Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 1
36 SIÐUR
145. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Suarez leitar til and-
stöðunnar til stjóm-
armyndunar á Spáni
Sjá einnig bls. 19.
-□
-□
□
□
Madrid, 6. júlí — Reuter.
ADOLFO Suarez, forsætisráð-
herra Spánar, hefur enn ekki tek-
izt að mynda nýja rfkisstjórn, en
Tveir Rússar
út í geiminn
Moskvu, 6. júlí — AP
SOVÉZKIR vfsindamenn
skutu f dag á loft mönnuðu
geimfari, og er talið að geim-
farið verði tengt geimstöðinni
Salyut-5, sem skotið var á loft
22. júnf sfðastliðinn.
Nýja geimfarið nefnist
Soyuz-21, og eru tveir geimfar-
ar um borð f þvf. Þetta er
fyrsta mannaða geimferðin
sfðan f júlf í fyrra þcgar
Bandarfkin og Sovétrfkin
unnu sameiginlega að Apollo-
Soyuz geimferðinni, þegar
geimfarar frá báðum löndum
hittust úti f geimnum.
Soyuz-21 var skotið á loft frá
Baikonur-geimstöðunni í
Kazakhstan, um 2.250 km suð-
austur af Moskvu um hádegið i
dag (ísl. tími), og tókst geim-
skotið með ágætum að sögn
Tass fréttastofunnar sovézku.
Geimfararnir tveir eru Boris
V. Volynov ofursti, sem verið
hefur starfandi við geimrann-
sóknir frá 1960 og stjórnaði
Soyuz-5 í janúar 1969, og Viteli
Zholobov, sem nú fer sína
fyrstu geimferð. Hann er 35i
geimfari Sovétrikjanna.
Talið er að fyrirhugaðar séu
fleiri mannaðar geimferðir frá
Sovétríkjunum á næstunni, en
Bandaríkin áætla engar
mannaðar geimferðir næstu
tvö til þrjú ár.
ráðherrann sór embættiseið sinn
á mánudag og hét þvf þá að hraða
st jórnarmyndun eftir mætti.
Fljótlega eftir að Juan Carlos
konungur skipaði Suarez for-
sætisráðherra á laugardagskvöld,
lýstu fjórir fráfarandi ráðherrar
úr stjórn Ariaz Navarro, þeirra
á meðal Jose Maria de Areilza
utanrfkisráðherra, Manuel
Fraga innanríkisráðherra og
Adolfo Martin Gamero upp-
lýsingamálaráðherra því
yfir að þeir gæfu ekki
Framhald á bls. 20
Yigal Allon utanrfkisráðherra Israels tekur á móti gíslum frá IJganda við komu þeirra heim á sunnudag.
Lengst til vinstri á myndinni er flugstjóri frönsku þotunnar, sem rænt var.
Viðbúnaður í ísrael
hótanir í Uganda
Öryggisráðið beðið að ræða árás ísraela á Entebbe-flugvöll
Sjá einníg bls. 16.
-□
-□
□ —
□ —
Nairobi, Tel Aviv, New York
6. júlt — AP. Reuter.
EININGARSAMTÖK Afríku,
OAU, hafa formlega farið þess á
leit f New York að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna verði kvatt
saman til aukafundar til að ræða
„grófa árás“ tsraels á Uganda
þegar tsrael sendi víkingasveit til
að frelsa 110 gfsla úr höndum
flugræningja á Entebbe-flugvelli
við Kampala um helgina.
Yigal Allon utanrfkisráðherra
tsraels hefur hins vegar ritað
Kurt Waldheim aðalfram-
kvæmdastjóra SÞ bréf þar sem
Allon þakkar tilraunir Wald-
heims til að fá gfslana lausa.
Einnig skýrir Allon Waldheim
frá ástæðum tsraelsmanna fyrir
þvf að vfkingasveitirnar voru
sendar. Efni bréfsins hefur ekki
verið birt.
Idi Amin forseti Uganda hefur
nú opinberlega ásakað vfirvöld f
Kenya fyrir beina aðild að árás
tsraela á Entebbe flugvöll, en
kveðst hins vegar ekki hafa f
huga árás á Kenya f hefndar-
skyni.
í Ísrael er nú mikill viðbúnaður
til að verjast hugsanlegum árás-
um arabiskra skæruliða til að
hefna ófaranna i Uganda. Hefur
komið til tals að koma á dauða-
refsingu við skæruliðastarfsemi
eða flugráni. Sagði Yitzak Rabin
forsætisráðherra í því sambandi
að f hvert skipti sem „morðingi"
væri dæmdur til nokkurra ára
fangelsisvistar, væri aukin hætta
á frekari glæpaafbrotum í til-
raunum við að fá hann lausan.
Rabin benti á mál Japanans
Kozo Okamato í þessu sambandi,
en hann var dæmdur til fangelsis-
vistar fyrir aðild að árás á Ben
Gurion flugstöðina árið 1972. Nú
var hann einn þeirra fanga, sem
flugræningjarnir í Uganda heimt-
uðu að fá lausan. Taldi Rabin
nauðsynlegt fyrir ríkisstjórnina
að fá frjálsari hendur varðandi
dauðarefsingu, sem nú má
einungis beita gegn þeim, sem
standa fyrir þjóðarmorðum á borð
við ofsóknir nasista i Þýzkalandi
Hitlers.
