Morgunblaðið - 16.06.1976, Síða 1
32 SIÐUR
Fran jieh fellst á
friðargæzluliðið
Beirút, 15. júní AR Reuter.NTB
MAHMOUD Riad, framkvæmda-
stjóri Arababandalagsins sagði f
kvöld að forseti Lfbanons,
Suleiman Franjieh, hefði sam-
þykkt tillögu bandalagsins um
sameiginlegt friðargæzlulið Ara-
balanda í Líbanon. Riad kom í
dag til Beirút frá Damaskus og
kvaðst hafa átt árangursríkar við-
ræður við Franjieh áður en hann
fór aftur til Damaskus.
Hann ræddi ekki við nýkjörinn
forseta, Elias Sarkis, en Sarkis
ræddi f þess stað við Abdel Salam
Jalloud, forsætisráðherra Lfbýu,
sem hefur einnig reynt að miðla
málum f borgarastrfðinu. Jalloud
sagði að Sýrlendingar hefðu
fallizt á að hörfa með 12.500
manna herlið sitt til austurhluta
Líbanons, en sagt að þeir yrðu um
kvrrt í landinu unz friður kæmist
á.
Jafnframt sögðu Palestfnu-
menn frá bardögum við Sýrlend-
inga f Austur-Lfbanon en þeir
voru minniháttar. Þó herti herlið
Sýrlendinga kverkatak sitt á
höfnum og borgum Líbanons f þvf
skyni að neyða vinstrimenn og
Paiestínumenn til að gefast upp.
Herlið er við öllu búið beggja
vegna landamæra Sýrlands og
Iraks og hættuástand hefur
skapazt í sambúð landanna.
Vinstriforinginn Kamal Jumblatt
hefur beðið Irak um stuðning
fallhlífaliðs og sýrlenzka stjórnin
óttast íhlutun íraka í líbanska
borgarastríðinu.
Sýrlenzki flugherinn ákvað í
dag að dæma Palestínumann úr
sýrlenzka flughernum að honum
fjarstöddum fyrir að flýja í flug-
vél sinni til íraks. Talsmaður sýr-
lenzka flughersins segir að flug-
maðurinn, Mahmoud Yassin
höfuðsmaður, hafi flúið að undir-
lagi palestínskra leiðtoga. Hann
Framhald á bls. 18
Götulífið.
Ljósm. RAX
„Ohultir í NATO
segir Berlinguer
Róm, 15. júni, AP.
Reuter.
ÍTALSKI kommúnistaleiðtoginn
Enriquo Berlinguer sagði f dag að
Italir ættu ekki að fara úr NATO
þvf að þeir væru óhultir í banda-
Iaginu og öryggi þeirra væri bet-
Olíuleit á
Barentshafi
undirbúin
Ósló, 15. júni, AP.
Reuter.
NORÐMENN hófu f dag rann-
sóknir til undirbúnings olfuleit á
Barentshafi þrátt fyrir óleystan
ágreining þeirra og Rússa um lfn-
una, sem á að skipta landgrunn-
inu milli þeirra.
Þriðju lotu viðræðna þeirra I
Moskvu lauk f dag án þess að
árangur næðist eins og við hafði
verið búizt. Viðræðunum verður
haldið áfram og síðar ákveðið
hvenær næsti fundur verður
haldinn.
hans er spáð sigri. Hann vildi
engu spá um úrslitin í viðtalinu.
Þetta er skýlausasta skýringin
sem fram hefur komið í kosninga-
baráttunni á ástæðunum fyrir því
Framhald á bls. 18
Heilsu
Maos
hrakar
PekinK. 15. júnl. NTB.
HEILSU Mao Tse-tungs hefur
greinilega hrakað að undan-
förnu. Til marks um það er að
hann tók ekki á móti forseta
Madagaskar, Didier Ratsiraka,
sem fór frá Peking f dag eftir
fimm daga opinbera heim-
sókn.
Ratsiraka forseti er fyrsti er-
lendi þjóðhöfðinginn sem kom-
ið hefur til Peking á undan-
förnum árum án þess að ganga
á fund Maos.
,,Mao formaður er enn mjög
önnum kafinn þrátt fyrir há-
an aldur,“ sagði opinber tals-
maður í Peking f dag. „En mið-
stjórn kommúnistaflokksins
hefur ákveðið að ekki skuli
efnt til fleiri funda Maos og
erlendra gesta.“
Þar með er víst að fréttir um
heilsufar Maos verði strjálli en
þær hafa verið að undanförnu.
Upplýsingar um Mao hafa að-
allega borizt frá útlendingum
sem hafa hitt formanninn þeg-
ar þeir hafa verið í Kína.
