Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 22

Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 Fréttin um alvarleg veikindi hans og lát tæpri viku síðar varð samstarfsfólkinu sem reiðar- slag. Hvern gat órað fyrír því, að hann, sem kvaddi hress í vikunni áður, skyldi klukkustund siðar kominn á sjúkrahús, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt? Dauðinn er furðuleg ráðgáta, sem mönnum gengur illa að skilja. Öskiljanlegastur þó, þegar fólk í blóma lífsins er hrifið burt frá mikilvægu hlutverki. Kristinn hafði sannarlega mikilvægu hlut- verki að gegna bæði í starfi og á heimili sinu. Stofnunin, sem hann helgaði krafta sina, hefur misst mikinn hæfileikamann, það vissu allir, sem með honum störfuðu, en söknuðurinn verður enn sárari, þegar á bak verður að sjá miklum mannkostamanni, sem öllum þötti vænt um, er honum kynntust. Kristinn var einstaklega þægi- legur í viðmóti, vakandi og áhuga- samur, og sanngjarn í dómum. Hér eiga einungis bestu lýsingar- orð við, um það erum við öll sam- mála. A heimilinu áttu þau hjónin eftir að ala upp þrjú ung börn, þar af eitt aðeins nokkurra vikna gamalt. Þar er stört skarð fyrir skíldi. Margur fær margt að reyna i lífinu, en hversu þungbært er ekki að missa góðan eiginmann og föður, sem gat átt hálfa ævina framundan. Minningin um góðan dreng verður þeim þö mikill styrkur. Oskum við þeim alls velfarnaðar á komandi árum. Samstarfsfólk f Seðlabankanum. Marmir rinn í aldurs hlóma undi sa ll \ió ulaöan hau. hráll þá fr«*«nin hovróisl liljóma llriil í w«*r. »*n nár í dau- — Ó. h\i* K«‘lur undra skjótl yfirskyujíl hin dimmanóll. Þann 16. febrúar s.l. fæddist hjónunum Önnu Lorange og Kristni Hallgrimssyni dóttir. Þrátt fyrir erfiða fæðingu heilsað- ist móður og dóttur vel. Svana Kmelía .'Ija ára og Fétur 8 ára biðu með óþreyju eftir, að mamma kæmi heim með litlu systur. Anna kom heim 25. febrúar og ákvað Kiddi að vera heima í viku henni til aðstoðar. Við vinkonur (innu og Kidda öíunduðum hana alltaf af þeirri einstöku natni. sem Kiddi sýndi börnunum og henni í sainbandi við allt heimilis- hald og vissum allar, að hann átti ekki sinn lika, hvað það snerti. Þann 9. marz barði sorgín að dyrum á þessu einstaklega hlýja heimili, þegar Kiddi, vinur minn og skólabróðir, fékk heilablóðfall. Lá hann meðvitundarlaus, unz hann lézt þann 16. marz. Leiðir okkar Kidda lágu saman úr Austurbæjarbarnaskólanum, þangað til að loknu stúdentsprófi úr Verzlunarskólanum 1955. Kiddi fór til náms í hagfræði við Dartmouth háskólann í U.S.A. og siðan til London School of Economics. Að námi loknu vann hann í Seðlabanka Islands, þar til hann hóf starf við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn í Washington D.C. árið 1963. Eg var þá þegar búsett í Washington og styrktist þá vin- átta okkar, jafnframt því sem eiginmaður minn og Kiddi bund- ust sterkum vináttuböndum. Þá var oft glatt á hjalla og naut Kiddi mikilla vinsælda meðal allra land- anna og eignaðist marga trausta vini, sem nú ásamt okkur trega hann og samhryggjást Önnu, Ixirnunum og eftirlifandi föður hans, Hallgrimi Féturssyni, vél- stjóra. Anna og Kiddi kynntust á 17. júní hátíð í New York 1966, en Anna vann hjá Loftleiðum i New York. Þau giftu sig 17. desember 1966 í Washington og var Phi) svaramaður taugaóstyrks brúðguma. Við skáluöum fyrir ný- giftu hjónunum