Morgunblaðið - 16.06.1976, Blaðsíða 31
MIKIDSKORAI)
í 3. DEILD
<iRliNDFIRniN(iAR lóku
sinn fyrsta loik í þririju deild-
inni um sídustu helsi or voru
móthorjar þcirra lid
llúntftninga. Róðu (irundfird-
insar. som lóku á hoimavelli.
logum ug lofum í leiknum og
unnu mert 5 mörkum gegn
engu. (iústaf Þorsteinsson
gerði 3 af mörkum Grundfirð-
inga, en Sigurþór Þórólfsson
var bezti maóur vallarins í
þessum leik og skoraöi tvíveg-
is.
1 (irindavík léku um sírtustu
helgi lirt (irindavfkur og Vfrtis
og sigrurtu Vírtismenn 6:2.
Einar Björnsson skorarti 2
ntörk fvrir Vfði. en þeir
Gurtmtindur Knútsson. Jónas
Þorsteinsson. Jónatan Ingi-
marsson og Danfel Hálfdánar-
son I ntark hver. Daníel er
þjálfari Vfrtismanna og kom
hann inn á f lok þessa leiks.
Fyrir Grindvíkinga skoruðu
þeir Þorgeir Reynisson og Ein-
ar Jón Ólafsson á ntjög lagleg-
an hátt.
A Hellu léku lirt Ileklu og
Fylkis og lauk leiknunt mert
sigri Fylkis 5—1. eftir art
startan hafrti verirt 4—0 f hálf-
leik. IVIörk Fylkis í leiknum
skorurtu: (iurtmundur Bjarna-
son 3, Raldur Rafnsson og
Olafur Brynjólfsson. en
Andrés Gurtmundsson skorarti
mark heimamanna. Var þetta
annar leikur Fylkis í deildinni
en í fvrsta leik sínum sigrarti
Fylkir lirt Þórs frá Þorláks-
höfn 2—0. 1 kvöld fer fram
mjög mikilvægur leikur fvrir
Fylki á heimavelli þeirra f Ar-
hag er þeir leika virt KR-inga
í I. flokki. Takist Fylki art
vinna sigur f þeim leik örtlast
félagið rétt til þess art taka
þátt í Re.vkjavfkurmótinu f
meistaraflokki á næsta
keppnistfmabili.
A laugardaginn léku svo í
Borgarnesi lirt Skallagrfms og
Ilérartssambands Stranda-
manna. Lauk leiknum mert
sigri Skallagrfms 4—2. eftir art
startan hafrti verirt 2—1 í hálf-
leik. Skaltagrfmi f vil.
------ « »
Markaregn
í bikarnum
KEPPNIN i þriSju deild á Aust
fjórðum er enn ekki byrjuð. en
um sfðustu helgi fóru nokkrir
leikir fram i bikarkeppninni fyrir
austan. Þróttur frá Neskaupstað
lék þá gegn Val frá Reyðarfirði og
sigruðu Norðfirðingar með yfir-
burðum. 8:0. Austri átti hins veg-
ar i mestu brösum með lið KSH
og sigraði aðeins 2:1. þó að leikið
hafi verið á Eskifirði Þá léku
Leiknir og Einherji á Fáskrúðsfirði
og sigruðu heimamenn 5:1, mörk
Leiknis gerðu þeir Stefán
Garðarsson (3), Guðmundur
Gunnþórsson og loks gamli kapp-
inn Benedikt Valtýsson frá
Akranesi. sem nú þjálfar Leikni.
Þjólátíðarmótið
ÞJÓÐHATÍÐARMÓTIO i frjálsum
íþróttum hefst i kvold og mun
það að þessu sinni fara fram á
Melavellinum vegna fram
kvæmda við endurbætur á
Laugardalsvellinum.
í kvóld verður keppt i eftirtóld
um greinum: 110 m grinda
hlaupi. 200 m hlaupi, 200 m
htaupi kvenna. 1500 m hlaupi.
þrístökki, hástokki. kringlukasti,
1000 metra boðhlaupi. lang
stókki kvenna og kringlukasti
kvenna
Á morgun, 17. júni. verður
keppt i eftirtóldum greinum:
konur: 100 m grindahlaupi.
100m hlaupi, 400 m hlaupi. 800
m hlaupi. hástokki, spjótkasti.
4x100 metra boðhlaupi Karlar:
100 m hlaupi, 400 m hlaupi. 800
m hlaupi. kúluvarpi. langstokki
og 4x100 m boðhlaupi |
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1976
31
Lítil knatt-
spyrna er Vík-
ingarnir unnu
Breiöabtik 1:0
EKKI var það burðug knattspyrna, sem Breiðablik og Víkingur
sýndu á Laugardalsvellinum í gærkvöldi í 1. deild. Víkingarnir
voru þó betri aðilinn og verðskulduðu sigurinn I leiknum sem
þeir og fengu, en úrslitin urðu 1:0. Skoraði Eiríkur Þorsteins-
son fyrirlíði Víkings markið á 20. mínútu leiksins.
Völlurinn í Laugardalnum er í mjög
góðu ástandi um þessar mundir,
snöggsleginn og vel fallinn til knatt-
spyrnuiðkana. En það er ekki nóg að
völlurinn sé hvanngrænn og fallegur
þegar veðrið er eins og það var í
gærkvöldi. Sterkur vindur beljaði eftir
vellinum horn í horn og leikmennirnir
voru ekki öfundsverðir af að leika
knattspyrnu í þessu veðri Það var líka
fátt í leiknum sem yljaði áhorfendum
en flest þau tækifæri, sem telja verður
hættuleg urðu við mark Blikanna
Mark sitt skoruðu Víkingar eftir að
hafa sótt upp kantinó hægra megin og
Stefán Halldórsson gaf fyrir markið.
