Morgunblaðið - 06.09.1975, Síða 3
Sr. Páll Pálsson.
Prestkosning
TVÆR villur slæddust inn í
frétt blaðsins um prestkosn-
ingar í gær. Sr. Páll Pálsson
var sagður heita Páll S. Páls-
son, og í nafni prestakallsins
var prentvilla, en þar er auð-
vitað um að ræða Bergþórs-
hvolsprestakall. Eins og fram
kom í fréttinni er sr. Páll Páls-
son einn í kjöri í prestkosning-
unum sem fram eiga að fara
‘14. september n.k. Kona Páls
er Edda Karlsdóttir.
Nýtt síldar-
verð komið
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins ákvað á fundi
f gær eftirfarandi lágmarks-
verð á síld veiddri í reknet til
söltunar frá byrjun rekneta-
veiða til 15. september 1975:
A) Stór síld (34 cm og stærri),
hvert kg kr. 40.50
b) Millistærð (32 cm til 34
cm) hvert kg kr. 30.50
C) Smá síld (undir 32 cm),
hvert kg kr. 14.00
Stærðarflokkun framkvæm-
ist af Framleiðsluefirliti
sjávarafurða.
Verðið er miðað við síldina
upp til hópa komna á
flutningstæki við hlið veiði-
skips.
í yfirnefndinni áttu sæti:
Ólafur Davíðsson, sem var
oddamaður nefndarinnar,
Guðmundur Jörundsson og
Ingólfur Ingólfsson af hálfu
seljenda og Dagbjartur Einars-
son og Margeir Jónsson af
hálfu kaupenda.
Lýst eftir fólki
á grœnni bifreið
UM KLUKKAN 21 s.l. fimmtu-
dag voru börn að leik á
malbikuðu svæði við Réttar-
holtsskólann. Þá kom þar að
græn Volkswagenbifreið og
settist 8 ára drengur, sem
þarna var, á afturstuðara bíls-
ins. í bflinn kom farþegi, og
þegar hann var steztur inn ók
bíllinn af stað. Drengurinn var
áfram á stuðaranum, en féll af
honum þegar bíllinn var
komin út á háhæð Réttarholts-
vegar. Skall hann f götuna og
hlaut höfuðmeiðsl. Fólkið f bif-
reiðinni mun hafa orðið vart
við þetta, og farþeginn ætlaði
að hafa tal af drengnum, en
hann hljóp þá burtu. Eru það
tilmæli rannsóknarlögregl-
unnar að fólkið í græna
Volkswagenbílnum gefi sig
fram.
Ekkert sumar
við Breiðafjörð
Stykkishólmi 5. sept
SUMARIÐ hefir verið afar vot-
viðrasamt hér við Breiðafjörð.
Margir hafa sagt að það hafi
eiginlega ekkert sumar verið
og má það til sanns vegar færa.
Sést það bezt á gróðrinum, svo
og þvf að ekki sjást nein ber
þar sem krökkt hefir verið
áður og hefir slíkt ekki gerzt
um langan tima. Ber munu
vera af skornum skammti
nema þá helzt fyrir norðan en
þar hefir sólin skinið flesta
daga eftir því sem frétzt hefir.
—Fréttaritari
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975
3
Kvenlæknmgadeild-
in tekin til starfa
FYRSTA hæð hinnar nýju bygg-
ingar fæðingardeildar Land-
spítalans var tekin í notkun í gær,
en á þessari hæð verður kven-
lækningadeildin til húsa. Göngu-
deild kvenlækningadeildarinnar,
sem er f kjallara nýju bygging-
arinnar, var hins vegar tekin f
notkun í fyrra. Gert er ráð fyrir,
að lokið verði við 2. og 3. hæð
byggingarinnar á komandi vetri.
1 frétt frá skrifstofu Ríkisspítal-
anna segir, að f hinni nýju deild
verði til að byrja með 23 sjúkra-
rúm, sem mun fjölga f 26, þegar
þriðja hæð byggingarinnar
verður tekin í notkun. Sjúkrastof-
ur verða alls 10, þar af 2 með einu
rúmi, 4 tveggja rúma, 2 þriggja
rúma, 1 með fjögur rúm og 1 með
sex rúm.
I öllum sjúkrastofum eru inni-
byggð vatnssalerni auk hand-
lauga og fataskápa, og f 7 stofum
fylgja innibyggð sturtuböð. 8
sjúkrastofur eru f vesturhlið
byggingarinnar, en 2 f austurhlið.
1 austurhlið eru ennfremur skoð-
Kaffisala til styrktar
fötluðum og lömuðum
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra heldur kaffi-
sölu í Sigtúni á morgun, sunnu-
dag, og hefst hún kl. 2 e.h. — Á
boðstólum verða m.a. heima-
bakaðar kökur og smurt brauð.
Einnig verða góð skemmtiatriði.
Kvennadeildin hefur á þessu
ári gefið æfingatæki og innan-
hússsíma í æfingastöðina við
Háaleitisbraut og teppi í sumar-
kvalarheimilið í Reykjadal.
Þá styrkir deildin nú þrjá
nemendur í sjúkra- og iðjuþjálfun
og ráðstefnunni „List til lækn-
inga“ var veittur styrkur. Samtals
hefur deildin látið 800—900 þús.
kr. af hendi rakna það sem af er
þessu ári.
Kvennadeildin hefur ætíð mætt
miklum góðvilja almennings,
þegar hún hefur leitað til hans
um styrk til starfseminnar. Vænt-
ir hún þess að svo verði enn nú,
þar sem hér er um gott og göfugt
málefni að ræða.
unarstofa, vaktstofa, býtibúr,
radiumstofa, 3 skolherbergi, bað-
herbergi, skrifstofa, skjala-
geymsla, viðtalsherbergi, ræsti-
áhaldaherbergi, blómaherbergi, 2
áhalda- og birgðaherbergi og
nokkur vatnssalerni fyrir starfs-
fólk og gestkomandi. Þá eru á 1.
hæð byggingarinnar aðalinn-
gangur, fatageymsla, biðstofa og
upplýsingar.
Enn er ólokið allmikilli bygg-
ingarvinnu á 2. og 3. hæð.
Frá sumardvalarheimilinu f Reykjadal f Mosfellssveit.
Örlítil forvitni
gæti komið sér vél
Hvers vegna?Vegna þess aö BUFLON hefur leyst af hólmi eldri aöferöir. BUFLON er á hagkvæmara veröi
veggfóöursklæðning klæöir baö-
herbergiö og eldhúsiö á hagkvæman
hátt. Þér eignist fallegt og glæsilegt
heimili, eins og. allir óska sér. BUFLON
er sterkt vatnsþétt vinyl efni sem
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Málarinn, Grensásvegi, Reykjavík.
Norðurfell Akureyri.
BUFLON fegrar heimili þitt.
BUFLON kemur í staöin fyrir
hvers konar flísar og aörar
klæöningar, á þeim stööum þar
sem er mikil umgengni.
Gler og málning Akranesi.
Kaupfélagið Stykkishólmi.
K.Á. Selfossi.
Einkaumboð á íslandi FRANSK-ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ
og miklu auöveldara í uppsetningu,
en hvers konar veggflísar. BUFLON
hefur hlotiö marg háttaöa viöurkenn-
ingu þeirra sem láta sig varða hag
neytenda.
Brimnes Vestmannaeyjum.
Verzlun Jóns Friðgeirs Einarssonar,
Bolimgarvík.