Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 5
Ný hljómplata
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
5
MANNAKORN
í tónum og söng
ÚT ER komin hjá Fálkanum
hljómplatan MANNAKORN, en
allflestir textar plötunnar og lög
eru eftir Magnús Eirfksson gftar-
leikara. Hljómplatan, sem er hin
vandaðasta að allri gerð, var tekin
upp f Hljóðrita f Hafnarfirði, en
það er hljómsveit Pálma
Gunnarssonar söngvara og bassa-
leikara sem leikur á plötunni, en
hana skipa auk Pálma þeir
Magnús Eirfksson gftarleikari,
Björn Björnsson trommuleikari,
Baldur Már Arngrfmsson gftar-
leikari m.m. og Úlfar Sigmarsson
pfanóleikari, nikkuleikari o.fl.
Auk Pálma syngja þeir Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson og Magnús
Eirfksson nokkur lög.
12 létt lög eru á plötunni og eru
öll utan eitt eftir Magnús. Ýmsir
fleiri góðir tónlistarmenn koma
einnig við sögu plötunnar og m.a.
má nefna Magnús Ingimarsson
sem skráði útsetningar fyrir blás-
ara og strengjaleikara. Textar,
sem allir eru á íslenzku, fylgja
plötunni.
Skagaleikflokkur-
inn sýnir „GísF’
Akranesi — 16. marz.
SKAGALEIKFLOKKURINN
frumsýndi írska leikritið Gísl
eftir Brendan Behan í þýðingu
Jónasar Arnasonar sl. laugardags-
kvöld í Bíóhöllinni hér á Akra-
nesi. Leikstjóri var frú Herdís
Þorvaldsdóttir, leikkona. Akur-
nesingar og aðkomugestir, sem
fylltu Bióhöllina, virtust
skemmta sér mjög vel og klöpp-
uðu leikendum lof í lófa. I leiks-
lok var leikstjórinn hvlltur, og
Herdísi færð blóm en hún
þakkaði með ávarpi, þar sem hún
lofaði hinn unga Skagaleikflokk
fyrir dugnað og framtakssemi um
leið og hún bað bæjarbúa og
bæjarvfirvöld að svna leiklistinni
áhuga og verðskuldaða aðstoð.
Næstu sýningar á Gfsl verða á
Akranesi föstudag og laugardag.
„Gísl“ er annað verkefni Skaga-
leikflokksins á þessu Ieikári, í
haust var Fómarlambið eftir Yrjö
Soini sett á svið og má geta þess
að vegna húsnæðisleysis i jafn
stórum bæ og Akranes. er, urðu
æfingar að.fara fram í félags-
heimili fyrir utan bæinn sem og
smiðar sviðs.
Með aðalhlutverk í „Gisl“ fara
þau, Halldór Karlsson er leikur
Pat og Þórey Jónsdóttir er leikur
Meg, aðrir leikarar eru fjórtán.
— Júlíus
Austur-Eyfellingar
sýna Pétur og Rúnu
LEIKFÉLAG Austur-Eyfellinga
sýnir um þessar mundir leikritið
Pétur og Rúna eftir Birgi
Sigurðsson. Frumsýning var f fé-
lagsheimiiinu Skarðshlfð og
hefur leikritið einnig verið sýnt I
Gunnarshólma og á Hellu við
góðar undirtektir.
Leikfélag Austur-Eyfellinga
var stofnað 1970 og er núverandi
formaður félagsins Margrét
Tryggvadóttir.
Rúna og Pétur eru leikin af
Guðbjörgu Þórisdóttur og Arna
Blandon sem jafnframt er leik-
stjóri. önnur hlutverk eru leikin
af Margréti Tryggvadóttur, Ingi-
mundi Vilhjálmssyni, Sesselju
Öskarsdóttur, Óskari Ketilssyni,
Ölafi Eggertssyni og Garðari B.
Sigvaldasyni.
Leikritið Pétur og Rúna fékk
fyrstu verðlaun ásamt Kertalogi
eftir Jökul Jakobsson i leikrita-
samkeppni L.R.
Leikfélag Austur-Eyfellinga
mun sýna leikritið í Kópavogs-
bíói, laugardaginn 20. marz.
Myndin er frá opnunarmótinu og eru það skákmeistararnir Bragi
Halldórsson og Helgi Olafsson sem eru að tafli. 1 baksýn er Jóhann
Þórir ritstjóri Skákar og Guðmundur Agústsson.
