Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976 7 Svars krafizt — Svar Mbl. Í Reykjavlkurbréfi MorgunblaSsins sl. sunnudag sagSi m.a.: „En þó er margt, sem betur mætti fara, eins og al- kunna er, og enn hvlla glæpamálin svonefndu á þjóSinni eins og mara og mun svo verSa, þangaS til þau hafa veriS upplýst, en i þaS hefur veriS lögS höfuSáherzla hér I blaS inu. aS ekkert verSi til sparaS. svo aS þaS geti orSiS. ÞaS mun þvl miSur veikja tiltrú á réttarfari — og raunar lýSræSi I land- inu — ef glæpamálin upp- lýsast ekki og málalyktii verSa þær, aSenginn botn fæst I þau mál. ViS skul- um vona, aS rannsóknir leiSi til þess, aS öll kurl komi til grafar og mun þá verSa bjartara yfir þjóSllfi íslendinga en veriS hefur. En ef allt situr viS hiS sama, mun fólkiS I land inu fyllast tortryggni og efasemdum I garS þeirra, sem um stjórnvölinn halda og þá verSur erfitt aS telja mönnum trú um, aS einhver hafi ekki „kippt i spottann" eins og svo oft heyrist. þegar talaS er um þessi mál manna á milli." Eins og sjá má af þess- ari tilvitnun I Reykjavlkur- bréf er hér annars vegar um að ræSa áréttingu á fyrri kröfu MorgunblaSs- ins, sem sett var fram I vor I tveimur forystugrein- um I blaSinu um að allt verði gert. sem unnt er til þess aS upplýsa hvarf Geirfinns Einarssonar og; önnur mál, sem þvl kunna að vera tengd og hins vegar undirstrikun á þeim sjónarmiSum. sem áður hafa veriS sett fram I blaSinu þess efnis. að al- menningur I landinu muni fyllast tortryggni og efa- semdum I garS dómsmála- kerfisins, ef ekki tekst að upplýsa þessi mál. Hver einasti maður. sem heyrir og sér, veit, aS þetta er rétt. GeirfinnsmáliS svo- nefnda og fleiri mál, sem meS réttu eSa röngu hafa verið tengd þvl ristir svo djúpt hjá almenningi, að traust og tiltrú fólks til réttarkerfisins er I veði. Ætla mætti. að allir ábyrgir menn gætu sam- einast um þessi sjónarmið og sameinast um stórátak til þess aS upplýsa þessi sakamál. sem hvlla eins og mara á þjóSinni. En nú bregSur svo viS. að Þórar- inn Þórarinsson, ritstjóri Tlmans ræðst meS offorsi á MorgunblaSið vegna til- vitnaðs kafla I Reykjavlk- urbréfi og sakar Morgun- blaðið um dylgjur og róg I garS Ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra. Þann- ig segir Þórarinn Þórarins- son I þættinum „Á viða- vangi" I Tlmanum I gær: „Þessar dylgjur höfundar Reykjavlkurbréfsins verða vart skildar öSruvlsi en aS veriS sé að ýta undir þann róg. sem nokkrir stjórnar- andstæðingar hófu á sl. vetri, aS Ólafur Jóhannes- son dómsmálaráSherra reyni með einum eSa öSr- um hætti að torvelda rannsókn umræddra mála. MeSan ritstjórar Morgunblaðsins taia ekki skýrara máli. verSa þessar dylgjur blaðs þeirra ekki skildar á annan veg. Séu þeir hér hafSir fyrir rangri sök, geta þeir gert nánari grein fyrir þvl I blaSi slnu, hvað þeir eru raunveru- lega aS fara og aS hverj- um þessar dylgjur þeirra beinast. Án sllkra skýr inga verSur ekki annaS ályktað. en aS hér sé veriS að hrinda af stokk- unum einni rógsherferS- inni enn á hendur dóms- málaráðherra." Um þessi viðbrögS Þórarins Þórarinssonar viS nefndri klausu I Reykjavikurbréfi, verSur ekki annað sagt en að þau einkennast af taugaveikl- un — furSulegri tauga veiklun. MorgunblaSiS hefur