Morgunblaðið - 06.09.1975, Side 1

Morgunblaðið - 06.09.1975, Side 1
24 SIÐUR OG LESBOK 202. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Þessi maður er ekki forseti okkar” hrópaði fylgikona Charles Mansons er hún reyndi að myrða Ford Bandaríkjaforseta í gær Sacramento 5. september AP Reuter 0 „LANDIÐ er allt I óreiðu! Þessi maður er ekki forseti okkar!“ Þetta hrópaði ung, rauðklædd kona með rauðan túrban á höfðinu er hún var handjárnuð eftir að Augnabliks- byltingartil- raun í Súdan Khartoum 5. september AP- Reuter BYLTINGARTILRAUNIN f Súdan gegn stjórn Jafaar EI- Numairi forseta var barin niður eftir aðeins 40 mfnútna bardaga, að þvf er varaforseti landsins sagði f dag. For- sprakki hennar, Iftt þekktur majór, Hassan Hussein Osman, „var svæfður að eilífu", eins og varaforsetinn komst að orði, en ekki var vit- að um f jölda annarra sem féllu eða voru handteknir. Sfðar var tilkynnt að Osman hefði að- eins særzt og væri f varðhaldi. Byltingarmennirnir náðu útvarpsstöð á sitt vald og lýsti majórinn sig æðsta valdhafa landsins um dögun f morgun. Hersveitir stjórnarinnar áttu í engum erfiðleikum við að vinna bug á byltingarmönnun- um. Numairi forseti sagði sfðar f útvarpsávarpi að hann skildi ekki þessa „vonlausu aðgerð", — byltingarmennirn- Framhald á bls. 12. hafa miðað silfursleginni skammbyssu að Gerald Ford Bandarfkjaforseta f Sacramento- borg f Kalifornfu. Öryggisverðir j handsömuðu konuna áður en henni tókst að hleypa af, og sfðar var upplýst að f byssunni hefðu verið fjögur skot. Ford var miður sfn eftir morðtilræðið en jafnaði | sig þó fljótt. 0 Konan er sögð heita Lynne Alice Fromme, 26 ára að aldri, og hefur verið einn af fylgismönn- um morðingjans fræga, Charles Mansons, sem nú afplánar lffs-1 tfðarfangelsisdóm fyrir morð sem ' „hippafjölskylda“ hans framdi • árið 1971, þ. á m. á leikkonunni1 Sharon Tate, eiginkonu leik- stjórans Roman Polanski. Konan var flutt til fangelsisins í Sacra- mento og yfirvöld þar sögðu að hún yrði ákærð fyrir morðtilraun. Ford fór fótgangandi ásamt1 fylgdarmönnum sinum, þ. á m. I Ron Nessen blaðafulltrúa og líf- vörðum frá hóteli sfnu i borginni um kl. 17.00 að ísl. tíma. Hann ætlaði að ganga hinn stutta spöl til þinghússins í borginni, þar sem hann átti að flytja ræðu um glæpi í Bandaríkjunum. 1 skemmtigarði einum skammt frá þinghúsinu fór forsetinn að taka í hendur fólks sem raðað hafði sér meðfram gangstéttinni. Skyndi- lega smeygði konan sér milli tveggja manna sem stóðu við gangstéttina og miðaði 45 kalfbera skammbyssu að forsetanum úr innan við hálfs metra fjarlægð. Skömmu áður hafði hún spurt lög- reglumann einn um gönguleið forsetans. — Einn af lifvörðum forsetans, Larry Bruendorf, sem gekk á hæla honum kom auga á byssuna og fleygði sér á konuna. Ford virtist hafa séð byssuna einnig og stökk til hliðar. Á meðan Bruendorf og fleiri öryggisverðir afvopnuðu kon- una, leiddu aðrir lifverðir Ford með hraði til þing- hússins, þar %6m hann jafn- aði sig von bráðar og hélt ræðu sína éins og ráð var fyrir gert. Er Bruendorf kastaði sér á Fromme heyrðist hún kalla: „Það hljóp ekki af! Það hljóp ekki af!“ Ekki var ljóst hvort konan hafði þrýst á gikkinn, en ekkert skot hlaupið af, eða hvort hún hafði ekki náð að taka f gikkinn. Lynne Alice Fromme tilheyrði sem fyrr segir „hippafjölskyldu" Charles Mansons, sem framdi ein- hver hryllilegustu morð í sögu Bandaríkjanna árið 1969. Hún kom oft fram opinberlega sem „fjölskyldumeðlimur", og meðan á réttarhöldunum yfir félögum hennar stóð, sást hún fyrir utan réttarsalinn með krúnu- rakað höfuð, en „X“ skorið á enni sér. Saksóknarinn i því máli, Vincent Bugliosi, skrifaði síðar, að þessi brennimerking hefði verið einn af helgisiðum galdra- og fíknilyfjanýlendu