Morgunblaðið - 16.06.1976, Blaðsíða 25
MORCiUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JUNÍ 1976
25
fclk í
fréttum
+ Það hefur löngum verið
skylda konunglegs fólks að
halda litlar tölur endrum og
eins eða taka fólk tali svona
eins og f kurteisisskvni. Mar-
grót prinsessa lét þó allar kon-
unglegar venjur lönd og leið
þegar hún brá sér á bak við
eftir að sýningu lauk á ballett-
inum „Þvrnirós" og spurði
Nicholas Johnson. dansmev,
hvort hún væri í sokkabuxum
undir búningnum. Nicholas lét
þá buxurnar falla og svaraði
kurteislega: „Já, vðar tign.“
Margrét prinsessa: „Eruð þér f
sokkabuxum?"
+ Þeir félagarnir Davis og Tammy horfa fullir aðdáunar á hundinn
Sylvester sem getur gengið upp og niður stiga á framfótunum
einum saman. Það er þó ef til vill meiri ástæða til að taka ofan fvrir
eiganda hans, frú Leslie Carroll, sem f full tvö ár unni sér ekki
hvfldar fyrr en hún hafði kennt hundinum þessar kúnstir.
Stomu Yamashta
+ Ekki er ólíklegt að 28 ára
gamall Japani, Stomu
Yamashta að nafni, komi til
með að s!á í gegn í poppinu f ár
með verki sem hann kallar
„Go“. Frumflutningur þess fór
fram f London nú á dögunum
og ásamt honum komu þar
fram Stevie Winwood, sem lftið
hefur heyr/t til síðan hann var
með Traffie og Blind Faith,
Phil Manzanera úr hljómsveit-
Stevie Winwood.
inni Roxy, AI Dimeola úr
Return To Forever, Klaus
Schulze úr Tangerine Dream
og I!..vu.< Gee úr Traffie.
Faðir Yamashta var stjórn-
andi sinfóníuhljómsveitar f
Kyoto og þrettán ára gamall
skrifaði Stomu sfna fvrstu tón-
list fyrir kvikmvnd og nú hefur
hann nýlokið við að semja tón-
list við sfna 17. mynd.
Lorna Luft er enn laus og liðug
en hefur verið orðuð við Burt
Reynolds.
„Ég vil vera
ég sjálf, ”
segir Lorna Luft
+ Mér dytti aldrei í hug að fara
í felur með að ég er dóttir Judy
Garland og systir Lizu Minnelli
en ég vil þó fyrst og fremst vera
ég sjálf.“
Það er Lorna Luft sem tekur
þannig til orða, 23 ára gömul
söngkona sem getið hefur sér
gott orð bæði í Bandarfkjunum
og Evrópu, þar sem hún hefur
komið fram að undanförnu.
Lorna Luft er dóttir leikkon-
unnar Judy Garland og kvik-
myndaframleiðandans Sid Luft
og er sagt að hún hafi skapferli
sitt — ákafann — frá föður
sfnum. Lorna Luft telur, að það
að vera úr frægri fjölskyldu
hafi vissulega opnað henni
margar dyr.
„Fólki þvkir alltaf gaman að
sjá dóttur Judy Garlands, en
þegar á reynir er engin misk-
unn sýnd. Þá verð ég að sýna og
sanna að mér sé ýmislegt til
lista lagt og lifi ekki bara á
frægð móður minnar og s.vst-
ur,“ segir Lorna.
Liza Minnelli.
Judv Garland.
I.cikflokkurinn frá Akureyri fyrir utan Iðnó, þar sem hann mun flytja
Glerdýrin. Á myndinni eru, sitjandi, Sigurveig Jónsdóttir og Aðal-
steinn Bergdal. Standandi eru Eyvindur Erlendsson, Saga Jónsdóttir
og Þórir Steingrímsson.
Akureyringar
með Glerdýrin
á listahátíð
Leikflokkur frá Akureyri cr
kominn til Reykjavfkur til að
flytja á lokadegi listahátfðar
Glerdýrin eftir Tennessee Willi-
ams f Iðnó. Verður sýningin kl.