Knötturinn lenti við fætur £iríks á víta-
teigslínunni og loksins (!) þegar hann
skaut að markinu smaug knötturinn á
milli varnarmanna Breiðabliks og í
hornið fjær. Sennilega hafa Blikarnir
fyrir framan Ólaf Hákonarson mark-
vörð byrgt honum sýn, að minnsta
kosti gerði hann ekki tilraun til að
verja
Tíu mínútum síðar átti Óskar Tómas-
son skot að marki Blikanna af aðeins
tveggja metra færi, en Einar Þórhalls-
son stóð á marklínunni og í honum
lenti knötturinn og hættunni var bægt
frá. Bezta tækifæri sitt í leiknum áttu
Breiðabliksmenn í lok fyrri hálfleiksins
er Magnús Þorvaldsson missti knöttinn
kæruleysislega yfir sig eftir mark-
spyrnu og knötturinn barst til Vignis
Baldurssonár sem skaut góðu skoti frá
vítateigshorni, en Diðrik Ólafsson varði
af öryggi. í seinni hálfleik sá undir-
ritaður aðeins einu sinni ástæðu til að
lyfta minnisbókinni Það var er
Víkingar skoruðu mark beint úr horni,
en Guðmundur Haraldsson dæmdi það
ekki gilt, heldur aukaspyrnu á Óskar
Tómasson sem mun hafa stjakað við
Ólafi
Víkingar eru nú komnir með 8 stig í
1 deildinni, hafa aðeins tapað fyrir
Val, en unnið aðra andstæðinga sína.
Standa Víkingar því óneitanlega vel að
vígi en mikið er eftir af mótinu og því
erfitt að spá hvar Víkingar verða í
röðinni Líklegt verður þó að telja að
þeir verði meðal efstu liðanna. Að
þessu sinni eiga miðjumennirnir
Eiríkur og Gunnlaugur mest hrós
skilið, Eiríkur fyrir góða vinnslu og
Gunnlaugur fyrir sendingar sínar og
óvenjumikla oarónu. Helgi Helgason
verður stöðugt sterkari og framlínu-
mennirnir eiga hrós skilið fyrir frammi-
stöðuna í leiknum Þá er rétt að geta
Diðriks Ólafssonar, sem í leikjum
Víkingsliðsins hefur yfirleitt ekki haft
mikið að gera en sýnt öryggi í öllum
sínum aðgerðum
Breiðabliksliðið reyndi oft i þessum
leik að ná upp samspili, en gekk illa
vegna þess hve fljótir Víkingarnir voru
á knöttinn. Auk þess er spil Blikanna
svo alltof þröngt. Þá bætti það ekki úr
skák að Gísli Sigurðsson varð að yfir-
gefa völlinn í leiknum vegna meiðsla,
en hann hefur verið helzti maðurinn í
samleik Blikanna Víkingurinn Ragnar
Gíslason meiddist einnig í leiknum.
Einar Þórhallsson er yfirburðamaður í
liði Breiðabliks, virðist þá ekki skipta
öllu máli hvar hann spilar á vellinum. í
lokin reyndu Blikarnir til að mynda að
senda hann framar á völlinn til að
skora, en ekki tókst það Af öðrum
VÍKINGUR: Dirtrik Ólafsson 2, Ragnar Gíslason 1, Magnús Þor-
valdsson 1, Eirfkur Þorsteinsson 3, Helgi Helgason 3, Róbert
Arnarson 1, Adolf Guðmundsson 1, Gunnlaugur Kristfinnsson 3,
Stefán Halldórsson 2, Óskar Tómasson 2, Jóhannes Bárrtarson 1.
Magnús Bárðarson 2 (varam.).
BREIÐABLIK: Ólafur Hákonarson 3, Gunnlaugur Helgason 2,
Bjarni Bjarnason 1, Einar Þórhallsson 3, Haraldur Erlendsson 1,
Ólafur J’riðriksson 1, Valdimar Valdimarsson 1. Gfsli Sigurðsson
2, Vignir Baldursson 2, Hinrik Þórhallsson 2, Þór Hreiðarsson 1,
Heiðar Breiðfjörð 1.
DÓMARI: Guðmundur Haraldsson 3.
leikmöiinuiTi Sieíðabliks var HeiÖar
Breiðfjörð drjúgur í fyrri hálfleiknum
og Vignir og Hinrik gerðu ýmislegt
laglegt í leiknum
í stuttu máli:
íslandsmótið 1 deild, Laugardalsvöllur
15 júní Víkingur — Breiðablik 1:0
(1:0)
Mark Víkings: Eiríkur Þorsteinsson á
20 mínútu
Óskar Tómasson I baráttu við
Einar Þórhallsson í leiknum í gær,
og hafði Óskar betur eins og sjá
má. Það var þó ekki alltaf sem
Einar varð að láta í minni pokann,
því að hann átti góðan leik á móti
Víkingi. Á minni myndinni sjást
þeir bræður Gunnlaugur og
Helgi Helgasynir, sá fyrrnefndi í
Breiðabliki, en Helgi í Víkingi.
Með Breiðabliki lék Helgi síðast
er liðið lék í 1. deild.
Texti: Ágúst I. Jónsson
Myndir: Friðþjófur Helgason.
Fyrir 17. júní
TRAFFIC BANKASTRÆTI s.»»o
TÍZKUVERZLUN KRAKKANNA