Morgunblaðið - 04.10.1975, Síða 22

Morgunblaðið - 04.10.1975, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975 Landinn hefnr vinninginn í leikjunwn við Pólland Hvað fferist í landsleikjum helgarinnar? Vonbrigði HÚN ríður ekki við einteyming óheppnin hjá Skagamönnum. í öll þau skipti sem þeir hafa leikið f Evrópukeppni f knattspvrnu hafa mótherjar þeirra ævinlega verið þau lið, sem þeir hefðu sízt óskað að mæta. Þannig var það f gær er dregið var um það hvaða lið leika saman í 2. umferð Evrópukeppninnar í knattsp.vrnu. Skagamenn höfðu óskað sér liða eins og Bavern Munchen, Derby, Glasgow Rangers eða jafnvel Juventus. Allra sfzt vildu þeir mæta liði frá A-Evrópu. En hvaða lið kom svo upp úr hattinum sem mótherji Skagamanna, jú, það var Dynamo Kiev, eða öðru nafni annað af tveimur landsliðum Sovétmanna f knattspyrnu. Auk þess eiga Skagamenn svo að leika fvrri leikinn á útivelli þann 22. október og sfðari leikinn hér á landi þann 5. nóvember. Skagamenn hafa hug á að fá leikdögum breytt, en það er stór spurning hvort þeim tekst að semja við Sovétmennina Að sjálfsögðu eru þó einnig Ijósir punktar f sambandi við þennan drátt. Mótherjar Skagamanna eru sennilega eitt stcrk- asta liðið, sem þeir gátu mætt og það er ekki nokkurt vafamál að Sovétmennirnir munu sýna skemmtilega knattspyrnu. Skaga- menn eru ákveðnir í að leika hcimalcikinn hér á landi, annað hvort á Melavellinum eða á Akranesi. Leikirnir munu örugglega hafa mikinn kostnað f för með sér, þar sem er hin langa og stranga ferð austur til Kiev. En stuðningsmenn Skagamanna hafa fylgt þeim í blfðu og strfðu og það munu þeir örugglega einnig gera í leiknum við Dynamo Kiev. — Þetta eru að sjálfsögðu gffurleg vonbrigði, sagði einn Skagamanna f gær, en við verðum að taka þessu með karl- mennsku. ÍSLAND og Pólland leika tvo landsleiki í handknattleik í Laug- arsdalshöllinni um helgina. Fyrri leikurinn hefst í dag klukkan 15, en sá sfðari á morgun klukkan 20.15. Búast má við skemmtileg- um Ieikjum báða dagana og þó svo að Pólverjar séu um þessar mundir taldir eitt af alsterkustu landsliðum í heimi, þá hefur landanum yfirleitt gengið vel með Pólverjana. Af sex lands- leikjum þjóðanna hefur Island unnið fjóra, en tveir hafa tapast. Pólvcrjarnir standa betur að vfgi að því leytinu að þeir eru komnir f mjög góða æfingu og stóðu sig mjög vel í handknattleiksmóti, sem lauk f fyrradag f Kanada. Þar unnu Pólverjar alla andstæðinga sfna, nema Sovétmenn, og höfn- uðu f 2. sæti keppninnar. Meðal þeirra liða sem Pólverjarnir lögðu að velli voru Danir, en Is- lendingum hefur t.d. gengið mun verr með Dani en Pólverja undan- farið. Islcnzka liðið hefur vinninginn að því leyti að leikið er á heima- velli og ætti það ekki að hafa lítið að segja. Þá eru íslenzku leik- mennirnir óþreyttir, en Pólverj- arnir að koma úr erfiðri keppnis- ferð. I fslenzka landsliðið vantar nokkra af sterkustu handknatt- leiksmönnum þjóðarinnar. Ólaf- ur H. Jónsson, Axel Axelsson og Einar Magnússon leika allir í v- þýzka handknattleiknum um helgina. Geir Hallsteinsson og Pálmi Pálmason gefa ekki kost á sér til landsleikjanna og fjarvera þessara leikmanna veikir lands- Iiðið óneitanlega. Þá má alltaf deila um val á einstökum leik- mönnum, hvers vegna er Bjarni Jónsson t.d. ekki í landsliðinu. Vonandi fæst svar við þeirri spurningu og öðrum, sem á hug- ann leita í Ieikjunum um helgina. Lá við — ÉG get sagt þér alveg eins og er, mér lá við gráti þegar ég heyrði að við ættum að mæta Dynamo Kiev f annarri umferð Evrópukeppninnar, sagði Gunnar Sigurðsson formaður Knatt- spyrnuráðs Akraness, er Morgun- blaðið hafði samband við hann f gær. — Þetta verður erfitt bæði fjárhags- og