Mansons, og áttu menn að drekka eigið blóð er það rann niður ennið úr sárinu. Við yfirheyrslur 1971 kvaðst Fromme vera ein af fyrstu stúlkunum sem slógust í hóp með Manson, og hún væri reiðubúin til að drepa fyrir „bræður hennar og systur“. Hún hefur sjálf verið ákærð fyrir morð, og var það í sambandi við morð á ungum sjóliða og eiginkonu hans f Stockton í Kaliforníu árið 1972. En ákærunni var síðar breytt i „meðsekt“ og loks látin niður Framhald á bls. 12. Goncalves ekki yfir- maður alls heraflans Tancos 5. september Reuter AP 0 VASCO Goncalvés hers- höfðingi fyrrum forsætisráðherra Portúgals, var f kvöld sviptur sæti sfnu f hinu 28 manna byltingar- ráði hersins og mun hann því ekki veróa yfirmaður alls herafla landsins en útncfníng hans f það embætti hafði valdið gffurlegri ófgu f landinu, og spáðu stjórn- málafréttaritarar f Lissabon því f dag að ef Goncalves yrði ekki rekinn frá öllum völdum bæði f her og ríkisstjórn, væri borgara- styrjöld á næstu grösum m.a. vegna andstöðu land- og flughers við hann. Ákvörðunin um þetta var tekin á fundi helztu leiðtoga landsins seint f kvöld og var yfir- lýsing fundarins undirrituð af Framhald á bls. 12. Símamynd AF EVRÖPSKIR SÖSÍALISTAR OG PORTtJGAL — Myndin var tekin á fundi evrópskra sósíalistaleiðtoga í London í gær, en þar samþykktu þeir áætlun í fimm liðum sem ætluð er sem pólitísk og siðferðileg stuðningsyfirlýsing við portúgalska sósfalistaflokkinn. Simamynd AP MORÐTILRÆÐI VIÐ FORD — Þessi mynd var tekin nokkrum sekúnd um eftir að Lynne Alice Fromme reyndi að skjóta Ford Bandarfkja- forseta til bana í Sacramento í gær. Öryggisverðir hafa handsamað stúlkuna. Tveir fórust — tugir særðust í sprengingu í Hilton-hótelinu í London London 5. september Reuter — AP TVEIR menn fórust og 43 særð- ust er sprengja sprakk um hádegisbil f dag f anddyri hins kunna Hilton-hótels í London, skammt frá Buckingham Palace, og olli atburðurinn miklu öng- þveiti og skelfingu. Er sprenging- in varð, var urmull af erlendum ferðamönnum og Lundúnabúum að spóka sig f glampandi haustsól- inni umhverfis hótelið, sem er 28 hæðir og var fullbókað af um 700 gestum. Örfáum mínútum áður en sprengjan sprakk f anddyrinu hringdi ókunnur maður til Lundúnablaða og tilkynnti um hana. Maður þessi talaði með írskum hreim. Lögreglan vildi ekki skera úr um hverjir hcfðu staðið fyrir sprengingunni, en fjórar sprcngingar f London sfðustu daga hafa verið tengdar öfgaarmi Irska lýðveldishersins. Danir eru búnir með þorskkvóta Kaupmannahöfn 5. september — NTB DANSKIR sjómenn fá ekki að stunda þorskveiðar fyrr en í októ- ber, því að búið er að veiða upp í leyfilegan kvóta fyrir september- mánuð. Arskvóti Dana er 44.200 lestir og er ákveðinn af NA- Atlantshafsfiskveiðinefndinni. Hins vegar voru ýmsir efins um að IRA hefði komið fyrir sprengju á Hilton-hótelinu, sem er mjög vinsælt af bandarískum ferðamönnum, þar eð IRA hefur leitað mjög eftir fjárhagsstuðn- ingi frá bandariskum aðilum. Lögreglan leitaði lengi fram eftir degi að fleiri sprengjum á svæð- inu og fann a.m.k. einn ókennileg- an hlut. Allir hótelgestirnir höfðu flúið þaðan, sumir ruddust i ör- væntingu niður brunastiga. Um 100 manns voru i anddyrinu er sprengingin varð. Norska stjórnin boðar verðstöðvun og aukna styrki Osló 5. september — NTB. NORSKA rfkisstjórnin ákvað f dag að leggja til að veitt yrði um tveim milljörðum norskra króna til sérstakra aðgerða sem ætlað er að draga úr at- vinnuleysi f landinu I haust og vetur. I stjórnarfrumvarpinu sem lagt verður fyrir stór- þingið leggur stjórnin til að útlánsrammar rfkisbankanna á þessu ári verði rýmkaðir um 682 milljónir króna, auk þess sem bankarnir fá heimild til að veita fyrirfram lán sem Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.