20.30 á miðvikudagskvöld og sfð-
an mun flokkurinn endurtaka
sýninguna á föstudagskvöld. Er
þetta fyrsta framlag leikfélags ut-
an Reykjavfkur til listahátfðar.
Leikritið var sett upp um jól í
vetur. Gísli Halldórsson, sem
hafði verið fyrir norðan og leikið í
Kristnihaldi undir jökli, er leik-
stjóri. Leikfélag Akureyrar sem
sýndi Kristnihaldið á nokkrum
stöðum á Austur- og Suðurlandi á
leiðinni suður, sýnir Glerdýrin
tvisvar í Reykjavík, og komið hef-
ur til orða að fara vestur um og
sýna þau á nokkrum stöðum á
leiðinni heim, að því er Erlendur
Eyvindsson, leikhússtjóri, tjáði
blaðamönnum.
Leikritið Glerdýrin gerist á
kreppuárunum i Bandaríkjunum
og fer fram á tveimur tímum.
Tom segir þar frá lifsreynslu
sinni. Inn í hana dragast myndir
af uppvexti hans og fjölskyldu,
sem hann skildi við, en sem ekki
vilja skilja við hann, eins og Ey-
vindur orðaði það. Sigurveig
Jónsdóttir leikur móðurina, Am-
öndu, Aðalsteinn Bergdal Tom
son hennar, Saga Jónsdóttir Láru
dóttur hennar og Þórir Stein-
grímsson gestinn, Jón O'Connor.
Leikmyndina gerði Jónas Þór
Pálsson frá Sauðárkróki. Leikur-
inn var færður upp hér í Reykja-
vík fyrir 18 árum, en hefur ekki
verið leikinn hér síðan. Þá lék
Gfsli Halldórsson, sem nú er leik-
stjóri, hlutverk Toms. Ekki er þó
notuð sama þýðingin sem þá. Nú
er leikritið flutt í þýðingu Gisla
Ásmundssonar. Sýningin á Gler-
dýrunum í meðförum LA hlaut
góða dóma f vetur, er hún var
sýnd fyrir norðan.
Leikfélag Akureyrar starfar nú
með miklum blóma, og var metað-
sókn í vetur. Þá höfðu rúmlega
allir Eyfirðingar komið i leikhús-
ið, eftir tölunúm að dæma. Þetta
er þriðja árið, sem leikhúsið er
rekið sem atvinnuleikhús, með
styrk frá ríki og bæ. Fastráðnir er
7'A starfsmaður og um 40 manns
koma inn í sýningar á vfxl. Venju-
lega er leikið á föstudögum og
sunnudögum í gamla samkomu-
húsinu á staðnum. 1 vetur voru
auk Gfsla Halldórssonar þeir
Sveinn Einarsson og Steinþór Sig-
urðsson fyrir norðan og unnu sem
gestir við sýningar. í vetur voru
settar upp fimm leiksýningar. Og
nú er byrjað að undírbúa næsta
leikár. Er Karl Guðmundsson m.a.
að þýða eitt af leikritum Aristof-
anesar fyrir leikfélagið.
Vorþing umdæmisstúku nr. 1
UMDÆMISSTlIKAN nr. 1 hélt
vorþing sitt f Hafnarfirði hinn 29.
f.m. Var þingið mjög fjölmennt
og var almennur áhugi á þvf að
efla Góðtemplararegluna sem
mest f baráttu hennar gegn
áfengisbölinu, segir f frétt frá
stúkunni.
Ölafur Jónsson, sem verið hef-
ur umdæmistemplar í um það bil
hálfan annan áratuc. baðst undan
endurkosningu.
Umdæmistemplar var kosinn
Stefán H. Halldórsson.
Margar ályktanir og samþykktir
voru gerðar á þinginu og voru
þær helztar, að mótnælt var vín-
veitingum á leiksýningum Þjóð-
leikhússins, menntamálaráðherra
var þakkað fyrir lokun Laugar-
vatnsbarsins, fagnað var vakn-
ingaöldu gegn tóbaksreykingum f
skólum og hvatt var til aukinnar
fræðslu um áfengismál í fjölmiðl-
um, þar sem víða gætti vanþekk-
ingar og hjátrúar um þessi mál
hjá landsmönnum.