Morgunblaðið - 06.09.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975
11
Staðan
könnnð
Þessi Stuttsiða er hin síðasta,
sem birtist að sinni og í umsjón
okkar, sem að henni höfum staðið
undanfarnar fimmtán vikur. Við
hverfum nú að öðrum störfum og
kveðjum Stuttsiðuna, sem fyrst
núna er að koma almennilega fyrir
sig fótunum, með sorg og sökn-
uði, en við það verður ekki ráðið.
Það er von okkar, að Stuttsiðan
hafi á sfnu stutta æviskeiði haft
einhver jákvæð áhrif i íslenzku
popptónlistarlífi, sem þvi miður er
allt of fábreyti- og fátæklegt, þrátt
fyrir góðan vilja einstaka manna.
Það hefur komið fram i skrifum
okkar, að við teljum illa að is-
lenzkri popptónlist búið og því
miður er það svo, að mikið af þvi,
sem reynt er að byggja upp með
góðum ásetningi. er jafnóðum
rifið niður og eyðilagt. Þannig
mun vera gangur lifsins.
Við þökkum þær góðu undir-
tektir, som Stuttsiðan hefur
fengið. Við þökkum einnig — og
ekki siður — ýmislega gagnrýni,
sem Siðan hefur fengið, oftar
jákvæða en hitt.
Það er sérstaklega sárt að
hætta nú, þegar svo virðist, sem
grundvöllur sé að skapast fyrir
málefnalegri umræðu um íslenzkt
popp/rokk, stöðu þess og stefnu.
[ raun og veru má segja, að rokk
sé stefna í sjálfu sér, enda er rokk
miklu meira en tónlist ein og sér,
en samt sem áður hefur stefnan
hérlendis verið heldur reikul og
óákveðin; lif og starf íslenzkra
popptónlistarmanna miðast þvi
miður allt of mikið við þetta
laugardagskvöld og það næsta. En
þannig er að rokkinu búið. Nokkur
jákvæð teikn hafa birzt i sumar og
er þar sérstaklega ástæða til að
nefna stúdió Hljóðrita h/f, þau
tækifæri sem islenzkir tónlistar-
menn hafa fengið og eru um það
bil að fá erlendis og nokkrum
ánægjulegum heimsóknum, sem
við höfum fengið á þessu sumri.
Þó er ástæða til að vara við þvi,
að með tilkomu stúdiósins i
Hafnarfirði kann svo að fara, eins
og gerðist með HB-stúdió á sinum
tima. að ALLIR vilja taka upp og
komast á plötu. Staðreyndin er
nefnilega sú, að ekki nærri allir
eiga ERINDI á plötu. Hljómplata
er ekki einungis fyrir flytjandann
sjálfan, heldur og þá, sem flytj-
andinn ætlast til að kaupi sina
plötu og þegar er nóg komið af
plötum með tónlist, sem einungis
eru til að hafa skemmandi áhrif á
tónlistarsmekk almennings. Það
hlýtur einnig að vera hlutverk tón-
listarmannanna — sem og vett-
vangs eins og Stuttsiðunni var
ætlað að vera — að hafa bætandi
áhrif, bæði tónlistarlega og menn-
ingarlega.
Hvort einhverjum hefur tekizt
það á eftir að koma i Ijós. Á
meðan það liggur ekki Ijóst fyrir
sakar ekki að minnast orða Pauls
McCartneys: „Rock On Lovers
Everywhere, Because That's Basi-
cally It."
Kær kveðja,
Sveinn Guðjónsson,
Ómar Valdimarsson.
I
I
■
I
myndi mæta andspyrnu — og jafn-
vel fjandskap — í fyrstu.
Megas hefur gert sér grein fyrir
því, að hann nær ekki til breiðari
áheyrendahóps en hann hefur haft
fram að þessu með kassagítarnum. I
dag vill fólk rokk með trukki Þá er
bezt að gefa þvi rokk með trukki
Júdas er góð trukkhljómsveit og
Júdas er meira að segja svo góð
hljómsveit, að hvergi á þessari plötu
gefa þeir sig fram; ef maður ekki
vissi að þarna væri Júdas á ferðinni,
þá væri maður engu nær eftir að
hafa hlustað á plötuna alla.