i kampavini á okkar heimili, áður en Kiddi bauð öllum vinum sínum til veizlu á bezta matsölustað borgarinnar. Slík var hans rausn. Brá hann aldrei frá þeirri venju. Þau hjónin bjuggu sín fyrstu hjúskaparár í Washington og þar fæddist Fétur í janúar 1968. Þau voru vinamörg og tóku á móti gestum sínum með sérstakri hlýju, sem einungis hamingjusöm og samstæð hjón geta gert. Þau fluttust heim 1969, er Kiddi hóf aftur vinnu við Seðla- banka Islands, þar sem hann vann til dauðadags. Við áttum margar ánægjulegar samverustundir með okkar kæru vinum, Önnu og Kidda, bæði vestanhafs og heima á Islandi og síðast hitti ég þau um jólin i vetur, kát og hress. Við ræddum um fyrirhugað sumarferðalag ásamt fleiri vinum. Þann 17. desember héldum við upp á 9 ára brúðkaupsafmæli þeirra. Hvern skyldi hafa grunað, að þau yrðu ekki fleiri? Anna min. Við vottum þér, börnunum og Ilallgrími tengda- föður þínum okkar innilegustu samúð. I dag er jarðsunginn merkur íslendingur, Kristinn Vignir Hallgrimsson hagfræðingur. Hann lést aðeins42 ára að aldri. Eg kynntist Kristni sumarið 1972, er ég var ráðinn til starfa við hagfræðideild Seðlabanka Is- lands, sem hann veittí forstöðu. Kynni okkar vöruðu því þrjú og hálft ár. Eg hafði verið búsettur erlendis rúman áratug og reynsla min af íslenskum efnahagsmálum var harla lítil. Það vildi mér til happs að leiðir okkar Kristins lágu saman og ég fékk að njóta leiðsagnar hans. Krístinn hafði yndi af því að rökræða hagfræði- leg vandamál og ræddi oft klukkutímum saman um ólíkleg- ustu efni við áhugasama við- madendur. Hann var þolinmöður húsbóndi og jafnan rejðubúinn að svara fávísum spurningum án þess að lítillækka spyrjandann. Kristinn var ágætlega að sér í fræðilegri hagfræði, enda menntaður í Bretlandi og í Banda- ríkjunum að viðfrægum lærdóms- setrum. En fræðilegar vanga- veltur áttu ekki hug hans. Fræðin höfðu aðeins það hlutverk að bæta skilninginn á efnahagsrfiál- um líðandi stundar. Fáa hagfræð- inga hef ég heyrt blanda svo leik- andi létt saman fræðunum og raunhæfum vandamálum. Við þetta bættist, að þekking Kristins á smáatriðum íslenskra efnahags- mála var geysilega víðtæk. Hann gerþekkti stofnanir athafnalífs- ins og umgerð þeirra. I umræðum, sem oft snerust um stjórnmál, tók Kristinn afstöðu af fullkominni sanngirni til hug- mynda og tillagna um efnahags- mál hvaðan úr flokki, sem þær komu. Flokkspólitískar skoðanir lét hann aldrei uppi. Hann var þó augljóslega frjálslyndur lýðræðis- sinni, hafði samúð með Iítil- magnanum, en mál hans mótaðist fyrst og fremst af viðhorfum hag- fræðings í meginkvísl hins engil- saxneska skóla. Er tímar liðu setti ég mér þá reglu að leita sem oftast ráða hjá Kristni um verkefni, sem ég vann utan bankans. Ráð hans voru jafnan góð, og sú var reynsla mín, að hugsanaskekkjur og stað- reyndabrengl færu ekki framhjá honum. Oft furðaði ég mig á þyí, hvernig hann á augabragði sá vill- ur í verkefnum, sem ég hafði legið yfir dögum saman. Kristinn var jafnan þýður i við- möti. Aldrei heyrði ég hann reisa rödd sína i reiði, en hann hló mikið og hlátur hans var hár og snjallur. Hann dreifði um sig glaðværð. Kristinn var viðkvæm- ur i lund, dulur og jafnvel feiminn. Enda þótt frá honum kæmi stöðugur straumur af skýrslum og greinargerðum, voru það nafnlaus skrif embættis- mannsins. Kristinn kom lítið fram opinberlega