Morgunblaðið - 18.03.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.03.1976, Blaðsíða 1
r 32 SÍÐUR Taugastríð í kauphöllum London, 17. marz. Reuter. TAUGASTRlÐ var háð á gjaldeyrismörkuðum f Evrópu t dag og ríkisstjórnir reyndu af fremsta megni að bjarga hinu sameiginlega, fljótandi gengiskerfi Evrópuríkja, „snáknum". Kerfið varð fyrir gífurlegum þrvstingi þar sem spákaupmenn voru sannfærðir um að gengi vestur-þvzka marksins vrði hækkað til að bjarga þvf frá algerri upplausn. Talið er að seðlabankar í Vest- ur-Þýzkalandi og fleiri löndum hafi eytt 1000 til 1500 milljónum dollara í dag til að draga úr þess- um þrýstingi og bjarga snáknum. Bilið milli sterkra og veikra gjaldmiðla hefur aukizt siðan Frakkar ákváðu að draga sig út úr gjaideyrissamvinnunni á mánu- dag. Staða allra evrópskra gjald- miðla nema marksins, sænsku krónunnar og svissneska frank- ans veiktist, en staða ítölsku lír- unnar þó mest. 1 kauphöllinni í Mílano var talað um „svartasta daginn" í manna minnum, enda lækkaði líran um 5.6% gagnvart dollar á fimm tímum. Gjaldmiðlar Belgíu, Luxemborgar, Noregs, Danmerk- ur og Hollands féllu allir niður fyrir neðstu mörkin sem hið fljót- andi gengi miðast við og aðeins sænska krónan hélt sig innan marka þess og þýzka markið seld- ist á 1 % hærra verði. Jafnframt var því hátíðlega lýst yfir í Bonn, Brússel og Haag að Framhald á bls. 18 Franjieh studdur Beinit. 17. marz. Reuter. KRISTNIR falangistar og stjórn- málaforingjar f Lfbanon er fylgja Sýrlendingum að málum lýstu því yfir í dag að þeir væru mót- fallnir tilraunum til að bola Suleiman Franjieh forseta úr embætti. Assem Qanso, foringi Baath- flokksins, fordæmdi bvltingartil- raun hersins og kallaði hana „sjónvarpsbvltingu“. Jafnframt hélt útvarp falangista því fram að samsæri hefði verið gert um að skipta landinu. Framhald á bls. 18 Líbanskir stjórnmálaforingjar á fundi til að reyna að leysa deilurnar. Kamel Assad þingforseti er fyrir miðju og Rashid Karami forsætisráóherra er honum á hægri hönd. James Callaghan talinn líklegastur London, 17. marz. Reuter. Reagan neitar að gefast upp Chicago, 17. marz. Reuter. STUÐNINGSMENN Fords for- seta voru sigri hrósandi f dag eftirsigur hans f forkosningunum Ford forseti gælir við barn í Norður-Karólínu. f Illinois og gáfu f skyn að keppi- nautur hans, Ronald Reagan, ætti að draga sig f hlé. Hins vegar neitaði Reagan að gefast upp og kvaðst hafa eins góða möguleika og forsetinn á að verða útnefndur forsetaefni repú- blikana. Sigurvegarinn í forkosningum demókrata, Jimmy Carter, hélt því fram að nú kæmu aðeins tveir til greina sem forsetaefni demó- krata, hann sjálfur og Henry Jackson öldungadeildarmaður, en Morris Udall hefði þó enn nokkra möguleika. Einn helzti aðstoðarmaður Fords, Rogers Morton, sagði að að því kæmi að Reagan yrði að koma Framhald á bls. 18 JAMES Callaghan utanrfkisráðherra og fjórir aðrir ráð- herrar Verkamannaflokksins gáfu kost á sér sem for- sætisráðherra f dag f stað Harold Wilsons. Callaghan er talinn langlfklegastur og gert er ráð fyrir að hann fylgi sömu stefnu og Wilson ef hann verður fyrir valinu. Tveir eindregnir vinstrimenn gáfu kost á sér: Tony Benn, hinn umdeildi orkumálaráðherra, og ræðuskörungurinn Michael Foot atvinnuráðherra. Vinstrisinnar eru óánægðir með að tveir af leið- togum