Hann varaði einnig við frekari
árásum í ísrael til að hefna fyrir
Framhald á bls. 20
Súdan slítur stjómmála-
Líbýu
sambandi
Egyptar gefa í skyn að Rússar
styðji Líbýu í árásum á Arabalönd
Khartoum. Súdan, 6. júlí — AP, Reuter.
SUDAN SLEIT í dag stjórnmálasambandi við Lfbýu, og hefur starfs-
mönnum sendiráðs Lfbýu verið tilkynnt að óskað sé eftir þvf að þeir
hverfi allir úr landi innan sólarhrings.
Fylgja þessar aðgerðir f kjölfar þess að Súdan sakaði á mánudag
Lfbýu um að hafa undirbúið misheppnaða stjórnarbyltingu, sem gerð
var f Súdan á föstudag. Lýsti Jaafar Mohammed Nemery forseti
Súdans þvfyfir opinberlegaað Lfbýa hefði séð uppreisnarmönnum
fyrir vopnum, þjálfun í hernaði og fjármunum, til að kosta byltingar-
tilraunina. Skýrði Nemery forseti frá ákvörðuninni um stjórnmálaslit
á útifundi, sem haldinn var f Juba, höfuðborg suðurhéraða Súdans, f
dag.
Forsetinn sagði einnig aó allar
flugsamgöngur milli Súdans og
Líbýu yrðu stöðvaðar, og að flug-
vélum frá Líbýu yrði bannað að
fljúga yfir súdanskt landsvæði.
Á mánudag lýsti Nemery for-
seti því yfir að skæruliðar, þjálf-
aðir í Líbýu, hefðu komið til Súd-
ans til að aðstoða innlendar bylt-
ingarsveitir. Nú hefur TAP-
fréttastofan f Túnis tekió undir
þessi orð forsetans. í frétt í dag
segir TAP að verið sé að þjálfa
fjölda ungra Araba F-’skæruhern-
aði í Líbýu, þeirra á meðal 2.400
manna hóp frá Túnis, og eigi þess-
Nemery.
ir skæruliðar siðan að mynda
kjarna að byltingarsveitum í
heimalöndum sfnum.
TAP segiraðífyrstuhafiyfir-
völd í Líbýu haldið þvi fram að
þjálfunarbúðirnar væru ætlaðar
sjálfboðaliðum, sem vildu berjast
með palestinskum skæruliðum.
Síðar hafi hins vegar komið i ljós
að ætlunin var önnur.
Sambúð Túnis og Libýu versn-
aði mjög fyrr á þessu ári þegar
lögreglan í Túnis skýrði frá því að
hún hefði komizt að samsæri um
að ræna eða myrða Hedi Nouira
forsætisráðherra Túnis, og að að-
gerðir þessar hafi verið skipu-
lagðar í Libýu.
1 dag birti útvarpið í Súdan
viðtöl við nokkra menn, sem sagt
var að væru málaliðar, er tekið
hefðu þátt i byltingartilrauninni
á föstudag. Mennirnir, sem rætt
var við, sögðust hafa fengið þjálf-
un í Libýu, og síðan verið fluttir
til Súdans með vörufiutningabif-
reiðum.
Á mánudag óskaói Súdans-
stjórn eftir því að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna yrði kallað
saman til að ræða ábyrgð Libýu á
byltingartilrauninni í Súdan. I
Framhald á bls. 20
Þrjátíu ríkis-
stjórar styðja
Carter
Hershey —6. júli — AP
AÐ ÞVl er næst verður komizt
lýstu 30 af 36 rfkisstjórum f
Bandaríkjunum, sem eru
demókratar, einróma stuðn-
ingi sfnum við framboð Jimmy
Carters f forsetaembætti og
sendu þeir frá sér ályktun þar
sem heitið er stuðningi og
sameinuðu átaki til að hann
verði kosinn næsti forseti
Bandarfkjanna. Þetta varð
niðurstaða hádegisverðar-
fundar, sem Jimmy Carter
bauð öllum rfkisstjórum
demókrata til I Pennsylvanfu f
dag.
Meðal þeirra fáu, sem ekki
komu til fundarins var
Framhald á bls. 20
Hart barizt
i Líbanon
Nicosia og Beirut, 6. júli — AP. Reuter.
ÓVENJU harðir bardagar hafa
geisað í Lfbanon frá þvf snemma
á mánudag, og hefur fjöldi
manna fallið, bæði úr röðum
kristinna hægrisinna og vinstri-
sinnaðra Palestfnu-Araba og
stuðningsmanna þeirra.
Um átta þúsund manna lið
vinstrisinna og Palestínu-Araba
hóf mikla sókn í norðurhéruðum
landsins, og tókst að sækja inn í
úthverfi borgarinnar Chekka,
sem er í höndum hægrisinna og
Framhald á bls. 20