarni sannrar trúar. Og í þessari
merkingu, og i henni einni, til-
heyri ég flokki einlægra trú-
manna.“
við vorum neydd til að afhenda
sjónvarpsfyrirtæki það ...
— En hvernig bar að að þér
höfðuð aftur spurnir af Mariettu
Shaw, spurði David. — Þðr hafið
kannski haldið sambandi við
hana?
— Ég hafði hvorki frðtt af
henni né séð hana síðan þann dag
sem ég tilkynnti henni ákvörðun
stjórnar fyrirtækisins.
— En það var engin illska milli
ykkar?
— Ég myndi orða það svo, að
það hefði verið dálitið þvingað,
eins og eölilegt var.
— Hvernig komust þér þá aftur
f samband við hana?
— Það var i gcgnum umboös-
manninn, Hagen. Hann uppgötv-
aði hana á ný og ræddi sfðan við
mig. Hann fullyrli að hún væri
gerbreytt manneskja að hún
hefði öðlast á ný sfna fyrri per-
sónutöfra og „útgeislun“ eða hvað
við eigum að kalla það og hefði
tekist að rækta með sér drama-
tfska hæfileika. Hann stakk upp á
að við gerðum kvikmynd eftir
leikritinu sem hún hafði komið
iram í. Og Marietta var tilbúin að
veita mðr fyrsta rétt.
HOGNI HREKKYISI
húsmæðra
Kryddhúsið í verzl. okkar í Áðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun
hinna ýmsu kryddtegunda kl. 2—6 í
úag- Verið velkomin.
Matardeildin,
Aðalstræti 9.
Til sölu notaöir þílar
Fiat 1 25 Berlina árg. '71
Fiat 1 25 Berlina árg. '71
Fiat 125 P árg. '72
Fiat 1 28 2ja dyra árg. '73
Fiat 1 25 P árg. '73
Fiat 1 25 P station árg. '73
Fiat 1 32 1 600 árg. '74
Fiat 132GLS 1800árg. '75, bíll i sérflokki
(skipti á ódýrari bíl möguleg)
Davíð Sigurðsson hf.
*
Fiat einkaumboð á Islandi
Siðumúla 35,
símar 38845 — 38888.
POLYCEU
prowcts
Polyfilla
exterior
Polyfilla
Cottulose
spartetpufver
INNI
cellulose-fylliefni
til allra viðgerða.
ÚTI
vinyl-plast-fylliefni
i allar sprungur.
Hefur alla kosti góðs
fylliefnis.
Þenst ekki. — Rýrnar ekki. — Naglfast. —
Skrúfufast.
— Auðvelt að slípa. —
í Vz og 2 kg. pökkum — einnig í 350 gr. túbum.
Cementwork
— sement og sandblanda,
til viðgerða. í 5 og 121/2 Ibs.
Polypeel
pk.
— losar gamalt veggfóður.
Losar alla gamla málningu
og lökk.
í 0,45 og 2,2 I. umbúðum.
Gerir notaða pensla og
málningarrúllur sem nýjar.
f 0,28 og 2,2 I. umbúBum.
Veggfóðurslím, sem allir
lofa.
Mest notaða veggfóðurslím
i Bretlandi.
FÆST UM LAND ALLT
HEILDSALA SMASÁLA