Morgunblaðið - 04.10.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975
Sláturfé á gjöf í Mý-
vatnssveit vegna
slæms tíðarfars
Húsavík, 3. október.
TÍÐ HEFUR verið frámunalega
stirð undanfarin hálfan mánuð,
úrfelli mikið, rigning á láglendi
en snjókoma til fjalla. Töluverð-
ur snjór cr kominn í Bárðardal og
Mývatnssveit og fram Reykjadal
svo að fé hefur fennt og er f
Mývatnssvcit og Bárðardal að
mestu á gjöf, því að þar er svo til
jarðlaust. Er þvf fjöldi sláturfjár
á gjöf, sem mjög er óvanalegt og
er nú slátrað frá morgni til
miðnættis á Húsavík til að flýta
slátrun vegna hins óvanalcga
ástands. Sláturfó kom reglulega
Kanadiskir tónlista-
menn í Reykjavík
„THE LYRIC ARTS TRIO“ frá
Kanada heldur tónleika á vegum
Tónlistarfélags Reykjavíkur,
laugardaginn 4. október, kl. 2.30 f
Austurbæjarbfói.
„THE LYRIC ARTS TRIO“ er
skipað þrem ungum kanadiskum
tónlistarmönnum — sópransöng-
konunni Mary Morrison, flautu-
íeikaranum Robert Aitken, og
píanóleikaranum Marion Ross.
Þetta tríó er líklega einn mikiJ-
virkasti tónlistarfulltrúi, sem
Kanada á nú á að skipa. Frá 1974
iiafa þau flutt verk eftir kanadísk
tónskáld, ekki ejnungis víðsvegar
í heimalandinu heldur erlendis,
og aflað kan^dfskri tónlist viður-
kenningar í mörgum löndum með
frábærri túlkun sinni. Þau voru
boðin til Japan í sambandi við
heimssýninguna 1971. 1973 voru
þau fulltrúar heimalands síns á
Listahátíðinni í Reykjavík, en
þaðan lá leiðin til Parísar. Flest
kanadísk tónskáld núlifandi, sem
að kveður, hafa Samið éða raddr
sett tónverk sérstaklega fyrir þau
þrjú, og eru sum þau verk hin
nútímalegustu, en önnur í sígild-
um stfl.
Hvarvetna sem þau þrjú hafa
komið fram, hafa þau hlotið hina
bestu dóma „og“ eins og þau sjálf
segja — „erum við allsstaðar
beðin að koma aftur“. Svo vill til
að þau eru sitt úr hverju fylki í
Kanada; Mary Morrison frá
Winnipeg, Robert Aitken frá
Nova Scotia og Marion Ross frá
Ontario. En fylkin eru fimm, og
þau ekki nema þrjú, svo Quebec
og breska Kolumbía verða að
hugga sig við að tónlistin viður-
kennir ekki nein fylkjamörk eða
landamæri.
A efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir: Luigi Cortese,
Wallingford Riegger, Henry
Cowell, Harry Somers, Maurice
Ravel og fl. tónskáld.
Bamasamkomur Hjálp-
ræðidiersins í Breið-
hohi að hefjast
I DAG hefjast barnasamkomur
Hjálpræðishersins í Hólabrekku-
skóla í Breiðholti. Samkomurnar
verða kl. 2 á hverjum laugardegi í
vetur. Þar verða sýndar stuttar
kvikmyndir, sögur lesnar og sung-
ið mikið. ÖII börn fá kort, sem
merkt verða samkvæmt funda-
sókn og í hverjum mánuði fer
fram happdrætti. Þar taka þátt
þeir sem ötullegast mæta, auk
þess sem þeir fá gullstjörnur, sem
koma á hverjum laugardegi.
Leitað eftir samning-
um um kaup á Baldri
Þórður.
