Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 0 Sýrlendingar hafa enn blandaó sér inn i álökin í Líbanon til að halda aftur af líhönskum vinstrimönn- um og palestínskum stuön- ingsmiinnum þeirra, sem vilja kníja fram hernaöar- sigur gegn kristnum mönn- um. Nú óttast Palestínu- menn aó Hafez Assad for- seti reyni að tryggja sér yfirráð vfir skæruliða- hrevfingunni, ef hann skyldi þurfa að nevðast til að knýja hana til að fallast á óviðunandi friðarsamn- inga við Israel. Hlutverk Sýrlendinga í Líbanon er orðið tvírætt, því Assad er helzti vernd- ari Palestínumanna og leiðtogi Baath-flokksins, bylt ingarflokks, sem berst fvrir sameiningu Araba og stendur í nánum tengslum við Rússa. Hingað til hafa Sýr- lendingar verið reiðuhúnir að hjáipa múhameðslrúar- mönnum að fá aukin viild, meðal annars mcð stuðn- ingi palestínsku skæru- liðasamt akanna Saiqa, sem hafa ha'kistöð í Damaskus og fá vopn sín og þjálfun hjá Sýrlendingum. Saiqa- ht*rmenn hafa lokaö veg- inum, sem liggur til Beirúl úr suðri, með þungum fall- byssum og eldflaugum. Þar stiiðvuðu þeir mú- hameðska liðhlaupa, sem sóttu til horgarinnar til að taka þátt i árásunum á höll Suleiman Franjieh for- set a. Það sem vakir fyrir Assad Assad med Arafal: jafnvægislist Múhamedstrúarmenn hrósasigri: árásin var stoúvuð. Ahdah hershöfðingi: skipun frá Assad Yassir Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestinu (PLO), mun hafa reiðzt af- skiptum Saiqa af borgara- striðinu, þar sem hann var ekki hafður með í ráðum, þótt hann sé í orði kveðnu vfirmaður alls liðsafla Palestínumanna. Palest- ínumenn segja að f Saiqa- sveitunum hafi verið margir sýrlenzkir fall- hlífahermenn í Saiqa- búningum. Liðhlauparnir í „Líb- anska Arabahernum" undir forystu Ahmed al- Khatibs lautinants hafa haft náið samstarf við Fatha-sveitir Arafats og vinstrisinnaða, líbanska múhameðstrúarmenn í baráttunni fyrir afsögn Franjiehs og róttækum pólitískum breytingum. Bvltingarforinginn Aazis Asdab hershöfðingi, sem hóf baráttuna fyrir afsögn Franjiehs, segir að hann og Khatih hafi fengið skip- un frá Assad forseta að hætta við árásina á forseta- höllina. Þegar Saiqa- sveitirnar lokuðu veginum úr suðri sáu þeir að Assad var alvara. Vinstriforing- inn Kamal Junblatt gagn- rýndi þennan þrýsting Sýr- lendinga. Assad vill stjórnmála- jafnvægi í Líbanon. Hann óttaðist að árás á forseta- höllina mundi fylkja kristnum mönnum um Franjieh, að þar með vrði skipting landsins eina lausnin og það mundi tor- velda tilraunirnar til að leysa deilumál Araha og tsraelsmanna. Auk þess eru Sýrlendingar háðir Líbanon vegna þess vöru- vals og þeirrar sérfræði- kunnáttu sem þeim stendur þar til boða og samhands landsins við vestræn ríki. Þeir óttast að slíkt stæði ekki til boða ef Junblatt kæmi á sósíai- isma. Þar að auki eru Assad og Franjieh gamlir vinir og talast oft við í síma. Vantar þig lán? Get útvegað lánsfé stórar upphæðir sem smáar. Get einnig selt góð skuldabréf og víxla. Tilboð merkt: ..Peningar — 1 1 76" sendist Mbl. Til sölu vörubíll Mercedes Benz 1513 árgerð 1974. Mjög lítið keyrður. Skipti á 2ja hásinga bíl æskileg. Upplýsingar í síma 38639. Falleg útihurð, eykurfegurð og verðmæti hússins Útihurðirnar frá Bor, er falleg og vönduð sænsk gæðavara. Bor hefur sérhæft sig í framleiðslu bílskúrs- og útihurða, og geta þess vegna boðið viðskiptavinum sínum mikið úrval á hagstæðu verði. ERU NU TIL AFGREIÐSLU AF LAGER VALD POULSEN H.F. Suðurlandsbraut 10 — Sími 38520 — 31142. TRELLEBORGV Vatnsslöngur STERKAR — VANDAÐAR HEILDSALA — SMÁSALA ^tunnm h.f. [SMP4U1GCRB RIKISIN?, M /s Hekla fer frá Reykjavík þriðjudaginn 30. þ.m. austur um land í hrina- ferð. Vörumóttaka: fimmtudag og föstudag til Austfjarðahafna, Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsa- víkur og Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.