Morgunblaðið - 04.10.1975, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.10.1975, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975 Hlutavelta Kvenna- deildar Slysavarna- félagsins a morgun KVENNADEILD Slysavarna- félagsins efnir til sinnar árlegu hlutaveltu í Iðnaðarmanna- félagshúsinu við Hallveigarstíg á morgun, sunnudag 5. október, og hefst hún klukkan tvö eftir hádegi. Kvennadeildin átti 45 ára starfsafmæli fyrr á þessu ári og hefur hlutaveltan löng- um verið árlegur viðburður i borgarlífinu. Stjórn kvennadeildarinnar bauð blaðamönnum á fund sinn vegna þessa og Hulda Viktors- dóttir form. deildarinnar af- henti þá Gunnari Friðrikssyni forseta Slysavarnafélagsins, tíu talstöðvar frá kvennadeildinni Þrjár eru móðurstöðvar og verða í Vík I Mýrdal, í Mývatns- sveit og í Borgarfirði eystri. Auk þess hefur kvennadeildin gefið móðurstöð til deildar- innar í Reykjavfk. Gunnar Frið- riksson þakkaði stjórninni þessar góðu gjafir og minntist Frá afhendingu talstöðvanna. Stjórn kvennadeildar Slysavarna- félagsins ásamt forseta SVFl, t.f.v. Svala Eggertsdóttir, Ingibjörg Auðbergsdóttir, Dýrfinna Kristjánsdóttir, Hulda Viktorsd. form, Gunnár Friðriksson forseti SVFÍ, Sigríður Einarsdóttir, Regfna Benediktsdóttir og Gróa Ólafsdóttir. hins mikla fjáröflunarstarfs, sem deildin hefur unnið frá stofnun, og að hún hefur verið eitt sterkasta aflið í öflun pen- inga til björgunarsveita félags- ins úti um land. Attatíu björgunarsveitir eru nú starf- andi á vegum félagsins og kom- ið hefur verið upp 94 skýlum, þar af eru rösklega fimmtfu búin fjarskiptatækjum og kappkostað verður að búa hin einnig slíkum tækjum. Hulda Viktorsdóttir sagði, að ágóðinn af hlutaveltunni nú á sunnudaginn færi allur til áframhaldandi uppbyggingar við sveitirnar úti um landið. A hlutaveltunni er mikið af góð- um nýjum varningi sem félags- konur hafa safnað að undan- förnu, leikföng, bækur, fatnaður, stólar og margt fleira. Hver miði verður seldur á 100 krónur og er ekkert núll. Þá verða seldir lukkupakkar á 50 krónur. Formaður kvenna- deildarinnar bað Mbl. að flytja þakkir þeim ótal mörgu, sem hefðu af rausn gefið á hluta- veltuna. Verksmiðjur Sambandsins á Akureyrri halda ÚTSÖLU ÁRSINS í húsakynnum Vefarans í Skeifunni 3A í Reykjavík Mánudaginn 6. þ.m. kl. 9—18 og næstu daga Seldar verða lítið gallaðar vörur frá: GEFJUN IÐUNN Kvenskór Kventöfflur Kvenstígvél Karlmannaskór lítil og stór nr. Karlvinnuskór lítil og stór nr og m.fl. HEKLU Buxur Peysur Heilgallar Skjólfatnaður og m.fl. EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA GÆÐAVÖRU Á GJAFAVERÐI Teppi Teppabútar Terelyn efni Gluggatjaldaefni Áklæði Hespulopi Loðband Garn, margar gerðir Efnisbútar ýmiskonar og m.fl. Ullarverksmiðjan GEFJUN SkóverksmiSjan IÐUNN Fataverksmiðjan HEKLA Skeifunni 3A — Reykjavík Báðir togarar Esk- firðinga bilaðir Eskifirði, 2. október. ELDBORGIN frá Hafnarfirði Iandar í dag á Eskifirði 1026 tunnum af saltsfld, sem skipverj- ar hafa saltað sjálfir um borð. Áður hafði söltunarstöðin Auð- björg saltað reknetasfld af Sæ- bergi, sem hefur landað nokkrum sinnum en er nú hætt rekneta- veiðum og tekur nú nótina um borð. Báðir togararnir hér liggja nú bilaðir f höfn, en sem kunnugt er kviknaði í Hólmanesi, en Hólmatindur hefur legið hér um skeið vegna bilunar. Vonazt er til að hann komist á veiðar um helg- ina. Þá eru báðir stóru togbátarnir í viðgerð, Sæljón í Reykjavík og Hafaldan f Færeyjum, svo það eru eingöngu smærri bátarnir, með net og línu og 60 tonna togbátur, sem afla hráefnis fyrir frystihús- ið þessa dagana. Hafin er bygging á nýjum barnaskóla og rís hann í miðbæn- um og einnig er hafin bygging fjölbýlishúss i Bleiksárhlíð á vegum byggingarsjóðs verka- manna. Þá er byrjað á fiskverk- unarhúsi fyrir Hraðfrystihús Eskifjarðar og áhaldahúsi fyrir Eskifjarðarbæ og standa þau við nýja hafnarsvæðið. Pöntunarfélag Eskfirðinga hef- ur ennfremur reist vöruskemmu og er það stálgrindarhús. Mikil vinna hefur verið