Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRJL 1976 20 fltargtitiMafrft Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 50,00 kr. eintakið. Auðveldara fjar- skiptasamband Mikil breyting hefur oröið á samskiptum við útlönd á undanförnum ár- um. Fyrir svo sem einum áratug fóru ýmiss konar viðskipti fyrst og fremst fram meö bréfaskriftum. Nú er þaö síminn og hin svonefndu telex-tæki, sem hafa aö mjög verulegu leyti tekið við hlutverki bréfanna en kostnaður við símhringingar til útlanda er mjög verulegur og telex- kostnaður einnig. Það er því ekki aö ófyrirsynju, að hugmyndir hafa komiö fram um að auðvelda þetta fjarskiptasamband milli ís- lands og annarra landa og gera það um leið ódýrara. Alþingismennirnir Ellert B. Sehram og Þórar- inn Þórarinsson fluttu fyr- ir nokkru athyglisverða þingsályktunartillögu á Al- þingi þar sem skorað er á ríkisstjórnina að fela Landssíma Islands að reisa jarðstöð, með það fyrir augum aö bæta fjarskipta- samband við útlönd og gera sjónvarpinu kleift aö komast í beint samband við sjónvarpsstöðvar í Evrópu. Ýmsar eftirtektarverðar upplýsingar koma fram í greinargerð þingmann- anna. Þeir skýra frá því, að Landssími íslands standi nú frammi fyrir því vanda- máli að fullnægja sívax- andi eftirspurn á símarás- um milli íslands og ann- arra landa og þar komi einkum tvær leiðir til greina, annars vegar að leggja annan sæstreng milli Færeyja og Islands en hins vegar að reisa jarð- stöð, sem kæmi okkur í samband við gervihnetti, en þannig kæmist ísland í beint samband við flest lönd heimsins. I greinar- gerð þingmannanna kem- ur fram, að ef jaröstöð yrði reist mundi arður Lands- símans fljótlega verða mjög verulegur og í kjöl- farið fylgdi væntanlega veruleg lækkun á afnota- gjöldum síma og telexsam- bands við útlönd. En nú eru afnotagjöld af sæsima til Evrópu vegna talsam- bands við útlönd nær fimmfalt hærri en al- þjóðargjöld miðað við sömu vegalengd og telex- gjöld níföld og gefur þetta nokkra hugmynd um hví- líkur sparnaður yrði í al- mennum viðskiptum, ef komið yrði upp slíkri jarð- stöð. Þá er ljóst, að ef jarðstöð yrði reist mundi íslenzka sjónvarpið komast í beint samband viö sjónvarps- stöðvar í Evrópu og er tal- ið, að sá viðbótarkostnað- ur, sem sjónvarpið þyrfti að leggja í til þess að geta tekið við myndum frá Evrópu mundi nema um 15 milljónum króna en kostnaðurinn yrði nokkru meiri, ef unnt ætti að vera að senda sjónvarpsmyndir héðan. Síðan segja þingmenn- irnir í greinargerð sinni: „Nú þegar landssíminn þarf óumflýjanlega að bæta við símarásum milli Islands og útlanda opnast möguleiki til að slá tvær flugur í einu höggi, þ.e. bæta eigin þjónustu og mæta þörfum sjónvarps- ins. Ef jarðstöð verður ekki reist nú og önnur leið valin er fullkomlega ljóst, að möguleikar okkar hér á landi til að komast í beint samband við stjónvarps- stöðvar erlendis eru úr sög- unni a.m.k. næstu tíu árin. Kostnaður við að reisa jarðstöð er nokkurn veg- Astæða er til að vekja athygli að at- hyglisverðum árangri Breta í viðureigninni við verðbólguna undanfarna mánuði. Á síðara helmingi ársins 1975 nam verðbólgu- vöxturinn í Bretlandi um 14% miðað við 38% verð- bólguvöxt á fyrri hluta árs- ins 1975. Þessi mikli árang- ur, sem Bretar hafa náð að undanförnu í baráttunni við verðbólguna, hlýtur að vekja nokkra athygli hér á landi. Bretar hafa að vísu ekki komizt jafnlangt í verðbólgukapphlaupinu og við Islendingar, en verð- bólgan þar hefur þó verið langtum meiri en í nokkru öðru iðnaðarríki vestur- álfu nú hin síðustu misseri. Sá árangur, sem Bretar hafa náð byggist fyrst og inn sá sami og að leggja nýjan sæstreng að viðbætt- um þeim kostnaði, sem áð- ur er getið, en kostirnir yrðu miklu mun meiri inn- an örfárra ára. Flutnings- menn þessarar tillögu leggja því eindregið til, að ríkisstjórnin ákveði að sú leið verði valin og að þegar verði hafizt handa.