Textarnir skipta mestu máli hjá
Megasi og við þá hefur hann gert
níu lög. Flest eru stolin og stæld að
einhverju leyti, það gerði Dylan lika
á sínum tíma (hversu margir vita til
dæmis, að „Don't Think Twice. . ."
er upphaflega komið frá Appalasíu
og hét „WhoTI Buy Your Chickens
When l'm Gone"). Bezta dæmið er
„Ég á mig sjálf (söngurinn hennar
Diddu)", sem stolið er úr lagi, er
Þuríður Sigurðardóttir gerði sæmi-
lega vinsælt hérlendis fyrir nokkrum
árum.
Megas afbakar lagið og skrum-
skælir snilldarlega en Megas meinar
töluvert annað en Þuríður þegar
hann hreytir út úr sér,
„Ég á mig sjálf
en mammaboba
starfrækir mig."
Annað sérlega athyglisvert lag er
„sennilega það síðasta (sem viking-
urinn mælti um & eftir fráfall sitt)".
Þar er Megas hvað mest absúrd og
maður getur aldrei almennilega
áttað sig á hvort maður er að hlusta
á Megas eða Dylan fara með kostu-
lega samsetningu á „Desolation
Row" af „Highway 61" og „Lady Of
the Lowlands" af „Blonde On
Blonde"
Megas hefur meinmgar og þær
yfirleitt ekki duldar. Það getur t.d
ekki farið fram hjá mörgum hvað
hann meinar með þvi að ópna
plötuna með laginu „jónas ólafur
jóhannesson frá hriflu" Og í næsta
lagi, „súlnareki", segir Megas um
„Ingólf Arnarson":
„ingólfur gegndi borgmeistara-
embættisverkum en eiginhags-
munamál hans einatt máttu þau
víkja um set. Spurðu þvi eigi:
Hvað getur borgin greitt fyrir mér?
heldur: gjöri ég allt það fyrir borg-
ina mina það sem ég get?"
Megas hefur látið þau orð falia,
að „Millilending" sé rökrétt
framhald af fyrri plötunni bg að
næsta plata verði rökrétt framhald af
þessari Þaðan komi heitið
„Millilending". En víða I Ijóðunum
virðist Megas sjálfur alls ekkert viss
um að önnur plata komi í
„erfðaskrá" segir hann að lokum
„ég uunandi hluta
afhendi líkum þau kjör
að endurhefja mitt auma merki
eg ýti nú senn úr vör" .
Við svipaðan tón kveður i „silfur-
skotturnar hafa sungið fyrir mig" og
þar leyfir hann sér að efast stórlega
um eigið gagn og ágæti:
„vísað hef ég
mörgum manni veg
um myrkvað tóm & djúpt
& dautt míns lífs
sem hvorki á til skeiðar
eða hnffs?"
Hvað um það, það er mikill feng-
ur í þessari plötu Megasar og þá ef
til vill ekki sizt fyrir það, að Megas
hefur orðið (slendinga fyrstur til að
nota þessa tegund tónlistar til að
koma Ijóðum sínum á framfæri.
Hann er jafnframt fyrstur mörlanda
til að geta notað ylhýra móðurmálið
í rokki og það svo að unun er að
Sé þessi plata aðeins millilend-
ing, þá skulum við vona, að tekizt
hafi að yfirfara fararskjótann það
vel, að hann komist á leiðarenda og
aftur ti| baka.
Þá er að lokum ástæða til að geta
þess, að á Slagslðunni á morgun
birtist ýtarlegt viðtal við Megas, sem
Sveinn Guðjónsson hefur átt við
hann, og þar útskýrir Megas sjálfur
ýmis viðhorf sín., bæði innhverf og
úthverf. — ó. vald.
Ibúð til sölu
í Vestmannaeyjum
5 herb. íbúð 1 20 fm á góðum stað í bænum.
Sælgætisverzlun til leigu. Kvöldsöluleyfi. Tæki
viðvíkjandi rekstrinum til sölu Góð kjör.
Upplýsingar í síma 1 978 og 301, Vestmanna-
eyjum kl. 7—8 á kvöldin.
Skemmtilegu
skólafotin
emkomin
© MÍ
Laugavegi 53 og 58
Heimilistrygging SJÓVÁ bœtir tjón ó innbúi af völdum
eldsvoóa, vatns, innbrota og sótfalls, einnig óbyrgóar-
skyld tjón - svo nokkuó sé nef nt.