knattspyrnulega, en ég hef enga trú á öðru en við leikum heimaleikinn okkar hér- lendis. Við verðum að treysta enn einu sinni á stuðningsmenn okkar og ég veit að þeir bregðast gráti okkur ekki nú frekar en endra- nær. — Nú, við getum leyft okkur að segja að við ætlum að vinna þessa kalla, eins og Valsmenn og Kefl- víkingar höfðu uppi stór orð í þá átt áður en þeir héldu í Evrópu- keppnina. Leikmennirnir hafa slappað af þessa viku, en strax á mánudaginn verður tekið til við æfingar að nýju og við stefnum að því að leika fyrri leikinn á Mela- vellinum 19. október næstkom- andi. Við verðum bara að vona að okkur takist að semja við Sovét- mennina. I fyrsta lagi um að leika fyrri leikinn hér á landi og í öðru lagi að leikið verði á sunnudegi. — Við verðum sennilega að leika á möl og því verður æft á malarvelli þar til við sjáum hvernig um semst um leikdaga og leikstaði. Rússarnir hafa senni- lega aldrei leikið á malarvelli, þannig að það ætti þó að minnsta kosti að vera okkur í hag, sagði Gunnar Sigurðsson pð lokum. Mikla túnsh laup Armanns UNDANFARIN þrjú ár hafa Ármenn- ingar efnt til keppni í hlaupi á Mikla- túni fyrir börn oq unglinga. Er keppendum skipt I flokka eftir aldri. Reglan er sú, að eftir tvö hlaup, fá þátttakendur viðurkenningu fyrir keppnina, en þeir, sem keppa þrisvar eða oftar á vetrinum taka þátt i keppni um lokaverðlaunin. Er þá farið eftir meðalárangri þriggja beztu hlauparanna á timabilinu. Fyrsta hlaupið á þessum vetri verður á Miklatúni nú á laugardag- inn 4. október og hefst kl. 14.00. 10 km hlaup KL. 13.00 í dag, laugardaginn 4. október, fer fram keppni í 10.000 metra hlaupi á Melavellinum. Stórleikir NOKKUR af frægustu og sterk- ustu knattspyrnuliðum Evrópu leika saman 1 2. umferö Evrópukcppninnar. Þannig má nefna að Borussia Monch- engladbach og Juventus mæt- ast 1 umferðinni og sömuleiðis Derby County og Real Madrid en öll þessi lið voru á óskalista Skagamanna — en það er önnur saga. I 2. umferð Evrópumótanna leika eftirtalin lið saman: Evrópukeppni meistaraliða: St. Etionno —Glasgow Rangors Borussia — Juvontus Dinamo Kiov — Akranos Ruch Chorzow — PSV Eindhovon Hadjuk Split — Molonbock Malmö — Bayorn Munchon Dorby — Roal Madrid Evrópukeppni bikarhafa: Ararat Erovan — Wost Ham Eintracht Frankfurt — Atlotico Madrid Wroxham — Stoal Zroszov AC Florontina — Sachonring Boavista Porto — Coltlc Haladas — Sturm Graz RSC Andorlocht — Borac Banja Luka Lons — FC Haag. UEFA-keppnin: Ipswich — Bruggo Ilorta Borlin — Ajax Dundoo Utd. — FC Porto Carl Zoiss Jona — Stal Miolec Spartak Moskva — Royal Antwerp Athlono — Milan San Sobastian —Livorpool Zozda Bolgrad — HSV Aþena Sportin Portugal — Vasas Oostors Vaxjo — AS Roma Lazio Roma — Barcelona Duisburg — Lovski Spartak Torpedo Moskva — Calarasary Honvod — Dynamo Drosdon HF EIMSKIPAFELAG ISLAiMDS þjóðarfyrirtæki — um 11.600 hluthafar VIKULEGAR HRAÐFERÐIR Frá ANTWERPEN mánudaga - FELIXSTOWE þriájudaga - KAUPMANNAHÖFN þriájudaga - ROTTERDAM þriájudaga - GAUTABORG miðvikudaga - HAMBORG fimmtudaga EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Frá NORFOLK WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM Valkom o.• QVðntspils **"f®$F* •ÖGdynia • Hamborg J Rollerdam ••^Antwerpen mm HAFNIR SEM SKIP EIMSKIPAFÉLAGSINS SIGLA TIL —O Feróir vikulega —O Feróir á tíu daga til hálfsmánaóar fresti o Feróir á hálfsmánaóar til þriggja vikna fresti • Feróir eftir flutningsþörf HF EIMSKIPAFELAG ISLANDS Sími 27100- Telex nr. 2022 IS t Þakka auðsýnda samúð mér sýnda við fráfall og útför SVERRE STENGRIMSEN, Lilja Melsted. úttaraskreytlngar blómoual Gróðurhúsið v/Sigtun simi 36770

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.