og skrifaði ekki í blöð. Hann var því ekki þjóðkunn- ur maður eins og margir af okkar færustu hagfræðingum. Samt var hann jafnoki þeirra allra. Eftir á að hyggja finnst mér hann hafa verið montlausastur allra manna. Ekkert var fjær honum en stæra sig áf mikilli þekkingu og reynslu. Hann ræddi aldrei að fyrra bragði um námsferil sinn eða mikil ábyrgðarstörf, sem hann um árabil vann hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum í Washington. Um þau mál tókst mér aðeins að toga upp nokkur orð. Hann sneri ræðunni jafnan aftur að raunhæf- um vandamálum líðandi stundar. Ég mun ávallt búa að árunum, sem ég var í læri hjá Kristni. Og þar er ég ekki einn. Hann þjálfaði og leiðbeindi fjölmörgum ungum hagfræðingum í Seðlabankanum og miðlaði starfsbræðrum i öðrum stofnunum af þekkingu sinni. Arfur hans er góður. Kristinn Vignir Hallgrímsson er horfinn okkur. Eftir lifir minn- ingin um merkan Islending. Ég votta konu hans, ungum börnum, öðrum ættingjum og vinum ein- læga samúð mína. Þráinn Eggertsson. kennari — Fæddur 9.5 1899. Dáinn 16.3 1976. Þegar stundin er komin berst kallið að ofan. Hér skal staðar numið og vegferð lokið. Þér er hvildar þörf. Mál er að erfiði dagsins linni. Og ekki þýðir að deila við dómarann. Hans er valdið, mátturinn og dýrðin. Þar kemur engin áfrýjun til æðra dóms til greina. Það er og að sjálfsögðu öllum affarasælast. i dag kveðjum við traustan og góðan dreng hinstu kveðju. Hann hefur gegnt kallinu, sem fyrr eða siðar berst hverjum einstökum, óumflýjanlega en iðulega óvænt. Hann hefur að fullu greitt skuld sína við lífið. Jóhann Þorsteinsson, Suður- götu 15, Hafnarfirði, er okkur horfinn af vettvangi dagsíns í þessum bæ og úr þessari tilveru. Hann var eljumaður mikill, si- vinnandi og lagði gjörva hönd á margt. Kennari var hann glöggur og góður, vandvirkur og skýr í framsetningu, vel metinn og virt- ur af nemendum sínum. Flýtti för þeirra og greiddi götu fúslega í gegnum frumskóg talnanna. Hann naut og trúnaðar þeirra og virðingar. Hann var einnig skrif- stofumaður ágætur, vann við skattamál um skeið og fórst það vel úr hendi, samviskusamur, ná- kvæmur og öruggur um meðferð talna. Hann var formaður Bygg- ingafélags alþýðu hér í bæ um nokkur ár svo og formaður stjórn- ar Kaupfélags Hafnfirðinga um skeið. i þessum störfum, sem annars staðar, og sem félagi í ýms- um öðrum félögum, ávann hann sér óskoraðs trausts og viður- kenningar fyrir góða yfirsýn, dugnað og skyldurækni. Frá árinu 1958 til ársloka 1966 var Jóhann forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Sólvangs. Því starfi gegndi hann af ein- stakri alúð og naut vinsældar. Hann vildi veg Sólvangs sem mestan og lagði sig allan fram um heill og hag þeirrar stofnunar. Átti mikinn þátt i tillögum að nýjum byggingum á Sólvangs- svæðinu og hafði leitað eftir úr- ræðum um lán til framkvæmda og það með góðum árangri. En til framkvæmda kom því miður ekki. Það féll Jóhanni þungt. Vegna heilsubrests að nokkru lét Jóhann af forstjórastarfi fyrr en skyldi. En ekki var sest um kyrrt. Áhuga- málin kölluðu á störf og verkefni voru nóg. Einkum vildi hann greiða götu hinna öldruðu. Að hans tilhlutan var Styrktarfélag aldraðra í Hafnarfirði stofnað. Að vexti þess og viðgangi vann hann ósleitilega fram á hinstu stund. Félagið studdi áform um bygg- ingar fyrir aldraða við Álfaskeið. Nú