Morgunblaðið - 25.03.1976, Síða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JMorgunblabib
jwgpttnKilfafrtfr
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Hlarijuiibfabib
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976
Gæzluskipherrar í Þýzkalandi:
Reyndu 1 gær hrað-
báta sem áttu að
fara til Líbanon
Þá náöi Morgunblaðið tali af
Guðjóni B. Ölafssyni, forstjóra
Iceland products, dótturfyrir-
tækis Sambandsins i Banda-
ríkjunum, og spurði hann um út-
litið á freðfiskmarkaðnum þar.
Hann sagði, að undanfarna daga
hefði verið hreyfing á blokkinni
upp á við. Fyrir2—3 dögum hefði
eitthvað af blokk verið selt á 68
cent, en nú mætti segja að jafn-
aðarverðið væri orðið 70 cent. Um
áramótin fengust hins vegar ekki
nema 58 cent fyrir pundið af
blokkinni og hefði hún því
hækkað um 20% síðan.
„Ég hélt því fram í haust,“
sagði Guðjón, „aó blokkin myndi
hækka í verði, en hækkunin kom
lítið eitt seinna en ég átti von á.
Um þessar mundir er vaxandi eft-
Framhald á bls. 31
Slmamynd AP.
IIRAÐBÁTURINN —Þetta er hraðbáturinn, sem Gunnar Olafsson og Þröstur Sigtryggsson reyndu f gær.
Myndin er tekin f Bremen.
20% hækkun á fiskblokk:
Verðmætaaukningin skiptir
hundruðum milljóna króna
FISKBLOKK hefur hækkað um 20% eða 12 cent á Bandarfkjamarkaði
frá þvf f nóvembermánuði s.l. t þeim mánuði fengust um 56 cent fyrir
pundið af þorsk- og ýsublokk, en nú fást 70 cent fyrir pundið. Gera
fslenzkir framleiðendur sér jafnvel vonir um að verðið eigi enn
eitthvað eftir að hækka, þar sem eftirspurn eftir góðum fiski fer
stöðugt vaxandi f Bandarfkjunum. I febrúarmánuði hækkaði blokkin f
65 cent pundið og fyrir tveimur vikum f 70 cent. Hver 5 centa hækkun
þýðir nokkur hundruð milljóna króna meira verðmæti fyrir fslenzku
frystihúsin, en f fyrra munu hafa verið framleidd um 30 milljón pund
af blokk, mest þorsk- og ýsublokk.
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, sagði í
gær þegar Morgunblaðið ræddi
við hann að verðið á blokkinni
væri alltaf að þokast upp á við.
Hækkunin hefði átt sér stað í fjór-
um þrepum frá því í haust, en
þorsk og ýsu. Kvað Eyjólfur um
60% af ýsu fara í flakafram-
leiðslu og um 40% í blokk. Fyrir
nokkrum árum skiptist þetta til
helminga. Hann sagði, að flök
hefðu ekki hækkað í verði frá því
um áramót.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild-
ar Sambandsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þessi nýja
hækkun hefði legið í loftinu
þegar blokkin hækkaði upp í 65
cent, en enginn vissi um fram-
haldið. Hinu væri ekki að neita að
eftirspurn eftir góðum fiski væri
nú mikil vestanhafs.
ekki gengið alveg jafnt yfir allar
tegundir. Ysan hefði t.d. verið um
2 centum dýrari um tíma, en nú
fengist sama verð fyrir hana og
þorskinn, þá hefði steinbíts-
blokkin einnig hækkað verulega í
verði, en reynt væri að setja sem
mest af steinbítnum í flök eins og
t EINKASKEYTI frá AP-fréttastofunni til Morgunblaðsins í gær-
kvöldi segir, að Landhelgisgæzluskipherrarnir Gunnar Ólafsson og
Þröstur Sigtryggsson hafi f gær reynt hraðskreiðan bát á Weser-ánni,
en komið hefur til tals að fá slfka báta til gæzlustarfa við landið.Bátur
þessi er 37 metra langur og einn af þremur sams konar bátum, sem
byggðir voru fyrir lögregluna í Beirut áður en borgarastyrjöld brauzt
þar út. Þegar hún brauzt úr, varð ekkert úr kaupunum.
Þröstur Sigtryggsson segir í
samtali við AP, að ákvörðun um
kaup á bátunum sé í höndum ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar. Komi
þar inn í dæmið hvort hægt sé að
auka hraða bátanna úr núverandi
28 sjómílum i 36 sjómílur, svo
þeir gangi jafnhratt og brezku
freigáturnar. Dieselvél er í bátun-
um.
Talsmaður vestur-þýzka utan-
ríkisráðuneytisins í Bonn sagði
við fréttamann AP, að ekki þyrfti
að sækja um leyfi til ríkisstjórn-
arinnar til að selja óvopnaða hrað-
báta til Islands og ekki væri hægt
að koma í veg fyrir að kaupand-
inn setti vopn i bátana. Talsmað-
urinn kvað ráðuneytið ekki hafa
haft vitneskju um för Landhelgis-
gæzluskipherranna til Þýzka-
lands.