“ Hér sýnist vera um hið merk- asta mál að ræða og ástæða til að þingsályktunartillaga þessi og sú hugmynd, sem þar er hreyft fái jákvæðar undirtektir. fremst á því, að samkomu- lag tókst milli ríkisstjórnar Bretlands og aðila vinnu- markaðarins, og þá fyrst og fremst verkalýðssamtak- anna um, að verkalýðsfé- lögin féllust á að takmarka kauphækkanir við 6%. Þetta samkomulag hefur borið mikinn ávöxt og nú hefur Healey fjármálaráð- herra Breta, boðizt til þess að lækka skatta verulega, ef verkalýðshreyfingin samþykkir að halda kaup- hækkunum innan við 3%. Þessar aðferðir Breta í bar- áttunni við verðbólguna mættu vera okkur Islend- ingum nokkurt umhugsun- arefni þótt við að öðru leyti höfum ekkert gott haft af þeim að segja siðustu mán- uði. Bretar og verðbólgan I gildru flokkræðisins Stefán Júlfusson: Agúst. Q Skáldsaga. □ Iðunn. Revkjavfk 1975. Stefán Júlíusson hefur á und- anförnum árum ritað eina skáldsöguna annarri betri um hið margumrædda vandamál, uppreisn stefnulausra og reik- ulla barna og unglinga, gegn liðfshefð og siðalögmáli for- eldra og samfélags, sem vissu- lega er engu síður á fálm- kenndu ráðleysislegu reiki en hin unga kynslóð. Hefur mér virzt Stefán hafa dýpri og næm- ari skilning á þessu vandamáli en nokkur annar íslenzkur rit- höfundur, sem hefur að því vik- ið að meira eða minna leyti. Hefur hann þar notið hartnær þriggja áratuga reynslu sem skilningsríkur fræðari og leið- beinandi barna og unglinga, meðfæddrar innlifunar og glöggskyggni á mannlegt eðli, mótað mjög misjöfnum aðstæð- um — og loks víðtækrar bók- menntalegrar sálfræðilegrar þekkingar, sem hann hefur afl- að sér innanlands og utan. Sömu djúpmannlegu skyggni og innlifunar gætir í minn- ingabók hans um bernskuárin, Byggðin í hrauninu, og ævisagnaþáttunum Mörg er mannsævin, þar sem hann situr við kné manna, sem þegar hafa hlotið fullnaðar- mótun á tímum mikilla og margvíslegra breytinga á lífs- kjörum og þjóðfélagsháttum. í engum af þessum bókum er bein samfélagsleg ádeiia, hvað þá illa dulinn áróður — þar talar lífið sjálft, á engan hallað, ekkert fegrað og ekkert lýtt — og einmitt þess vegna og sakir hins látlausa, en skilríka frá- sagnarháttar eru þessar bækur líklegar til þeirra æskilegu áhrifa, sem allar sannar bók- menntir hafa á alvarlega hugs- andi og leitandi lesanda. Nú hefur Stefán tekið til meðferðar efni, sem er mjög á annan veg en í öllum fyrri bók- um hans. Það er sá illræmdi en sífellt viðloðandi háttur ís- lenzkra stjórnvalda að veita hvenær sem því verður við komið flest eftsóknarverð em- bætti í samræmi við flokkskröf- ur og líklega flokkshagsmuni, án þess að meta, hvort flokks- bróðirinn er öðrum umsækj- endum hæfari eða á annan hátt rétthærri, — án þess að hyggja að því hver áhrif slík valdbeit- ing hefur á almenna réttarmeð- vitund og annars eðlilega og alltaf æskilega virðingu fyrir æðstu stjórn þjóðárinnar — og síðast en ekki síst án tillits til aðstæðna og tilfinninga þess, sem ranglætinu er beittur, hvað þá til vonbrigða nánustu að- standenda hans. Þetta er vissulega verðugt viðfangsefni, en mér virtist þegar fyrsta kafla sögunnar að þarna væri höfundurinn ekki staddur í umhverfi sem væri honum jafneðlilega samruna og það, sem hann í nokkrum fyrri bókum sínum lifir og hrærist í og skynjar þó án allra sjálflægra hvata. Stíllinn virðist ekki bera mót eins persónulegs jafnvægis og í þeim bókum og jafnvel vöndun orðfærisins ekki heldur. Þessa gætir svo meira og minna í sögunni allri. Höfundurinn bregður og á það ráð um form hennar, sem óhjá- kvæmilega hefði eitt saman nægt til að firra hana heildar- svip. Henni er skipt i fjórtán kafla. 