þeirra taka þátt í kapp- hlaupinu þar sem þeir óttast að atkvæði þeirra dreifist. Hinir tveir sem buðu sig fram voru Roy Jenkins innanrfkisráð- herra, sem nýtur stuðnings I hægra armi flokksins, og Anthony Crosland umhverfisráðherra, sem kveðst stefna að því að sameina vinstri og hægri menn. Denis Healey fjármálaráðherra gaf hins vegar i skyn að hann mundi ekki gefa kost á sér og lagði áherzlu á að hann væri að vinna að undirbúningi fjárlaga- frumvarpsins sem hann leggur fram eftir þrjár vikur. Hann sagði að afgreiðsla frumvarpsins yrði James Callaghan mikilvægasta verk þingsins og það mundi miða að bata efnahags- lifsins án þess að magna veröbólg- una. Fyrir einni viku hefði Healey ef til vill þótt líklegasti arftaki Wil- sons, en hann gerði harða hríð að vinstrimönnum þegar þeir gerðu uppreisn gegn stjórninni fyrir viku með þeim afleiðingum að Neyðarástandi lýst yfir í fiskiðnaði Perúmanna Einkaskeyti til Mbl. frá Henry s. Ackerman. IJma. 17. marz. AP. STJORNIN í Perú lýsti vfir nevðarástandi i ansjósu- iðnaðinum í dag vegna verk- falls um það bil 10.000 fiski- manna. Jafnframt lýsti stjórnin þvf vfir að verkfallið væri ólöglegt og hótaði fjöldauppsögnum, en sjómenn héldu verkfallinu áfram, þriðja daginn í röð. Forvstumenn fiskimanna- sambandsins í Perú sögðu að verkfallinu vrði ekki hætt fvrr en vfirviild slepptu nokkrum verkíilýðsforingjum úr haldi. Stjórnin varaði fiskimenn við þvi að verkfallið hefði kostað Perúmenn 6.22 milljónir dollara (tæplega 1.1 milljarð ísl. króna) fvrstu daga ansjósu- vertiðarinnar. Samkvæmt fréttum frá Chimbote, mikilvægri veiðistöð 250 niilur norður af Lima, hafa rúmlega 60 fiskibátar róið í dag og þar með gerzt verkfallsbrjót- ar. ÞeSsir bátar eru um 10% fiskiskipastólsins. Stofnunin Pesca-Peru, sem var sett á fót 1973 þegar ansjósuveiðarnar voru þjóð- nýttar, sakar æsingamenn um efnahagslega niðurrifsstarf- semi i opinberum tilkynning- um. Framhald á bls. 18 hún beið ósigur i atkvæðagreiðslu um efnahagsstefnu hennar. Siðan hafa vinstrimenn í flokknum ekki getað litið hann réttu auga. Callaghan verður 64 ára i næstu viku og er þvi fjórum árum eldri en Wilson og einn þeirra elztu sem keppa um að taka við af honum. Hann er talinn manna bezt til þess fallinn að græða sár- in eftir uppreisn vinstrimann- anna I flokknum og tryggja ein- ingu í flokknum. Jenkins er 55 ára og fyrrver- Framhald á bls. 18 Færaútí marz 1977 Washington, 17. marz. AP. ÖLDUNGADEILDIN og fulltrúa- deildin náðu samkomulagi I dag um frumvarp um útfærslu banda- rfskrar fiskveiðilögsögu I 200 mflur frá 1. marz 1977. Leomoc K. Sullivan, formaður sameiginlegrar nefndar þing- deildanna, kvaðst hafa fengið þær upplýsingar i Hvíta húsinu að Ford forseti mundi undirrita frumvarpið ef lögin tækju gildi 1. marz 1977. Stjórn Fords hafði verið andvíg þvi að útfærslan tæki gildi 1. júli 1976 eins og kveðið var á í frum- varpi þvi sem fulltrúadeildin samþykkti í október. Stjórnin vildi að timi gæfist til tilrauna til samninga á hafréttarráðstefn- unni. Öldungadeildin hafði sam- þykkt útfærslu frá 1. júlí 1977. Samkvæmt málamiðlunarfrum- Framhald á bls. 18 Visconti látinn Róm, 17 marz. Rcuter. ITALSKI kvikmyndaframleið- andinn Luchino Visconti lézt í Róm í dag, 69 ára að aldri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.