Morgunblaðið - 06.09.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975
17
félk í
fréttum
■O
Deilur í Bretlandi
um drykkjusiði
Churchills
+ DR. JULIUS Merry forstöðu-
maður drykkjumannasjúkra-
húss f West Park Epsom f Bret-
Iandi sagði í ræðu á fundi sam-
taka um áfengismál þar f landi,
að heimsstyrjöldinni
1939—1945 hefði getað Iyktað
tveimur árum fyrr en raun varð
á, ef Winston Churchill hefði
ekki verið svo vínhneigður. I
stuttri ræðu sem vakið hefur
umtal og deilur staðhæfði hann
að Churchill hefði drukkið að
jafnaði tvær viskíflöskur á dag
og strfðinu hefði lokið fyrr af
ef hann hefði gætt meira hófs.
I blaðinu The Daily Tele-
graph er frá þessu sagt og tekið
fram að harkaleg viðbrögð hafi
orðið við þessari yfirlýsingu
læknisins. í blaðinu segir með-
al annars: „Fráleitt væri að
halda því fram að hinn mikil-
hæfi stjórnmálamaður hefði
ekki notið þess að fá sér drykk.
Hann drakk vín með hverri
máltfð og hann naut þess að
dreypa á viskf og sóda; stund-
um byrjaði hann klukkan fjög-
ur eftir miðnætti og gat þá
haldið sötri áfram þar til
klukkan sex eftir hádegi — og
honum fannst einkar Ijúft að
gæða sér á konfakslögg að máls-
verði loknum. Þetta var hans
Iffsmáti. Hann var nautnamað-
ur á mat og drykk og hann
sagðist reykja fjórtán vindla á
dag, en aldrei sást hann undir
áhrifum áfengis."
A.J.P. Taylor sagnfræðingur
mun hafa kveðið einna fastast
að orði, eftir að hann heyrði
ummæli læknisins: „Þetta er
bjálfalegasta staðhæfing, sem
ég hef heyrt á allri minni lífs-
fæddu ævi. Á enga lund bland-
ast drykkjuvenjur Churchills
inn f framgang og úrslit heims-
styrjaldarinnar sfðari ... Ég
veit að honum þótti sopinn góð-
ur. Honum þótti kampavín með
afbrigðum Ijúffengt. En nautn
þess skerti aldrei gáfur hans
eða dómgreind.“
Og sagnfræðingurinn heldur
áfram: „Bismark stjórnaði
Þýzkalandi á öldinni sem leið
af atorku og hann byrjaði alltaf
hvern dag með því að drekka
eina kampavínsflösku og að
minnsta kosti eina konfaks-
flösku yfir daginn.“
Og Duncan-Sandys lávaröur,
sem var kvæntur Diönu, dóttur
Churchills. á árunum
Winston Churchill.
1935—1960 sagði um yfirlýs-
ingu dr. Júlfusar Merrys:
„Andstyggileg og hlægileg."
Blaðamaður Daily Telegraph
segir að þekktur og virtur þing-
fréttaritari hafi sagt f samtali
við sig: „Þeir sem þekktu
Churchill munu bregðast illa
við þessum ásökunum. Þetta
eru meiðyrði um látinn mann.
Allir vissu að hann hafði gam-
an af þvf að fá sér drykk og var
sérstaklega hrifinn af kampa-
vfni, en aldrei sá ég hann undir
áhrifum víns í Neðri málstof-
unni og það er meira en hægt
er að segja um ýmsa starfs-
bræður hans.“
+ Morð og nauðganir eru orðn-
ir daglegir viðburðir í Banda-
rfkjunum. Það er orðið óhugn-
anlegt að dveljast þar. Eg þori
varla að fara aftur þangað,"
sagði norska leikkonan Liv Ull-
mann. Liv Ullmann er orðin
mjög þekkt leikkona f Holly-
wood, en dvelst um þessar
mundir f sveitasetri sfnu í Nor-
egi. Henni óar við að fara aft-
ur til Bandaríkjanna. „Þegar
ég var í Bandaríkjunum var
mín gætt, bæði af lögreglu-
mönnum og leynilög-eglu-
mönnum allan sólarhriiíginn.
Ég var aldrei ein. Jafnvel þegar
ég þurfti að fara f lyftu, var
hún rannsökuð hátt og lágt.
Lögreglan þorði ekki að taka
neina áhættu. Þegar ég var f
Philadelphiu var vinkonu
minni nauðgað, meðan við hin
vorum f næsta herbergi. Hún
þorði ekki að öskra, vegna þess
að maðurinn hélt hnff að hálsi
hennar. Þetta var mikið áfall.
Sfðast frétti ég af þessari sömu
vinkonu minni, að hún var
myrt úti á götu, án þess að það
virtist nokkur tilgangur í því.
Þetta hefur að sjálfsögðu vakið
með mér mikinn ótta, og ég get
alls ekki sagt að ég hlakki til að
snúa aftur til Hollywood til
þess að standa við samninginn
minn,“ sagði Liv Ullmann.
+ Danska söngkonan Gitte
Hænning hefur nú neyðst til
að taka sér hvfld frá söng-
ferðalögum sfnum. Það
reyndist of erfitt fyrir hana
að fylgjast með í hinni erf-
iðu baráttu um vinsældalist-
ann í Þýzkalandi. Loks varð
álagið of mikið. Gitte dvelst
nú í fbúð sinni f Hamborg og
hefur neyðst til að afboða
hljómleika I Berlín og
Leipzig. „Ég hlýði skipun-
um læknis míns og reyni að
safna kröftum fyrir næsta
söngferðalag," sagði Gitta f
viðtali við þýzka blaðið
„Bild“. Næsta ferðalag
hennar verður svosem ekk-
ert auðvelt. Þá á hún að
syngja f 69 þýzkum borgum
ásamt Dieter Thomas Heck.
Eina huggun hennar er að
söngkonan sem kemur í
staðinn fyrir hana, sænsk'a
söngkonar Siw Inger hefur
sama umboðsmann og Gitta,
Joe Geissler, en hann er
ekki bara umboðsmaður
Gittu, heldur er hann jafn-
framt eiginmaður hennar,
svo að fjölskyldan ætti ekki
að vera með öllu peninga-
laus.
hafið þér
gert yður
grein fyrir
því...
að á íslenzku
gæti Sir Winst
on Churchill
heitið: séra
Vindsteinn
Kirkjuhvoll?
D jŒZBQLLettekÓLÍ BÚPU
j<izz(»<illel(
Skólinn tekurtil starfa
1 5. sept.
1 3 vikna námskeið.
KENNT VERÐUR:
JAZZBALLETT
MODERN
SHOW-DANSAR
NÝJUNG
LEIKLIST—TJÁNING
Leiðbeinandi: Edda
Þórarinsdóttir, leikkona.
Upplýsingar og innritun í síma 83730 eða
85090 frá kl. 2 — 5 í dag, laugardag. (jQ
Ath. framhaldsnemendur hafi samband við skól- D-
1- ann sem allra fyrst.
PJazzBaLLöCtskóLi búpuc:
Skóli Emils
hefst 10. september
Hóptímar og einkatímar. — Innritun í síma
16239. Emil Adólfsson, Nýlendugötu 4 1.
Gulur, rauður,
grænn&blár
gerðuraf
meistarans
S höndum
VIÐ HLEMMTORG
□ □ □ Jazzbaiiettskdi