Síðasti útlendingurinn sem
ræddi við Mao var forsætisráð-
herra Pakistans, Zulfikar Ali
Bhutto. Þeir hittust 27. maí og
Bhutto sagði á blaðamanna-
fundi skömmu siðar að Mao
hefði verið veikur og kvefaður
þegar þeir ræddust við.
Meðal annarra erlendra leið-
toga sem hafa rætt við Mao að
undanförnu eru forsætisráð-
herrar Singapore og Nýja-
Sjálands.
Ekkert
sannað
áLeone
Washington. 15. júní. AP.
TVEIR frammámenn banda-
rfskrar þingnefndar sem hefur
rannsakað starfsemi fjölþjóða-
fyrirtækja sögðu í dag að þeir
hefðu engar sannanir undir
höndum um að Giovanne Leone
ltalfuforseti væri viðriðinn mútu-
greiðslur frá Lockheed-
flugvélafyrirtækinu.
Frank Church öldungadeildar-
maður, formaður nefndarinnar,
og Charles Percy öldungadeildar
maður, helzti fulltrúi repúblikana
í nefndinni, lýstu þessu yfirtil að
kveða niður orðróm sem hefur
gosið upp í sambandi við kosning-
arnar á italíu 20. júní.
John O. Pastore öldunga-
deildarmaður skýrði frá þessum
sögusögnum fyrir helgi þegar öld-
ungadeildin samþykkti ályktun
þar sem lýst var yfir stuðningi við
áframhaldandi lýðræði á italiu.
Church og Percy stjórnuðu
rannsókn nefndarinnar á greiðsl-
um Lockheed til erlendra emb-
ættismanna í sambandi við sölu
á flugvélum fyrirtækisins og
sögðu að nefndin hefði engar
sannanir fengið i hendur um ,,að
Leone forseti hefði tekið við eða
Framhald á bls. 18
Norðmenn
hræða burt
250 togara
Osló, 12. júní, AP. NTB.
NORÐMENN hræddu burt 250 er-
lenda togara úr 12 mflna land-
helgi sinni f dag með þvf að dæma
útgerð vestur-þýzka verksmiðju-
skipsins Begulus til að greiða
sekt að upphæð 1.5 milljónir
norskra króna fyrir ólöglegar
veiðar skipsins innan markanna.
Skipstjórinn Hans Brehmer,
neitaði sakargiftum, en hann var
dæmdur i 5.000 króna sekt og
fyrsti stýrimaður i 15.000 króna
sekt. Þeir verða að mæta fyrir
rétti i Noregi í haust.
Jafnframt lauk í dag viðræðum
Jens Evensens hafréttarráðherra
og fulltrúa pólsku stjórnarinnar
með bráðabirgðasamkomulagi um
drög að samningi um útfærslu
norsku landhelginnar í 200 milur.
Annar fundur verður haldinn í
október og nóvember i Osló og
reynt að ná skjótu samkomulagi.
Berlinguer
ur borgið f bandalaginu en utan
þess eða f Varsjárbandalaginu.
Hann sagði að NATO væri sér
trygging fyrir því að bíða ekki
sömu örlög og Alexander Dubcek
þegar hann reyndi að koma á
„kommúnisma með mannlegu yf-
irbragði" í Tékkóslóvakíu með
þeim afleiðingum að Varsjár-
bandalagsrikin gerðu innrás í
landið.
Berlinguer sagði þetta í viðtali
við Corriere della £era, stærsta
blað italíu, fjórum dögum fyrir
þingkosningarnar þar sem flokki
Öslóar samningurinn
Rússum áhyggjuefni
Tokyo, 15. júní. AP
KÍNVERJAR sökuðu
Rússa í dag um að færa
sér í nyt deilu íslendinga
og Breta í því skyni að
þenja út áhrifavald
Sovétríkjanna í Norður-
Evrópu.
„Sovézku endur-
skoðunarsinnarnir hafa
lengi ágirnzt hið hern-
aðarlega mikilvæga
— segir frétta-
stofa Kínverja
ísland,“ sagði fréttastof-
an Hsinhua.
Fréttastofan segir að við upp-
haf fiskveiðideilu íslendinga og
Breta hafi „sovézka Tass-
fréttastofan Iævislega kallað
samskipti þessara tveggja full-
valda ríkja árekstra stórs og
lítils samherja og reynt að
magna og færa sér f nyt deiluna
með því að hella óspart olíu á
eldinn og sá fræjum sundur-
lyndis."
Hsinhua segir að Rússar séu
órólegir vegna samkomulags
íslendinga og Breta i Ösló^
2,júní.
Fréttastofan bætir því við að
„bætt samskipti Breta og
Islendinga séu ekki aðeins í
þágu landanna beggja heldur
einnig til þess fallin að tryggja
öryggi viðkomandi heimshluta
og njóti því stuðnings Evrópu-
landa sem fagni þeim.“