Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 39 Skotamir unnu nrvalið 3-0 JÍ)RDANIIILL College, skoska blakliðið sem er hér á landi í boði Þróttar, lék á mánudagskvöldið sinn annan leik og mætti þá Reykjavíkurúrvali. Skotarnir gerðu sér lftið fyrir og unnu úr- valið 3—0 Það var kannski ekki við svo miklu að búast af hálfu ósamæfðs Reykjavíkurúrvals, en í byrjun leiksins náði liðið góðri forystu en undir lokin tókst Skotunum að jafna og merja sigur 16—14. Þeir mörðu einnig sigur í næstu hrinu 15—13 en síðustu hrinuna unnu þeir nokkuð auðveldlega, enda öll barátta úr okkar mönnum. Leikaðferð skoska liðsins er þróaðri en okkar liða og byggist hún á betri boltatækni hjá þeim. Þeir lauma mjög mikið og eru mjög útsjónarsamir við netið, horfa vel á hávörnina, því þeir eru engir afbragðs skellarar. Reykvíkurúrvalinu gekk illa að setja undir laumurnar, svo var uppspilið mjög slakt, enda fram- spilið oft svona og svona. Markalaust jafntefli hjá KR og Víkingi KR og Víkingur deildu stigum í leik sínum í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu sem fram fór á Mela- vellinum í fyrrakvöld. Hvorugt liðið skoraði mark, þrátt fyrir að bæði ættu allgóð tækifæri til þess. Hins vegar bauð leikurinn í senn upp á mjög svo bærileg tilþrif hjá Urðn að takmarka þált- tökn í aðalkeppninni báðum liðum, milli þess að um hálfgert hnoð og leikleysu var að ræða. Lögðu bæði liðin greinilega áherzlu á varnarleik, — hafa sennilega gert sér grein fyrir því fyrirfram, að lítil von var um aukastig i þessum leik. Næsti leikur i Reykjavikurmót- inu verður á laugardaginn og mætast þá Fram og KR á Mela- vellinum kl. 14.00 Staðan í Reykjavíkurmótinu eftir fyrstu umferðina er þessi: Fram 1 1 00 4:0 3 Valur 1 1 00 4:0 3 KR 1 0 1 0 0:0 1 Víkingur 10 10 0:0 1 Ármann 10 0-1 0:4 0 Þróttur 10 0 1 0:4 0 ÍSLANDSMÓTINU í júdó lauk s.l. laugardag með keppni í flokk- um drengja 11—14 ára. Keppendum var fyrst skipt i tvo aldursflokka og síðan voru tveir þyngdarflokkar í hvorum aldurs- flokki. Geysilega mikil þátttaka er í þessum flokkum og reyndist óhjákvæmilegt að takmarka þátt- tökuna i aðalkeppninni. Var því forkeppni háð í júdófélögunum, en hvert félag hafði siðan heimild til að senda tvo keppendur í hvern flokk. Urslit urðu sem hér segir: 11—12 ára: Léttari flokkur: Stefán Kristjánsson, UMF Sveinn Sveinsson, Isaf. Karl Asgeirsson, tsaf. Garðar Magnússon, UMFG Þyngri flokkur: Jón Kr. Haraldsson, JFR Halldór Smith, Gerplu Kristján Valdimarsson, A Þorfinnur Andersen, UMFG 13—14 ára: Léttari flokkur: Finnbogi Jóhannesson, ísaf. Gísli Bryngeirsson, Gerplu Gunnar Jóhannesson, UMFG Kristinn Kristinsson, Isaf. Þyngri flokkur: Óli Bieldvedt, Á Einar Ólafsson, Isaf. Ketilbjörn Tryggvason, JFR Óli Antonsson, Isaf. Meistara- keppnin í kvöld fer fram einn leikur t meistarakeppni KSÍ t knattspyrnu. Eru það Framarar og Keflvikingar sem mætast á Melavellinum og hefst leikurinn kl. 20.00. StaSan i mótinu er nú sú. aS Keflavik hefur hlotiS 3 stig. Akranes 2 stig og Fram 1 stig. MeS sigri i leiknum I kvöld standa þvi Keflvikingar mjög vel aS vigi i baráttu meistaranna, en sem kunnugt er taka þau liS þátt I meistarakeppninni sem eiga rátt á þátttöku I Evrópubikarkeppninni næsta sumar. Fyrirliði Partizan, Horvant, skorar úr vftakasti f leik FH og Partizan f Evrópubikarkeppninni. Þann leik vann Partizan, en nú fær FH tækifæri til hefnda. 