EINS OG kunnugt cr af fréttum
hefur eigandi skuttogarans Bald-
urs boðið hann til sölu til rann-
sóknarstarfa. Hefur rfkisstjórnin
nú að tillögu Matthlasar Bjarna-
sonar, sjávarútvegsráðherra,
heimilað sjávarútvegsráðuneyt-
inu í samráði við fjármálaráðu-
neytið að leita eftir samningum
um kaup á skipinu. Hafrannsókn-
arstofnunin og fiskifræðingar eru
hlynntir þvf að skipið verði keypt.
1 viðtali við Morgurtblaðið í
gær, sagði Matthías Bjarnáson, að
á þessu stigi væri of snemmt að
segja til um, hvort skipið verður
keypt en leitað verður eftir samn-
ingum næstu daga. Verði af kaup-
um verður skipið notað til þess að
F ormannafundur
sjálfstæðisfélag-
anna í dag
FUNDUR formanna sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík verður
haldinn á vegum Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í dag,
laugardag kl. 13.30 í Miðbæ
v/Máaleitisbraut. Meginviðfangs-
efni fundarins verður að ræða um
fylgjast með afla togara á uppeld-
issvæðum þorsksins og við fiski-
leit. Mundi skipið koma að miklu
gagni, þar sem Bjarni Sæmunds-
son getur ekki nema að litlu leyti
fullnægt kröfum og óskum um
fiskileit, Þá hentar togskip að
þessu tági vel til veiðitilrauna og
sem skólaskip. Sjávarútvegsráð-
herra sagði, að gera þyrfti breyt-
ingar á skipinu ef til kæmi, sem
mundu hafa nokkurn kostnað f
för með sér. Á næsta leiti bíður
ákvörðun um, hvort setja á Haf-
þór í 16 ára flokkunarviðgerð,
sem yrði mjög kostnaðarsöm.
Verði Baldur eða annað slíkt skip
keypt verður Hafþór ekki settur í
viðgerð og mun þá ekki lengur
nótaður við rannsóknarstörf.
þau félagslegu og pólitísku við-
fangsefni sem framundan eru i
starfi félaganna í Reykjavík á
næstu mánuðum og að sama skapi
stuðla að því að samræma starf-
semi félaganna eftir þvf sem tök
eru á.
Gunnar Helgason formaður
Fulltrúaráðsins flytur í upphafi
fundarins inngangsorð. Jafn-
framt munu formenn félaganna
gera í stuttu máli grein fyrir
helztu verkefnum í fyrirhugaðri
starfsemi þeirra.
Anna Jónsson.
Frú Anna
Jónsson látin
FR(j Anna Jónsson, ekkja Einars
heitins Jónssonar myndhöggvara,
er látin rúmlega nfræð að aldri.
Anna Marie Matilde Jónsson
eins og hún hét fullu nafni fædd-
ist í Horsens á Jótlandi i Dan-
mörku hinn 14. apríl 1885.
Foreldrar hennar voru Karl
Jörgensen vélvirki í Kaupmanna-
höfn og kona hans Mathilde
Birgitte Jörgensen, fædd Wínk.
Frú Anna lærði kjólasaum og
starfaði siðan sem saumakona og
kjólameistari til 1917, er hún gift-
ist Einari Jónssyni. Við lát Einars
1954 tók frú Anna við yfirumsjón
í listasafni hans og gegndi hún
þvi starfi til dauðadags.
Konan, sem lézt
Hér hirtist mynd af Steinunni
Pálsdóttur Fögrubrekku 1, Kópa-
vogi, sem lézt af völdum áverka er
hún hlaut f bifreiðaslysi á
Kringlumýrarbraut við Ncsti f
Fossvogi svo sem getið var í Mbl. í
gær. Steinunn var 62ja ára.
Getur haft áhrif á fallþunga dilka
Fjölbrautarskólinn í
Breiðholti settur
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti verður settur- f 1. sinn í dag
kl. 14.00. Um 250 nemendur verða
f skólanum í vetur. Skólinn er
ætlaður ungmennum f Breiðholts-
hverfunum þremur á aldrinum
frá 16—20 ára og eru það 16 ára
ungmenni, sem nú hefja námið.
