Morgunblaðið - 16.06.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.06.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. JUNÍ 1976 11 Heilbrigðiseftirlitið: Óhófleg upphitun í híbýlum á íslandi ÁRLEGA berst heilbrigðiseftir- litinu mikill fjöldi kvartana og á sl. ári urðu þær alls 319. Var þar m.a. um að ræða kvartanir vegna gallaðra neyzluvara, óþrifnaðar á lóðum, ólvktar, hávaða, frá- rennsla, hollustuhátta á vinnu- stöðum, lélegt íbúðarhúsnæðis, skordýra, rottugangs o.m.fl. Þess- ar upplýsingar komu m.a. fram á fundi með fréttamönnum, sem framkvæmdanefnd heilbrigðis- eftirlitsins efndi til vegna út- komu skýrslu um heilbrigðiseft- irlit. Á fundinum kom einnig fram, að híbýli manna á Islandi eru yfirleitt of mikið hituð með þeim afleiðingum að vanlíðan kemur í stað vellíðunar sem þó mun vera tilgangurinn. Það virð- ist því vera útbreiddur miskiln- ingur meðal íslendinga að unnt sé að vinna upp norðlæga legu landsins og hráslagalegt loftslag með óhóflegri kyndingu sem ger- ir andrúmsloft f híbýlum óhollt og allt of þurrt. Eins og undanfarin ár voru á vegum heilbrigðiseftirlitsins tek- in reglulega sýni af helztu neyzlu- vörum, sérstaklega þó þeim. sem eru viðkvæmastar og hættast er við skemmdum, svo sem af unn- um kjötvörum, salötum, brauð- samlokum og mjólk. Á árinu 1975 fjallaði heil- brigðiseftirlitið um þrjár matar- eitranir. Á fjölmennu móti, sem haldið var i Laugardalshöll, veikt- ust um 1000 manns af matareitr- un af um 1300 þátttakendum. Af þeim urðu svo til allir aðeins lítið veikir og enginn alvarlega. Kjöt- réttur framleiddur og seldur af veitingahúsi hér í borg olli matar- eitruninni. Þá veiktust um 40 manns af matareitrun hjá verk- takafyrirtæki hér í borg og sam- tímis í fangageymslu lögreglunn- ar. Sami kjötréttur olli sýking- unni og var hann framleiddur og seldur af öðru veitingahúsi en því, sem áður var getið. Matareitr- un þessi var einnig væg og gekk fljótt yfir hjá báðum þessum aðil- um. Clostridium Perfringens sýk- illinn var valdur að báðum þess- um sýkingum, og í því skyni að fá upplýst með hvaða hætti hann hefði sýkt matinn, voru ofan- greind mál send yfirsakadómara til frekari rannsóknar. Loks veiktust um .30 manns af taugaveikibróður, eftir að hafa verið í fermingarveizlu hér í borg. Öll matlagning fór fram á heimili Kappreiðar Sindra á laugardag HESTAMANNAFÉLAGIÐ Sindri heldur sínar árlegu kappreiðar nk. laugardag, 19. júní, við Pétursey. Kappreiðarnar hefjast kl. 14 með hópreið hestamanna. Síðan fer fram gæðingakeppni, þar.sem díemt er með spjaldadómum og hver hestur hlýtur fullnaðardóm á einum hring, 600 m löngum. Með þessu fyrirkomulagi á gæð- ingadómum er meira höfðað til sýningar fyrir áhorfendur, þar sem dómur hrossanna gengur mjög fljótt fyrir sig. Þá verður keppt í 250 m skeiði, fyrstu verðlaun eru 7.500 kr., 800 m stökki, fyrstu verðlaun eru 7.500 kr., 300 m stökki, fyrstu verðlaun eru 4.500 kr., 250 m fola- hlaupi, fyrstu verðlaun eru 3.000 kr., og 800 m brokki, fyrstu verð- laun er verðlaunapeningur. Á fiessum kappreiðum Sindra fer einnig fram val gæðinga á Fjóröungsmót sunnlenzkra hesta- manna. Börn, sem hafa verið í reiðskóla hjá Sindra, sýna hesta sína og unglingar, sem taka þátt í gæðingakeppni á fjórðungsmóti, koma fram. Þeir sem hyggjast taka þátt í kappreiðum með kappreiðahross þurfa að tilkynna þátttöku til Jónasar Hermannssonar, Norður- hvammi, sími um Vik, fyrir föstu- dagskvöld, 18. júni. viðkomanda. sem er farmaður. en hráefnið var keypt erlendis og í því fannst taugaveikibróðursýk- illinn. Eftir kröfu heilbrigðiseftirlits- ins var á árinu eytt 810 kílóum af kjötvöru. Eins og undanfarin ár, var aðal- lega athuguð á vinnustöðum loft- ræsiing, hiti, kuldi, aðbúnaður og umgengni. Þar sem ástæða þótti til var reynt að komast að þvi með mælingum, hvort andrúmsloft væri mengað af skaðlegum efn- um, og ennfremur var reynt að fylgjast með, hvort önnur hætta væri samfara efnum, sem unnið var með. Á árinu var, að undirlagi heil- brigðiseftirlitsins, tekin í notkun viðvörunarbúnaður gegn hættu- legum hávaða í einu af samkomu- húsum borgarinnar. Með búnaði þessum (ljóssúlu og ljóskúlu) er reynt að koma í veg fyrir hugsan- legan heyrnarskerðandi hávaða frá hljómsveitum samkomuhúss- ins. Beri þessi tilraun góðan ár- angur, verður eigendum annarra samkomuhúsa bent á þessa úr- lausn. Einnig er þá líklegt, að nefndur viðvörunarbúnaður komi á sama hátt að gagni á vinnustöð- um, þar sem mikill hávaði ríkir. %rtu buxnolous ? oðfullar búðir Gallabuxur Denimvesti Denimtoppar Kúrekaskyrtur Bolir ofl. !$S5?£<8 5f» sS sS 40 LAUGAVEGUR BANKASTRÆTI Sf-21599 SSf-14275

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.