12 leikmenn Partizan hafa á sjötta Imnárað landsleiki að bái LEIKMENN handknattleiksliðs Partizan Bjelovar sem kom hing- að á föstudagskvöldið I boði Vals- manna og leika hér þrjá leiki hafa samtals að baki á sjöunda hundrað landsleiki fyrir Júgóslavíu. Hafa 12 leikmanna liðsins leikið fleiri eða færri landsleiki, en leikjahæstur er fyrirliði liðsins, Horvant, en hann er jafnframt fyrirliði júgóslavn- eska landsliðsins. Aðrir leik- menn liðsins er hingað kemur eru eftirtaldir og eru landsleikir þeirra i sviga: Nims (41), Pri- baninc (128), Prodanic (14), Vid- ovic (44), Matus (6), Jandrokovic (6), Keres (44), Martinovic (44), Serdarusic (44), Vidakovic (3) og Bardic (3). Markvörður Partizan-liðsins, Nims, er nú talinn einn bezti markvörður sem júgóslavneski handknattleikurinn hefur yfir að ráða, og er talið að hann verði innan tíðar arftaki hinna frægu markvarða Arslanagic og Zorkos. Nims er vinsælastur allra mark- varða I Júgóslaviu, og er talið að hann fái fast sæti i landsliðinu á næsta keppnistímabili, þar sem líkur benda til þess að tveir fyrr- nefndir markverðir fari í atvinnu- mennsku til Þýzkalands. Nims er á þrítugsaldri og hefur þegar leikið 41 landsleik fyrir Júgóslaviu. Þykir hann sérstakt prúðmenni á leikvelli, og fátt sem kemur honum úr jafnvægi. Fróð- legt verður að sjá hvernig is- lenzku skyttunum vegnar í viður- eign við hann, en ekki er ótrúlegt að hinum snjöllu köppum i FH- liðinu, Geir Hallsteinssyni og Viðari Símonarsyni takist að gera honum lifið svolítið leitt í leikn- um í Laugardalshöllinni á laugar- daginn. Skíðaskáli á faraldsfœti HIN ýmsu félagasamtök eru sífellt að bæta aðstöðu skíðafólks í Bláfjöllum. Nokkur félög hafa sett þar upp skíðaskála, nú síðast skíðadeild Fram. Skáli Fram stend- ur í svokölluðu Eldborgargili og þar er félagið einnig með skíðalyftu. Á myndinni sést hvar verið er að flytja skála félagsins inn í Bláf jöll. Guðgeirmeð og vann 6:1 GUÐGEIR Leifsson lék í gærkvöldi að nýju með Charleroi eftir að hafa verið frá í tvo leiki vegna meiðsla. Hvort það hefur verið endurkomu Guðgeirs eða einhverju öðru að þakka, þá vann lið hans stórsigur. Úrslitin urðu 6:1 og það gegn Liegois. sem er ofarlega í 1. deildinni. Guðgeir skoraði ekki í leiknum, en átti mjög góðan leik. Standard Liege gerði jafntefli 2:2 T gærkvöldi og skoraði Ásgeir jöfnunar- mark Standard úr vitaspyrnu 1 5 mínútum fyrir leikslok. • ♦ ** V # V,#' V^ v^ íslantísmeistararnir mörðu sigur gegn Kft í vítakeppni FH-INGAR SIGRUOU KR með 25—24 f undanúrslitum f bikarkeppni HSl. sem fram fór f Hafnarfirði í gærkvöldi. Verða það þvf FH og Valur sem leika úrslitaleik keppninnar. Leikurinn f gærkvöldi var lengst af mjög jafn og spennandi. KR-ingar höfðu þó oftast betur, og náðu sex marka forustu um tfma f fyrri hálfleik. Staðan i hálfleik var 11 —10 fyrir KR. f seinni hálfleik munaði sjaldan meira en einu marki, og þegar leiktiminn var að renna út var staðan 18—17 fyrir KR. en á sfðustu sekúndum leiksins, tókst Birgi Finnbogasyni, markverði FH-liðsins, að skora jöfnunarmark liðs sfns með skoti yfir endilangan völlinn. Leikurinn var þvi framlengdur um 2x5 mfnútur, og þar fór á sama veg — FH-ingum tókst að jafna 21 — 21, þegar timinn var að renna út. Fór þá fram vitakastskeppni, og skaut hvort lið 5 vftaskotum. Skoruðu FH-ingar úr 4 þeirra en KR-ingar úr þremum. Gat þvf sigur íslandsmeistarana yfir 2. deildar liðinu ekki verið naumari, og ef horft er til leiksins verður ekki með sanni sagt, að FH-ingar hafi átt sigurinn skilið — KR-ingar voru betri en það var tvfmælalaust leikreynsla nokkurra leikmanna FH-liðsins sem skipti sköpum. Pólverji sigraði í léttvigt ZBIGNIEW Kaczmarek frá Póllandi varð sigurvegari í léttvigt á Evrópumeistaramótinu I lyftingum 1 Austur-Berlfn, en keppni f þeim flokki lauk f fyrrakvöld. Lyfti Kaczmarek samtals 305,0 kg, snaraði 135,0 kg og jafnhattaði 170 kg. Helztu úrslit í þessum þyngdarflokki urðu: 1. Zbigniew Kaczmarek, Póllandi 135,0—170.0—305,0 2. Jan Lostowski, Póllandi 132,5—170,0—302,5 3. Sergei Pevsner, Sovétrfkjunum 125,0—172,5—297,5 4. Werner Schraut, V-Þýzkalandi 127,5—167,5—295,0 5. Dusan Drska, Tékkóslóvakfu 125,0—167,5—292,5 6. Ulrich Muskatewitz, A-Þýzkalandi 120,0—165,0—285,0 7. Daniel Senet, Frakklandi 122,5—157,5—280,0 8. Alexandru Kiss, Rúmenfu 120,0—160,0—280,0 9. Walter Legel, Austurrfki 120,0—155,0—275,0 10. Gottfried Landthaler, Austurrfki 117,5—155,0—272.5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.