SKÁKSTOFA OPN-
UÐ í REYKJAVÍK
OPNUÐ hefur verið að Hagamel
67 í Reykjavík Skákstofa þar sem
skákáhugamönnum gefst kostur á
að tefla eða ræða áhugamálið yfir
kaffibolla eða svaladrykk. Allt að
16 manns geta teflt í Skákstof-
unni i einu en jafnframt er ætl-
unin að veita fólki á öllum aldri
kost á námskeiðum i skák þar
sem okkar hæfustu skákmeist-
arar verða leiðbeinendur.
I tilefni þess að stofan var
opnuð stefndi tímaritið Skák
saman ýmsum beztu skákmönn-
um landsins til hraðskákmóts á
laugardaginn. Urslit mótsins urðu
þau að Guðmundur Sigurjónsson
varð hlutskarpastur með 10 vinn-
inga af 11 mögulegum. 1 öðru til
þriðja sæti urðu þeir Friðrik
Ólafsson og Ingvi R. Jóhannsson
með S'/t vinning.
Hugmyndin er að slik mót fari
fram i Skákstofunni öðru hvoru.
Þeir sem áhuga hafa á námskeið-
um þeim sem fyrirhugað er að
halda í Skákstofunni geta snúið
sér til tímaritsins Skákar og
kynnt sér fyrirkomulagið á nám-
skeiðunum. I Skákstofunni
verður einnig til sölu flest það
sem að skák lýtur, töfl, klukkur,
bækur o.fl.
Tízkusýning í
Breiðholtinu
Kvenfélag Breiðholts gengst
fyrir tízkusýningu I anddyri
Breiðholtsskóla í dag, fimmtudag
klukkan 20.30.
Þar verður sýndur tízkufatnaður
frá nokkrum þekktum tizkuverzl-
unum.
Búa
í snjó-
húsum
DRÖTTSKATAR í Reykjavfk
ætla nú að taka upp þá ný-
breytni að kenna félögum
dróttskátahreyfingarinnar að
byggja snjóhús sem hæf eru til
fbúðar. Slfk kunnátta er afar
gagnleg og getur komið sér vel
f ýmsum tilfellum. Er þetta í
fyrsta sinn sem slfk kennsla
fer fram á landinu, en ætlun
dróttskátanna er að búa f hús-
unum eina nótt.
Snjóhúsin verða byggð á
Hellisheiði nálægt skála sem
heitir Jötunn. Munu skátarnir
búa i skálanum aðfaranótt
laugardagsins en hafa hugsað
sér að búa i snjóhúsunum
seinni nóttina. Jafnframt því
að byggja snjóhús verða skát-
arnir með skíða- og snjósleða-
keppni.
Dróttskátarnir leggja af stað
á föstudagsmorgun kl. 8.00 frá
Búnaðarbankanum við
Hlemmtorg.
HOOVER
er heimilisprýði
HOOVER Tauþurrkarar.
StærS:
Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm.
Hleðsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti.
Þurrkkerfi: Tvö, annað fyrir náttúrulegan
vefnað en hitt fyrir gerfiefni.
Hitastig: 55 C, 75 C
Tímastillir: 0 til 110 mínútur.
Öryggi: Öryggislæsing á hurð,
1 3 A rafstraumsöryggi,
Taurþurrkarinn er á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
FÁLKIN N’
Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70
HOOVER þvottavélar
StærS: HxBxD. 85x59x55 sm.
Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti
Þvottakerfi:
1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi.
Vatnsinntak:
Heitt og kalt (blandar),
eða eingöngu kalt vatn.
VatnshæSir:
Vélarnar velja á milli vatnshæða.
Sápuhólf: Skúffa sem skipt er I 3 hólf,
forþvottur, aðalþvottur og bætiefni.
Hitastig:
30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C
Öryggi: Öryggislæsing á hurð,
vatnsöryggi á sápuskúffu.
1 3 A rafstraumsöryggi.
Þvottatromla úr ryðfríu stáli.
Vélarnar eru á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
Þær falla þvi vel i innréttingar eða undir
borð.
Einnig má sameina þvottavél og
tauþurrkara á þann hátt
að skorða þurrkarann ofan á vélina.
HOOVER-
VERKSMIÐJURNAR
ÁBYRGJAST
VARAHLUTI
í 20 ÁR,
EFTIR AÐ
FRAMLEIÐSLU
SÉRHVERRA
TEGUNDA
ER HÆTT