Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 16

Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Atvinnuleysi hefur verið víðtækara og meira á árinu 1975, bæði i V-Evrópu og Bandaríkjun- um en nokkru sinni frá krepputímum fyrirstríðs- áranna. Undanfari þessa atvinnuleysís var ofþensla í efnahagsmálum, sem ef til vill átti rætur í slökun á stjórnun þeirra, samhliða ýmsum öðrum orsakavöld- um, vaxandi verðbölgu, sem fylgdi í kjölfarið, og viðleitni til að ná á ný stjórnun á verðbólgunni, þróun efnahagsmála og efnahagslegum framför- um. Jónas H. Haralz hanka- stjöri segir m.a. í erindi, sem hann flutti nýverið á aðalfundi Verzlunarráðs íslands: „Hafi heimskrepp- an 1930 fært mönnum heim sanninn um, að vest- ræn þjóðfélög stæðust ekki almennt atvinnuleysi, sannfærðust menn nú um, að þau myndu ekki heldur standast mikla og langvar- andi verðbólgu. Þess vegna var rösklega tekið í taum- ana og lögð megináherzla á að ráða niðurlögum verð- bólgunnar. Afleiðingin varð sú efnahagskreppa, sem staðið hefur árin 1974 og 1975.“ Jónas telur að lítilla breytinga sé aó vænta í þessu efni á yfir- standandi ári. Hann segir: „Hér kemur til greina sú skoðun, sem rutt hefur sér til rúms, ekki aðeins með- al hagfræðinga, heldur einnig stjórnmálamanna, verkalýðsleiðtoga og alls almennings, að hversu mikið böl sem atvinnuleysi sé, þá sé verðbólgan enn meiri ógn. Það sé ekki leng- ur unnt að losa sig undan svipu atvinnuleysisins með því að auka við verðbólg- una. Sé það reynt, munu menn missa stjórn á verö- bólgunni og uppskera enn meira atvinnuleysi. Þetta sé sú meginskoðun sem nú ræður stjórn efnahagsmála í öllum helztu iðnaðarlönd- um heimsins, hvort sem miðflokkar eöa jafnaðar- mannaflokkar fari með völd. Þetta er stefna Hel- mut Schmids í Þýzkalandi og Harolds Wilsons í Bret- landi í jafn ríkum mæli og Ueralds Fords i Bandaríkj- unum.“ Um stöðu efnahagsmál- anna hér á landi segir Jón- as: „1 stórum dráttum hafa islendingar fylgt alþjóðleg- um ferli í efnahagsmálum fram að þessu. Hér var enn nokkur hagvöxtur á árinu 1974, er þjóðarframleiðsla jókst um 3%. Þá versnuðu viðskiptakjör hins vegar mikið, verðlag á innflutn- ingi hækkaði, ekki sízt olíu. og verð á útflutningsvör- um lækkaði. Versnandi viö- skiptakjör þurrkuðu út á- vinning aukinnar þjóðar- framleiðslu og þjóóartekj- ur stóðu í staó. Árið 1975 versnaði þetta enn. Talið er að Þjóðarframleiðslan hafi minnkað um 3.5% og viðskiptakjör versnað um 12% með þeim afleiðingum að þjóðartekjur lækkuóu um 8%. Þess sjást nú merki hér eins og annars staðar, að hagsveiflan sé að byrja að snúast við. Verð- lag á útflutningsvörum okkar tók að hækka síðari hluta árs 1975 og er ekki ósennilegt, að sú þróun haldi áfram, þótt varhuga- vert sé að vonast til of mik- ils í því efni. Jafnframt þessu dró talsvert úr hraða verðbólgunnar eftir því sem leið á árið 1975. Á hinn bóginn reyndist halli á greiðslujöfnuði svipaður og áður, eða 12% af þjóðar- framleiðslu, bæði árin 1974 og 1975.“ Jónas sagði ennfremur: „1 þjóðhagsspá, sem lögð var fram í nóvembermán- uði sl„ var gert ráö fyrir aó þjóðarframleiðsla myndi standa í stað 1976 og litil sem engin aukning verða á þjóðartekjum. Gert var ráð fyrir að bæði einkaneyzla og samneyzla myndu standa í stað en fjármuna- myndun minnka. Nokkuð slaknaði á eftirspurn eftir vinnuafli en atvinna þó haldast næg.