fyrir skömmu var hafist handa um undirbúning að bygg- ingu húsa þar. Mér býður 1 grun, að Jóhann hafi fagnað þeirri framkvæmd. Gamall draumur var að verða að veruleika, betra er seint en aldrei. Við Jóhann áttum ýmis sam- skipti um árabil á mörgum vett- vöngum. Hann reyndi ég aldrei nema að góðu. Þar fór maður sem vildi vel og vann af heilindum að Kveðja frá félögum. Ávallt mun verða bjart yfir minningunni um hinn góða dreng, hún verður aldrei frá okkur tekin. Kiddi var vinsæll af öllum, sem til hans þekktu, hvort heldur var að störfum eða leik. Hann var maður lífsgleðinnar og naut lífsins, hvar sem hann var. Áræðinn og úrræðagóður er tek- ist var á við vandamálin enda var honum gefin þolinmæði og þraut- seigja í ríkum mæli. Ósérhlífni hans og hjálpsemi voru ef til vill þeir eiginleikar hans, sem mest máttu sin í daglegum önnum. Það var því gott að eiga Kidda að félaga og vini. Sá félagsskapur hefur staðið allt frá æsku og stendur enn. Það er félagsskapur, sem við mátum meir eftir því sem árin liðu. Þó að Kiddi hafi verið dæmi- gerður Reykvíkingur naut hann þess i ríkum mæli að hverfa á vit Minning hverju þvi sem að var stefnt og mátti í engu vamm sitt vita. Hann var af traustu bergi brotinn. Syst- kinum hans nokkrum kynntist ég. Þau báru öll einkenni hreinskipti og samviskusemi. Börnin frá Berustöðum báru vitni góðu heimili, gegnum foreldrum, er ólu börn sín upp í góðum siðum og guðstrú og í virðingu á gildi hinna gömlu dyggða, vinnusemi, samviskusemi og sparneytni þjóð- inni og hverjum einstökum til far- sældar. Hér verður ekki skráður ævi- ferill Jóhanns Þorsteinssonar, það munu aðrir hæfari gera, en þessum línum er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að færa fram þakkir frá Sólvangi fyrir störf hans þar sem forstjóra, það sem hann var og vann þeirri stofnun. Þar naut hann óskoraðrar virð- ingar allra er hann hafði sam- skipti við. Samstarfsfólk mat hann mikils. Vistfólk taldi sínum málum vel borgið i hans höndum, enda vildi hann allt fyrir það gera . og hlífði sér hvergi. Það fann hald og traust i návist hans og Sól- vangur átti í sannleika hug hans allan. En þess má hér og geta, að hann naut góðrar aðstoðar eigin- konu sinnar, frú Ástríðar, er með honum vann hér á Sólvangi. Sam- starf þeirra var með miklum ágætum. Þar studdi hönd hendi og hugur hug eins og best var á kosið. Starfa þeirra beggja að Sól- vangi er því gott að minnast fyrir þá, er þeirra naut eða gerðu sér grein fyrir gildi þeirra. Yfir þeim hvíldi birta vorsins, sem gleður og visar leiðina til þroska og birt- unnar, er bíður að tjaldabaki. Persónulega fagna ég kynnum minum af Jóhanni Þorsteinssyni. Þar fór athyglisverður og sérstak- ur persónuleiki. Hafði sína sann- færingu og fylgdi henni af festu og öryggi. Vildi sigur hins sanna og þroskavænlega. Unni frelsi, jafnrétti og viturlegri stjórn, er efldi almannaheill. Hlýddi boð- orðum skyldunnar og greiddi götu þeirra, sem til hans leituðu af vinsemd og velvilja. Jóhann var þvi að verðleikum mikils metinn í sinum bæ og af öllum þeim er kost áttu að kynn- ast honum. Ég votta eiginkonu hans, börn- náttúrunnar og voru ef til vill bestu stundir hans ferðalög og útivera. Hann var góður laxveiði- maður og ófáar voru þær stundir sem hann eyddi í hvíld og ró með fjölskyldu sinni og tengdafólki að Þúfukoti í Kjós. Þeir, sem höfðu