1 þeim fyrsta segir sög- una ungur lögfræðingur, sem er trúnaðarmaður forsætis- og Stefán Júlfusson dómsmálaráðherra, valinn með tilliti til dugnaðar hans og rögg- semi í unghreyfingu flokksins og hefur það hlutverk að vera með í ráðum um viðkvæm fram- Bðkmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN kvæmdaatriði og að nokkru leyti að koma í stað ráðuneytis- stjóra, sem þykir viðsjáll and- stæðingur stjórnarinnar. En í öðrum kafla segir höfundur söguna í þriðju persónu og sömuleiðis í fimmta, níunda og tólfta kafla, enda greinir í þess- um köflum frá því sem „aðstoð- arráðherrann" getur ekki vitað. Hefði auðvitað mátt komast hjá þessu misræmi í gerð sögunnar með því að höfundurinn segði hana alla í þriðju persónu, en svo mætti virðast sem honum hafi verið efnið svo sjálflægt vegna eigin reynslu og sér- stakra kynna sinna af starfs- háttum í stjórnarráði Islands, að svo bezt yrði sagan sannfær- andi, að hann segði frá megin- hluta hennar i égformi. Annars er síður en svo, að sagan hafi ekki allverulega kosti. Þó að lesandann gruni fljótlega, að hverju stefnt er um sögulok, er frásögnin víða gædd slíku lífi, að hún vekur eftirvæntingu lesandans, og ýmsar af persónunum verða honum minnisstæðar. Sem ádeilurit á hágkalegt ranglæti f stjórnsýslu nær og sagan settu marki. Til að gera lesendum minum það nokkurn veginn ljóst, verð ég að geta söguþráð- arins f fáum dráttum. Gamall sýslumaður og bæjar- fógeti í kaupstað á Norðurlandi lætur af embætti. Tengdasonur hans, Björn að nafni, hefur um áratugi verið fulltrúi hjá hon- um, og það er á allra vitorði að hin margvislegu störf i þágu embættisins hafa um langt skeið fyrst og fremst hvílt á honum. Hann hafði fljótt aflað sér vinsælda með forystu i félagsmálum ungs fólks í bæjarfélaginu og sýslunni og með kennslu í gagnfræðaskóla kaupstaðarins, auk þess sem störf hans sem fulltrúa öfluðu honum trausts og hylli. En eftir fárra ára ástrika sambúð lézt hin glæsilega kona hans, þá er hún hafði fætt honum dóttur. Svo varð hann þá hlédrægari en áður, helgaði sig heimi og skyldustöríum, sem hann rækti við sívaxandi vinsældir og virð- ingu. Þegar svo embættið losnaði og hann sótti um það, þótti almennt sjálfsagt, ekki aðeins heima fyrir heldur og út í frá, meðal annars innan heildarsamtaka íslenzkra lög- manna, að hann hlyti veitingu, enda gerðist í fyrstu enginn til að sækja á móti honum. Ágúst, hinn ungi trúnaðarmaður dómsmálaráðherra, var fæddur og uppalinn í grennd við Víkur- kaupstað og hafði notið mikils- verðrar fræðslu hjá Birni full- trúa, og auðvitað taldi hann engan annan geta komið til greina við veitingu embættisins og raunar var ráðherrann á sömu skoðun, en hann vildi samt fara með gát, grunaði af reynslunni, að sitthvað kynni að geta komið til greina í slíku máli sem þessu. Og sú varð'og raunin. Tveir menn norðan úr Víkurkaupstað komu á hans fund og kröfðust þess, að em- bættið yrði veitt ákveðnum og virkum flokksmanni, þar eð þá vantaði áhrifamenn um fylgi flokksins í kaupstaðnum. Annar þessara manna, Gunnar Magnúsen, var bankastjóri norður þar og auk þess þing- maður stjórnarflokksins í kjör- dæminu. Hinn var Þórður Jóns- son, bæjarfulltrúi flokksins í Víkurkaupstað og formaður kjördæmaráðs. Þeir fundu Birni það til foráttu, að hann léti stjórnmál afskiptalaus og hefði hvorki fengizt til að styðja flokk þeirra beint né óbeint. Ráðherra gerði sér fyllstu grein fyrir verðleikum Björns og fór undan í flæmingi, lét þá félaga skilja að þeir yrðu að minnsta kosti að hafa á takteinum einhvern vel fram- bærilegan umsækjanda um em- bættið sem keppinaut Björns,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.