hvorki nú né fyrr haft uppi dylgjur I garS Ólafs Jóhannessonar — og þaS veit Ólafur manna bezt. MorgunblaSiS hefur ekki staSiS fyrir, ýtt undir né tekiS þátt I rógsherferS! á hendur Ólafi Jóhannes- syni, en blaSið hefur rætt fyrrnefnd mál frá öllum hliSum — MÁLEFNA- LEGA. ÁburSi Tlmarit- stjórans um þessi efni er hér með vlsað heim til föðurhúsanna. Morgun- blaðið hefur hins vegar sett fram kröfu um, að einskis verSi látiS ófreist- aS til þess að upplýsa Geirfinnsmálið og önnur! umrædd sakamál. Morgunblaðið fær ekki séð. hvernig hægt er aS túlka sllka kröfu sem dylgjur eSa rógsherferð á hendur dómsmálaráð- herra, sem sjálfur hefur lagt rlka áherzlu á. aS mál þetta verði upplýst og I þvi skyni ItrekaS efnt til fundar með þeim. sem að rannsókn málsins vinna. boðiS fram alla þá aðstoð, sem dómsmálaráSuneytið geti I té látið, þ.á m. fjölg- un rannsóknarmanna. Morgunblaðið hefur oftar en einu sinni látið I Ijós þá skoSun, aS verSi mál þetta ekki upplýst, muni þaS grafa undan tiltrú al- mennings á dómsmála- kerfið. MorgunblaSiS fær ekki séS hvemig hægt er aS túlka það sjónarmiS sem dylgjur eSa róg um dómsmálaráSherra. Fár- ánlegt orSaskak af þvl tagi. sem Tlminn hefur efnt hér til af engu tilefni. er út I hött, Meiri ástæða er til. aS MorgunblaSiS og Tlminn og önnur dagblöð leggi sitt lóS á vogarskál- ina til þess aS sakamálin, sem hvlla svo þungt á þjóSinni, sem raun ber vitni um, verSi upplýst og andrúmsloftiS I samfélagi okkar þar með hreinsaS. Þá segir Tlmaritstjórinn I nefndum þætti: „Þessar dylgjur MorgunblaSsins eru enn alvarlegri fyrir þá sök, aS þær eru bornar fram I blaSi forsætisráS- herra. Hve lengi ætlar for- sætisráðherra aS þola málgagni slnu sllkar dylgj- ur um meSráSherra sinn. eSa eru þær ef til vill mat- reiddar með vitund hans og vilja?" Hér er um svo ómerkilegan áburS aS ræSa. að I raun og veru er hann tæpast umræðu- verSur. En af þessu tilefni er þó ástæSa til að undir- strika eftirfarandi: Rit- stjórar MorgunblaSsins bera einir ábyrgS á efni blaðsins, skrifum og stefnumótun. Þeir eru til þess ráðnir af útgáfu- stjóm Morgunblaðsins. sem forsætisráðherra er formaður fyrir, en það er áratuga gömul hefS. aS útgáfustjóm Morgun- blaSsins hefur engin af- skipti af ritstjórn þess né einstökum málum. Þetta virSast Framsóknarmenn eiga afar erfitt meS aS skilja, enda gefur flokkur þeirra út dagblaðiS Tlm- ann og samskiptum blaSa- stjómar Tlmans og rit- stjóra þess blaSs mun hagaS með öSrum hætti en ofangreindum sam- skiptum útgáfustjórnar MorgunblaSsins og rit- stjóra þess. Keflavík Til sölu 3ja herb. íbúðir í smíðum við Vestur- braut. Afhendast í haust fokheldar, tilbúnar undir málningu að utan og með tvöföldu verk- smiðjugleri og útihurðum. Allt sér. Fasteignasala, Vilhjálms og Gudfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavík, símar 1263 — 2890. Kðldársel Nokkrir drenqir komast í tveqqja vikna dvöl trá 10—24. ágúst. Upplýsingar á skrifstofu K.F.U.M. og K., Hverfisgötu 1 5, Hafnarfirði, á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 5 — 6. Sími 53362. Kaldætingar K.F.U.M. Nvkomið Póstsendum Skóverzlun Þórðar Péturssonar, Kirkjustræti 8, v/Austurvöll, sími 14181.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.