Morgunblaðið - 04.10.1975, Page 24
LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975
Ævar Björnsson
Björn Jónsson
(Ljósm. Mbl. Brynjólfur).
„Þakka reynslu flugmannsins og snar-
ræði að við erum hér til frásagnar”
TF GNA talin ónýt eftir að hún hrapaði í Skálafelli í gær
[Sjáábls. 3.]
— ÉG TEL það reynslu Björns
Jðnssonar flugmanns og snarræði
hans að þakka að við erum hér til
frásagnar. Það var Ævar Björns-
son flugvirki hjá Landhelgisgæzl-
unni, sem mælti þessi orð við
fréttamann Morgunblaðsins í
gær, en bæði Ævar og Björn
gengu ómeiddir út úr flaki þyrlu
Landhelgisgæzlunnar, TF GNÁ,
Banaslys á sjó
BANASLYS varð um borð í tog-
bátnum Ársæli Sigurðssyni II HF
12 f fyrrakvöld er skipverjar voru
að hffa trollið. 25 ára gamall
háseti, Rúnar Björgvinsson, til
heimilis að Hraunbrún 2 f
Hafnarfirði, varð milli toghlerans
og rúllu f gálga og mun hafa
beðið bana samstundis.
Slysið varð um kl. 18.45 í fyrra-
kvöld og bað skipstjóri bátsins
þegar um aðstoð hjá Slysavarna-
félaginu. Þyrla frá Keflavfkur-
flugvelli fór á staðinn og flutti
líkið til Reykjavíkur. Báturinn
var að veiðum um 25 sjómílur og
Rúnar Björgvinsson
260 gráður frá Garðskaga er slysið
varð. Kom hann til Hafnarfjarðar
seint i nótt og fara sjópróf þar
fram.
Rúnar Björgvinsson var
ókvæntur, en lætur eftir sig barn,
foreldra og systkini.
sem talin er ónýt eftir að hún
hrapaði til jarðar f Skálafelli f
gær.
TF GNÁ var í gær fengin til
þess að flytja þrjá ljósastaura fyr-
ir Skíðadeild Knattspyrnufélags
Reykjavfkur í Skálafelli. Var
lokið við að flytja fyrsta staurinn
og beið þyrlan í um fjögurra
metra hæð eftir því að annar
staur yrði festur í vírana frá þyrl-
unni. Stöðvaðist stélskrúfa vélar-
innar þá skyndilega og vélin tók
að snúast í hringi í gagnstæða átt
við hreyfla hennar. Barst vélin
um 500 metra niður með fjalls-
hlíðinni, skall tvisvar eða þrisvar
sinnum í jörðina áður en hún
stöðvaðist á hvolfi um 100 metra
frá Skíðaskála KR.
Varð þetta um klukkan 14.10 í
gær og var gott veður i Skálafelli
þegar atburðurinn átti sér stað.
Birni Jónssyni tókst að ná vélinni
upp aftur þó hún skylli í jörðina,
þar til komið var niður á sæmi-
lega sléttan flöt f hlíðinni. Hefði
vélin farið um 100 metrum lengra
hefði hún sennilega lent á há-
spennulfnum.
Er þyrlan skall niður í annað
skiptið brotnaði undan henni
dekk og flotholt. Spaðar þyrl-
unnar brotnuðu af er hún valt
áður en hún stöðvaðist endanlega.
Er vélin talin ónýt.
I gærkvöldi var unnið að því að
flytja vélina til Reykjavíkur, þar
sem kanna átti nákvæmlega hvað
orsakaði það að stélskrúfan stöðv-
Þyrla Landhelgisgæzlunnar,
TF GNÁ, þar sem hún liggur á
hvolfi skammt frá Skfðaskála
KR f Skálafelli. Þyrlan er talin
ónýt, hún er meira og minna
brotin eins og sjá má á mynd-
inni og spaðarnir eru brotnir
af henni. f horninu hægra
megin er mynd af Birni Jóns-
syni, flugmanni vélarinnar, og
fyrir neðan hann af Ævari
Björnssyni flugvirkja. Þeir
voru um borð f vélinni þegar
hún hrapaði, en hvorugan
þeirra sakaði.
aðist. Var talið að drifskaft eða
gírkassi, sem flytur kraft í stél-
skrúfuna hefði bilað.
TF GNÁ var smiðuð árið 1964 í
Bandarfkjunum og er af
Shikorsky gerð. Vélin var keypt
hingað til lands af bandarísku
strandgæzlunni fyrir þremur
árum og hefur siðan verið i ýms-
um störfum fyrir Landhelgisgæzl-
una, nefna má fólks- og birgða-
flutninga, hjálparstörf og land-
helgisgæzlustörf.
Útlánatakmörkun áfram:
Verðtrygging inn-
lána og útlána í undirbúningi
TAKMÖRKIJN útlána sem verið
hefur í gildi frá því snemma á
þessu ári hefur nú verið fram-
.lengd til áramóta. Þetta á ekki við
um endurkaupanleg afurða- og
birgðalán, einkum til sjávarút-
vegs, iðnaðar og landbúnaðar, svo
og reglubundin viðbótarlán til
sömu greina. Þannig munu
bankarnir aðeins hafa til ráðstöf-
unar það fé, sem endurgreiðist af
eldri lánum til áramóta, og verða
nauðsynlegustu rekstrarlán til at-
vinnuveganna látin ganga fyrir
um ráðstöfun þess fjár.
Þessar ráðstafanir hafa orðið að
samkomulagi milli Seðlabankans
og viðskiptabankanna, en jafn-
framt hefur Seðlabankinn mælzt
til þess við sparisjóði, að þeir
hagi útlánum sfnum f samræmi
við þessa stefnu.
I framhaldi af þessu segir í
frétt frá bönkunum, að vegna
áframhaldandi þenslu í efnahags-
málum, halla í utanríkisviðskipt-
um og þröngrar lausafjárstöðu
bankanna sé óhjákvæmilegt að
halda þeirri stefnu í útlána-
málum, sem fylgt hefur verið frá
febrúarlokum á þessu ári. Þá
kemur fram, að enda þótt stöðvun
á útlánaaukningu viðskipta-
bankanna sé árangursrfk aðferð
til að ná jafnvægi i þjóðar-
búskapnum geti aðgerðir
bankanna í þessu efni ekki náð
árangri, nema sömu stefnu sé
fylgt hvað snertir útgjöld ríkisins
og útlán fjárfestingarlánasjóða,
og sé þetta samkomulag gert í
trausti þess, að sú verði raunin.
Þá kemur fram sú skoðun, að
betur þurfi að búa að sparifjár-
eigendum en hingað til, og hafi
Seðlabankinn og viðskipta-
bankarnir því hafið undirbúning
þess að verðtryggja innlán og út-
lán innlánsstofnana að vissu
marki.
A fundi, sem bankastjórar
Seðlabankans og viðskipta-
bankanna héldu með fréttamönn-
um í gær, kom fram, að reýnslan
af takmörkun útlána væri mjög
góð, og hefði m.a. minnkað eftir-
spurn eftir Iánum. Fyrstu 8
mánuði ársins 1974 nam útlána-
aukning banka og sparisjóða 10,7
milljörðum króna, en til ágúst-
loka á þessu ári var útlána-
aukning sömu stofnana 6,9
milljarðar. Heildarinnlán fyrstu
Framhald á bls. 3.