samskipti við Kristin V. Hallgrímsson, hagfræð- ing Seðlabankans, hafa við fráfall hans misst mikið og því meir sem þau samskipti voru nánari. Við félagar hans frá æsku söknum vinar og sérstaks mannkosta- manns. Aldraður faðir, sem naut þess að fá drenginn sinn með börnin í heimsókn. Börnin hans ung sakna föðurins, sem hafði svo mikið að gefa og eiginkonan ást- ríks og umhyggjusams eigin- manns. Við félagarnir vottum fjöl- skyldu hans, eiginkonu og börn- um, föður og öllum ættingjum og vinum samúð okkar og söknuð. um, barnabörnum og tengdabörn- um, mina dýpstu samúð. Þau hafa mikið misst. En þau eiga lika mikið, sem er minning um mann- inn, sem óhvikull erjaði á akrin- um uns kallið kom. Og yfir henni er heiði og fegurð, sem enginn frá þeim tekur. Ég kveð fyrrum forstjóra Sól- vangs með þökk fyrir kynnin og árna honum fararheilla yfir á ný svið, þar sem vinir bíða í varpa og bjóða hann velkominn opnum örmum til þess meira að starfa guðs um geim. Eirfkur Pálsson frá Ölduhrygg. t dag verður kvaddur frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði Jóhann Þorsteinsson, fyrrum kennari. Hann lézt á heimili sinu þann 16. þ.m. 76 ára að aldri. Jóhann fæddist að Berustöðum i Holtum í Rangárvallasýslu hinn 9. mai 1899. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi, og Ingigerður Runólfsdótt- ir. Jóhann lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg árið 1922 og kennaraprófi árið 1927. Til öflun- ar frekari þekkingar fór hann í kynnisferð til Danmerkur og Svíþjóðar árin 1928 og 1937. Um 30 ára skeið var kennslan aðal- starf Jóhanns. Hann kenndi við barnaskólann hér í bæ 1929—49 og við Flensborgarskólann 1949—58 en þá gerðist hann for- stjóri Sólvangs. Samhliða kennarastarfi sínu í Hafnarfirði var Jóhann stundakennari við Iðnskólann i Reykjavík 1929—44 og 1946—48. Forstjórastarfi sínu við Sólvang gegndi Jóhann þar til f árslok 1966, er hann hætti vegna aldurs. Jóhann Þorsteinsson vann af miklum dugnaði og með mikilli samvizkusemi að öllum þeim mál- um, er hann tókst á hendur, enda voru honum falin margháttuð trúnaðarstörf. Hann átti sæti i skattanefnd 1931—44 og í yfir- skattanefnd frá 1944 og þar til hún var lögð niður. Þá var hann formaður Byggingarfélags alþýðu 1949—54. Jóhann átti sæti í stjórn Kaupfélags Hafnfirðinga 1952—70 og var hann formaður allan þann tima að undanskildu fyrsta árinu. í barnaverndar- nefnd átti Jóhann sæti um nokkurra ára skcið. 1 Íþróttaráði Hafnarfjarðar átti hann sæti 1937—45 og var formaður Íþrótta- bandalags Hafnarfjarðar frá stofnun 1945—46. Fyrstu 30 árin eftir að Jóhann hafði lokið námsferli sínum, helgaði hann störf sín málefnum ungu kynslóðarinnar. Hann vann að því að búa unga fólkið undir lífið. Þegar hann réðst til starfa við Sólvang, urðu þáttaskil í lífi hans. Þá hóf hann að starfa að málefnum aldraðra. Þau rúm 8 ár, sem Sólvangur naut starfskrafta Jóhanns, lá hann ekki á liði sínu. Það mál, sem mér er minnisstæð- ast frá starfsferli hans þar, er barátta hans fyrir aukinni starf- semi Sólvangs með byggingu vist- heimilis fyrir aldraða. Undir- búningur málsins var komin á lokastig og allar teikningar full- gerðar en því miður fékk hug- myndin ekki meðbyr fram- kvæmdavaldsins, Jóhanni til mikilla vonbrigða. ngton, u.c. 18. marz ___ ___________ s» " Jóhann Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.