“ Siðar í ræðu Jónasar kemur fram að þessi þjóð- hagsspá þarfnist endur- skoðunar. Gera verði ráð fyrir samdrætti í þjóðar- framleiðslu, bæði vegna verkfallsins og fyrirhug- aðra ráðstafana gegn of- veiöi. Nú sé fyrirsjáanleg- ur verðbólguvöxtur, sem geti numið allt að 30% á árinu. Geti það haft alvar- leg áhrif á sparnað og greiðslujöfnuð, að menn sjái fram á vöxt verðbólgu í stað rénunar hennar. Þörf sé nýrrar og sam- ræmdrar stefnu í efna- hagsmálum, er taki fullt tillit til áhrifa lækkandi framleiðslu og verðbólgu- vaxtar og miói umfram allt að því að draga verulega úr hinum mikla halla á við- skiptajöfnuði. Áframhald- andi lánstraust landsins er- lendis, sem viö þurfum nú meira á að halda en nokkru sinni fyrr, byggist á því, aó verulegur árangur náist í þessu efni, og það sem allra fyrst. Jónas H. Haralz lagði ríka áherzlu á gildi frjálsr- ar verzlunar í ljósi þeirrar reynslu, sem fengin væri á undanförnum árum og ára- tugum. Hún væri ein af meginforsendum hagvaxt- ar, aukinnar velmegunar, heilbrigðrar verðmyndun- ar og frjáls neyzluvals. Hún væri eina skipan við- skiptamála, sem væri í samræmi vió hagsmuni allrar þjóóarinnar, laun- þega jafnt sem vinnuveit- enda, neytenda jafnt sem kaupsýslumanna. Eigi sá mikli ávinningur hins veg- ar að haldast, sem frjáls verzlun felur í sér, sé um- fram allt nauðsynlegt að ná föstum tökum á almennri stjórn efnahagsmála, svo unnt reynist að draga úr hallanum á vióskiptajöfn- uði þjóðarinnar sem allra fyrst. Stjórn efnahagsmála og baráttan gegn verðbólgu og atvinnuleysi Vafi betri en vissa hinna ÞORSTEINN Gylfason er einn hínna föstu greinahöf- unda Skirnis og setur svip á ritið með skorinorðum athug- unum sínum. í Skírni 1975 er grein eftir Þorstein, sem nefnist Ætti sálarfræði að vera til? Þorsteinn kveðst ætla að velta þessari spurn- ingu fyrir sér án vonar um endanlegt svar. Hann gerir sér grein fyrir því að með þessu hljóti hann að valda lesendum sínum vonbrigð- um, en huggar sig við „að enginn maður hafi hlotið feg- urri eftirmæli en sá sem um var sagt: vafi hans var miklu betri en vissa hinna". Annar greinahöfundur, sem Skírnir virðist ekki geta án verið, Helga Kress, skrifar um Kvenlýsingar og raunsæi með hliðsjón af Gunnari og Kjartani eftirVéstein Lúðvíks- son. Helga hefur farið á grenjandi túr í kenningum Georges Lukacs og notar raunsæi „í marxískri merk- ingu um þann eiginleika list- ar að skyggnast undir yfir- borð hlutanna og draga fram og sýna samfélagsleg tengsl þeirra og orsakir". Niður- staða Helgu er sú að hinn sósíalíski höfundur viður- kenni „hvað varðar hlut- verkaskiptingu kynja í þjóð- félaginu þá borgaralegu hug- myndafræði sem hann ann- ars ræðst gegn". Skáldsögu hans „vantar heildarsýn" og höfundur „gerir sér ekki grein fyrir að um stéttaskipt- ingu þjóðfélagsins verður ekki fjallað án kynskiptingar þess, og sú þjóðfélagsmynd sem hann gefur, getur því ekki orðið annað en röng",- Ætlun Helgu Kress er að ala Véstein Lúðvíksson upp í réttri kenningu svo að hann geti fengið sama út úr túrn- um