Morgunblaðið - 04.10.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.10.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUft 4. OKTÖBER 1975 3 Sekúndurnar voru heil eilífð ÆVAR Björnsson flugvirki hjá Landhelgisgæzlunni var Birni Jónssyni flugmanni til aðstoðar um borð f þyrlunni er stélskrúfan stöðvaðist f Skálafelli í gær. Stóð Ævar í dyrum þyrlunnar er hún byrjaði að snúast. — Ég hélt fyrst að snöggur vindhnútur hefði komið á vélina, sagði Ævar í við- tali við Morgunbiaðið f gær. — Ég komst þó fljótlega að réttri niður- stöðu og hugsaði þá fyrst um það að skorða mig af f vélinni, svo ég kastaðist ekki út úr vélinni á leið- inni niður hlfðina. Mér tókst það nokkurn veginn og slapp við öll meiðsli. Ég þakka það reynslu flugmannsins og snarræði að við erum hér til frásagnar. Birni flugmanni tókst að ná vélinni aftur upp, þó hún skylli tvisvar sinnum niður, þangað til komið var á sæmilega sléttan flöt. Þetta var óskapleg reynsla og maður getur eiginlega ekki gert sér grein fyrir þessu svona eftir á, sagði Ævar að lokum. Tveir sjónarvottar voru að þyrluslysinu, þeir Þór Mcdonald flugvirki hjá Landhelgisgæzlunni og Jóhann Vilbergsson stjórnar- maður f Skfðadeild KR. Sagði Þór að þær á að gizka 25 sekúndur, sem vélin var á Ieið niður hlfðina hefðu verið eins og heil eilffð. Þegar vélin loks stöðvaðist hent- ist ég niður hlfðina efst úr skfða- brekkunni og þessa á að gizka 500 metra að þyrlunni. Ég átti ekki von á að sjá þá félaga mfna á lífi en þeir voru þá einmitt að skreið- ast út úr vélinni þegar ég kom þangað, báðir ómeiddir, sagði Þór. Jóhann Vilbergsson sagði að hann hefði ekki gert sér grein fyrir hvað gerðist þegar vélin byrjaði allt f einu að snúast. Svo hafi hann séð að afturskrúfan var stopp og hefði búist við hinu versta. Jóhann sagði að um 100 metrum neðan við staðinn sem vélin stöðvaðist á væru háspennu- lfnur og hann vildi ekki hugsa þá hugsun til enda, ef vélin hefði lent á þeim. Starfsmenn Flugmálastjórnar skoða gfrkassa þann, sem talið er að hafi bilað, en frá honum fær stélskrúfan kraft. (Ljósm. Brynjólfur) Flotholt þyrlunnar og eitt dekkið urðu eftir er þvrlan skall niður I annað sinn. A miðri mynd lengst til hægri sést sjálf þvrlan og til hægri sést skíðaskáli Knattspyrnufélags Reykjavfkur. Þyrlan þar sem hún liggur á slysstað, ónýt að þvf að talið er. — Verðtrygging Framhald af bls. 24 átta mánuði 1974 jukust um 3,6 milljarða, en á sama tímabili á þessu ári nam innlánaaukning 5,6 milljörðum. Aukning spariinn- lána nam á sama tíma i fyrra um 2 milljörðum en í ár jukust þau um 3.5 milljarða. Fyrstu 8mánuði árs ins 1974 nam aukningveltiinnlána 1.5 milljarði, en á sama tíma í ár 2,1 milljörðum. Peningamagn í umferð jókst um 19.1% i janúar- ágúst 1974, en um 24,2% á sama tiina í ár. Af þessu er ljóst að staðan hefur batnað hvað þenslu í útlánastarfsemi áhrærir, en reyndin er önnur þegar skoðaðar eru skuldir ríkisins við Seðla- bankann. Fyrstu átta mánuði ársins 1974 var nettóskuld ríkissjóðs og rikis- stofnana við Seðlabankann tæpir 4 milljarðar, en fyrstu átta mánuði þessa árs er skuldin 8.6 milljarðar. Ennfremur kom fram, að út- lánatakmörkunin hefði verið sett af illri nauðsyn og hefði vart ver- ið um aðrar leiðir að ræða til að halda sjávarútveginum og öðrum undirstöðuatvinnuvegum gang- andi. Hins vegar væri tak- mörkun útláng ekki leið, senr hægt væri að fara til langframa, þótt hún gæti haft mikið gildi um takmarkaðan tíma. Bankastjórarnir kváðu Ijóst, að sá bati, sem vonazt var eftir í efnahagsmálum i ársbyrjun, og spáð hafði verið i mörgum við- skiptalöndum okkar, hefði ekki orðið að raunveruleika, en hins vegar hefði heldur ekki hallað enn undan fæti. Það væri mikil- vægur þáttur í aðhaldsaðgerðum í efnahagsmálum, að almenningur gerði sér ljósa grein fyrir tilgangi þeirra, og hefði komið í ljós, þeg- ar er útlán voru takmörkuð í byrj- un, að sá skilningur var fyrir hendi, enda hefðu útlán minnkað verulega, sérstaklega í marz og aprfl á þessu ári. Gjaldeyrisstaðan var jákvæð um 2.2 milljarða 31. ágúst 1974 og hafði þá rýrnað um rúmlega 9 milljarða frá áramótum. Hinn 31. ágúst s.l. var gjaldeyr- isstaðan neikvæð um rúmlega 2 milljarða og hafði rýrnað um 4.5 milljarða. Gengi krónunnar gagnvart sterlingspundi og meginlands- mynt hefur styrkzt að undan- förnu, og er ein helzta ástæðan fyrir því sú, að Bandarikjadalur- inn hefur hækkað, en íslenzka krónan fylgir honum nokkuð, þar sem Bandarfkin eru helzta við- skiptaland Islands. Hvað viðkemur verðtryggingu útlána, þá kemur hún einkum til greina hvað snertir innlán og út- lán til langs tíma, en bankarnir fá þetta fé að verulegu leyti úr verð- tryggðum lífeyrissjóðum. Horfur eru á, að verðtrygging lána geti að einhverju leyti hafizt upp úr næstu áramótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.