Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRIL 1976
29
Björn Arnórsson, Ásgeir Danfelsson og Már Guðmundsson á blaða-
mannafundi Fylkingarinnar.
Fylkingin-stuðnings-
deild Fjórða alþjóða-
sambandsins
_jr
BUR kaupir Freyju
fyrir 350 milljónir
UTGERÐARRÁÐ samþykkti á
fundi sfnum 4. marz að leita
heimildar borgarráðs um kaup á
skuttogaranum Freyju RE 38.
Borgarráð heimilaði þetta á fundi
9. marz. Umræður urðu um málið
f borgarstjórn sfðastliðið fimmtu-
dagskvöld.
Ragnar Júlfusson (S) fylgdi til-
lögunni úr hlaði. Hann sagði til-
boða hafa verið leitað og upphæð
þeirra hefði verið frá rúmlega 200
milljónum króna upp i 600
milljónir og komu tilboðin erlend-
is frá. Sagðist hann hafa rætt við
sjávarútvegsráðherra um hugsan-
leg skipakaup erlendis frá. Svar
ráðherra var stutt: „Hvorki
B.U.R. né nokkur annar aðili fær
í dag að flytja inn nýjan eða
notaðan skuttogara.“ Þegar þessa
upplýsingar lágu fyrir voru
hafnar viðræður um kaup á
Freyju RE 38. Ragnar lagði ríka
áherzlu á, að Freyja RE hefði lagt
afla sinn upp hjá B.U.R. og ef
skipið yrði selt úr borginni tapað-
ist hráefni það sem skipið hefði
aflað fvrir fiskvinnslustöðvar
B.U.R. Þá minnti Ragnar á þá
staðreynd, að Þormóður Goði RE
væri tekinn að lýjast og að fljót-
lega þyrfti að taka ákvörðun um
endurnýjun botnplatna í honum.
Ragnar sagði, að nú væri unnið að
heildarúttekt á rekstri B.U.R. og
að það lægi ljóst fyrir, að endur-
nýjun skipastólsins væri nauðsyn-
leg og ennfremur að bæta þyrfti
aðstöðu til fiskmóttöku. Benti
Ragnar á, að þessi kaup mættu
ekki tefja fyrir framkvæmdum
við Bakkaskemmuna og sagðist,
að þessu tvennu fengnu, fullviss
um, að rekstrarafkoma B.U.R
myndi stórbatna. Sagði hann það
stefnu útgerðarráðs, að B.U.R.
yrði vel rekið fyrirtæki, sem yrði
lyftistöng fyrir atvinnulífið í
borginni. Lýsti hann siðan Freyju
RE 38. Hún er smíðuð í Frakk-
landi 1972, 46.55 m á lengd, 9.3 m
á breidd og fiskilest er 350 rúmm.
Áhöfnin er 19 manns. Skipið er
búið fullkomnum fiskvinnslu-
tækjum, isvél og Simrad fiski-
leitartækjum.
Vé.lin er af gerðinni British
Polar, 1800 hestöfl, og ganghraði
13.5 hnútar. Heildarverð er um
350 milljónir króna. Skipið
afhendist fullbúið með veiðarfær-
um en fer fyrst í slipp og verður
skoðað af umboðsmanni Lloyds á
tslandi. Utgerðarráð hafði einnig
látið skoða skipið sérstaklega og
fengið til þess sérfræðinga bæði
frá B.U.R. og aðra. Niðurstöður
þessa voru, að engin vandkvæði
ættu að vera á að gera skipið út
með góðum árangri. Ragnar lauk
máli sinu með því að skora á
borgarfulltrúa að samþykkja
kaupin.
Kristján Benediktsson (F) tók
næst til máls og taldi málið eigi
nægilega vel undirbúið og
forsendur kaupanna ekki nægar.
Hann sagði þetta óhagkvæm kaup
og önnur brýnni verkefni lægju
fyrir hjá B.U.R. sem fyrst ætti að
Ijúka. Kristján taldi, að B.U.R.
ætti að gera samninga um hrá-
efniskaup við skipaeigendur.
Þá sagði hann, að aðalverkefni
hjá B.U.R. væri að flytja löndun
úr austurhöfninni í vesturhöfn-
ina og að innrétta Bakkaskemmu
Framhald á bls. 28
A BLAÐAMANNAFUNDI, sem
Fylkingin boðaði til, kom fram að
á 30. þingi sfnu ákvað Fylkingin
að sækja um aðild að Fjórða
alþjóðasambandinu. Af þvf til-
efni var nafni samtakanna breytt
I Fylking byltingarsinnaðra
kommúnista, stytt Fylkingin.