Hér er um að ræða fyrsta skól-
ann hér á landi, sem er hannaður
og skipulagður frá upphafi sem
sameinaður framhaldsskóli. I því
felst að skólinn er skipulagður í
mismunandi námsbt;autir, sem
nemendur gefst kostur á að velja
eftir áhuga sínum, hæfni og
hugðarefnum. Námsbrautirnar
verða mislangar, frá tveggja ára
námsbrautum, jafnvel eins árs og
til 4 ára námsbrauta. Skóla-
meistari fjölbrautaskólans er
Guðmundur Sveinsson.
vænt af fjalli og leit út fvrir
góðan meðalþunga, en þetta tíðar-
far getur sett strik í reikninginn.
Á sl. ári kom slæmt hret um
svipað leyti, en það stóð aðeins
nokkra daga. Yfirstandandi hret
er aftur á móti búið að standa
hálfan mánuð með óvenju mikl-
um kuldum.
Fréttaritari.
Myntuppboð í dag
GUÐMUNDUR Axelsson í Klaust-
urhólum heldur myntuppboð í
Tjarnarbúð í dag 14. 200 númer
eru á uppboðinu. Má þar nefna
500 kr. seðil, grænan, en á siðasta
uppboði var slfkur seðill sleginn á
62 þús. kr., minnisskjöld um
Sigurð Nordal 1886—1966, græn-
lenzka myntpeninga, danska
ríkisdali, norskar minnis-
medalfur, 5 kr. pening frá 1899
(gull) og 10 kr. pening frá 1876
(gull).
Einar Þorláksson við eitt verkanna á sýningunni.
Einar Þorláksson sýn-
ir í Norræna húsinu
1 DAG opnar Einar Þorláksson
sýningu á 59 myndum í Norræna
húsinu. Myndirnar, sem málaðar
eru 1 pastel- og acryllitum, eru
langflestar málaðar á þessu ári og
1974, en nokkrar myndir eru
eldri.
Einar Þorláksson hlaut starfs-
laun listamanna árið 1974—75.
Var hann eini listamaðurinn það
árið, sem hlaut starfslaun til eins
árs, sem er lengsta tfmabil í slfkri
veitingu, en sýningin er að Iang-
mestu leýti árangur þessa starfs-
árs.
Þetta er fjórða einkasýning
Einars Þorlákssonar, en hann
hefur tekið þátt f fjölda samsýn-
inga, bæði hér og erlendis.
Sýningin f Norræna húsinu
stendur til 12. október, og er opin
kl. 14—22 daglega.
Bylting 1 fræöflun á Sauðlauksdalssöndum
Bóndi smíðar melsláttuvél
upp úr gamalli sláttuvél
Vélin afkastar á við 150 manns
Látrum, 3. október.
ÓLAFI Egilssyni verðandi
bónda á Fljóti í Örlygshöfn
hefur nú tekist að útbúa
sláttuvél, sem slær aðeins
efsta hluta Melgrassins,
eða fræin. Hefur tæki
þetta verið í reynslu und-
anfarna daga og gefist
mjög vel. Það slær það sem
mannshöndin hefur skorið
og sallar í poka. Er talið að
það vinni á móti 150 manns
í melskurði. Egill bóndi á
Fljóti, faðir uppfinninga-
mannsins, taldi að þeir
væru búnir í þessum
tilraunaskurði að salla um
þremur tonnum af fræj-
um.
60 ha. Setordráttarvél með drifi
á öllum hjólum drffur vélina upp
og niður sandhólana, sem á sléttu
væri. Ólafur byrjaði á smiði vélar-
innar seinnipartinn í sumar og
hefur aðeins unnið að þessu verk-
efni í nokkra mánuði í frístund-
um. Hin nýja melgrassláttuvél er
smíðuð upp úr gamalli sláttuvél.
Miðað við niðurstöður tilraun-
anna má hiklaust segja að bylting
hafi orðið f fræöflun, en vél til
slíks skurðar hefur aldrei áður
verið til og orðið að handskera
allt fræið á haustin með miklum
mannafla. Getur þetta orðið til
þess að gerbreyta landgræðslu-
málum á Islandi.