og hún. Grein þessi hef- ur fengið góðan hljómgrunn í Þjóðviljanum, en þar var dregið i efa að Vésteinn væri í raun sósíalisti. Sömuleiðis hefur Svava Jakobsdóttir vegsamað Helgu Kress í út- varpsþætti um gildi kvenna- ársins. Það kemur ekki á óvart þegar þess er gætt að í greininni um Véstein telur Helga Svövu helsta rithöf- undinn, „sem fjallar um líf og vandamál kvenna á þjóðfé- lagslegum grundvelli". Hinir eru Guðbergur Bergsson og Jakobina Sigurðardóttir Grein Helgu Kress hefði því alveg eins getað birst í Rétti eða einhverju öðru marxísku rétttrúnaðarriti En kannski ber að skilja greinína sam- kvæmt skilgreiningu Þor- steins Gylfasonar í fyrr- nefndri grein hans, en þar Karl Marx. Hann kemur viS sögu I Sklrni 1975 segir hann að „byltingarhug- sjónir virðast á okkar dögum vera deyfilyf handa skóla- fólki, með áþekkum hætti og Karl Marx taldi kristindóm á 1 9du öld vera eiturlyf handa alþýðu". Helga Kress mun ver-a bókmenntakennari. Meðal læsilegs efnis í Skírni að þessu sinni eru greinarnar Georg Brandes og Hannes Hafstein eftir Kristján Albertsson; Seint borguð kiðin eftir Davíð Erlingsson; Messíasarþýðing Jóns Þorlákssonar eftir W. M. Senner og Seyðisfjarðarár Jóns Trausta eftir Arnheiði Sigurðardóttur. Fræðilegri eru greinarnar Fyrsta hljóðrit- un nútíma-islenzku eftir Magnús Pétursson og Málfar blaða og útvarps eftir Helga J. Halldórsson. Grein Helga er eins konar eftirmáli útvarpsþátta hans um dag- legt mál, bregður „Ijósi á hverjar séu helstu veilur íslensks máls um þessar mundir". Þetta er tróðleg lesning og gagnleg. Ég hafði gaman af að kynnast skoðunum Berg- steins Jónssonar í grein hans Fjölnismenn og þjóðarsagan, sem er andmælaræða við doktorsvörn Aðalgeirs Kristjánssonar 7. september 1974. Bergsteinn hvetur til endurmats og með það í huga lætur hann ýmislegt fiakka, sem ef til vill er full hvatvíslegt þótt ég efist ekki um að Bergsteinn tali af þekkingu. Einhvern tíma hefði það þótt tíðindum sæta að af- greiða Fjölnismenn sem „andrlka fagurkera og sér- vitra stafkrókamenn" og tala um „seinlæti og slóðaskap Jónasar og Konráðs". Ekki held ég að þetta sé orðalag Aðalgeirs Kristjánssonar I doktorsvörninni, sem síðar varð bókin Brynjólfur Péturs- son ævi og störf (Útg. Hið islenzka bókmenntafélag 1972). En ætli timi sé ekki kominn til að við kynnumst öðrum söguskoðunum en þeim, sem lesa má I kennslu- bókum eftir Jón J. Aðils, Arnór Sigurjónsson og Jónas Jónsson frá Hriflu? Kannski verður næsta íslandssaga rituð af einhverri Helgu Kress? Bókmenntaskrá Skírnis tekin saman af Einari Sig- urðssyni kemur nú út I sjö- unda sinn og er eins og áður hin nytsamlegasta. Skírni er æ meir beint inn á fræðilegar brautir og ér það að vonum. Ritdómarnir fjalla til dæmis allir um vísindaleg rit að undanskildum dómi Kristjáns Arnasonar um þýðingu Jóns Gíslasonar á Þremur leikrit- um um ástir og hjónaband eftir Evrípides. Grein Helgu Kress um Véstein Lúðviksson má þó flokka undir ritdóm og eins Tilraun til draumráðn- ingar eftir Beth Juncker og Bent Söndergárd, sem fjallar um Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Laxness. Ristjóri Skírnis er Ólafur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.