Voru allir félagar samtakanna
samþykkir þessari ákvörðun en á
bak við hana liggur löng umræða
sem rekin hefur verið á lýðræðis-
legan hátt innan samtakanna,
segir i fréttatilkynningu sem af-
hent var á fundinum.
Þá kom fram, að á 29. þingi
samtakanna tóku þau afstöðu í
flestum málum sem í grundvallar-
atriðum var samhljóða stefnu
Fjórða alþjóðasambandsins. Þá
var þó ekki tekin ákvörðun um
inngöngu ■ sambandið þar sem
rétt þótti að gefa öllum félögum
betra tækifæri til að kynna sér
málið, þrátt fyrir að yfirgnæfandi
meirihluti þeirra sem sóttu þingið
hefði verið inngöngu í Fjórða al-
þjóðasambandið fylgjandi.
Fjórða alþjóðasambandið var
stofnað árið 1938 af fylgismönn-
um Vinstri andstöðunnar innan
Komintern, en Leon Trotsky var
helzti talsmaður hennar. Franska
deild Fjórða alþjóðasambandsins
er nú öflugasta deildin og hefur
stuðlað að uppbyggingu deilda i
öðrum löndum.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur, að Fj órð a alþjóða-
sambandið hafi haldið því fram,
að úrslit heimsbyltingarinnar
verði ekki ákveðin I nýlendum
heldur í heimsvaldalöndunum og
þá til að byrja með I Evrópu. Þá
segir að vaxandi barátta i Evrópu,
sérstaklega í Portúgal og á Spáni,
en einnig á Italíu og í Frakklandi,
hafi sýnt fram á réttmæti þess-
arar ályktunar en Fjórða alþjóða-
sambandið telur að sigur
byltingarinnar í einhverju þess-
ara landa mundi marka djúp spor
í Evrópu og hafa tilhneigingu til
að breiðast út og möguleiki væri á
keðju byltinga í Evrópu.
Ennfremur segir í fréttatil-
kynningunni, að helzta verkefni
Fjórða alþjóðasambandsins á
næstu árum sé að vinna að því að
þessi möguleiki verði að raun-
veruleika og muni Fylkingin sem
stuðningsdeild Fjórða alþjóða-
sambandsins taka virkan þátt I
þessu starfi.
I lok fréttatilkynningarinnar
segir að Fylkingin líti svo á að
þrátt fyrir að hugmyndalegur
klofningur verkalýðsstéttarinnar
sé staðreynd sem óhjákvæmileg
sé, eigi það ekki að þurfa að koma
I veg fyrir baráttueiningu gegn
auðvaldinu.
AUGLÝSrNGASÍMINN ER:
22480
3n«rgunb!abib
HUSGAGNA
Sérstök sölusýning á sænskum raðstóla- og sófasettum.
Einstakt tækifæri til að tryggja sér faliegt sófasett
eða raðstóla á sýningarverði.
Núverandi sýningarverð og væntanleg verð á ULFERTS-húsgögnum.
TEGUNDIR
SÝNINGARVERÐ NÆSTA VERÐ YÐAR ÁGÓÐI
KLACKEN-stólar 16.600.— 21.000,— 4.400,—
KLACKEN-borð OLÉ-raðstólar 9.000.— 11.500,— 2.500,—
(Beinir og horn) TUFF-raðstólar 24.700,— 30.000.— 5.300.—
(Beinir og horn) 19.800,— 26.000,— 6.200,—
ASTOR-raðstólar. Beinir. 37.200,— 45.000,— 7.800,—
ASTOR-raðstólar. Horn. ASTOR raðstólasett: 6 sæta. 48.900.— 60.000,— 11.100,—
(3 + 3) 258.300,— 323.000.— 64.700.—
DRABAND-sófasett: 3 + 2+1 381.200.— 500.000,— • 118.800,—
DERBY-sófasett: 3 + 2+1 211.500.— 264.000,— 52.500.—
RONDO-sófasett: 3 + 2+1 201.600,— 260.000.— 58.400,—
ULFERTS SYNINGIN ER OPIN: 2. apríl-24. apríl
mánud.-fimmtud. kl.9-18
föstudaga kl. 9-19
laugardaga kl.9-12
HUSGAGNAVERZLUN
kristjAns SIGGEIRSSONAR HF.
Laugðvegi 13 Reykjavík simi 25870