bæði við fisk- verkun og byggingar í sumar og eru mörg íbúðarhús i smiðum. Slátrun er hafin hjá Pöntunar- félagi Eskfirðinga. Ævar 22 Hólastiftisprestar við 11 messur á sunnudag Akureyri 2. okt. AÐALFUNDUR Prestafélags Hólastiftis verður haldinn á Akureyri um næstu helgi og hefst I minjasafnskirkjunni á laugar- dag kl. 13,30, en fer annars fram f kapellu Akureyrarkirkju. Aðal- efni fundarins verða starfshættir kirkjunnar. A félagssvæðinu, sem er hið forna Hólastifti, eru 28 þjónandi prestar f fjórum prófastsdæmum. I sambandi við fundinn verða guðsþjónustur i II kirkjum n.k. sunnudag, 5. okt., og hefjast þær allar kl. 14 og munu þjóna tveir prestar í hverri kirkju. Messun- um verður hagað sem hér segir: Grenivík: Séra Björn H. Jónsson og séra Kristján Valur Ingólfsson, Svalbarð: séra Pétur Þ. Ingjalds- son prófastur og séra Bolli Gústarfsson, Munkaþverá: séra Árni Sigurðsson og séra Gunnar Gíslason, Grund: séra Ágúst Sigurðsson og séra Bjartmar Kristjánsson, Akureyri: séra Sigurður Guðmundsson pröfastur og séra Birgir Snæbjörnsson, Lög- mannshlíð: séra Friðrik A. Frið- riksson fyrrverandi prófastur og séra Pétur Sigurgéirsson vígslu- biskup, Möðruvellir f Hörgárdal: séra Sigurpáll Öskarsson og séra Þórhallur Höskuldsson, Stærri- Arskógur: séra Jón A. Baldvins- son og séra Tómas Sveinsson, Hrfsey: séra Birgir Ásgeirsson og séra Kári Valsson, Dalvfk: séra örn Friðriksson og séra Stefán Snævarr prófastur, Ólafsfjörður: séra Gfsli Kolbeins og séra Úlfar Guðmundsson. —Sv.P. BOMBUKVÆÐI Jóhannesar Kjarvals GUÐGEIR JÖNSSON bókbindari kom að máli við Dagbókina i gær út af Bombukvæði Jóhannesar Kjarval. — Guðgeir sagði: Ég skrifaði kvæðið upp vorið 1925 eftir Hannesi Guðmundssyni, sem látinn er fyrir allmörgum árum. Hann var sjálfur hagyrðingur. Hann var bróðir tvíburanna Ás- bjarnar og Guðbjörns Guðmunds- sonar pressumanns á Morgun- blaðinu um áratuga skeið. Hannes sagði mér, sagði Guðgeir, að með líkingamáli Kjarvals í kvæði þessu, svo sem skel-fulla, væri átt við herskip. — (Eina herskipið sem Islendingar þekktu þá var FuIIa (danska eftirlitsskipið Fylla)). Um orðin Skel-móri og Skelfullu-rum sagði Guðgeir: Hér á Kjarval við skipherrann á skel- fullunni (herskipinu). Þetta vor, sagði Guðgeir, var ég f símavinnu hér í bænum og vann Hannes með mér við að grafa fyrir símaköplum. Þess skal að lokum getið, að Guðgeir vissi ekkert um þá útgáfu á ljóði Kjarvals, sem birtist í Dag- bókinni í dag, en við samanburð á þeim kemur f ljós, að á þeim er verulegur munur. Hér kemur þá Bombukvæðið eins og Guðgeir Jónsson bókbindari skrifaði það fyrir 50 árum: Ein alsherjar bomba f gemlingsins gátt f grallaraleysisins flæðandi mátt. I heisi-gemlingsins hráslaga vind hrekst hún um náhöfin skynlaus og blind. I algleymi skelfullan skrönglast um nátt, skelmórinn starir med glórunum hátt: Eitt áralegt brak, Eitt boldangsins slum. Og burt hverfur gleiddin af skelfullurum. Þess er að geta, að Guðgeir sagði, eftir að kvæðið hafði verið lesið upp fyrir hann I síma, að honum hefði Iáðst að geta þess í sambandi við líkingamál Kjarvals f kvæði þessu, að með Grallara- leysisins flæðandi mátt ætti Kjar- val við veiðislóð þar sem engan kola væri að fá (grallara eins og hann stundum væri kallaður á sjómannamáli) — Heisigemling- ur væri þorskkenning Kjarvals og loks: Boldangsins slum: Hér hefði Kjarval átt við er seelin fóru. — Ég vil að lokum sagði Guð- geir aðeins undirstrika að kvæðið fer ég með eins og ég man það réttast. Þá kom Gunnar Arnason fyrr- um skrifstofustjóri Búnaðarfé- lagsins einnig að máli við Dagbók- ina vegna kvæðisins. Hann hafði lært það af Ragnari Asgeirssyni suður í Gróðrarstöð árið 1926 og var hans útgáfa eiginlega alveg eins og Guðgeirs bókbindara. Þess skal getið að sá sem átti Bombukvæðið eins og það birtist í Dagbókinni f gær er Guðjón Elías Jónsson, Álheimum 29 R, en hann Iræði Bombukvæðið vestur á Isa- firði á árunum 1930—43.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.