Romm í gosi
hækkar í
810 krónur
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gærkvöldi til Hafsteins
Baldvinssonar, lögmanns Sam-
bands veitinga- og gistihúsæ
eigenda, en hann hafði þá ný-
lokið við að reikna sjússaverð
fyrir veitingahúsin f samræmi
við hækkun á áfengi.
Samkvæmt upplýsingum
Hafsteins mun tvöfalt vodka
(6 cl) í gosi eftirleiðis kosta
730 krónur, tvöfalt viskí i gosi
Framhald á bls. 31
Fótbrotnaði á
báðum fótum
VÖRUBIFREIÐ ók í gærmorg-
un á töluverðri ferð aftan á
aðra vörubifreið f brekkunni
fyrir neðan skíðaskálann í
Hveradölum. Bylur var þegar
þetta gerðist. Ökumaður bfls-
ins, sem ók á slasaðist mikið,
m.a. fótbrotnaði hann á báðum
fótum.
Hátíðnitæki notuð
hér til að róa fanga
— Dómsmálaráðuneytið hefur bannað notkun tækjanna
Sendiherrar fluttir:
Hans G. Andersen
til Washington
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér en ekki fást
staðfestar f utanrfkisráðuneytinu,
eru f vændum talsverðar breyt-
ingar á utanríkisþjónustunni.
Haraldur Kröyer, sem verið hef-
ur sendiherra Islands í
Washington, flyzt til Genfar, en
Einar Benediktsson, sem þar hef-
ur verið flyzt til Parfsar. Þá verð-
ur Hans G. Andersen sendiherra
lslands í Washington.
Þessar breytingar munu ekki
verða fyrr en í sumar, þar sem
gert er ráð fyrir því að Hans G.
Andersen verði formaður sendi-
nefndar íslands á Hafréttarráð-
stefnunni til loka hennar. Þá hef-
ur heldur ekki reynzt unnt að
tilkynna þessar breytingar, þar
sem eftir er að fá viðurkenningu
viðkomandi landa á sendiherra-
skiptunum. Þá mún fyrirhugað að
Tómas Tómasson, sem verið hef-
ur sendiherra í Briissel verði þar
áfram, en frétzt hafði að ætlunin
hefi verið að flytja hann einnig úr
stað.
Loðnufrystingu líklega lokið:
4800 lestir frystar
upp í 12000 lesta
samninga við Japan
VONLlTIÐ er talið að hægt verði að frysta loðnu úr þessu. Morgun-
blaðið hafði f gær samband við þá þrjá aðila, sem selt hafa loðnu til
Japans. Kom f ljós að samtaJs hafa verið frystar 4800 lestir af loðnu, en
búið var að gera samninga við Japani um sölu á 12.000 lestum.
Utflutningsverðmæti frystu loðnunnar er tæpar 500 milljónir en hefði
orðið rúmar 1200 milljónir ef tekizt hefði að frysta upp f gerða
samninga.
DÓMSMALARAÐUNEYTIÐ hefur ritað öllum lög-
reglu- og fangelsisstjórum bréf, þar sem bannað er
að nota hljóðtæki til að róa fanga, sem eru með
óspektir. I Ijós hafði komið, að sérstök hljóðtæki
voru notuð f tveimur fangelsum landsins. Það var
félagið tslenzk réttarvernd, sem hrundi máli þessu
af stað og stóð sfðan að rannsókn málsins við hlið
dómsmálaráðuneytisins.
Fulltrúar Réttarverndar skýra blaðamönnum frá tækjunum
Hjá Hjaita Einarssyni fram-
kvæmdastjóra SH fékk Mbl. þær
upplýsingar, að 3000 lestir af
loðnu hefðu verið frystar á vegum
fyrirtækisins. Auk þess hafa ver-
ið frystar um 600 lestir af loðnu-
hrognum. SH hafði samið um sölu
Framhald á bls. 31
Á fundi í Islenzkri réttarvernd
í gærkveldi ræddi formaður fé-
lagsins dr. Bragi Jósepsson, um
þetta mál og síðan las ritari fé-
lagsins, Gunnlaugur Stefánsson,
upp eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu: „Hinn 27. janúar s.l. barst
stjórn íslenzkrar réttarverndar
ábending um, að sérstök hátíðni-
hljóðtæki væru notuð í fangelsum
hér á landi. Tækin voru sam-
kvæmt lýsingu tengd hátalara-
kerfi inn i fangaklefana, hvern
um sig. Tilgangur tækisins var
sagður sá að róa fanga, sem væru
með óspektir eða hávaða. Var full-
yrt, að hér væri um raunveruleg
pyntingartæki að ræða.
Hinn 3. febrúar sendi stjórn
félagsins þrjá menn í heimsókn í
tiltekið fangelsi til þess að kanna
réttmæti málsins. Þeir staðfestu i
bréfi til félagsins, dags. 5. febrú-
ar, að tækin væru til staðar.
Að þessum upplýsingum fengn-
um skrifaði stjórn félagsins dóms-
málaráðherra og spurðist fyrir
um málið. I svari frá ráðuneytinu
kom fram, að því væri ekki kunn-
Framhald á bls. 31